Dagur - 25.07.1964, Page 8
8
HRESSINGAR NOTIÐ undir beru lofti á tjaldstað. Sjá grein á bls. 5. (Ljósmynd: Á. G.)
Kirkjulegar vinnubúðir á Hólum
Flugdagur á Melgerðismelum á morgun
Þar verðiir sýnt bæði svifflug og vélflug
Á MORGUN (sunnudag) verð-
ur lialdinn Flugdagur á Mel-
gerðismelum í Eyjafirði. Þar
verður sýnt svifflug, vélflug og
ýmiss konar útbúnaður til leit-
ar og björgunar. Að þessum
degi standa Flugbjörgunarsveit-
in á Akureyri, Svifflugfélag
Akureyrar og Flugskóli
Tryggva Helgasonar.
í dag, laugardaginn 25. júlí,
kl. 2 e. h., er fyrirhugað að
dreifa auglýsingum úr flugvél
yfir bæinn og gildir hver aug-
lýsing sem happdrættismiði.
Vinningar í því happdrætti eru
18 flugmódel, gefin af þeim, er
með þá hluti verzla á Akureyri.
Dregið verður á Melgerðismel-
um að afloknum sýningum á
sunnudag og haldið áfram þang-
að til öll módelin eru útgengið.
Kl. 6 e. h. í dag (laugardag)
verður sviffluga dregin inn yfir
bæinn og lendir hún á íþrótta-
vellinum. Um kvöldið verður
síðan dansleikur í Sjálfstæðis-
húsinu og gilda aðgöngumiðarn-
ir einnig sem happdrættismiðar
og verður dregið á miðnætti um
flugfar Akureyri—Reykjavík—
Akureyri og hringflug með svif-
flugu.
Á sunnudag hefjast sýningar
á Melgerðismelum kl. 2 e. h. og
gefst þá mönnum kostur á að
kynnast ýmsum atriðum varð-
andi svif- og vélflug og enn
fremur öllum útbúnaði flug-
björgunarsveitarinnar. Aðgang-
ur verður kr. 25.00 fyrir full-
orðna og kr. 10.00 fyrir börn.
Heitar pylsur, gosdrykkir o fl.
verður til sölu á staðnum. Flug-
deginum lýkur síðan með dans-
leik að Hótel KEA um kvöldið,
og gilda þeir aðgöngumiðar, sem
happdrættismiðar, þar sem
keppt verður um fjóra hring-
flugsfarmiða, með Norðurflugi,
og dregið verður á miðnætti. —
Ferðaskrifstofan Lönd og Leiðir
h.f. mun skipuleggja ferðir í
sambandi við sýninguna á Mel-
gerðismelum.
Flugbjörgunarsveitin á Akur-
eyri er félagsskapur- um 70
sjálfboðaliða, sem tekið hafa á
sig þá kvöð, að vera ávallt
reiðubúnir til leitar og björgun-
ar, þegar á þarf að halda. Sveit-
(Framhald á blaðsíðu 7).
NÝLEGA er lokið skozk-íslenzk
um vinnubúðum, sem þjóðkirkj
an hefur starfrækt í samvinnu
við Bændaskólann á Hólum.
Frá Skotlandi kom 11 manna
hópur, en þar í voru tveir
Frakkar. íslendingarnir voru 10
talsins. Vinnubúðastjórar voru
Maxwell Cruickshank fré Edin-
borg og sr. Þórir Stephensen,
Sauðárkróki. Var unnið heima
á Hólum í rúmar tvær vikur við
að mála að utan hús Bændaskól
ans. Skólahúsið sjálft var málað
einnig skólastjórahúsið, kenn-
arabústaðir, áhaldahús, fjós og
fjóshlaða og veggir í kring um
trjágarða. Nokkuð var einnig
málað innanhúss og einnig hjálp
uðu vinnubúðamenn til við
steypuvinnu og í handlangi hjá
smiðum.
Unnið var í 6 tíma á.dag og
stundum lengur, en afgangstími
notaður til biblíulestra, innbyrð'-
is kynningar og kynningar á
landi og þjóð. Þjóðkirkjan bauð
hópnum í ferðalag að vígslu
sumarbúðanna við Vestmanns-
vatn, og var um leið farið í Mý-
vatnssveit og Námaskarð. Hóla-
skóli bauð til ferðalags um
Skagafjöfð og er komið var til
Reykjavíkur að lokinni dvöl á
Hólum, bauð kirkjan aftur í
ferðalag að Skálholti og til
annarra helztu sögustáða á Suð-
urlahdi,
Fimmtudaginn 16. júlí héldu
Skotarnir heimleiðis eftir 3ja
vikna dvöl og lauk þá fjórðu
vinnubúðunum, sem þeir taka
þátt í hér á landi. Þeir hafa í
samvinnu við íslenzkt æskufólk
unnið ágætt verk með sjálf-
boðastarfi . sínu hér að þessu
sinni. Hólastaður ber þess
merki, þar hafa orðið mikil
stakkaskipti, og hvað hina and-
legu hlið snertir, þátt vinnubúða
starfsins að því að skapa betrí
heim, með því að byggja brýr
vináttu, skilnings og sameigin-
legrar trúar milli ólíkra þjóða
og mismunandi kirkjudeilda, þá
er áreiðanlegt að hið unga fólk
hefur unnið vel á því sviði líka.
Er því óskandi að þessi starf-
semi megi enn eflast og blómg-
ast. □
Norrænt Góðtemplaramót
Særður og í járnum á sjúkrahús
Mjög mikil ölvun í bænum aðfaranótt föstudags
LÖGREGLAN tjáði blaðinu í
gær, að mikil ölvun hefði verið
á Akureyri nóttina áður og
fram undir morgun. Maður einn
ölvaður, skorinn í andliti og ill-
ur viðureignar, var fluttur í
járnum til aðgerðar á sjúkrahús.
Utanbæjarkona var og þangað
flutt vegna ölvunar en var end-
ursend og gisti hjá lögreglunni.
Þá var í fyrrinótt tekinn bíll
ófrjálsri hendi á Akureyri og
honum ekið. Sá, er þar var að
verki, var réttindalaus og einn-
ig talinn ölvaður.
Aðfaranótt fyrra föstudags
var brotizt inn á byggingar ÚA
á Akureyri. Farið var inn í skrif
stofur félagsins, brotnar upp
hurðir og önnur skemmdarverk
unnin þar. Einnig var farið inn
í vinnusal hraðfrystihússins. —
Ekki mun neinu hafa verið stol-
ið. Málið er í rannsókn en ekk-
ert hefir upplýsts ennþá.
EINS og sagt var frá í síðasta
blaði verður haldið námskeið
norrænna góðteplara hér á Ak-
ureyri nú um helgina og koma
um 150 templarar frá Norður-
löndunum hingað og auk þess
nokkrir af framámönnum
I.O.G.T. í Reykjavík. Námskeið-
ið hefst í dag í Borgarbíói með
erindaflutningi og einnig n.k.
mánudag, en umræðuhópar hafa
aðsetur í Oddeyrarskóla. Á
morgun (sunnudag) verður far-
ið til Mývatnssveitar og höfð
viðkoma og matsstaðir á hótel-
unum í Mývatnssveit og í Lauga
skóla á heimleið.
Stjórnandi mótsins er Karl
Wennbei'g frá Stokkhólmi, en
formaður móttökunefndar í
Reykjavík Kristinn Stefánsson.
áfengisvarnarráðunautur og hér
á Akureyri Stefán Ág. Kristjáns
son forstjóri.
í kvöld munu Akureyrar-
templai ar bjóða gestunum til
kaffidrykkju að Laugarborg og
eru væntanlegir þátttakendur
af Akureyri beðnir að snúa sér
til forvígismanna stúknanna
hér. Á mánudagskvöld verður
skilnaðarhóf hér í bænum. Eftir
hádegi á þriðjudag fara flestir
mótsgestirnir fljúgandi héðan
til Gautaborgar, en um 50
þeirra verða eftir til næsta dags
og hafa í hyggju að fara út í
fjörðinn með Drang á handfæri.
Eru það aðallega Norðmenn,
(Framhald á blaðsíðu 7).
Skinnaverksmiðjan Iðunn bráft sfækkuð
Ungir menn fá tækifæri til náms og starfs
ísland fær 20 milljóna styrk
til rannsókna á Þjórsá og Hvítá
SÉRSTAKUR sjóður Samein
uðu þjóðanna hefur nú veitt
íslandi 20 millj. króna styrk
til raforkumálarannsókna. —
Styrkur þessi mun verða not
aður til að borga kostnað á
undirbúningsrannsóknum
um virkjanir í Hvítá og
Þjórsá, en þær rannsóknir
munu taka tvö ár. Það var
„U. N. Special Found,“ sem
veitti þennan styrk og er
hann óendurkræfur.
Samningar um styrk þenn
an voru undirritaðir í Wash-
ington 13. júlí s.l. af Thor
Thors, ambassador íslands í
Bandaríkjunum, og Paul G.
Hoffman, framkvæmdastjóra
sjóðsins. — Eitt hið fyrsta,
sem gert verður fyrir pen-
ingana, er að reisa rannsókn-
arstofur uppi við Brúarfell.
Tveir sérfræðingar frá Nor-
egi hafa dvalið hér að und-
anförnu við raforkurannsókn
ir og er þegar byrjað að rann
saka ísmyndanir í Þjórsá. —
Nú munu fleiri erlendir sér-
fræðingar verða fengnir hing
að og þeim greitt af fram-
lagi SÞ. — ísland hefur
aldrei áður fengið framlag
úr þessum sjóði.
Spurning vaknar um það,
hvers vegna Jökulsá er ekki
með í þessari rannsóknar-
áætlun. □
EINHVERN næstu daga hefjast
byggingaframkvæmdir hjá
Skinnaverksmiðjunni Iðunni á
Akureyri. Stækkun verksmiðj-
unnar er gerð með það fyrir
augum, að auka mjög verulega
framleiðslugetu hennar, t. d. á
loðsútuðum íslenzkum gærum,
sem hafa farið sigurför á mark-
aðinum.
Undanfarið hefur verið vax-
andi áhugi á auknum skinna-
iðnaði í landinu, og menn gera
Jörundur III. kom með
síld til Hríseyjar
Hrísey 24. júlí. Jörundur III.
. kom hingað í nótt sem leið með
500 tunnur af síld. Saltað var í
um 300 tunnur, en hitt fór í
bræðslu. Þá er búið að salta í
900 tunnur hér í sumar.
Ógæftir hafa verið að undan-
förnu og bátar ekki róið héðan
tvö síðustu daga. J. K.
sér ljósari, með hverju árinu,
sem líður, þýðingu þess að
vinna sem mest úr hinum ágætu
íslenzku skinnum í stað þess að
flytja verulegt magn þeirra á er-
lenda markaði, sem óunna hrá-
vöru.
Með aukinni sútun og annarri
meðferð skinnanna, skapast líka
fjölþættari og meiri möguleikar
fyrir skinna- og leðuriðnað. í
blaðinu í dag er auglýsing frá
Iðnaðardeild SÍS, þar sem ósk-
að er eftir ungum mönnum til
náms og starfs í skinnaiðnaðin-
um. Gefst áhugasömum mönn-
um gott tækifæri til að leggja
hönd að aukinni uppbyggingu í
þessari iðn- og framleiðslugrein
landbúnaðarvara.
Skinnaverksmiðjan Iðunn hóf
starf fyrir 40 árum, fyrst þó að-
eins sem gærurotunarstöð. En
sútunin, í fjölbreyttari stíl, hófst
um 1930. Verksmiðjan hefur
leyst. af hendi ótrúlega mikið
og farsælt starf. En fyrirhuguð
breyting og stækkun gefur
ýmsa möguleika, sem gaman
verður að fylgjast með í fram-
tíðinni. □
Gissur hvíti rakst á
dauðan hval
ÞAÐ bar til í fyri'akvöld, er
GiSsur hvíti frá Hornafirði var
um 35 mílur suðaustur ag Skrúð
að hann rakst á stóran hval,
dauðan, er þar maraði í kafi.
Báturinn var á fullri ferð. Öx-
ullinn í astictækinu bognaði og
einnig lenti skrúfan í hvalnum,
en hún skemmdist þó ekki.
Skipstjóri á Gissuri hvíta er
Óskar Valdimarsson og gaf
hann blaðinu þessar upplýsing-
ar frá Seyðisfirði í gær. Sagði
hann, að hvalurinn gæti verið
hættulegur skipum og bátum á
þessum slóðum. □
Afli Akurevrartogara
J C/
SÍÐUSTU landanir í Hraðfrysti
hús UA eru: Svalbakur 16. júlí
með 154 t onn, Sléttbakur 20.
júlí 144 og Harðbakur 23. júlí
132 tonn.