Dagur - 20.01.1965, Qupperneq 6
6
- „Ólíkf höfumsf við á"
(Framhald a£ blaðsíðu 8).
í>essi aukning útflutningsbót-
anna stafar af tveimur ástæð-
um. Önnur ástæðan er sú, að
mjólkurframleiðslan hefur vax
ið ört síðustu 3 árin og mun
nieira en nemur söluaukning-
unni innanlands, sem er um 3%
á ári. Á sama tíma heíur út-
flutningur kindakjöts minnkað
vegna minnkandi framleiðslu.
Hin ástæðan er verðþenslan og
þar af leiðandi hækkun fram-
leiðslukostnaðar.
Stafaði verðhækkun landbún
aðarvara sl. haust eingöngu eða
aðallega af hækkun á kaupi
bóndans í verðlagsgrundvellin-
um?
Nei, meirihluti verðhækkunar
innar varð vegna hækkunar á
verði rekstrarvaranna. Þannig
hækkaði, samkv. útreikningi
Hagstofunnar, kjamfóður um
18,9%, tilbúinn áburður um
18,3%, girðingarefni um 17,1%,
rekstrarvörur til véla um 15,7%
og aðkeypt vinna um 21,9%.
Kaup bóndans liækkaði aðeins
til samræmingar við áður fram
konmar tekjuhækkanir verka-
manna, sjómanna og iðnaðar-
manna.
Getur íslenzkur landbúnaður
flutt út vörur í samkeppni við
landbúnað annarra landa?
Eg geri ekki ráð fyrir, að
hægt sé að framleiða liér mjólk
eða mjólkurvörur til útflutn-
ings á samkeppnishæfu verði.
Vörugæðin eru hinsvegar sam
bærileg við það, sem bezt þekk-
izt erlendis. En ef tryggt á að
vera að fullnægt sé neyzluþörf
innanlands þegar illa árar í
sveitum, verður að gera ráð fyr
ir einhverri umfram-framleiðslu
þegar vel árar, varla minna en
5—10%. Á ull og ’gærur eru
engar útflutningsbætur greidd-
ar og verð á þeim vörum hefur
undanfarin ár verið hækkandi.
Fyrir kjötið fékkst sl. ár ca.
hálfviðri erlendis, miðað við
innlenda markaðinn. Flutt voru
út rúmlega 1400 tonn eða fram
undir 15% af ársframleiðslu af
kindakjötinu. Jafnframt er á
það að líta, að kindakjöt, ull og
gærur eru óaðskiljanleg fram-
leiðsla. Og í heild voru útflutn
ingsbætumar sl. ár ekki nema
um 30% af hinu skráða verði.
Erlendis fengust 70%.
Eru landbúnaðarvörurnar
eina framleiðslan hér á landi,
sem nú stendur höllum fæti við
samanburð erlendis?
Nei, verðþenslan, sem hefur
orðið síðustu árin, hefur haft
þær afleiðingar, að nærri öll
framleiðsla er dýrari en sams-
konar framleiðsla í nágranna-
löndum okkar.
Sjávarútvegurinn fékk sl. ár
verðuppbætur úr ríkissjóði, og
þó eru her talin einhver beztu
fiskimið í heimi og afköstin
mjög mikil. Ýmiskonar iðnaður
stendur mjög höllum fæti vegna
innflutnings á erlendum vörum
á lægra verði, þrátt fyrir tolla.
fslenzk áburðar- og sements-
framleiðsla, sem talin er til stór
iðju, á okkar mælikvarða, þarf
að fá mun hærra verð en hlið-
stæð framleiðsla hjá nágranna-
þjóðum. Það er víst Iíka liægt
að fá mun ódýrara húsnæði er-
lendis en það, sem hér er fram
leitt nú. Verðþenslan og dýrtíð
in segir allsstaðar til sín.
Getur þú nefnt einhver dæmi
þess, hvernig þjóðfélögin búa
að landbúnaðinum í öðrum lönd
um?
Á Norðurlöndum eru styrkir
til landbúnaðar margvíslegir, og
sérstök áherzla lögð á að halda
við byggð í sveitum. Eru styrk
ir í Noregi t.d. langhæstir þar,
sem búsetu- og framleiðsluskil
yrði eru erfiðust. M.a. greiðir
ríkið sérstaka verðuppbót þar
sem svo stendur á. Sem dæmi
um þetta í V.-Þýzkal. má geta
þess að sl. vor var talið að 25%
af brúttótekjum bænda væru
beinir styrkir frá ríkinu. Niður
greiðslur þá auðvitað ekki tald
ar. Ef íslenzkir bændur nytu til
svarandi styrkja, ættu þeir að fá
75—80 þús kr. hver að jafnaði.
Auk þessara beinu styrkja sér
vestur-þýzka ríkið um, að bænd
ur fái allt að 90% af kostnaðar
verði íbúðar- og peningshúss að
láni með 1,5% vöxtum. í Bret-
landi er landbúnaðurinn styrkt
ur mjög mikið. Greiddar niður
ýmsar rekstravörur, svo sem
kjamfóður og áburður. Hár
styrkur er greiddur til fjárfest-
ingar í sveiíum og auk þess
beinir framleiðslustyrkir til allra
búgreina. Talið var, að þess-
ar rekstrarvörur, framleiðslu-
og fjárfestingarstyrkir hafi á sl.
ári numið 80% af nettótekjum
brezkra bænda. Ef íslenzkir
bændur fengju þær netíótekjur,
sem þeim er ætlaðar í verðlags
grundvelli, væri hliðstæð tala
hér um 130 þús. kr. Brezka
verkamannastjómin liefur nú í
hyggju að auka enn aðstoð við
landbúnaðinn í þeim hémðum
Bretlands, sem erfiðasta búskap
araðstöðu hafa. Ólíkt höfumst
við að, gæti Wilson sagt við
suma ráðamenn hér á landi.
Hvernig er að þínum dómi
hægt að bæta framleiðsluað
aðstöðu landbúnaðarins?
Hægt væri að draga úr fram-
leiðslu- og fjárfestingarkostn-
aði t.d. með því að fella niður
tolla af landbúnaðarvélum (10-
35%), greiða niður áburðarverð
ið eins og nágrannaþjóðimar
gera og stórbæta lánsfjármögu-
leikana. Hér greiða bændur 6-
6.5% vexti í stofnlánadeild og
að auki 1% stofnlánaskatt af
landbúnaðarafurðunum, sem
jafngildir 4% viðbótarvöxtum á
öllum stofnlánadeildarlánum til
bænda — á sama tíma sam v-
þýzkir bændur greiða 1,5%
vexti. Ef þetta væri gert og
fleira að hætti annarra þjóða,
þætfi mér líklegt, að sauðfjár-
afúfðjínif 'jjðu samkeppnisfær
ar á eríendum markaði.
Eg er ráðherrunum sammála
um að sú landbúnaðarpólitík,
sem nú er rekin af ríkisvaldinu,
standist ekki, segir Gunnar Guð
bjartsson, formaður Stéttarsam
hands bænda að lokum og þakk
ar blaðið hin glöggu og eftir-
tektarverðu svör hans.
TIL SÖLU:
■
\?el með farið trommu-
sétt og tveir armstólar.
Uppl. í Vanabyggð 4E
og síma 1-21-46.
TIL SÖLU:
Deutz-dráttarvél, 17 hest-
afla, með gálga, skóflu og
sláttuvél með vökvalyftu.
Einnig K\ernelands hey-
kvísl og heyýta.
■k/f Anton Jónsson,
Naustum, Akureyri.
Sími 1-29-58.
TIL SÖLU.
Dieselrafstöð, 220 volt,
12Ys k\v., þriggja fasa,
riðstraiumur.
Upplýsingar gefur
Þórður Kárason, Hólum,
sími um Bægisá.
UNGLIN G ASKÍÐI
og SKÍÐASKÓR til sölu.
Enn fremur vandaður
FATASKÁPUR.
Uppl. í síma 1-26-07.
TIL SÖLU:
Skíði, skíðastafir og
skíðaskór fyrir 10—12
ára dreng.
Mjög lítið notað.
Uppl. í síma 1-21-62.
LÍTIL ÍBÚÐ
óskast sem fyrst.
Guðmundur Búason,
sími 1-23-90.
TIL SÖLU:
Nýlegt vandað lnis
við Kringlumýri.
Veiti þeim, sem áhuga
hefðu á kaupum, upplýs-
ingar næstu daga.
Ingvar Gíslason, hdl.
Sími 1-10-70.
PEYSUJAKKAR
GOLFTREYJUR
úr ull, margir litir.
GOLFTREYJUR
úr dralon,
röndóttar, ný gerð.
VERZLUNIN DRÍFA
UNGBARNA-
FATNAÐUR
í miklu úrvali.
VERZLUNIN DRÍFA
HJARTAGARN
er alull.
Hlýtt í kuldanum.
9 stærðir, ótal litir,
nýjar uppskriftir.
Mjög fallegt úrval.
Verzlun Ragnheiðar
0. Björnsson
NÝKOMNIR:
KARLMANNA
KULDASKÓR
úr leðri, verð kr. 496.00.
Væntanlegt næstu daga:
KARLMANNA
SNJÓBOMSUR og
SKÓHLÍFAR
SKÓVERZLUN
M. H. LYNGDAL H.F.
ÍSLENZK-AMERÍSKA FÉLAGIÐ . AKUREYRI
Fundur
verður haldinn í Lesstofu Íslenzk-ameríska félagsins,
föstudaginn 22. janúar 1965 og hefst kl. 8.30 e. h.
FUNDAREFNI:
Mr. Don Torrey, hinn nýi forstöðumaður Upplýsinga-
þjónustu Bandaríkjanna á íslandi, flytur erindi sein
hann nefnir:
Review of U.S. History and the Devellopment of the
American Character.
Jafnframt verður sýnd kvikmynd, með íslenzku tali,
úr þróunarsögu Bandaríkjanna.
Félagsmenn. Fjölmennið og takið með ykkur gesti.
STJÓRNIN.
TIL SÖLU:
Opel Capitan, árg. 1960,
í mjög góðu ásigkomu-
lagi.
Uppl. í síma 1-22-96.
Auglýsingasími Dags
er 1 -11 - 6 7
AKUREYRINGAR! - NORÐLENDINGAR!
Höfum söluumboð fyrir Santeinaða gufuskipafélagið.
Fyrsta ferð Kronprins Olav verður frá Reykjavík 17.
apríl n.k.
F erðaskrif stof an SAGA
Skipagötu 13, Akureyri — Sími 1-29-50
Golfklúbbur Akureyrar!
AÐALFUNDEIR sunnudaginn 24. þ. m. kl. 3.30 e. h.
að Hótel KEA, Rotarysal. .
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
3. Mikilvægt mál.
Félagar! Fjölmennið og mætið stundvíslega.
STJÓRNIN.
1