Dagur - 25.07.1964, Blaðsíða 1
Dagur
kemur út tvisvar í viku
og kostar 20 krónur á
mánuði.
i--.....•..-... ....^
t—............. ........... ?
Dagur
Símar:
1166 (ritstjóri)
1167 (afgreiðsla)
........... ■■
ÍS VIÐ KOLBEINSEY [
ÞEGAR togarinn Harðbakur =
kom úr síðustu veiðiferð sinni \
s.l. miðvikudag urðu skipverj- =
ar varir við mikla ísbreiðu of- 5
an og vestan við Kolbeinsey. 1
Sigldu þeir um IV2 klst. með- =
fram ísnum, sem virtist vera \
samfelldur á stórum svæðum. \
Norður og norðvestur af =
Grímsey sáust nokkir ísjakar \
á hraðri leið austur. □ =
SJOREKIN SPREK
ORÐIN LISTAVERK
Á MIÐVIKUDAGSMORGUN
hafði 17 sérkennilegum lista-
verkum verið komið fyrir í veit-
ingastofu templara að Varðborg
á Akureyri.
Það eru sjórelcnar fjalir, eða
sprek með rúnaristum af ára-
og áratuga volki í söltum sjó og
myndum frú Sólveigar Eggerz
listmálara.
Hjúkrunarkonur og nemar í dagstofu nýja hjúkrunarkvennabústaöarms a Akureyri, Systraseii.
Þetta mun algerlega nýtt í
heimi myndlistarinnar. Kvistir,
sveipir og æðar trésins er auð-
ugt af myndum. Náttúran og
listakonan hafa hér átt skemmti-
legt samstarf, með hóflegri
notkun olíulitanna. Svipaðar
myndir frúarinnar, sem um
þessar mundir eru á sýningu í
Reykjavík, seldust þegar í stað.
Myndirnar í Varðborg eru einn-
ig til sölu. — Það er ómaksins
vert fyrir almenning 'að líta á
þessar myndir, sem frúin kallar,
„gengið á reka“. □
Nýr hj úkrunarkvennabústaður, Systrasel,
vígður á Akureyri
Á MIÐVIKUDAGSKVÖLDíÐ
var fréttamönnum og ýmsum
öðrum boðið að skoða nýjan
hjúkrunarkvennabústað við
Fjórðungssjúkrahiisið á Akur-
eyri, sem verið er að taka í
notkun.
Er hér um að ræða 580 m2
Fann ekki Hvalvatn!
Hvalvatn í Hvalvatnsfirði, sem á Herforingja-
ráðskortinu er merkt, sem stöðuvatn, er horfið
Helgi Hallgrímsson grasafræð-
ingur á Akureyri, sem er nýlega
kominn heim úr grasaleiðangri
í Fjörðu, hefur skýrt blaðinu
frá eftirfarandi:
Þau undur hafa skeð að hið
mikla vatn, sem þar var og
sennilega hefur hlotið nafn sitt
af göngu hvals upp í vatnið og
var samkv. korti um 1.5 fer-
kílómetrar, er ekki lengur til.
Eftir er aðeins örgrunnt lón út
við malarkambinn og þar í djúp
ur áll, sem áin Kaðla fellur í.
Vatnið var áður orðið grunnt af
Engin síld til Dalvíkur
Dalvík 24. júlí. Engin síld hefur
borizt hingað til söltunar í sum-
ar. Atvinna hefur skapast vegna
dágóðs ufsaafla. Síðan í byrjun
júní hafa veiðst 600 tonn af ufsa
og er hann flakaður og frystur
til útflutnings og það fyrsta af
honum komið á markað.
Stangveiðifélagið Fossar á
Dalvík gekkst fyrir því að fá
laxaseyði í Svarfaðardalsá og
var 5000 alilaxaseyðum sleppt í
ána í júnímánuði. S. II.
framburði Austurár. En að sögn
bóndans á Grýtubakka kom fyr-
ir nokkrum árum mikið hlaup í
ána, sem meðal annars tók af
gamla brú við eyðibýlið Gil, og
braut skarð í malarkambinn. En
við það mun vatnið hafa fengið
framrás. Vatnsbotninn er nú
tekinn að gróa.
Verður nú að fara að endur-
skoða landafræðina í Fjörðum,
með tilliti til breytinganna, sem
þar hafa orðið. Víst er, að ferða-
maður finnur þar ekkert vatn,
eins og þar á að vera. Og ekki
gengur hvalur þar upp nú, þótt
(Framhald á blaðsíðu 5).
byggingu, einnar hæðar, sem
stendur spölkorn vestan sjúkra-
hússins á hinni rúmgóðu lóð
þess.
Húsið er tvískipt. f öðrum
hluta þess eru 4 íbúðir, ætlaðar
deildarhjúkrunarkonum og í
hinum eru 8 herbergi, ætluð
jafnmörgum hjúkrunarkonum.
Þar er sameiginlegt eldhús og
stór dagstofa. Mjög er þar vist-
legt og bjart. íbúðir deildar-
hjúkrunarkvennanna eru ekki
alveg tilbúnar.
Yfirhjúkrunarkona Fjórðungs
sjúkrahússins, frk. Ingibjörg
Magnúsdóttir, bauð gesti vel-
komna. Gat hún þess m. a. að
sjúkrahúsið hér væri þriðja
stærsta sjúkrahús landsins og
þyrfti því miklu starfsliði á að
skipa og m. a. margar hjúkrun-
arkonur. Vegna vöntunar hjúkr-
unarkvenna í landinu væri óum-
flýjanlegt að keppa um þær.
Bústaðir, eins og þessi, ættu að
vera nokkuð veigamikið atriði
í þv ísambandi, þar sem slík að-
staða mætti teljast til hlunn-
inda.
Byggingarkostnaður er áætl-
aður um 2.6 millj. kr. og tók
Hagi h.f. að sér byggingafram-
Yfirlæknamir Guðmundur Karl Pétursson og Ólafur Sigurðsson.
MiUi þeirra er Ingibjörg Magnúsdóttir yfirhjúkrunarkona.
kvæmdirnar, undir stjórn
Hauks Árnasonar.
Til nýjunga í húsinu er það,
að steypt var í stálmótum og síð
an ekki múrhúðað, heldur dreg-
ið upp á veggina með plast-
blöndu. Fer þetta vel. Nylon-
teppi er á stofugólfi og ný dúk-
tegund í eldhúsi, norsk.
Séra Pétur Sigurgeirsson
blessaði hjúkrunarkvennaheitn,-
ilið og gaf því nafni. Systrasel
heitir það. Margar ræður og
Systrasel stendur litlu vestar en Fjórðungssjúkrahúsið.
(Ljósmynd: E. D.)
heillaóskir voru fluttar við
þetta tækifæri á meðan gestirn-
ir neyttu myndarlegra veitinga.
Ræðumenn voru: Guðmundur
Karl Pétursson yfirlæknir, Ey-
(Framhald á blaðsíðu 7).
BANASLYS VARÐ í
ÞISTILFIRÐI
ÞRIGGJA ára drengur, Vignir,
sonur hjónanna Ara Arinbjörns-
sonar og Hönnu Sigfúsdóttur í
Hvammi í Þistilfirði féll af vöru
bílspalli og beið bana s.l. mið-
vikpdag. □
Sektaðir og reknir
í FRAMHALDI að því, sem áð-
ur var sagt af Selfoss-smyglinu,
skal þess getið, að áttmenn-
ingarnir, og þar af tveir yfir-
menn, voru sektaðir um 300 þús
und krónur og Eimskip hefur
vikið þeim úr starfi. □