Dagur - 20.01.1965, Side 7
7
A AÐ TAKA ÖLLU MEÐ
ÞÖGN OG ÞOLINMÆÐI?
TILEFNI þessara skrifa er, að
ég fékk reikning frá Landsím-
anum, þennan bláa miða, sem
flestir símnotendur hafa fengið
í hendur nú síðustu daga. Það
er nú svo, að ef verzlun sendir
mér reikning fyrir vörur, sem
ég hef aldrei fengið, þá borga
ég hann ekki. Með þennan
símareikning gegnir öðru máli.
Ef hann er ekki borgaður fyrir
vissan tíma, er lokað fyrir sím-
ann og þýðir ekkert að mögla.
Það er nú svo, að maður vill
helzt ekki borga fullt gjald,
nema fyrir fulla þjónustu.
Hvernig hefur þjónusta sím-
ans verið að undanförnu? Það
vita allir bæjarbúar. Hvað mik-
ið sem á hefur legið, er aldrei
hægt að treysta á símann. Það
hefur þurft að bíða í lengri
tíma eftir sóninum. Svo loks-
ins er númerið valið, sem
hringja á í, og maður fær allt
annað númer. Biður auðmjúk-
lega afsökunar á ónæðinu og
reynir á nýjan leik, og allt fer
á sömu leið. Svo er líka hægt
að koma inn á samtöl, og dæmi
eru til, að 4— hafa talað sam-
an í einu.
Nú langar mig að spyrja:
Hafa allar þessar truflanir, í
svo langan tíma, verið alveg
óhjákvæmilegar? Eða er treyst
á að notendur taki öllu með
þögn og þolinmæði, og borgi
meira að segja fyrir ónæðið?
Auðvitað má segja, að þessi
óþægindi séu í okkar þágu gerð,
því sú breyting,'sem verður á
stöðinni, verður til mikils hag-
ræðis fyrir okkur notendur —
FLUGFÉLAG ÍSLANDS, sem
undanfarin tvö sumur hefur
haldið uppi flugi um Færeyjar,
hefur ákveðið að halda þeirri
þjónustu áfram á sumri kom-
anda og verður fyrsta ferðin far
in frá Reykjavík 6. maí n. k.
Áætlunarflugferðum Flugfé-
lagsins til og frá Færeyjum í
sumar verður þannig hagað, að
skulum við vona. En skyldi það
ekki vera kostur fyrir landsím-
ann líka? Einhver starfsfólks-
fækkun hlýtur að verða, en
ekki hef ég heyrt minnst á
lækkun afnotagjalds í því sam-
bandi. En hvað um það. Núver-
andi ástand með símann er
óþolandi og óskandi að ráðin
verði bót á því sem allra fyrst.
Akureyri 15. janúar 1965.
flogið verður frá Reykjavík
hvern fimmtudagsmorgun, til
Færeyja og þaðan samdægurs
til Glasgow. Daginn eftir verð-
ur flogið frá Glasgow, til Fær-
eyja og þaðan eftir stutta við-
dvöl til Reykjavíkur.
í Færeyjum mun Flugfélag
Færeyja annast afgreiðslu 'flug
vélanna, en það hefur skrifstofu
í Þórshöfn og einnig í Sörvogi
á Vogey.
í fyrrasumar hófst fíug til
Færeyja 19. maí og stóð til
loka september. Farþegar á
flugleiðum Flugfélagsins til og
frá Færeyjum voru 1485.
Um þessar mundir eru í und-
irbúningi allmiklar framkvæmd
ir við flugvöllinn á Vogey.
Flugbrautin verður lengd og
ennfremur verður fjarskipta-
búnaður aukinn og aðstaða
bætt. Gert er ráð fyrir að þess-
um framkvæmdum verði að
fullu lokið 1. júní. □
ÞEIR TRYGGJA
GÓÐHESTANA
SAMVINNUTRY GGINGAR
hafa fyrir nokkru auglýst trýgg-
ingar á hestum og notá 'reið-
menn í höfuðborginni sér þær
og tryggja gæðinga sína.
Reynslan hefur sýnt, að þess-
ara tryggingar er full þörf. Hér
við Eyjafjörð, og sérstaklega á
Akureyri, er margt góðhésta og
slys á þeim öðru hverju. Mætti
því vænta, að þessi þáttur trygg
inga yrði ýmsum kærkominn
hér um slóðir. Forstöðumaður
Samvinnutrygginga hér nyrðra,
Jóhann Kröyer, sagði blaðinu
nú í vikunni, að hestatrygging-
ar myndu væntanlega hefjast
mjög fljótlega, þegar hann hefði
fengið í hendur nauðsynleg
Plögg. □
- Vélstjóranámskeið
(Framhald af blaðsíðu 1).
skeið fá þeir réttindi II. vél-
stjóra á fiskiskipum.
Bókleg kennsla hefur farið
fram á Bjargi, en hin verklega
í húsnæði við Gránufélagsgötu.
Forstöðumaður námskeiðsins
er jafnframt aðalkennari þess,
en auk þess kenndu Árni Krist-
jánsson menntaskólakennari,
Gunnar Ágústsson stöðvarstjóri
í Skjaldarvík, Dúi Björnsson
skátaforingi o. fl. □
RÚN 59651207 — 1 .:. Atkv.
I.O.O.F. 1461228M; — Sk. Y. M.
MESSA í Akureyrarkirkju n.
k. sunnudag kl. 2 e. h. Sálm-
ar nr. 223, 327, 112, 251 og
36. — P. S.
ÆSKULÝÐSMESSA verður í
Barnaskóla Glerárhverfis n.
k. sunnudag kl. 2 e. h. Sálm-
ar nr. 572, 372, 318, 648 og
424. Ungmenni lesa pistil og
guðspjall. Þess er óskað að
foreldrar komi með börnun-
um og ungmennunum. B. S.
MYNDASÝNING Sunnudaga-
skólabarna í Akureyrar-
kirkju (kapellunni) kl. 5 e. h.
miðvikudag.
SUNNUDAGASKÓLI Akur-
eyrarkirkju n. k. sunnudag
kl. 10,30 f. h. — Eldri börnin
uppi í kirkjunni, yngri börn-
in í kapellunni. — Sóknar-
prestarnir.
KRISTNIBOÐSHÚSH) ZION.
Sunnudaginn 24. janúar. —
Sunnudagaskóli kl. 11 f. h.
Öll börn velkomin. Samkoma
kl. 8,30 e. h. Allir velkomnir.
I.O.G.T. Stúkan fsafold-Fjall-
konan no. 1. — Fundur að
Bjargi fimmtudag 21. þ. m.
kl. 8,30 e. h. — Fundarefni:
Vígsla nýliða. Rætt um þorra
blót o. fl. — Eftir fund: Kaffi,
leikþáttur og spurningaþátt-
ur. — Æ. t.
GOLFKLÚBBUR AKUREYR-
AR heldur aðalfund n. k. sunnu
dag að Hótel KEA. Sjáið nán-
ar auglýsingu.
AÐALFUNDUR Kvenfélagsins
Hlífar verður haldinn föstu-
daginn 22. janúar kl. 8,30 e. h.
í Sjálfstæðishúsinu (uppi). —
Venjuleg aðalfundarstörf. —
Kaffi keypt á staðnum. —
Stjórnin.
SLYSAVARNARKONUR, Ak-
ureyri. Gerið svo vel að koma
bazarmununum og kaffipen-
ingunum til einhverrar eftir-
talinna kvenna, eigi síðar en
28. janúar n. k. Sigríðar Árna
dóttur, Vonabyggð 5. Krist-
rúnar Finnsdóttur, Ásveg 14.
Fríðu Sæmundsdóttur, Mark-
aðinum. Valgerðar Franklín,
Aðalstræti 5. Sesselju Eld-
járn, Þingvallastræti 10. —
Nefndin.
MINJASAFNIÐ. Opið á sunnu-
dögum kl. 2—5 e. h.
VESTFIRÐINGAR! Munið Sól-
arkaffið í Alþýðuhúsinu n. k.
laugardag. Sjáið nánar aug-
lýsingu í blaðinu.
ÞÓRSFÉLAGAR —
GAMLIR OG UNGIR!
Mætið á Gleráreyrum
eftir hádegi á laugar-
dag — til starfa við
brennuna. — Mætið vel!
DANSLEIKUR!
Nemendur nýlokins Mót-
ornámskeiðs á Akureyri
halda dansleik j Alþýðu-
húsinu n.þ. fimmtudags-
kvöld _kl. ,9—2. e. m. ,,
PÓLÓ .Qg ERLA
leika og syngja.” •
Vélstjórar.
ÓDÝRT! ÓDÝRT!
Seljum næstu daga
ÞYKKAR KARLMANNAPEYSUR
verð aðeins frá kr. 200.00
íslenzk ullarnærf öt
HERRADEILD
Eiginkona mín
HELGA MAGNEA KRISTINSDÓTTIR
frá Möðruvöllum,
lézt að heimili okkar, Ásvegi 23, Akureyri, aðfaranótt
18. janúar. — Jarðarförin verður gerð frá Akureyrar-
kirkju föstudaginn 22. þ. m. kl. 1.30 e. h.
Jóhann Valdemarsson.
Faðir minn,
BERGVIN JÓHANNSSON,
sem andaðist á Fjórðungssjúkraliúsinu á Akureyri
mánudaginn 11. þ. m. verður jarðsettur frá Svalbarðs-
kirkju laugardaginn 23. þ. m. kl. 1.30.
Fyrir hönd vandamanna.
Jóhann Bergyinssón.
Bróðir minn,
SVEINN MAGNÚSSON, Þröm,
sem andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 13.
janúar verður jarðsunginn að Kaupangskirkju fimmtu-
daginn 21. janúar kl. 1.30 e. h.
Steinar Magnússon.
Kona úr bænum.
Færeyjaflugið hefst aftur 6. maí
Flugbrautin í Yogey verður lengd til muna
FRAMLÖG í DAVÍÐSHÚS: —
Ingvi R. Jóhannsson, Löngu-
mýri 22, Akureyri, kr. 500,00.
Ármann Dalmannsson og Sig-
rún Kristjánsdóttir, Aðalstr.
62, kr. 600,00. Jón Sigurgeirs-
son, Klapparstíg 1, kr. 500,00.
Jónina Steinþórsdóttir og Ei-
ríkur Sigurðsson, Hvannav. 8
Akureyri, kr. 1.000,00. Magn-
ús Guðmundsson, Lækjarg. 9
kr. 200,00. Þórólfur Jóhanns-
son og Snorri Jóhannsson,
Byggðaveg 97, kr. 1.000,00.
Páll Björgvinsson, Efra Hvoli
Rang. kr. 100,00. Ingunn Ósk
Sigurðardóttir, Efra Hvoli,
Rang. kr. 100,00. Ragnheiður
Pálsdóttir, Efra Hvoli, Rang.
kr. 100,00. Helga Pálsdóttir,
Efra Hvoli, Rang. kr. 100,00.
Jónína Árnadóttir, Holtsgötu
6, Reykjavík, kr. 100,00. Þur-
íður Árnadóttir, Holtsgötu 6,
Reykjavík, kr. 100,00. Valde-
mar Pálsson, Byggðaveg 89,
Akureyri, kr. 1.000,00. Þór-
oddur Jónsson, Akurbakka,
S. Þing. kr. 200,00. Sigríður
Guðmundsdóttir, Lokast. 20,
Reykjavík, kr. 500,00. —
Beztu þakkir. Söfnunarnefnd.
FRAMLÖG f DAVÍÐSHÚS: —
Degi hafa borizt þessar gjafir
til Davíðshúss: Þórir Áskels-
son, kr. 1.000,00. Jón Rögn-
valdsson kr. 1.000,00. Kristján
Rögnvaldsson kr. 1.000,00.
Helgi Valtýsson kr. 1.000,00.
Sigurður Óli Brynjólfsson kr.
1.000,00. Þórarinn Björnsson
kr. 1.000,00. Eiríkur Brynjólfs
son kr. 1.000,00. Erlingur Dav
íðsson kr. 1.000,00. Garðar
Guðjónsson kr. 1.000,00. Gísli
Magnússon kr. 200,00.
FRÁ SJÁLFSBJÖRG.
Almennur félagsfund-
ur verður haldinn að
Bjargi mánudaginn 25.
þ. m. kl. 8, 30 e. h. —
Ræddar verða lagabreytingar
o. fl. Félagar fjölmennið. —
Stjórnin. ,
SKÍÐAKLÚBBURINN. Kvöld-
vaka í Skíðahótelinu í kvöld
(miðvikudag). — Farið frá
Lönd & Leiðum kl. 8 e. h. —
Allir velkomnir. Skíðaklúbb-
urinn.
- Austfirðingafélagið
(Framhald af blaðsíðu 8).
félaginu í Reykjavík að útgáfu
Austurlands, tveim fyrstu bind
unum. En síðan hefur Sögufé-
lagið gefið út önnur 4 bindi.
Þá lét Austfirðingafélagið
gera brjóstmynd af Björgvin
Guðmundssyni og nú er það að
láta gera kvikmynd af Austur-
landi, sem Eðvarð Sigurgeirs-
son hefur unnið að og lokið að
mestu. Eiríkur Sigurðsson og
Jónas Thordarson hafa leið-
beint um myndatökuna. Félags-
konur hafa árlega haldið bazar
og safnað fé fyrir félagið, þá
hefur Suður-Múlasýsla þrisvar
veitt styrk til kvikmyndatök-
unnar, ennfremur Norður-Múla
sýsla einu sinni og Neskaupstað
ur.
Félagar Austfirðingafélagsins
á Akureyri eru 110 tals-
ins. Afmælishóf félagsins verð-
ur að Hótel KEA hinn 13.
febrúar n. k. □