Dagur - 23.12.1964, Page 2
r
2 I
Þórðyr V. Sveinsson
Fæddur 14. jan. 1913 - Dáinn 17. des. 1964
MINNING
ÞÓRÐUR V. SVEINSSON for-
stjóri, Munkaþverárstræti 34,
Akureyri, lézt í Sjúkrahúsi Ak-
’ureyrar fimmtudaginn 17. des-
ember 1964, tæpra 52 ára að
aldri.
Ekki kom lát Þór'ðar alveg að
óvörum, því að síðustu 3 mán-
uðina háði hann vonlausa bar-
áttu við sjúkdóm þann, er varð
lionum að bana.
Ég kynntist Þórði fyrst árið
1939 í Golfklúbb Akureyrar og
síðar, eða 1940, í Frímúrara-
reglunni á Akureyri-
Þórður var mikill alvöru-
maður og tók því nokkurn
tíma að kynnast honum vel, en
því betur sem ég kynntist hon-
um, þeim mun vænna þótti mér
um þau kynni og því meira mat
ég hann.
Þórður var kominn af mikl-
um útvegsbændahöfðingjum í
báðar ættir. Föðurafi hans var
hinn þjóðkunni Þórður á Höfða
og móðurafi hinn jafn kunni
Vilhjálmur í Nesi. Þórður var
vissulega enginn ættleri. Því
hann var stór og föngulegur
eins og föðurafinn, greindur vel
og með afbrigðum samvizku-
samur og áreiðanlegur og það
svo, að væri honum falið að
leysa eitthvert verk af hendi,
gat maður verið alveg viss um,
að það yrði svo vel af hendi
leyst, að ekki þyrfti að hafa
frekari áhyggjur af því. Þórður
var mjö gákveðinn í skoðunum
og fylgdi fast eftir þeim mál-
um, sem hann taldi rétt vera
og góð, en þó var hann ætíð
Garnahreinsimarstöð
á Blönduósi
Blönduósi 1. des. Unnið er að
því að setja upp vélar í Garna
hreinsunarstöð sem Sölufélag
A-Húnvetninga og S. í. S. ætla
að starfrækja hér. Er von til að
stöðin geti tekið til starfa um
næstu áramót.
Hálka er mikil hér vegna
svellalaga en snjór enginn og
allir vegir færir.
Rjúpnaveiði er heldur meiri
en á undanförnum árum, en
ekki hefur viðrað vel til veiða.
Ó. S.
VARÐBERGSFÉLAG
Á HÚSAVÍK
Húsavík, 1. des. — Þann 10. f.m.
var stofnað hér Varðbergsfélag
— félag áhugamanna um vest-
ræna samvinnu. Formenn fé-
lagsins eru þrír: Stefán Sörens
son, Páll Þór Kristinsson og
Guðmundur Hákonarson, og
félagsmenn 33 talsins.
Þegar á sjó gefur er reitings-
afli. Aliir eru hættir að ganga
til rjúpna og svartfugl sézt ekki.
Þ.J.
sanngjarn í viðskiptum sínum
við aðra, enda ávallt reiðubú-
inn til að fylgja því, sem sann-
ast reyndist í hverju máli.
Þótt Þórður væri mikill al-
vöru- og trúmaður gat hann
verið hrókur alls fagnaðar í
hópi góðra vina, enda hafði
hann mikla kímnigáfu og not-
aði hana þá óspart við slík
tækifæri.
Þórður var hið mesta karl-
menni, djarfur og hugrekkið
óbilandi, enda komu þessir eig-
inleikar hans bezt fram í þeirri
ró og stillingu, sem hann sýndi
í hinni erfiðu banalegu sinni.
Þórður var mjög frændrækinn,
enda hið mesta tryggðatröll
öllum ættingjum og vinum.
Kvæntur var Þórður Jenny
Jónsdóttur frá Bragholti og lif-
ir'hún mann sinn ásamt 3 börn-
um þeirra hjóna-
Þórður hafði fyrir stuttu tek-
íð við forstjórastarfi hjá Al-
mennum tryggingum hér í bæ,
en hjá þessu fyrirtæki hafði
hann unnið mörg undanfarandi
ár, sem fulltrúi, við hinn bezta
orðstýr.
Okkur öllum, vinum Þórðar,
þykir sárt að verða að sjá af
honum í blóma lífsins, á bezta
starfsaldri, en að sjálfsögðu er
missirinn mestur fyrir eigin-
r
Arnað
ÞANN 26. desember varð Mar-
grét Jóhannesdóttir húsfreyja í
Uaugaseli í Reykjadal áttræð.
Margrét er fædd að Bimu-
nesi á Árskógsströnd 26. des-
ember 1834, dóttir hjónanna
Margrét Jóhannesdóttir
Guðrúnar Margrétar Kristjáns-
dóttur og Jóhannesar Jóhannes
sonar, sem þá bjuggu á Birnu-
nesi- Hjá þeim ólst Margrét upp
til 14 ára.aldurs, er þau brugðu
búi og fluttu frá Birnunesi. Þá
varð Margrét af fara til vanda-
lausra og vinna fyrir sér, sem
algengt var með unglinga á
þeim tíma. Voru það. ekki alit
konu og börn, svo og fyrir aldr-
aða móður og systkini, því að
vitað er að með þeim var mik-
ill kærleikur.
Ég sendi hinum látna vini
mínum hinztu vinarkveðju og
eiginkonu hans, börnum, bróð-
ur og systrum einlægar samúð-
arkveðjur vegna hins mikla
missis þeirra.
Jóhann Þorkelsson.
IDJA SEGIR UPP
SAMNINGUM
Á FÉLAGSFUNDI í Iðju, fé-
lagi verksmiðjufólks var áð-
ur samþykkt að segja upp
núgildandi kaup og kjarasamn-
ingum, en eins og kunnugt er
samdi Iðja í desember sl. til
eins árs og rennur því samnings
tíminn út nú um áramótin.
Iðja átti ekki aðeild að því
samkomulagi, sem gert var á sl.
sumri milli verkalýðssamtak-
anna, vinnuveitenda og ríkis-
stjórnar.
Hinsvegar gerði Iðja bráða-
byrgðasamkomulag við vinnu-
veitendur iðnaðarins hér á Ak-
ureyri, um 5.4% launahækkun
frá 1. júlí sl. Var það samkomu-
lag gert þrátt fyrir það, að það
var skoðun Iðju að umrædd
hækkun svaraði engan veginn
til þeirra launabreytinga sem
fólst í samningum hinna al-
mennu verkalýðsfélaga, en' gat
þá ekki náð meiru fram. Nú
mun félagið hafa í huga að ná
fram ýmsum lagfæringum á
samningunum til hagsbóta fyr
ir iðnverkafólk.
létt störf, sem unglingum voru
ætluð í þó daga. Árið 1918 flutt-
ist Margrét austur í Þingeyjar-
sýslu, 1920 giftist hún svo Helga
Ásmundssyni í Laugaseli og
hafa þau búið þar síðan. Þau
hafa eignast tvö börn, dreng
sem dó í bernsku, og dóttur,
sem er hjá þéim. Áður en Mar-
grét giftist hafði hún eignast
son, Kjartan að nafni, faðir
hans var Stefán Björnsson, þá
(1909) teikni- og smíðakennari
við Gagnfræðaskólann á Akur-
eyri (nú Menntaskólann á Ak-
ureyri). Þennan son sinn hafði
Margrét alltaf hjá sér og ól
hann upp. Má nærri geta að
hún hefur þurft að taka til
hendi til þess að sjá sér og hon-
um farborða þar til hún giftist,
en eftir það var allt léttara, því
maður hennar reyndist stjúp-
syninum mjög vel.
Margrét er kona mjög vel
gefin til munns og handa, hún
er vel hagmælt, og á yngri ár-
um stundaði hún fatasaum og
var eftirsótt til þeirra starfa,
sökum dugnaðar og lagvirkni.
Margrét er hreinskilin og
stórlynd nokkuð, en heiðarleg,
svo hún má ekki vamm sitt
vita á nokkurn hátt, greiðasöm
og má ekkert aumt sjá, svo hún
reyni ekki úr að bæta. Allir,
sem Margréti þekkja, munu
senda henni hlýjar kveðjur ó
afmælinu.
HÁTÍÐAMESSUR og samkom-
ur kristilegra félaga í Akureyr-
arprestakalli og víðar eru aug-
lýstar á 7. síðu undir fyrirsögn-
inni Ur bæ og byggð.
HÓTEL KEA. Hótelið verður
opið með svipuðu sniði og aðra
daga, nema á aðfangadags-
kvöld, en þá mun verða lokað
þar eftir kl. 21. — Dansleikir
verða þar á vegum Skíðaráðs
Akureyrar á annan í jólum og
á gamlárskvöld-
MATSTOFA KEA verður lok-
uð frá kl. 2 e. h. á aðfangadag til
kl. 8 að morgni 27- desember
og frá kl. 2 e. h. á gamlársdag
til kl. 8 að morgni 2. janúar.
CAFÉ SCANDIA verður lokuð
um jól og nýár.
HJÁLPEÆÐISHERINN. Eins
og áður verður tekið á móti
gestum, bæði í mat og gistingu
um jól og nýár-
SJÁLFSTÆÐISHÚSIÐ. Þar
verður engin veitingasala fyrr
en á annan í jólum, um kvöldið.
en þá verður dansleikur, og
einnig á gamlárskvöld. Þá verð-
ur og dansleikur á nýársdags-
kvöld fyrir fullorðið fólk, sem
ekki hefur komið því við að
skemmta sér á gamlárskvöld-
ALÞÝÐUHÚSIÐ- Eldri dansa
klúbburinn efnir til dansleiks
þar 30. desember og áramóta-
fagnaður verður 31. desember.
SKÍÐAHÓTELIÐ verður opn-
að á ný sunnudaginn 27- des-
ember. Verður þar eins og áður
bæði gisting og veitingasala. —
Daglegar bílferðir verða að og
frá hótelinu frá ferðaskrifstof-
unni Lönd & Leiðir. — Nám-
skeið fyrir leiðbeinendur á skíð
um verður frá 27. desember til
3. janúar.
JÓLATRÉSFAGNAÐIR. Barna
síúkurnar halda jólatrésfagnað
27. desember og Starfsmanna-
félag KEA stendur fyrir jóla-
trésfagnaði fyrir börn 29. des-
ember, bæði að Hótel KEA, og
KA efnir til jólatrésfagnaðar
26' desember og Þór 27. des-
ember, bæði í Sjálfstæðishús-
inu. Einnig verður jólatrésfagn-
aður hjá Hjálpræðishernum,
Zion og e. t. v. víðar.
SAMKOMUHÚSIÐ. Leikfélag
Akureyrar sýnir Tangarsókn
tengdamömmu 27. og 28. des-
ember og verða það síðustu
sýningar á leiknum.
BORGARBÍÓ. Jóla- og nýárs-
mynd verður Arab.u-Lavvrence,
verðlaunamynd, gerð eftir sam-
nefndri sögu. — Dagsýningar
verða fyrir yngri borgarana og
verða sýndar teiknimyndir, er
ekki hafa sézt hér áður.
NÝJA-BÍÓ. Jólamynd verður
dönsk gamanmynd í litum,
Meðlijálpari majorsins- — Jóla-
mynd barnanna verður Litlu
bangsarnir tveir, og verður hún
sýnd á daginn.
SUNDLAUG AKUREYRAR
verður lokuð jóladag, annan í
jólum og nýársdag.
BRENNUR verða víðsvegar í
úthverfum bæjarins og mælist
lögreglan til þess, að ekki verði
kveikt í þeim fyrr en kl. 21 á
gamlárskvöld. — Brýnt er fyr-
ir ökumönnum að nota bifreiðá
stæðið sunnan við BSO.
BIFREIÐASTÖD ODDEYRAR
verður lokuð á aðfangadag frá
kl. 6 e. h. Á jóladag verður
alveg lokað. Á gamlársdag verð-
ur opið til kl. 3,30 eftir mið-
nætti, en á nýársdag alveg lok-
að. 1
STRÆTISVAGNAFERÐIR um
jól og nýár verða þannig: Að-
fangadag kl. 7 til 16,30. Jóladag
kl. 14,30 til 16,30. Annan jóla-
dag kl. 13,30 til 21,00. Gamlárs-
dag kl- 7,00 til 16,30. Nýársdag'
kl. 14,30 til 16,30.
LÆKNAVAKTIR: Aðfangadag
ur: Sigurður Ólason, sími
1-12-34. Jóladagur: Baldur Jóns
son, sími 1-27-80. Annar jóla-
dagur: Bjarni Rafnar, sími
1-22-62. Gamlársdagur: Erlend-
ur Konráðsson, sími 1-20-50.
Nýársdagur: Halldór Halldórs-
son, sími 1-17-20.
LÖGREGLAN varar eindregið
við hvers konar sprengjum,
sem oft hafa valdið slysum, og
biður foreldra og aðra, að gera
lögreglunni aðvart, ef þeir vita
af sprengjuefni í fórum barna
og unglinga. Sími lögregíunnar
er 1-22-22.
BRUNAVARNIR. Slökkviliðs-
stjóri minnir bæjarbúa á þá
auknu eldhættu, sem jafnan er
samfara jólum og áramótum,
og hvetur því fólk til fyllstu
varúðar, svo eldurihn nái ekki
að spilla jólagleðinni. — Bruna-
sími slökkvistöðvarinnar er
1-22-00.
FRÁ BÆJARSTJÓRN
Eyjafjarðarsýsla aðili að Amts
bókasafninu? — Eftir tillögu
bæjarráðs var samþykkt, „að
teknir verði upp samningar
milli bæjarstjórnar Akureyrar
og sýslunefndar Eyjafjarðar-
sýslu um aðild Eyjafjarðarsýslu
að Amtsbókasafninu í samræmi
við lög nr. 22 1963 um almenn-
ingsbókasöfn, þar sem gert er
ráð fyrir, að Akureyri og Eyja-
fjarðarsýsla sé eltt bókasafns-
umdæmi."
Jórunn Bjarnadóítir ljósmóð-
ir hættir störfum. — Jórunn
Bjarnadóttir ljósmóðir bæjar-
ins hefir sagt upp starfi sínu frá
og með 1. febrúar n. k., en hún
verður 65 ára 9. sama mánað-
ar-. . .. El
lieilla