Dagur - 13.05.1964, Qupperneq 8
8
Nemendatónleikar á Akureyri
Nemendur og kennarar Undirbúningsdeildar tækniskólans á Akureyri við skólauppsögn í vor.
Undirbúningsdeild tækniskólans á Akureyri
* stárfaði í fyrsta sinn síðastliðinn vetur
UNDIRBÚNINGSDEILD tækni
skóla á Akureyri var slitið sl.
laugardag 9. maí. Hún starfaði
í fyrsta sinn í vetur, á vegum
Iðnskóla Akureyrar á sama
grundvelli og sams konar deild,
sem haldið hefur verið uppi nú
í tvo vetur á vegum Vélskólans
í Reykjavík. Prófkröfur eru mið
aðar við inntökuskilyrði í
danska tækniskóla og námsefni
og próf við það sniðin.
Skólastjórinn, Jón Sigurgeirs-
son kvaddi nemendur og lýsti
starfinu í vetur. Aðalkennari
var Aðalgeir Pálsson, rafmagns-
verkfræðingur, en auk hans og
skólastjóra kenndu Aðalsteinn
Jónsson verkfræðingur og Skúli
Magnússon gagnfræðaskóla-
kennari. Deildin starfaði frá 1.
október til aprílloka. Skólastjóri
þakkaði Alþingi, menntamála-
ráðherra, bæjarstjórn Akureyr-
ar og öðrum, sem stutt hafa að
því að deildinni var komið á
fót, ekki sízt Sveinbirni Jóns-
syni byggingameistara, sem hef
ur látið sér mjög annt um þetta
mál og stutt það á margan hátt.
Að lokum ávarpaði skólastjóri
nemendur og þakkaði þeim sam
stilltan vilja og átak til að starf-
ið færi vel af stað þegar á fyrsta
starfsári, en slikt væri afar mik
ilsvert.
Undir prófið gengu 15, þar af
1 utanskóla og hlutu allir til-
skilda meðaleinkunn, en einn
skorti lítið eitt á lágmarkseink-
unn í stærfræðigreinum. Hæstu
(Framhald á blaðsíðu 4).
HINIR árlegu nemendatónleik-
ar Tónlistarskólans verða næst-
komandi laugardag og sunnu-
dag. Tónleikarnir á laugardag-
inn verða í Lóni og hefjast kl.
5 e. h., en tónleikarnir á sunnu-
dag verða í Borgarbíó og hefj-
ast kl. 8.30 e. h. Aðgangur að
tónleikunum á laugardaginn er
ókeypis, en aðgöngumiðar að
tónleikunum á sunnudaginn
verða seldir við innganginn.
Á tónleikunum á laugardag-
inn koma fram yngri nemendur
skólans og leika á píanó, fiðlu
og orgel. Þá leikur einnig fiðlu-
sveit með píanóundirleik.
Á tónleikunum á sunnudag-
inn koma fram nokkrir eldri
nemendur skólans og leika ein-
leik á píanó. Meðal þeirra er
fyrsti píanónemandinn, Jóhann
Vigfússon, sem útskrifaðist frá
skólanum og er hans hluti í tón
leikunum all veigamikill og um
leið þáttur í lokaprófinu. Eru
Hefja þarf virkjunarframkvæmdir fljótt
„ÚR DAGBÓK LÍFSINS“ SÝND Á FÖSTUDAG
ÞRÍR ÖLVAÐIR
UM síðustu helgi tók lögreglan
á Akureyi'i enn þrjá menn fasta
fyrir meinta ölvun við akstur. □
Gunnar Eyjólfsson og Þórey Aðalsteinsdóttir í hlutverkum
Galdra-Lofls og Dísu. (Ljósm. Edv. Sigurgeirss.).
Nú í haust er ráðgert að Ijúka
við stækkun varastöðvarinnar á
Akureyri um helming þannig,
að hún verður þá 4000 kw.
Þar sem frekari næturhitun
vei'ður ekki leyfð, þá má gera
ráð fyrir því að eftir 3 ár verði
dagálagið komið upp fyrir næt-
urálagið, og ef reiknað er með
svipaðri aukningu og undanfar-
in ár, þá má gera ráð fyrir að
álagið verði kohiíð upp í rúm
16000 kw. 1968 til 1969, en það
þýðir að allar vélar virkjananna
við Laxá, ásamt vélum vara-
stöðvarinnar á Akureyri, verði
þá fullnýttar á mesta álagstíma.
Hverjar ráðagerðir eru helztar
uppi?
Unnið hefur verið að áætlun-
um um áframhaldandi virkjanir
við Laxá og er gert ráð fyrir
því, að áætlun um fullvirkjun
Laxár í S.-Þingeyjarsýslu verði
tilbúin mjög bráðlega. Það má
geta þess hér, að í flestum til-
lögunum um fullvirkjun Laxár,
er gert ráð fyrir því að reisa
stóra stíflu ofarlega í gljúfrun-1
um, sem yrði endanlega um 30
m. há. Þannig fæst miðlunar-
geymir, sem rúma myndi um 31
millj. rúmmetra. Það má gera
ráð fyrir því, að truflanir af
völdum kraps ofar í ánni myndu
að mestu hverfa eftir- að þessi
stífla hefur verið gerð.
Samkvæmt þeim áætlunum,
.sem þegar liggja fyrir um full-
virkjun Laxái', er gert ráð fyrir
því að áin geti gefið, eftir að
aukning á vatnsmagni hennar
hefur verið framkvæmd, um
700 millj. kwst. í meðal vatns-
ári og virkjanlegt afl í henni
er talið um 140 þús. kw.
Til fróðleiks má geta þess, að
árleg aukning aflþarfar á öllu
landinu næsta áratuginn mun
vera um 8—10 þús. kw., en sam
anlagt afl rafveitna á landinu
mun nú vera um 150 þús. kw.
og orkuvinnslan orðin um 650
millj. kwst. Eftir 10 ár mun því
(Framhald á blaðsíðu 5).
Margt er áfátt í uppeldismál-
um okkar síðan meiri hluti þjóð
arinnar fór að búa í þéttbýli. —
Hugsjónamenn, sem sjá hvar
skórinn kreppir, beita sér fyrir
ýmsum endurbótum á uppeldi
æskunnai'. Barnaverndarsamtök
in safna fé fyrir hæli handa
taugaveikluðum börnum. En
einn áhugasamur einstaklingur
hefur látið gera kvikmynd til að
minna á vanrækt börn og safna
fyrir uppeldisheimili handa
þeim. — Ákveðið hefur verið að
sýna kvikmyndina „Ur dagbók
lífsins" hér í Borgarbíó á föstu-
daginn. Magnús Sigurðsson,
skólastjóri í Hlíðarskóla í Rvík,
hefur látið gera myndina og
sýnt hana víða á Suður- og Vest
urlandi. Hefur hún hvarvetna
fengið ágætar viðtökur. — Eins
og kunnugt er gengur ágóði af
þessum kvikmyndasýningum í
sérstakan sjóð, sem biskupsskrif
stofan varðveitir, og á að ganga
til uppeldisheimilis fyrir van-
rækt og foreldralaus börn. Með
því hyggst forvígismaður þessa
mikilvæga máls að vinna nauð-
synlegt björgunarstarf á réttum
tíma. — Kvikmyndin sýnir raun
hæfar myndir úr ævi þessara
vanræktu barna. Er það athygl-
isverð hugvekja og mun eflaust
vekja til umhugsunar um þetta
vandamál. — Þá lætur Magnús
Rafveitustjórinn á Akureyri svarar nokkrum
spurningum um rafmagnsmálin
söfnunarbók fylgja myndinni,
og gefst þeim, sem þess óska,
tækifæri til að rita nafn sitt í
hana og styrkja þetta málefni
með því að láta af hendi rakna
minnst 50 krónur. — Hér er um
mikilvægt uppeldismál að ræða.
En við íslendingar erum langt
á eftir nágrannaþjóðum okkar
um uppeldi vanræktra barna. —
Þess er vænzt að kvikmynd þess
ari verði vel tekið hér á Akur-
SAGA rafórkumálanna hér á
landi sýnir hina ört vaxandi
þörf nýrra virkjana. Og eins og
ástatt er nú, er rafmagnsskortur
yfirvofandi í landinu, bæði hér
á Norðurlandi og á Suðurlandi,
ef ekki verður hafizt handa og
ný orkuver byggð á næstu ár-
um. Umræður um stóriðju hér
á landi og von manna um, að í
sambandi við hana og erlent
fjármagn fengist hagkvæm
lausn málsins, hafa beint sjón-
um manna fram hjá þeim leið-
um, sem til þessa hafa verið
farnar. Jafnhliða hafa svo kom
ið fram hugmyndir um lands-
veitu, þar sem orkuver norðan
og sunnan yrðu saman tengd.
En aðrir telja héraðsrafveitur á
ýmsum stöðum hagkvæmari
enn sem komið er.
Dagur sneri sér til Knuts
Otterstedt rafveitustjóra á Ak-
ureyri og bað hann að svara
nokkrum spurningum um þessi
mál, sem hann góðfúslega gerði
á eftirfarandi hátt:
Stærð Laxárvirkjunar og orku-
svæðisins?
Laxárvirkjun í S.-Þing er
12560 kw. að stærð og auk þess
er toppstöðin á Akureyri 2000
kw.
Orkusvæði Laxárvirkjunar
nær í dag yfir kaupstaðina Ak-
ureyri og Húsavík, auk þess
Dalvík, Hrísey, Hjalteyri, Sval-
barðseyri og Grenivík og raf-
væddar svitir Eyjafjarðar- og
S.-Þingeyjarsýslu, allt austur á
Tjörnes og suður til Mývatns-
sveitar.
Framleiðsla Laxárvirkjunar
var árið 1960 um 51,9 millj.
kwst., en árið 1963 um 65,2
millj. kwst., þar með talin fram
leiðsla varastöðvar tæpar 0,2
millj. kwst. Aukningin á þessum
árum hefur því orðið um 25%
eða rúm 8% á ári. Mesta álag á
orkusvæðinu var árið 1960 um
11650 kw. næturálag, en dagálag
ið var þá um 10200 kw. Árið
1963 urðu tilsvarandi tölur um
13100 kw. næturálag og dagá-
lagið um 11640 kw.
Ný næturhitun hefur ekki
verið leyfð á Akureyri síðústu
2 árin, þannig að eklci er gert
ráð fyrir því, að næturálag á
orkusvæðinu vaxi verulega hér
eftir.
Hve lengi geturn við beðið »ýrr-
ar virkjunar?
Eins og sézt af þessum tölum,
þá er toppálag á orkusvæðinu
orðið meira heldur en ástimpl-
að afl vélanna við Laxá, þannig
að dísilstöðin á Akureyri er nú
einnig orðin toppstöð fyrir orku
verin við Laxá.
þessir tónleikar því merkur við-
burður í starfssögu skólans. Jó-
hannes er nemandi Kmtins
Gestssonar og mjög efnilegur
nemandi.
Þess er að vænta að tónleik-
arnir verði fjölsóttir og að áheyr
endur sýni hinu unga fólki að
þeir vilji fylgjast með stai'fi
þess og námsárangri. □
t■ ' ..................
F.U.F. FÉLAGAR
Á AKUREYRI
MUNIÐ síðdegisfundinn að
Hótel KEA, laugardaginn 16.
niaí kl. 4 e. h. — Haraldur
Sigurðsson íþróttakennari
mun ræða um framtíðar-
skipulag íþróttamála í bæn-
um.
Kaffidrykkja.
Félagar fjölmennið og tak-
ið með ykkur gesti. □
1------ ->