Dagur - 08.07.1964, Page 7

Dagur - 08.07.1964, Page 7
T - Gamla úfgerðSn á Láirum f (Framhald af blaðsíðu 5). þegar hann ætlaði að hætta, sá hann stóran fisk á leiðinni upp. „Ég má til að ná þessum,“ sagði Þórður. Svona gekk þetta. Var þetta góður róður. Þegar búið var að draga var sett stefna á Þorgeirsfjörð. Þórður hitaði kaffi, en við gerðum að fiskin- um. Svo lauk Þórður sínum er- indum, en við biðum eftir hon- um. Þegar hann kom um borð var klukkan 3 á sunnudag. Vor- um við þá búnir að vera á ann- an sólarhring í róðrinum. Þegar við komum að Gjögrum, kom Fáfnir á móti okkur. Var hann að leita að okkur, því fólkið heima bjóst ekki við þessum krók, sem við fórum með lín- una. Svo gott samkomulag var í verstöð þessari, að ég man ekki til að nokkur misklíð kæmi upp á milli manna. Það var einstakt samkomulag. Það var siður hjá þessum útgerðum, að halda veizlu á lokadag, í húsum- sín- um þar á Látrum, og eru mér þær minnisstæðar, og held ég, að ég muni ávörp Þórðar til fólksins. Skal ég setja hér byrj- un á einu: „Heil og sæl öll. Við erum komin hér saman, ekki til að fagna því, að við höfum fengið fleiri þorska og ýsur á þessari vertíð en oft áður, heldur til að fagna því, að allir eru hér heil- ir og hraustir og allir hafa heil- (Framhald af blaðsíðu 1) Kristjánsson, Nesi í Fnjóskadal, kynntu starfsíþróttir. Stefán Ág. Kristjánsson, forstjóri, flutti er- indi um skaðsemi áfengis og tóbaks. Sr. Benjamín Kristjáns- son flutti hugverku um gildi íþrótta. Stefán Kristjánsson íþróttakennari úr Reykjavík, flutti einnig erindi og sýndi kvikmyndir. — Matreiðslu önn- uðust þrjár konur af Akureyri. Framkvæmdastjóri UMSE, Þóroddur Jóhannsson, sá um undirbúning að sumarbúðunum. Aðstaða til sumarbúðastarfs á ----------------------------- Búrhveli rak á land UM síðustu mánaðamót rak búrhveli á fjörur undir Vestur- Eyjafjöllum, stóra og mikla skepnu. Hvalurinn var lifandi, er hann renndi sér þarna upp. Ekki þótti svara kostnaði að senda hvalinn í Hvalstöðina. Hinsvegar komu bændur á vett- vang til að nýta eitthvað af hvalnum, vopnaðir sveðjum eða ljáum til hvalskurðarins. Spik og rengi er súrsað. □ ir af sjónum , komið með báta sína og menn, og þakka ég sér- staklega lítið veiðarfæratjón.“ Svona voru þessir menn í garð fólksins, sem hjá þeim var. Á ég engin orð til að lýsa mann kærleika þessa fólks, sem sat Höfða og Kljáströnd á þessum árum. Nú mún véra farið að skarða í þennan hóp', sem tók þátt í út- gerðinni í Valhöll, en svo hétu verbúðir þeirra á Látrum. Mun nú Olafur einn á lífi af þessum útgerðarmönnum. Og af börn- um Baldvins er Nanna ein á lífi. Af börnum Þórðar Þengill og Guðrun, eða Gauja, sem við kölluðum. Af börnum Olafs veit ég aðeins um Baldvin, og af börnum Sigurðar Ringsteð um Sigurð Ringsteð. Árið 1925 kom ég á þessar slóðir. Voru þá þessar útgerðir fluttar frá Látrum heim að Höfða og Kljáströnd, þá skiptar að nokkru. Þórður með bátana Fáfni og Víking, Björn með Njörð og Helgi með Óðinn. Bát- ar Higurðar Ringsteð og Ólafs hétu Þengill og Hallsteinn. Nú er farinn að þynnast sá hópur, sem vann við útgerðína á Látrum og í Þorgeirsfirði. — En þið, sem unnuð þarna lengi. Takið ykkur nú til og skrifið bók um þessa útgerð. Látraút- gerðin og Valhöll eiga það skil- ið. □ Laugalandi er mjög góð og naut Ungmennasambandið þar sér- lega góðrar fyrirgreiðslu á allan hátt. Húsmæðraskólinn, sund- laugin, íþróttavöllurinn, félags- heimilið, allar voru þessar stofn anir lánaðar með fúsum og glöðum vilja. Segja má, að þessi fyrsta til- raun UMSE með sumarbúðir hafi tekizt vel. Þátttaka-nær 60 ungmenna sýnir að augu al- mennings eru að opnast fyrir gildi jþróttaiðkana. Ekki endi- lega sem keppnisgreina, heldur miklu fremur sem holl og skemmtileg tómstundaiðja. Sá stutti tími, sem unga fólk- ið átti saman, í þessum sumar- búðum, undir góðri stjórn og aga agætra manna, var mjög ánægjulegur, enda voru þátt- takendur prúðir og áhugasamir. Veðurfar reyndist-líka hagstætt. í lok námskeiðsins var öllum afhent þátttökuskírteini. Ungmennasamband Eyjafjarð ar biður blaðið fyrir kærar þakk ir til allra þeirra, sem stuðluðu að framgangi þessa sumarbúða- starfs. □ MOSAFRÆÐINGAR FYRIR skömmu voru á ferð í Kinn þrír grasafræðingar, Helgi Hallgrímsson, Borgþór Jónsson og dr. Steer. Var kona hins síð- ast nefnda með í för. Ætlunin var að fara út í Víkur, ásamt Helga bónda og grasafræðingi á Gvendarstöðum. — Fara þarf fjörur, sem ekki eru færar, nema þegar lágsjávað er. Stóð illa á sjó, er að var komið. Var þá farið í Nýpá og valin Fjalla- baksleið, sem er töluvert löng. Skall nú þoka á og síðan rign- ing. Helgi bóndi á Gvendarstöð- um fylgdi gestum á leið. En það er af ferðafólkinu að segja, að það sneri við áður en langt var komið, nema Helgi Hallgríms- son, sem fór alla leið og gisti þar í skipsbrotsmannaskýli og kom í Gvendirstaði kvöldið eft- ir. í leiðangri þessum voru eink um skoðaðar hinar ýmsu tegund ir mosa. □ i -.. i— , ..... ........ — - Samvimiutryggingar (Framhald af blaðsíðu 8). hófu að endurgreiða tekjuaf- gang árið 1949 hafa þær sam- tals endurgreitt hinum tryggðu tekjuafgang, sm nemur 51,7 millj. kr., auk bónusgreiðslna til bifreiðaeigenda. Iðgjaldatekjur Líftrygginga- félagsins Andvöku námu kr. 2.326.000,00 árið 1963, sem var 14. reikningsár þess. Trygginga- stofn nýrra líftrygginga á árinu nam kr. 6.642.000,00 og trygg- ingastofninn í árslok krónur 103.902.000,00. Trygginga- og bónussjóðir námu í árslok tæp- um 25 millj. króna. Á árinu var opnuð ný um- boðsskrifstofa á Akranesi, og veitir Sveinn Guðmundsson fyrrv. kaupfélagsstjóri henni forstöðu. í lok ársins festu Samvinnu- tryggingar kaup á tveimur hæð- um í nýju skrifstofuhúsi að Ár- múla 3 í Reykjavík, og munu félögin flytja aðalskrifstofur sínar þangað á þessu ári. Ur stjórn áttu að ganga ísleif- ur Högnason og Kjartan Ólafs- son frá Hafnarfirði, sem baðst eindregið undan endurkjöri. Kjartan hefur verið í stjórn fé- laganna frá upphafi, og færði stjórnarformaður honum sér- stakar þakkir fyrir stöi-f hans í þágu félaganna. ísleifur HÖgnason var endur- kjörinn og í stað Kjartans var kjörinn Ragnar Guðleifsson, Keflavík. Á aðalfundinum flutti Baldvin Þ. Kristjánsson, útbreiðslu- stjóri, erindi um félagsmál. Að loknum aðalfundinum hélt stjórnin fulltrúum og allmörg- um gestum úr Austfirðinga- fjórðungi hóf að Hallormsstað. Stjórn félaganna skipa: Er- lendur Einarsson, formaður, ís- leifur Högna.son, Jakob Frí- mannsson, Karvel Ogmundsson og Ragnar Guðleifsson. Framkvæmdastjóri félaganna er Ásgeir Magnússon, en auk hans eru í framkvæmdastjórn Jón Rafn Guðmundsson og Björn Vilmundarson. □ MESSAÐ í Akureyrarkirkj u á sunnudaginn kemur kl. 10,30 árd. Sálmar nr. 9, 58, 132, 314 og 97. — P. S. MESSAÐ í Lögmannshlíðar- kirkju kl. 2 síðd. á sunnudag- inn. Sálmar nr. 9, 58, 132, 314 og 97. — Bílferð úr Glerár- hverfi til kirkjunnar. — P. S. MÖÐRUV ALL AKL AUSTURS- PRESTAKALL. Messað í Glæsi - bæ sunnudaignn 12. júlí kl. 2 e. h. Ágúst Sigurðsson predik ar. — Sóknarprestur. GUÐSÞJÓNUSTUR í Grundar- þingaprestakalli. — Saurbæ sunnudaginn 12. júlí kl. 1,30 e. h., Grund sunnudaginn 12. júlí kl. 3 e. h., Kaupangi sunnudaginn 19. júlí kl. 2 e. h. BRIDGE. — Frá Bridgefélagi Akureyrar. — Sumarmót Bridgesambands fslands hefst í Bifröst í Borgarfirði 28. ág- úst n. k. Vegna mikillar þátt- töku er nauðsynlegt að þeir félagar, sem óska eftir fyrir- greiðslu um útvegun á hótel- herbergi mótsdagana, hafi samband við stjórn félagsins, sem fyrst. — Opið verður í Lóni á Þriðjudögum framveg- is. — Stjórnin. SÓL 0G SUMAR í KINN Ófeigsstöðum 6. júlí. Sól og sum ar þessa dagana, heyskapur haf- inn og byrjað að taka inn töður. Spretta er sæmileg á túnum, eirikum þar, sem þau voru ekki beitt í vor. En sprettan er sögð minni í hásveitum. Tíðindalaust má heita í byggð en legið á grenjum í óbyggðum en fá greni fundin, nema í Náttfaravíkum. Dýrbítur er hér enginn. Fimm laxar hafa veiðst í Skjálfanda- fljóti. Lítið er talað um launa- skáttinn nýja, en þess meira um skatta bænda til Stofnlána- deildarinnar. Hertoginn kom hér ekki við og þótti ýmsum miður. Fátt er um ævintýri, þar til smalað verður til rúnings, en þá njóta menn þess margir, að virði fyrir sér þau undur náttúrunnar, sem ekki blasa daglega við augum. B. B. NÝ LÖC UM LAUNA- SKATT STAÐFEST SÍÐASTA dag júriímánaðar stað festi forseti íslands bráðabirgða lög um launaskatt. Samkvæmt þeim skulu launagreiðendur greiða 1% af greiddum vinnu- launum. Rennur skattur þessi til Byggingarsjóðs ríkisins, sem stofnfjárframlag. Hin nýju lög eru í samræmi við loforð ríkis- stjórnarinnar frá 5. júní s.l. við Alþýðusambandið, er kjaramál- in voru leyst. Skatturinn er greiddur af hvers konar atvinnu tekjum, öðrum en tekjum af landbúnaði. Þá jók ríkisstjórnin niðurgreiðslu á mjólk til neyt- enda, sem svarar 40 aurum á lítra. Lækkaði mjólkin í verði, sem því nam, frá 1 júlí s.l. Q I.O.G.T. Stúkan Ísafold-Fjall- konan nr. 1. — Fundur að Bjargi fimmtudaginn 9. júlí kl. 8,30 e. h. — Fundarefni: Vígsla nýliða, innsetning em- bættismanna. — Kaffi í Skíða hótelinu að fundi loknum. —■ Æ. t. KVÖLDFERÐ á fimmtudag! — Hringferð um Eyjafjörð. Far- ið fram í Leyningshóla. Lagt af stað frá Lönd & Leiðir kl. 8,30. — Þátttaka tilkynnist fyrir kl. 6 á fimmtudag. FERÐAFÉLAG AKUREYRAR efnir til þriggja ferða á næst- unni. Sjáið nánar augl. í blað- inu í dag. SKÍÐAHÓTELIÐ HLÍÐAR- FJALLI. Opið daglega fyrir gistingu og greiðasölu. Borð og matpantanir í síma um 02. — Hótelstjóri. Happdrætti Félags- heimilis Húsavíkur DREGIÐ var ií ferðahahhdrætti Félagsheimilis Húsavíkur hjá bæjarfógeta Húsavíkur, mið- vikudaginn 17. júní 1964. Vinn- ingar féllu á númer, sem hér segir: Nr. 6571 Bifreið að eigin vali fyrir atll að kr. 120.000,00. Nr. 1926 Ferðalag fyrir tvo með SÍS-skipi til Evrópuhafna kr. 12.000,00. Nr. 1030 Hringferð um landið fyrir tvo með Ríkisskip kr. 4.700,00. Nr. 4286 og 6836 Ferðalag fyr- ir tvo með flugvél, Húsavík— Reykjavík—Húsavík kr. 2.150,00 Nr. 714, 5727, 5815, 6503 og 8651 Ferðamyndavélaiv Nr. 1357, 1506, 7214, 7701 og 9909 Ferðasjónaukar. Nr. 5675, 6635, 7658, 9521 og 9977 Ferðatjöld 4/m. Nr. 3758, 4754, 5008, 5485 og 5691 Ferðatjöld 3/m. Nr. 2248, 2548, 3111, 4776 og 7430 Ferðavindsængur. Nr. 2257, 4997, 7908, 8769 og 9324 Ferðasvefnpokár. Nr. 121, 122, 2050, 2051, og 9482 Ferðabakpokar. Nr. 1613, 2157, 4108, 4109 og 4242 Ferðatöskur. Nr. 1602, 2211, 3071, 7104 og 9206 Ferðaprímusar. (Birt án ábyrgðar). Apaskinnsjakkar Skinnjakkar Sumarpeysur kr. 122.00. Skyrtublússur kr. 252.00. MARKAÐURINN Sími 1261 í Mítiar innilegustu þakkir sendi ég ykkur öllum. sem glöddu mig með lieimsóknum, gjöfum, blórnum og heillaóskum á sextugsafrncelinu, þann 29. júní s.l. Lifið heil. Rósa Sveinbjarnardóttir H leiðargarði «í- - Sumarbúðir UMSE

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.