Dagur - 24.02.1965, Page 2
KA sækir að marki ÍMA. Gísli Bjarnason er ineð knöttinn, Hafstcinn að baki hans. (Ljósm.: N. H.)
Völsungsr NorÖurlandsmeistarar í kvennaflokki
Keppendur á Norðurlandsmóti í handknattleik
eru um 180 - Áhorfendur voru mjög margir
S. L. laugardag hófst í Kafveituskemmunni á Akureyri Hand-
knattleiksmót Norðurlands. Mót þetta mun vera fjölmennasta
íþróttamót, sem fram hefur farið á Norðurlandi. Keppendur eru
alls um 180, frá Völsung á Húsavík, KA, Þór og ÍMA. Mótið hófst
kl. 2 e. h. og var engin setningarathöfn og var það miður, þar sem
þetta er Norðurlandsmót. — Það er ánægjulegt að Húsvíkingar
skuli vera með og er vonandi að fleiri kaupstaðir eða ungmenna-
félög sendi keppendur í framtíðinni. —
Það sem mest hefur staðið
handknattleiknum og öðrum
inniíþróttum fyrir þrifum hér
að undanförnu er húsnæðis-
leysið. Á Húsavík er þó ágætur
salur og verið er að byggja
íþróttahús á Dalvík. Hér á Akur
eyri hefur ríkt hreint vandræða
ástand undánfarin ár, en í vet-
ur hefur aðstaða fengizt í Raf-
veituskemmunni og er árangur
inn af því þegar kominn í ljós.
Ekki er vitað hvernig úr rætist
með húsnæði næsta vetur, en
vinda verður bráðan bug að því
að skapa íþróttamönnum okkar
góð æfingaskilyrði fyrir inni-
íþróttir.
Keppnin á laugardag.
Fyrsti leikur mótsins var í II.
flokki karla milli Þórs og Völs-
unga. Leikurinn var heldur til-
þrifalítill og daufur og sigraði
Þór með 10 marka mun, 23:13.
Húsvíkingar héldu í við Þórs-
ara í fyrri hálfleik, en í þeim
síðari sýndi Þórsliðið betri leik
og sigraði verðskuldað. Dómari
var Árni Sverrisson.
| Akureyringar leika \
I í IL deild um helgina í
í :■
| AKUREYRINGAR halda i
| áfram þátttöku sinni í Hand- l
I knattleiksmóti íslands í II. \
\ deild um "næstu helgi í =
| Reykjavík og leika þá við ?
1 Val, sem er sigurstrangleg- f
É astur í deildinni. — Liðinu [
\ fylgja beztu óskir og von-1'
| andi standa piltarnir sig vel. i
Næsti leikur var í III. flokki
karla milli Þórs og KA. Þessi
leikur var mjög fjörugur, þó að
Þór kæmist 6 mörk yfir í fyrri
hálfleik. Þennan mun tókst KA
að jafna nokkuð í síðari hálf-
leik en Þór sigraði með aðeins
tveggja marka mun, 15:13. Þórs
liðið lék nú mun betur en í Ak-
ureyrarmótinu. Dómari var Vil
hjálmur Pálsson frá Húsavík.
Þriðji leikurinn var í meist-
araflokki kvenna, Völsungar og
KA léku. Leikurinn var mjög
jafn allan tímann og í hálfleik
var jafntefli, 5:5. Húsavíkur-
'stúlkurnar gerðu út um leikinn
rétt fyrir leikslok og sigruðu
með 13:11 og má segja að þær
hafi unnið verðskuldaðan sigur.
Dómari var Frímann Gunn-
laugsson.
Keppnin á sunnudag.
Fyrsti leikurinn var milli KA
og Völsunga í III. flokki karla.
Völsungar byrjuðu vel og skor-
uðu fyrstu mörkin, en KA-
drengirnir náðu sér á strik í
síðari hálfleik og sigruðu með
11:7. Dómari var Árni Sverris-
son.
Næst léku KA og ÍMA í meist
ara'flökki. karla. Léikurinn var
ójafn eins og vænta mátti og
sigraði KA með 39:18. í lið ÍMA
vantaði einn bezta manninn,
Kjartan Guðjónsson, sem var
veikur. KA-liðið lék nú ekki
~SÁþs vel og í Akureyrarmótinu.
Bezti maður hjá KA var Haf-
:Östeinh..'Þass.jná geta, að einn úr
liði ÍMA „dekkaði“ Ólaf Ólafss.
. allan leikinn og átti hann ekki
hægt um vik að skora. Allt út-
lit er fyrir að KA verði Norður-
landsmeistari í þessum flokki.
Þór og Völsungar senda ekki
lið til keppni í jsessum flokki,
en verða vonandi með næst.
Dómari var Aðalsteinn Jónsson.
Þriðji leikurinn var svo í
meistaraflokki kvenna, ÍMA og
Völsungar léku. Völsungsstúlk-
urnar sýndu nú mjög góðan
leik og sigruðu með 24:1. í hálf-
leik var staðan 16:1. Með þess-
um sigri tryggðu Húsavíkur-
stúlkurnar sér Norðurlands-
meistaratitil og eru þær vel að
honum komnar. Dómari var
Gísli Bjarnason.
Fjórði leikurinn var í II.
flokki karla, milli KA og Völs-
unga. Léku nú Völsungar mun
betur en fyrri daginn, og var
þetta hörku-spennandi leikur,
sem lauk með sigri KA, 13:12.
Dómari var Ólafur Ólafsson.
Þá léku Völsungur og Þór í
IV. flokki karla og sigruðu Þórs
arar með 12:5. Dómari var Árni
Sverrisson.
Að lokum léku svo Völsung-
ar og Þór í III. flokki kvenna.
Þór sigraði með 11:9. Leikurinn
var mjög tvísýnn, en undir lok
tryggðu Þórsstúlkurnar sér sig-
ur. Það vakti athygli, að Völs-
ungsstúlkurnar voru miklu
yngri en Þórsstúlkurnar en
stóðu sig vel. — Dómari var
Árni Sverrisson.
r
ÍR-INGAR, íslandsmeistararnir
í körfuknattleik, koma til bæj-
arins um næstu helgi í boði
fþróttafélagsins Þórs. — Leika
meistararnir tvo leiki hér, ann-
an við Þór á laugardag kl. 5
e. h. en hinn við lið ÍBA á
sunnudag kl. 2 e. h. Báðir leik-
irnir fara fram í íþróttahúsinu.
Þessir leikir eru liðir í sam-
bandi við 50 ára afmæli Þórs.
Vissulega er gaman að fá
snjalla íþróttamenn til keppni
Innanhússmót í frjálsum Iþróffum
Haukur Ingihergsson vann allar greinar
KA gekkst fyrir frjálsíþrótta-
móti innanhúss í íþróttahúsinu
á Akureyri s.l. sunnudag og var
það opið mót. Keppendur voru
alls 12 í tveim flokkum.
Allgóður árangur náðist, t. d.
í hástökki með atrennu, þar
sem tveir keppendur stukku
yfir 1,75 m. Haukur Ingibergs-
son sýndi mezt öryggi og vann
á því. Sigurður Sigmundsson
kom á óvart með sínum árangri
í hástökkinu, þar sem hann var
einnig nærri því að fara yfir
1,80 m í einni tilrauninni. í há-
stökkinu háði það keppendum,
hvað atrennur náðust stuttar.
í yngri flokkunum komu
fram álitleg íþróttamannsefni,
en mest bar á Sigurði Ringsteð
og Haraldi Guðmundssyni.
Úrslit urðu þessi:
ELDRI FLOKKUR.
Langstökk án atrennu. m
Haukur Ingibergsson HSÞ 2,94
Þóroddur Jóhannss. UMSE 2,93
Sig. V. Sigmundss. UMSE 2,89
Þrístökk án atrcnnu. m
Haukur Ingibergsson HSÞ 9,10
Sig. V. Sigmundss. UMSE 8,91
Þóroddur Jóhannss. UMSE 8,73
Hástökk með atrcnnu. m____
Haukur Ingibergsson HSÞ 1,75
Sig. V. Sigmundss. UMSE 1,75
Þóroddur Jóhannss. UMSE 1,50
SVEINAFLOKKUR.
Langstökk án aírennu. m
Haraldur Guðmundss. KA 2,58
Sigurður Ringsteð KA 2,46
Guðm. Ó. Guðmundss. KA 2,39
Þrístökk án atrennu. m
Sigurður Ringsteð KA 7,72
Haraldur Guðmundss. KA 7,58
Guðm. Ó. Guðmundss. KA 7,43
Hástökk með atrennu. m
Sigurður Ringsteð KA 1,50
Þór Sigurðsson KA 1,50
Haraldur Guðmundss. KA 1,40
Mótstjóri var Hreiðar Jóns-
son. □
r
Ivar Sigmundsson KA varð sfór-
svigsmeisfari Akureyrar
STÓRSVIGSKEPPNI Akureyr
armótsins fór fram s.l. sunnu-
dag í Reithólum í Hlíðarfjalli,
og var endamarkið við Stromp-
inn. Veður var ágætt, sólskin
og kýrrt, en hart færi. Úrslit
urðu þessi:
A-flokkur. mín.
ívar Sigmundsson KA 1:20,5
Reynir Brynjólfsson Þór 1:21,6
Viðar Garðarsson KA 1:28,2
Brautin var um 1000 m, fall-
hæð um 235 m og hlið 36.
B-flokkur. mín.
Smári Sigurðsson KA 1:21,2
Sigurður Jakobsson KA 1:23,6
Þorlákur Sigurðsson KA 1:29,6
C-flokkur. mín.
puðmundur Finnss. Þór 1:25,1
Stefán Ásgrímsson ÍMA 1:26,6
Björn Sveinsson KA 1:32,1
ÍVAR SIGMUNDSSON.
Þorsteinn Baldvinss. KA 1:21,9
Guðm. Frímannsson KA 1:26,9
Stúlkur. mín.
Karól. Guðmundsd. KA 1:41,0
Guðrún Sigurlaugsd. KA 1:48,0
Drengir 13—15 ára. mín.
Árni Óðinsson KA 1:14,4
Bjarni Jensson Þór 1:18,9
Örn Þórsson KA 1:20,7
12 ára og yngri. mín.
Arngr. Brynjólfsson Þór 1:21,0
hér m heigina
hér í bænum, en hins vegar
býður aðstaðan í íþróttahúsinu
ekki upp á mikla möguleika í
þessari íþróttagrein. □
Jiilíus Norðurlandsm.
HRADSKÁKMÓT Norðurlands
fór fí-am á Akureyri í fyrrá-
kvöld. Keppendur voru 28, og
sigraði Júlíus Bogason með 23
vinninga, 2. Gunnlaugur Guð-
mundsson 22.
Keppnisstjóri var Hermann
Sigtryggsson. □
SKÁKÞING
NORÐLENDINGA
HEILDARÚRSLIT mótsins
urðu þessi: ■
Meistaraflokkur:
Hjálmar Theodórsson 6 vinn-
inga, Hjörleifur Halldórsson 6,
Jón Björgvinsson 5y2, Margeir
Steingrímsson 5, Jón Ingimars-
son 4V2, Kristinn Jónsson 4V2,
Benedikt Jónsson 2%, Haukur
Jónsson 1 og Rafn Einarsson 1
vinning.
í fyrsta flokki sigraði Þorgeir
Steingrímsson og í öðrum flokki
Sveinbjörn Sigurðsson. □