Dagur - 11.11.1964, Qupperneq 1
XLVII. árg. — Akureyri, miðvikudagLun 11. nóvember 1964 — 81. tbl.
Dagur
kemur iit tvisvar í viku
og kostar 20 krónur á
mánuði
Hú eru síldarskipin farin heim ú _
Neskaupstað 10. nóv. Nú eru
síldarskipin íslenzku farin af
Austfjarðamiðum, a. m. k. að-
komuskip. — Einhverjir Aust-
fjárðabátar rnunu halda áfram
veiðum ef tíð verður hagstæð.
Rússneski flotinn heldur enn
kyrru fyrir og virðist veiða
sæmilega.
Glófaxi selur á morgun í Eng
landi, fisk, er hann veiddi
sjálfur, og Stefán Ben. er að
búa sig út á þorskveiðar.
Hingað til Neskaupstaðar
munu í vetur koma tvö ný
250 tonna fiskiskip, hið fyrra í
desember, en hitt í marz. Síld-
arverksmiðjan er kaupandi þess
ara skipa, en Samvinnufélag út-
gerðarmanna á þar 60%.
Mikið af saltsíldinni er farið,
svo og aðrar síldarafurðir. Síld-
arbræðslan á nú þriggja daga
bræðslu í þróm. Hún hefur þá
brætt nær 460 þús. mál. H. Ó.
Síldðrðflinn vðrð yfir þrjár
LOKIÐ er nú lengstu síldarvær-
tíð norðanlands og austan. Síð-
ustu skipin eru á heimleið af
miðunum út af Austfjörðum.
HNOÐRASÓNGVARI
HNOÐR ASÖN G V ARINN er
mjög lítill spörfugl með tvö
hvít vængbelti, gulgrænn að of-
an en ljós að neðan. Heimkynni
hans eru í Síberíu.
í haust var hnoðrasöngvari
veiddur á Stóru-Hámundarstöð
um á Árskógsströnd og var
hann sendur Náttúrugripasafn-
inu. Er það í fyrsta sinn að
fugls þessa hefur orðið vart á
Norðurlandi, en árið 1959 sáust
þrír á Kvískerjum í Öræfum.
Heildarveiðin er orðin meira
en þrjár milljón mál og tunnur,
sem er algert met í síldveiði-
sögunni. Eftirtektarvert er, að
meira en 1 millj. mál veiddust
eftir venjulegan sumarsíldveiði-
tíma, og má eflaust þakka það
fiskifræðingum okkar.
Aflinn skiptist þannig: Salt-
aðar hafa verið 353.611 tunnur,
uppsaltaðar, frystar 42.454 tunn
ur, uppmældar, og brædd
2.554.930 mál.
Á Raufarhöfn hefur verið
tekið á móti 435.835- málum,
Seyðisfirði 522.835, og á Nes-
kaupstað 462.367.
Síldveiðar við Suðvesturland
hófust um s.l. mánaðarmót og
eru um 70 bátar að veiðum þai'.
Þyrlur vamarliðsins hafa oft aðstoðað við björgunarstörf hér á landi. í sumar var björgunar-
sýning á Akureyrarpolli, og er þessi mynd þxðan. (Liósm. E. D.).
Þyrla væntanleg til landsins um áramót
Landhelgisgæzlan og Slysavarnafélagið
standa að kaupunum á vélinni
ÁKVEÐIÐ hefur verið, að
Landhelgisgæzlan og Slysa-
varnafélag íslands kaupi á
þessu ári þyrlu. Verður hún
notuð jöfnum höndum við land-
helgisgæzlu og björgunarstörf,
samkvæmt því, sem forstjóri
landhelgisgæzlunnar, Pétur Sig
Heita vatnið byrjað að streyma
NÚ FYRIR nokkrum dögum
var byrjað að boi'a með Norð-
urlandsboi-num við Laugaland
á Þelamöi'k. Þau gleðitíðindi
bárust síðasta föstudag, að
strax og komið var niður á 160
metra dýpi, tók heitt vatn að
sti'eyma úr holunni. Reyndist
það vera tæpir þi'ír sekúndu-
lítrar af 77 gráðu heitu vatni.
Þetta vatnsmagn myndi ef til
vill vera virt á 2—3 milljónir
króna. Haldið er áfram að bora
af fullum ki-afti, og gera þeir
bormenn sér vonir um að finna
meira og heitara vatn neðar.
ÁREKSTUR OG
BÍLVELTA
í FYRRADAG varð allharður
árekstur við Gautsstaði á Sval-
baiðssti'önd. Við áreksturinn
kastaðist önnur bifreiðin út af
veginum og valt. Bifreiðarstjór
inn, sem var einn í þeirri bif-
reið, meiddist ekki, en tvær
konur, sem voru í ,hinni bif-
reiðinni, hlutu smámeiðsli. Báð
ir bílax-nir skemmdust. □
Þótt ef til vill sé of snemmt
að segja, að Hitaveita Akureyi'-
ar sé orðin staði'eynd, þá gefur
þessi árangur björtum vonum
byr undir báða vængi, og er
hrópandi hvatning til Akureyi'-
inga um að herða sóknina í leit
að heitu vatni fyrir Akureyri.
Tvi'mælalaust verður að bora
fleiri holur á Laugalandssvæð-
inu, og Glerárgilssvæðið er enn
þá svo til algjörlega ókannað.
Ef til vill væri heppilegast
að bora næstu holur á Glerár-
eða Akui’eyrai’svæðinu, en til
þess að það sé hægt, þarf að
sjálfsögðu að steypa undirstöð-
urnar nú þegar, áður en veru-
legt frost kemur.
(Framhald á blaðsíðu 2.)
Sjávardýrasýning í Hafnarfirði
Einn daginn sóttu hana þrjú þúsund manns
HJÁLPARSVEIT skáta í Hafn
arfii'ði hefur unnið sér það til
frægðar, að koma upp sýningu
lifandi sjávardýi'a, sem vakið
hefúr mikla eftirtekt. Sýningin
var opnuð á laugai'daginn og
eru 18 tegundir fiska til sýnis,
auk ýmiss konar skeldýra og
selkópa, í sjófylltum glerköss-
um.
Aðsókn hefur verið mjög mik
il, t. d. komu þangað 3 þús.
sýningai'gestir á sunnudaginn.
Fraxxxkvæmdastjóri sýningar-
innar er Jón Kr. Gunnarsson.
Framtak skátanna í Hafnar-
firði er mjög lofsvert og mættu
aðrir taka sér það til fyrirmynd
ar. □'
urðsson og forseti Slysavarnafé
lagsins, Gunnar Friðriksson,
hafa skýrt frá.
Hin væntanlega þyrla, sem
koma mun um eða fyrir ára-
mótin hingað til lands, er af
gerðinni Bell 47 J. Hún tekur
þrjá farþega eða tvær sjúki’a-
körfui'. Umrædd vélategund er
bandarísk og hefur þriggja
klukkustunda flugþol. Þær geta
bæði lent á vatni og landi.
Landhelgisgæzlan hefur í
sinni þjónustu þjálfaðan þyrlu-
flugmann, Björn Jónsson að
nafni, núverandi aðstoðarmað-
ur á Sif.
Eitt hinna íslenzku varðskipa
er útbúið fyrir þyrlu, og auð-
velt er talið að breyta öðrxxm
varðskipum á líkan hátt.
Naumast þarf að lýsa því, hve
mikla möguleika þyrlurnar hafa
oft til björgunarstarfa, þeg-
ar öðrum tækjum verður ekki
við komið í skjótri svipan. Og
við störf landhelgisgæzlunnar á
þyrla að koma að góðum not-
um. Flughraði hinnar nýju vél-
ar er um 90 sjómílur á klukku-
stund. □
| FÉLAGSVIST |
\ NÆSTA spilakvöld Fram-f
i sóknarféiaganna verður á |
i Ilótel K. E. A. föstudaginn I
í 13. þ. m., kl. 20.30. Aðgöngu- f
i miðar fyrir þá, sem spiluðu |
1 sl. föstudagskvöld, verða |
i seldir á Hótel K. E. A. =
= finxnxtudaginn 12. þ. m. kl. |
I 8 til 10 e. h., en þeir miðar, =
i sem eftir kunna að verða þó, i
| verða seldir á föstudaginn i
[ 13. þ. m. frá kl. 6 e. h.
i Glæsileg verðlaun. Mætið 1
I stundvíslega.
FRAMSÓKNAR- j
1 FÉLÖGIN. |
REITINGSAFLI A
SKAGASTRÖND
Skagaströnd 10. nóv. Hér rigndi
öll ósköp síðustu vikur, svo að
allt var að fara á flot. En nú er
heiðskírt veður og frostkali.
Húni og Helga Bjöi’g hafa
fengið 5—6 tonn í í'óðri af góð-
um fiski, en þurfa langt að
sækja. Minni bátar róa líka, en
afla minna.
Mesl af kjötinu er farið
BANKAVERKFALLIÐ
er enn á dagskrá. Bankai'áð Út-
vegsbankans samþykkti á nxánu
daginn, að senda bankamálaráð-
herra skýrslu um málið. Olík-
legt þykir, að bankamenn verði
lögsóttir fyrir ólöglegt verkfall.
Blönduósi 10. nóvember. Hér á
Blönduósi var lógað 36 þús.
fjár í stað 39 þús. í fyi'ra. Dilk-
ar voru 1.3 kg vænni nú en þá.
Fækkun sláturfjárins stafar af
því hve margt er sett á vetur
nú. Stórgripaslátrun er einnig
minni nú en í fyrra.
Mest af dilkakjötinu er far-
ið héðan, sumt til Bretlands,
ofurlítið til Svíþjóðar og einnig
kaupa Færeyingar kjöt og er
bezti kjötmai'kaðurinn í Fær-
eyjum, eins og er. Allar gærur
eru héðan farnar, nema gráai',
sem eftir er að flokka. Ó. S.