Dagur - 15.08.1964, Blaðsíða 4
4
5
Er raforkuframleiðslan ódýrust við Laxá?
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Simar 1166 og 1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
BÆNDUR STANDI SAMAN
Á BÆNDAHÁTÍÐ Eyfirðinga, sem
í sumar var haldin á Melum í Hörg-
árdal að viðstöddum fjölda fólks úr
hinum ýmsu sveitarfélögum sýslunn-
ar, flutti Haukur Jörundsson skóla-
stjóri ræðu. Hann minntist þar á
veðráttuna, eins og margra er siður
og benti í því sambandi á, að þótt
bændum þætti stundum of miklar
rigningar um sláttinn, væri það þó
hún, sem gerði ísland að mjög góðtr
grasræktarlandi og íslenzk haglendi
hin ákjósanlegustu, gagnstætt ýmsum
heitari löndum, þar sem mánaða-
þurrkar dræpu allan gróður, nema
kaktusa. Veðráttuna okkar þyrftum
við að kunna að meta og hagnýta. Þá
minntist hann á hinar einstöku bú-
fjártegundir. Nautpeningur okkar er
búinn ýmsum mjög mikilsverðum
eiginleikum, sem rækta má enn bet-
ur en orðið er. Að vísu vantar okkur
holdanautin, en úr ætti að vera hægt
að bæta. Og nautgripastofn okkar er
sérlega hraustur. T. d. munu berklar
vart hafa fundist í kúm hér, sem er
þó bölvaldur víða í nálægum lönd-
um. Hesturinn okkar er lítill. Við
vorum áður að reyna að stækka hann
sem dráttardýr, en nú er síður en svo
þörf á því,sökum þess að nú er tími
smáhestanna og við eigum góðan leik
á borði í útflutningi á hrossum.
Ekkert hrossakyn er búið slíkum
gangkostum og hið íslenzka. Vig eig-
um þama útflutningsmöguleika þótt
við höfum stigið þar nokkur feil-
spor, sagði skólastjórinn. Um sauð-
féð er það að segja, að kjötgæði ís-
lenzku dilkanna eru óvenjuleg, og
þeir útlendingar, sem borðað hafa
hina íslenzku framleiðslu, fúlsa við
öðru kindakjöti. Ullin er sérstæð að
gerð og lit og mun það senn koma í
ljós. Þá minntist ræðumaður á árnar
og fiskiræktina og alla þá möguleika,
sem í vatnsföllunum byggju á því
sviði. — Að sjálfsögðu verða
bændur, sem aðrar stéttir, að vinna
með þjóðarhag fyrir augum og það
gera þeir. En það er þá líka jafnsjálf-
sagt, að bændur njóti vinnu sinnar
og dugnaðar. En svo er í pottinn bú-
ið, að þeir bera aðeins það sama úr
býtum þótt afköst þeirra aukist. Til
þess að efla landbúnaðinn þurfum
við margt að gera. Við höfum dregist
aftur úr í vísindalegum rannsóknum.
Búnaðarfræðslu þarf að auka til
muna í landinu. Styrkir til framleiðsl
unnar þurfa að aukast. Styrkir eru
víðast meiri til landbúnaðar en hér.
Útflutningur landbúnaðarvara mun
í fáum löndum bera sig. Lán þurfa
að veitast til lengri tíma en nú er og
með hagstæðum kjörum. Síðast en
ekki sízt vil ég minna ykkur bændur
á það, að þið þurfið að standa sam-
an. Ef þið gerið það mun byrlega
blása fyrir ykkur í framtíðinni. □
STJÓRN Laxárvirkjunar vill
hér með koma eftirfarandi á
framfæri:
Nú nýverið hefir Sigurður
Thoroddsen verkfræðingur skil-
að áætlun um fullvirkjun Lax-
ár í Suður-Þingeyjarsýslu við
Brúar. Alls nær skýrslan yfir
áætlunargerðir um 10 mismun-
andi virkjanir og til Suðurár-
veitu. Ennfremur er gerð grein
fyrir flutningsvirkj un vegna
hinna ýmsu tilhagana, spenni-
stöðvum við virkjanirnar, há-
spennulínu til Akureyrar og
spennistöð. þar.
Þess skal getið, að í öllum til-
högununum er gert ráð fyrir að
veita -Suðurá í Laxá, en það
eykur orkuvinnslugetuna við
Brúar um 30—40% og ennfrem-
ur er gert ráð fyrir að gera háa
stíflu í Laxárgljúfrum í því
skyni að skapa miðlun og rekst-
ursöryggi og aukna fallhæð.
Allt bendir til þess að 30 metra
há stífla sé hin hagvæmasta.
Ennfremur skal þess getið að
þessar áætlanir eru miðaðar við
það að virkjað sé til almennings-
nota og uppsett afl miðað við
það.
Fara hér á eftir hinar 4 til-
haganir að virkjun fallsins við
Brúar.
stofnfjárins í upphafi heildar-
virkjunar.
Enn hafa ekki verið gerðar
endanlegar tillögur til lausnar á
raforkuþörf Norður- og Austur-
lands, en eftirfarandi 3 mögu-
leikar eru teknir til meðferðar
í skýrslu Sigurðar Thoroddsen:
1. Laxársvæðið. Sama orku-
veitusvæði og nú er.
2. Norðurland. Hrútafjörður
— Þórshöfn. Orkuveitusvæðið
stækkað með veitu vestur til
Skagafjarðar, norður: tiL Siglú-
fjarðar og austur til Þórshafnar.
3. Norður- og Austurland.
Fyrmefnt svæði (2) að við-
• bættu: Austurlandi, @111 suður
fyrir Hornafjörð.
í skýrslunni eru línurit er-
sýna aflspá fram til ársins 1986
fyrir ofangreind svæði, og eru
virkjunarstigin við Brúar, sem
henta hverju sinni felld að línu-
ritunum. Gert er ráð fyrir að
aflþörfinni verði fullnægt með
vatnsafli yfirleitt, en fram til
ársins 1968 verði aflþörfinni
fullnægt á annan hátt, en talið
er að fyrr verði ekki lokið hin-
um fyrsta áfanga virkjunar við
Brúar.
Lauslegar athuganir benda til
þess að byggingartími þeirra
■ virkjunarstiga, sem til greina
koma sem 1. áfangi sé um 3 ár.
1. Tilhögun. Fallið nýtt í 3 þrepum. Laxárvirkjun 1 lögð niður.
Uppsett afl 86.300 kw.
Orkuvinnsla á ári 395 millj. kwst.
Heildarkostnaður 1005,9 millj. kr.
Verð á uppsett kw. við stöðvarhússvegg um 8.300,00 kr,.
2. Tilhögun. Fallið nýtt í 3 þrepum. Laxárvirkjun 1 lögð niður.
Uppsett afl 85.400 kw.
Orkuvinnsla á ári 391 millj. kwst.
Heildarkostnaður 882,9 millj. kr.
Verð á uppsett kw. við stöðvarhússvegg um 7.400,00 kr.
3. Tilhögun. Fallið nýtt með samsíða virkjunum í einu og tveimur
þrepum. Laxárvirkjun 1 lögð niður.
Uppsett afl 84.700 kw.
Orkuvinnsla á ári 386 millj. kwst.
Heildarkostnaður 843,4 millj. kr.
Verð á uppsett kw. við stöðvarhússvegg um 7.135,00 kr.
4. Tilhögun. Fallið nýtt í einu þrepi. Núverandi virkjanir lagðar
niður.
Uppsett afl 90.000 kw.
Orkuvinnsla á ári 404 millj. kwst.
Heildarkostnaður 805,2 millj kr.
Verð á uppsett kw. við stöðvarhússvegg um 6.540,00 kr.
Auk þessa er sá möguleiki
fyrir hendi að virkja Laxá sam-
kvæmt tilhögun 4 en sem grunn
aflstöð (fyrir stórt veitusvæði)
með 50.000 kw. uppsettu afli.
Heildarkostnaður lauslega áætl-
aður um 627 millj. kr. og verð
á uppsett kw. um 8;200,00 kr.
Verð á hverja kwst. við stöðvar-
hússvegg yrði með 8% árlegum
kostnaði um 8,1 eyrir og á Ak-
ureyri um 12,3 aurar.
Orkuverð á Akureyri sam-
kvæmt tilhögun 2 yrði með 8%
árlegum kostnaði um 18 aur/
kwst. og samkvæmt tilhögun 3
og sömu forsendum um 17,5
aur/kwst. Verðið samkvæmt til-
högun 4 yrði aftur á móti um
16 aur/kwst. Það er álit Sigurð-
ar Thoroddsen að ef virkjað
verður í áföngum á 20—30 ár-
um, þá verði 2. og 3. tilhögun
ódýrastar miðað við núgildi
veitusvæði, sem nær yfir Norð-
urland og Austurland. Telur
Sigurður Thoroddsen ólíklegt
að hægt verði að fullnægja orku
þörf þessa orkuveitusvæðis
ódýrar með virkjunum annars
staðar en við Brúar, ef virkjað
er fyrir almenningsnotkun ein-
göngu.
Áætlun um flutningsvirkin
sem þarf til stækkunar orku-
veitusvæðanna hefir að vísu
ekki verið gerð og þar af leið-
andi ekki heldur kostnaðar- eða
hagkvæmnissamanburður, á
þessum þremur • möguleikum,
enda kemur þar einnig til
samanburðar við aðra virkjun-
armögúleika.
Að lokum segir svo í álitsgerð
. Sigurðar Thoroddsen:
„Að öllu athuguðu verður
ekki annað sagt en að virkjun-
arstaðurinn við Brúar sé heppi-
legur. Tæknileg vandamál í
sambandi við framkvæmdir fá,
og ekki umfram það, sem eðli-
legt má teljast á góðum virkjun-
arstöðum og virkjunarkostnað-
ur tiltölulega mjög vægur. Þar
er nægt afl og orku að fá fyrir
orkuveitusvæði, er nær yfir
Norður- og Austurland, næstu
tvo áratugi, auk þess að annað
eins má virkja ofar við Laxá,
Mývatnsvirkjanir, væntanlega á
líku verði.“
Það er álit Laxárvirkjunar-
stjórnar að þessar virkjanir við
Laxá þoli fyllilega samanburð
við aðrar þær virkjanir sem til
greina koma í dag, og að taka
beri fullt tillit til hinna miklu
möguleika sem Laxá í Suður-
Þingeyjarsýslu hefir í sambandi
við orkuöflun fyrir Norðurland,
og jafnvel Austurland og Suður-
(Framhald á blaðsíðu 7).
TÍUNDI VIÐAUKI VIÐ
BARÐSTÚNSMALIÐ
ÚTHALDSLEYSI virðist vera
nokkuð áberandi þáttur í fari
ýmissa þeirra ágætu manna, er
ráðast til starfa hjá ríki og bæj-
um. Það er byrjað á öllu mögu-
legu (og ómögulegu) en svo er
eins og botninn detti skyndilega
úr og allt hjakkar í sama farinu
tímunum saman. Glöggt dæmi
um þetta blasir þessa dagana við
okkur Akuréýringum. Það er
grátlegt að sjá hversu allt virð-
íst, í molum við undirbúning
hins glæsilega mipnismerkis á
Barðstúni, eins myndarlega og
af stað var nú farið. Vatnsveitan
hélt algerlega uppi sóma bæjar-
ins fyrrihluta vikunnar —■ en
ansi voru þeir fáliðaðir. Maður
hefði nú látið sér detta í hug, að
þar sem þarna fer saman al-
menningsheill og einkahagsmun
ir, þá myndi maður einu sinni
sjá tekið til höndunum. Þá hefði
líka verið meiri von til þess að
bæjarbúar hefðu getað séð af
einhverjum smápíringi til styrkt
ar verkinu, það er að segja ef
þeir eiga þá eitthvað eftir, þeg-
ar skattarnir eru frá.
Já — það er nú löggæzlan
okkar, það eru vafalaust mý-
mörg atriði í sambandi við þau
mál, sem hægt er að deila um
endalaust. Ekki er nokkur vafi
á því, að fjölga þyrfti lögreglu-
þjónunum í bænum. Mér finnst
að það þyrfti að bera meira á
þeim, en gerir, t. d. á kvöldin,
þegar stundaður er kappakstur
í miðbænum og gjarnan mættu
þeir segja fólki, sem æðir í
tíma og ótíma yfir götur —- svo-
lítið til syndanna. Já, og svo
þyrfti að æfa umferðarstjórn.
Þá leikur mér forvitni á að
vita, hvort sýslumönnum, full-
trúum þeirra, tollvörðum, bif-
reiðaeftirlitsmönnum og öðrum
þeim, er einkennisbúninga mega
bera, er í sjálfsvald sett hvenær
þeir skrýðast þeim.
Gamall strætisvagn hefur ver
ið til aðgerðar út hjá Slippstöð-
Verði orkuveitusvæðið hið
sama og nú er, Laxársvæðið,
eru virkjunarþrepin samkvæmt
2. og 3. tilhögun nokkuð stór.
Með 1. tilhögun fengist auðveld-
ari byrjun, en heildarvirkjunin
verður dýrari. Svipað er að
segja um 2. orkuveitusvæðið.
Fyrir 3. orkuveitusvæðið,
Norður- og Austurland, vex afl-
þörfin örast. Fyrir þetta svæði
mundi henta vel að virkja sam-
kvæmt 2. og 3. tilhögun í áætl-
un Sigurðar Thoroddsen. Með
3. tilhögun mundu tvö fyrstu
virkjunarstigin verða fullnýtt á
um 5 árum hvort, hið 3. á um 4
árum og hið 4. og síðasta á um
4 árum. Heildarvirkjun Laxár
við Brúar yrði þannig fullnýtt
á árunum 1985—1990.
Af framansögðu sést að heild-
arvirkjun Laxár við Brúar
mundi henta bezt fyrir orku-
SAUÐNAUTA-TARFUR réðst
fyrir skömmu á roskinn mann í
Þrændalögum og varð honum
að bana. Þetta gerðist skammt
frá þjóðbrautinni um Uppdal og
vestur yfir Dofrafjöll. Fjórir
menn aðrir, er samferða voru,
forðuðu sér undan. Tarfurinn
var síðar skotinn.
Tarfur þessi hefir eflaust ver-
ið úr sauðnautahjörð þeirri, sem
•heldur til á Dofrafjöllum og
mun nú vera orðin 20—30 dýr
alls. Var nokkrum grænlenzk-
um sauðnauta-kálfum sleppt á
fjöll á þesum slóðum fyrir all-
mörgum árum (10—15 árum)
og hafa þrifist þar vel. —
Sauðnauta-tarfar eru eigi tald
ir mannýgir né hættulegir,
nema ráðist sé á hjörð þeirra,
ög snúast þeir þá óðar til varn-
ar. Og séu þeir reittir til reiði
í návígi (ertir), geta þeir auð-
vitað reynst hættulegir! Hér
hefir sennilega gamall tarfur
farið einförum, og þessir 5
ferðamenn (?) orðið nærgöng-
inni undanfarið og sagði einn
gárungi mér, að breyta ætti
honum til samræmis við nýju
„strætisvagnana.“
Knattspyrnumenn frá Berm-
uda hafa verið á ferð hér á
landi undanfarið og hafa í all-
flestum auglýsingum, menn ver-
ið hvattir til þess að koma og
sjá, ekki eingöngu knattmeðferð
þeirra — heldur einnig litarhátt.
Þetta finnst mér fyrir neðan all-
ar hellur. Hvað fyndist mönnum
um það að sjá auglýstan leik á
milli hinna nefstóru Þórsara og
hinna brúneygu KA-manna.
Með beztu kveðju.
Dúi Björnsson.
Baráttan við refina
Saiíðnaulatarfur verður manni að
bana í Þrændalögum í Noregi
ulir um of og áleitnir. —
Þessum grænlenzku sauðnauta
kálfum var þegar í upphafi
sleppt á hæstu fjöll all-fjarri
byggðum, m. a. til að forðast
búfjársjúkdóma í heimahögum.
Og hefir það gefizt vel.
Þessa var, því miður ekki
gætt með „Gottu“-kálfana forð-
um, hér heima!
Helgi Valtýsson.
Klausturseli 29. júlí. Jökuldajur
er sveit sem að víðáttumiklar
heiðar og öræfi liggja að á þrjá
. vegu. Þetta skapar það, að fé er
fljótt að komast á afrétt þegar
það sleppur úr birðingunum eft-
| ir sauðburðinn og þar bíður
, voði lambanna, dýrbíturinn.
Grenjaskyttur hafa nóg að gera
og fást færri en með þyrfti til
■ að stunda þá atvinnu.
Hér er staddur Björgvin Stef-
ánsson frá Borgum í Vopna-
firði, en hann er búinn að vera
grenjaskytta síðan 1928 og hefr
ur ekkert vor fallið úr. — Ég
notaði tækifærið og spurði hann -
um tófuveiðar á sínu umráða-
svæði í vor.
Hvað ert þú búinn að liggja á
mörgum grenjum í vor, Björg-
vin?
Tíu, og hefi drepið 18 dýr
fullorðin og 38 yrðlinga.
Hvað hefir tekið langan tíma
að vinna hvert greni?
Lengst hefi ég verið 4 V2 sól-
arhring og stytzt 2 sólarhringa
með greni, að alvinna það.
Hve margar tófur hefir þú
haft flest af einu greni í vor? -
Tvö dýr fullorðin og 6 yrð-
linga.
Hverju virðist þér tófurnar
lifa mest á, í þeim grenjum, sem
þú hefur legið á.
Lömb og fuglar og sums stað-
am mun meira af fugli, því ef
allar þessar tófur lifðu eingöngu
á lömbum, þá þyrftu þær drjúg
an hluta af lambaframleiðslu
bændanna á þessu svæði.
Hvað tekur þetta yfir stórt
svæði, sem þú hafðir til umsjón-
ar í vor og vannst 10 greni á.
Frú ytri hluta Brúaröræfa og
Jökuldalsheiði út að landsmörk-
um Vopnafjarðar og Jökulsár-
hlíðar. Það eru 12 bæir úr Jökul
dal, sem eiga fé sitt á þessu
svæði.
Er nokkur sérstakt, sem þ ú
vilt segja að lokum í sambandi
við refaveiðar?
Mótelrekslur í Hveragerði
FYRIR skömmu var stofnað
hlutafélag til að reisa og reka
mótel í Hveragerði. Byrjunar-
hlutafé er 7 millj. kr. en heimilt
að hækka það í 10 millj.
Mótelbyggingin á að vera í
tveim 20 húsa samstæðum, með
fráskildum veitingasal. — Þar
verður bæði sjálfsafgreiðsla,
þar sem menn geta fengið sér
kaffi án tafar, og í öðru lagi
veitingasalur fyrir 100 manns.
Mótelrekstur hefur ekki verið
reyndur hér á landi, en í mörg-
um löndum eru mótelin mjög
vinsæl og algeng. Á fögrum
stöðum standa þau víða dreifð,
þessi litlu, vinalegu hús, mótel-
in, og bjóða dvalargestum frið
og hvíld. í eða nálægt Hvera-
gerði verða, eins og fyrr segir,
húsasamstæður, alls 40 íbúðir.
Hið nýstofnaða hlutafélag sem
ætlar að byggja og starfrækja
fyrstu mótelin á íslandi, heitir
Hlað h.f.
Nýr ráðunautur Búnaðarfélags-
ins í mjólkurfræði
Hafsteinn Kristinsson svarar spurningmn Dags
Það er nóg til af tófum á ör-
æfum Austurlands, þó hreinsað
sé til á vissum svæðum og tóf-
um verður aldrei haldið í skefj-
um, nema eitrun komi til fram-
kvæmda, jafnframt veiðum.
Björgvin hafði mann með sér
og höfðu þeir jeppa, sem hægt
var að komast á að flestum
grenjmn, og svo til að \fara til
byggða og sakja mat þegar með
þurfti. Heitir sá Birgir Þór Ás-
geirsson, sem var aðstoðarmað-
ur.á þessu vori. G. A.
GÓÐUR AFLI Á LÍNU
OG FÆRI
Húsavík 14. ágúst. Engin síld
hefir borizt hingað þessa viku.
Afli er góður hjá dekk- og
trillubátum á línu og færi og
fer megnið af aflanum í frysti-
hús, en ofurlítið er saltað.
Heyskapur hefir gengið ágæt-
lega og er búið að hirða af flest-
um túnum. Heyfengur er mik-
ill.
Mikið er um íbúðabyggingar,
einnig er í smíðum sjúkrahús,
félagsheimili og verbúðir, sem
Húsavíkurbær lætur reisa.
Mikill ferðamannastraumur
hefir verið hér um í sumar. Þ. J.
r
Islendingur Esperanto-
höfundur ársins
HEIMSÞING esperantista, hið
49. í röðinni,- var haldið í Haag
dagana 1. til 8. ágúst. Þingið
sóttu hálft þriðja þúsund esper-
antistar frá fjörutíu löndum. f
sambandi við þingið starfaði
hin árlegi sumarháskóli á veg-
um Almenna Esperantosam-
bandsins, þar sem háskólapró-
fessorar og kennarar frá ýmsum
löndum heims fluttu fyrirlestra
á esperanto. Jafnhliða aðalþing-
inu voru haldin í Haag 34. al-
þjóðaþing blindra esperantista
og 9. alþjóðamót barna og ung-
linga, sem tala esperanto. í lok
þingsins tilkynnti dómnefnd, að
íslendingur, Baldur Ragnarsson,
hefði hlotið viðurkenninguna
„Esperantohöfundur ársins“ fyr
ir þýðingar sýnar á esperanto
úr íslenzkum fornbókmenntum
og á tyeimur ljóðabókum Þor-
steins frá Hamri. Eftir Baldur
Ragnarsson hafa áður komið út
tvær frumsamdar Ijóðabækur,
önnur á esperanto, hin á ís-
lenzku.
(Frá sambandi íslenzkra esp-
erantista). □
HAFSTEINN KRISTINSSON
mjólkurfræðikandídat frá Sel-
fossi, nýr ráðunautur Búnaðar-
félags fslands í mjólkurfræðum,
var hér á ferð í vikunni. Hann er
nýkominn heim frá framhalds-
námi á Norðurlöndunum, Iengst
í Danmörk.
Dagur náði tali af honum um
stund og spurði hann nokkurra
spúrninga, er hann góðfúslega
svaraði.
Hvemig eru viðhorf Dana til
landbúnaðarins?
Um 50% af gjaldeyrístekjum
Dana eru af landbúnaðinum. En
16—17% af þjóðinni lifir af
landbúnaði. Bændur telja því
sinn hlut mikinn í þjóðar fram-
leiðslunni, enda verður því ekki
móti mælt. Hinsvegar hefur
Danskur landbúnaður við sín
vandamál að stríða. Fyrir síð-
ustu aldamót voru mynduð
mörg smábýli í Danmörku. Þar
búa húsmenn, eða hjáleigubænd
ur á 2—5 ha lands. Búskapur
þeirra er svo smár, að með nú-
verandi kröfum og tækni er
ókleift fyrir þessa bændur að
lifa sómasamlegu lífi og engir
möguleikar til stækkunar bú-
anna eða aukinnar framleiðslu.
Þessvegna heyrast nú raddir
um það, að býli þessi beri að
leggja niður, sjá fólkinu, sem
þar á heima, fyrir betri lífsskil-
yrðum og leggja smábýlin við
hin stærri. Þessar raddir hafa
fengið mikinn hljómgrunn. Hins
vegar vilja Danir ekki minnka
landbúnaðarframleiðsluna, held
ur auka hana ef unnt væri.
Danir eiga í nokkrum erfið-
leikum með sölu landbúnaðar-
varanna?
Já, um þessar mundir er nokk
ur sölutregða á mörkuðum Vest
ur-Evrópu, en þegar litið er víð
ara yfir vantar landbúnaðarvör
ur um mikinn hluta heims. —
Þekktur Dani komst nýlega svo
að orði í ræðu, að mesta vanda-
málið væri að halda framleiðsl-
unni uppi og dreifa framleiðsl-
unni til hinna vannærðu þjóða,
annars kynni svo að fara að hin
ar soltnu þjóðir kæmu sjálfar og
sæktu þessar vörur með valdi.
Soltinn maður spyr ekki um
eignarétt. — Sú stefna er ráð-
andi, að halda uppi fullri fram-
leiðslu, þrátt fyrir tímabundna
sölutregðu.
Hvernig er afstaða danskra
bænda til Efnahagsbandalags-
ins?
Danir vilja ekki fara í Efna-
hagsbandalagið nema Englend-
ingar geri það líka og helzt
fleiri, annars eru þeir hræddir
um að tapa mörkuðum sín-
um í Englandi' bæði fyrir
svínakjöt, hænsnakjöt, egg og
fleira. — En ostarnir fara
aftur á móti að mestu til Þýzka-
lands. Útflutningurinn á land-
búnaðarvörum fór árið 1963 að
einum þriðja til Efnahagsbanda
lagslandanna og rúmur helming
ur til Fríverzlunarbandalagsins.
Framtíð þessara mála er mjög
óörugg um þessar mundir. En
fjöldi bænda vill þó ákveðið,
að Danir gangi í EBE.
í þessu sambandi er vert að
benda á, að Danir leita nú mark
aða fyrir landbúnaðarvörur í
nýjum löndum, bæði í austri og
vestri. í Sambandi .við komu
sovézka forsætisráðherrans í
sumar lá sú spurning á margra
vörum, hvort opnast myndu ný
og hagkvæm viðskipti til aust-
urs í næstu framtíð. J
Hvernig er afkonia dönsku
bændanna yfírleitt nú?
, . 1 - - • .- H '• ■ S ■
Hún er mjög misjpfn. Hiriir
mörgu og fátæku húsmenn, sem
HAFSTEINN KRISTINSSON.
áður var minnst á, hafa lélega
afkomu, en margir aðrir góða.
Bændur fá þó ekki nema 45
aura fyrir mjólkurlítrann. Það
sýnist ekki mikið, en búskapur-
inn er fjölþættur og mjólkur-
framleiðendur fá mjög ódýra
undanrennu og hagnast vel á
svínaræktinni. Þannig styður
hver búgrein aðra og Danir eru
yfirleitt miklir búmenn. Þá hafa
bændur á síðasta ári hagnast vel
á kálfaeldi, því kjötið hefur
verið í háu verði og flestir
kálfarnir eru aldir 6—12 mán-
uði til slátrunar. Þess má geta,
að um 60% af innvegnu mjólk-
urmagni samlaganna taka bænd
ur heim til sín sem undanrennu
og nota til kjötframleiðslu. —
Þá má nefna hina alhliða rækt-
un búanna, að garðrækt og
gróðurhúsarækt meðtalinni. —
Bændur voru sæmilega ánægðir
með afkomuna s.l. ár.
Hverjar eru helztu nýjungar
í mjólkuriðnaðinum?
Það standa alltaf yfir fjöl-
þættar tilraunir í ýmsum
þáttum mjólkuriðnaðarins, sem
síðar leiða til nýjunga. Til að
benda á eitthvað sérstakt, sem
snertir framleiðendur beint, er
mjólkurflutningur í tönkum frá
fjósi bónda til mjólkurstöðva.
Um það mál er nú mikið rætt í
Danmörku og ég held að það sé
sá flutningur á mjólk, sem
koma skal. En til þess þarf
mjólkurbíllinn að komast í hlað
á hverjum mjólkurframleiðslu-
bæ, til að taka þar vélkælda
mjólk beint á bílinn. — Eins
og nú háttar víða til hér-
lendis, er of 1 ítið framleitt
á hverjum stað, vegir ekki nógu
góðir heim á bæina og það vant-
ar ennþá vélkældu tankana við
fjósin. En þetta er mál framtíð-
arinnar. Á þessu sviði er verið
að gera rannsóknir bæði í Dan-
mörku og Noregi. í þessu efni
er bezt að fara gætilega en
byggja á fenginni þeirri reynslu,
sem innan tíðar liggur fyrir og
miða þá við það, að létta hinum
erfiða brúsaflutningi af bænd-
um. Það væri vissulega mikils
virði. Og það væri einnig mikils
virði að mjólkurbíllinn þyrfti
ekki að koma á bæina nema „
annan hvern dag til að sækja
hina vélkældu mjólk.
Eru nokkrar mikilvægar
skipulagsbreytingar á dagskrá í
danska mjólkuriðnaðinum?
Á árunum skömmu fyrir aldá
mótin voru byggðar 1600 litlár
mjólkurstöðvar eða samlög sam
. vinnumanna víðsvegar, um Dan-
mörku. Þessi samlög hafa starf-
að síðan og hafa verið landbún-
aðinum ómetanleg lyftistöng. f
dag þykja þessi samlög allt of
mörg og allt of smá. Nú er að
því unnið að mynda stærri
heildir og einnig á samvinnu-
grundvelli. Og þeir, sem horfa
vilja lengst fram, telja hagkvæm
ast að sameina öll mjólkursam-
lög landsins í eitt félag og setja
jafnaðarverð á alla mjólk í
landinu. — Og þetta er meira
en hugmynd, því að undir-
búningi hennar er þegar
farið að vinna kappsamlega. Og
hugmyndin á eflaust eftir að
komast í framkvæmd í einni eða
annarri mynd. Með þessu móti
er unnt að skipuleggja fram-
leiðsluna með tilliti til markaða
erlendis og koma á fullkominni
verkaskiptingu milli mjólkur-
vinnslustöðvanna.
Hvaða verkefni býða þín helst
hér á landi, Hafsteinn?
Starf mitt verður einkum
fólgið í leiðbeiningxnn hjá mjólk
ursamlögunum, sem eru 17 tals
ins, og að halda uppi leiðbein-
ingarstarfsemi meðal framleið-
endanna. — Undir starf mitt
heyrir einnig hin hagfræðilega
hlið mjólkuriðnaðarins í land-
inu. Deila má um ýmsar leiðir
mjólkurframleiðslunnar, bæði
dýrar og ódýrar. Það koma kröf
ur um byggingu mjólkurstöðva
á hinum ýmsu stöðum á land-
inu. Stöðvar þarf að endur-
byggja o. s. fr. En til þess að
mjólkurframleiðslan megi gefa
bændum sem bezt verð fyrir
mjólkina, verðum við að athuga
hagfræðihlið mjólkuriðnaðarins
meira en verið hefur, segir Haf-
steinn Kristinsson að lokum, og
þakkar blaðið viðtalið. E. D.
Trillubátar fiska vel
Ólafsfirði 14. ágúst. Engin síld
hefir borizt hingað s.l. hálfan
mánuð.
Minni dekkbátarnir eru á
ufsáveiðum en afli þeirra hefir
verið mjög tregur að undan-
förnu. Aftur á móti hafa trillu-
bátar fiskað vel bæði á færi og
línu og er það aðallega þorsk-
ur og ýsa, sem veiðist.
Búið er að hreinsa veginn frá
Ólafsfirði, út að Ófærugjá, svo
hann er vel fær. B. S.