Dagur - 24.02.1965, Blaðsíða 5
' 4
Skrifstofur, Hafnarstrœti 90, Akureyri
Símar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar li.f.
Feti
framar
Á EÉLAGSRÁÐSFUNDI KEA á
Akureyri á mánudaginn, þar sem
mættir voru fulltrúar 24 félags-
deilda, stjórn KEA, framkvæmda-
stjóri og nokkrir deildarstjórar, flutti
Jakob Frímannsson framkv.stj. yfir-
litsræðu um starfsemi félagsins og
hag á síðasta ári og eru það fyrstu op
inberu fréttirnar af heildarstarfi sam
vinnumanna við Eyjafjörð 1964. Vitn
aði ræða framkvæmdastjórans um
aukna hagsæld, aukið starf og að
meiri framkvæmdir standa fyrir dyr-
um cn nokkru sinni fyrr. Það þættu
eflaust meiri tíðindi á þessum vett-
vangi ef Kaupfélag Eyfirðinga væri
að draga saman seglin svo lengi hef-
ur félagsstarfið verið í vexti, bæði í
verzlun, iðnaði og fleiri greinum.
Á félagsráðsfundum þarf margs að
spyrja, finna að eða hrósa eftir til-
efnum og er mikils um vert, að það
sé gert og málin upplýst að fullu til
að eyða tortryggni, veita og þiggja
hina nauðsynlegu fræðslu og koma
nýjum hugmyndum á framfæri.
Þessi gagnkvæma nauðsyn var vel
rækt, svo senr vera ber. Og það er e.
t. v. mest um vert í eyfirsku samstarfi
og hefur verið frá fyrstu tíð, hve liið
gagnkvæma traust stjómar og fram-
kvæmdastjóra annarsvegar og hinna
almennu félagsmanna hinsvegar er
mikið og óbrigðult. Það hefur vissu-
lega þolað tæpitungulausa gagnrýni
og málefnalegar deilur um fram-
kvæmdaatriði, og svo á það að vera
innan samvinnufélaga. I slíkum um
ræðum og einnig í árásum andstæð-
ingann.a felst oft sjálfur vaxtarbrodd
ur samvinnuhreyfingarinnar.
Það er samvinnumönnum ánægju
efni að hagur félags þeirra er góður
og að ekki verður staðar numið í
Iausn hinna óteljandi verkefna, sem
sameinuð átök ein geta leyst. Sú hug
sjón, sem allt samvinnustarf er byggt
á, hefur aukið félagsþroska manna til
að leysa margþætt vandamál svo ekki
verður um það deilt. Samvinnustarf-
ið hefur fært menn feti framar í
mannlegum samskiptum, og á sviði
fjármála og framkvæmda hafa al-
þjóðasamtök talið samvinnustefnuna
í framkvæmd, fljótvirkasta hjálpar-
taekið til alhliða framfara í þeim lönd
um, sem mestrar aðstoðar þurfa. Átta
tíu ára samvinnusaga á íslandi, undir
strikar baráttu og sigra samvinnu-
manna. Norðlendingar þurfa þó ekki
að fletta blöðum til að leita heimild-
anna, því Jiar blasir sagan við augum
—hið lifandi samvinnustarf — ekki
síst hér við Eyjafjörð.
Söfnun til híiskaupanna vel tekið og heldur
áfram. „Fyrir okkur vakir að varðveita þá
frjóu þögn, sem húsið býr yfir,“ segir Þórarinn
Björnsson skólameistari í viðtali við blaðið
NÚ er ár liðið síðan Davíð Stef
ánsson skáld frá Fagraskógi yf-
irgaf hús sitt, Bjarkarstíg 6 á
Akureyri, sjúkur maður. Hann
andaðist á Fjórðungssjúkrahús
inu viku síðar. Ungur hafði
hann kvatt sér hljóðs á þann
veg, að hann snart hjarta hvers
manns með fyrstu ljóðabók
sinni, sem nú er búið að prenta
-í meira en 50 þúsund eintökum.
ísland hafði eignast mikið skáld
er síðan varð dáðasta skáld
landsins á þessari öld — e.t.v.
óumdeildasta þjóðskáld íslend-
inga fyrr og síðar.
Hús Davíðs við Bjarkarstíg
lét hann sjálfur byggja og þar
bjó hann einn til æviloka. Hús-
ið sjálft og hver hlutur smár og
stór, sem í því var og er, var
heimili hans eins og því hluti af
honum sjálfum, ef það má orða
svo. Þar er hið mikla bókasafn
hans, þar eru hin ýmsu listaverk
og fágætu munir af ýmsum og
ólíkum tegundum. Þar er stein-
gerfingur úr Glerárdal, fornar
altaristöflur, málverk Sölva
Helgasonar, útskurður Bólu-
Hjálmars, ásamt því sem ný-
tízkulegra er. Og þar eru líka
munir þeir, sem skáldið notaði
við störf sín, svo sem blýantur
inn og pappírinn á náttborðinu,
nær fullgert kvæði á borðshorn
inu, undir strendu gleri, sem
hann jafnan lagði ofan á hand-
rit, er hann var með hverju
sinni, penninn hans, tóbakspont
an o. s. frv. Og þar er gamli
stóllinn hans við stóran glugga
þar sem sýn er fegurst út yf-
ir Eyjafjörð. Þar sat hann löng
um og vann, suma tíma þjáður
og , þreyttur, en þar átti hann
einnig náðarstundir. Hinn stór-
brotni og engum líki einsetu-
maður og skáldjöfur fannst
manni fylla húsið sjálfur. Því
gengu menn þar inn með nokkr
urn kvíða, þegar skáldið var horf
ið. En mönnum fannst þar hver
hlutur lífi gæddur og helgur,
svo menn drógu ósjálfrátt skó
af fótum sér. Þannig er hús
Davíðs og þannig viljum við, að
það verði varðveitt sem opið
hús fyrir alla þá menn og kon-
ur, sem þangað vilja koma. Með
því er unnið fyrir samtíð og
framtíð. í húsi Davíðs þarf ekk-
ert að „setja upp“ eða taka
burtu áður en það er opnað al-
menningi. Það er tilbúið og hver
hlutur á sínum stað eins og
skáldið gekk frá því hinzta sinn.
Eins og oft hefur verið frá
sagt, keypti Akureyrarbær hið
mikla bókasafn Davíðs og þá að
gjöf húsmuni, hina ýmsu gripi
hans og listaverk, en hugðist
flytja það allt burt úr húsinu og
koma í geymslu þar til Amts-
bókasafnsbyggingin nýja gæti
tekið á móti því eftir nokkur
ár. Fjöldi manna leit hinsvegar
svo ó, að engu mætti sundra,
heldur þyrfti að varðveita þann
stað, sem var heimili og vinnu-
staður þjóðskáldsins, óhreyfðan.
Að þessu vinna áhugamenn með
almennri fjársöfnun til húsa-
kaupanna undir forystu Þórar-
ins Björnssonar skólameistara
og í samráði við forystumenn
bæjarins, enda var það upphaf-
lega vilji þeirra, að kaupa allar
eftirlátnar eigur skáldsins í
Bjarkarstíg 6 til varðveizlu.
Blaðið sneri sér á sunnudag
inn til Þórarins Björnssonar
skólameistara og spurðist fyrir
um þessi mál.
Hvernig gengur söfnunin?
Okkur hafa virzt undirtektir
góðar. Margir, menn og konur,
víðsvegar um land hafa óskað
eftir að fá senda söfnunarlista.
Til ýmsra annarra manna höf-
um við einnig snúið okkur, sem
yfirleitt hafa brugðist vel við
og safna nú fé til kaupa á Dav-
íðshúsi. Listanir eru því komn-
ir mjög víða í sveitum, þorpum
og kaupstöðum, en hafa auðvit
að ekki skilað sér aftur. Söfnun
in hlýtur eðlilega að taka nokk
uð langan tíma.
Hafa félög gengist fyrir söfn-
un?
Já, og er þá fyrst að minnast
Davíðskvöldsins í Kópavogi.
Víðar munu Davíðskvöld í und
irbúningi, svo sem í Skúlagarði
Akranesi og e.t.v. hjá nýstofn-
uðu félagi í Reykjavík. Á þess
um Davíðskvöldum er skáldið
kynnt og jafnframt safnað til
hússins. Slíkt tel ég heppilegt
og á að vera gagnkvæmur ávinn
ingur, segir skólameistari. Borg
arbíó á Akureyri hefur einnig
ákveðið að hafa sérstaka sýn-
ingu til styrktar þessu málefni.
Hvað er söfnunin orðin mikil
nú?
í sjóð til gjaldkerans okkar,
Haraldar Sigurðssonar í Útvegs
bankanum, mun vera komið um
200 þús. krónur. Þetta fé, er að
mestu úr bænum og nágrenni
hans og á þó áreiðanlega eftir
að bætast hér við svo um mun-
ar.
Hvenær er ráðgert að opna
húsið?
Við eigum ekki húsið ennþá,
en höfum fengið biðtíma hjá erf
ingjunum, á meðan söfnunin
stendur yfir. Nefndinni er það
kappsmál að geta opnað Davíðs
hús fyrir almenning með vorinu
Þeir eru áreiðanlega margir, er
þangað vilja koma og bíða þess
að fá tækifæri til þess. Það
verður enginn fyrir vonbrigð-
um að koma í Davíðshús, frem
ur en þá fáu daga, sem húsið
var opið í vetur. í húsinu sjálfu
þarf engan undirbúning. Þar
er allt til, eins og það var og
verður.
Það heyrast nokkrar hjáróma
raddir um það, að bókasafnið
verði „grafið“ og gagnslaust í
Davíðshúsi. Hvað segir þú um
það, skólameistari?
Fyrir mér hefur alltaf vakað,
segir Þórarinn Björnsson, að
fræðimenn gætu haft afnot af
bókasafni Davíðs og gæti Amts
bókasafnið greitt fyrir því. Eg
gæti jafnvel hugsað mér, að ein
stöku rnenn fengju að dvelja í
húsinu, er þeir ynnu að ein-
hverju því verki, sem vel hent-
aði að vinna ó þeim stað. Og ég
get líka vel hugsað mér, að rit-
höfundar, sem vildu útiloka sig
frá heiminum og lifa í þeirri
kyrrð, sem Davíð skapaði sér í
húsi sínu, fengju aðstöðu til að
gera það. Þar yrði að sjálfsögðu
ekki um fjölskyldur að ræða
eða ys og þys af nokkru tagi.
En þeir eru margir, sem þurfa
að komast undan oki þvargsins,
sem ætlar menn lifandi að
5
drepa. Þau þægindi, sem menn
vanhagar mest um nú, er ein-
mitt kyrrð og ró svo að hæfi-
leikarnir fái notið sín. Það sem
fyrir okkur vakir, er að varð
veita þá frjóu þögn, sem húsið
býr yfir. Það er því alveg frá
leitt, að við viljum „grafa“ eitt
eða neitt, heldur þvert á móti.
Sá hluti af bókasafni Davíðs,
sem fágætur er og dýrmætast-
ur, yrði hvort sem er hvergi til
almennra útlána.
Hvað viltu segja um kostnað
við Davíðshús í framtíðinni?
Um þá hlið málsins er ég
bjartsýnn og þess fullviss, að
bærinn tapar ekki á Davíðshúsi
þegar allt kemur til. Þó að Ak-
ureyri sé fallegur bær og elsku
legur, er ekki margt fyrir ferða
menn að sjá og skoða. Fjöldi
þeirra fer hér um, en á hér ekki
viðdvöl. Eftir því sem bærinn
eignast meira af verðmætum,
sem vert er að skoða, eykur
hann gildi sitt, sem ferðamanna
bær. Straumar fjármagnsins
eru margvíslegir og þótt Davíðs
hús kosti fé, gæsla þess einnig
og viðhald, kemur það aftur eft
ir ýmsum leiðum til bæjarins.
Hvernig fannst þér að koma í
Davíðshús, þegar húsbóndinn
var horfinn?
Eg hafði ekki komið þangað
frá því fyrir andlát Davíðs, þar
til það var opnað almenningi á
sjötugasta afmælisdegi hans
hinn 21. janúar í vetur. Eg hálf
kveið fyrir að koma þangað —
kveið því að verða fyrir von-
brigðum — en ég fann strax
hina lifandi hlýju anda frá hverj
um hlut. Það voru ekki aðeins
hinar mörgu bækur eða ýmsu
gripir, heldur einnig og ekki síð
ur hinir ýmsu smúmunir, sem
fylltu í eyðurnar, og tala til
manns í þögninni. Hver maður
verður þar, held ég, fyrir sterk
um áhrifum, segir Þórarinn
Björnsson skólameistari að lok
um og þakkar blaðið viðtalið.
E. D.
- VERZLUN OC FRAMLEIÐSLA K.E.A. JOKST
(Framhald af blaðsíðu 1).
ins í Hrísey flutt í nýtt húsnæði
áfast við gamla verzlunarhúsið
og sú búð opnuð 28. janúar á sl.
ári.
Allar þessar breytingar hafa
reynzt vel og ánægja ríkt með
þær, sagði framkvæmdastjór-
inn.
Af framkvæmdum þeim, sem
Gunnar Guðnason stjórnaði
fundi.
fyrir dyrum standa eða eru ekki
komnar til afnota nefndi ræðu-
maður tvær: Kjötvinnslustöð-
ina nýju á Oddeyri, sem nú er
verið að múrhúða innan og tek
ur til starfa á næsta ári og nýja
mjólkurvinnslustöð, sem byrjað
verður á innan skamms. Báðar
þessar framkvæmdir eru mjög
fjárfrekar.
Ennfremur gat ræðumaður
ýmsra minni framkvæmda,
þeirra á meðal húsnæði fyrir
garnahreinsunarstöð, þar sem
áður var málmhúðunarverk-
stæði, breytingar á aðalskrif-
stofum KEA o. fl.
Um verksmiðjur félagsins
sagði Jakob Frímannsson, að
þær hefðu allar aukið fram-
leiðslu sína, Efnaverksmiðjan
Sjöfn þó mest.
Afurðaframleiðsla drógst sam
an á árinu nema mjólkin jókst
um 6,5%. Innv. mjólkurmagn
varð rúml. 18,5 millj. lítra. Út-
borgað verð til framleiðenda á
árinu var 84,4 millj. kr.
í sláturhúsum félagsins var
lógað nál. 41 þús kindum. Kjöt
magnið var, þrátt fyrir meiri
vænleika, 7,2% minna en árið
áður. Ennfremur var gæru- og
ullarinnlegg minna, í svipuðu
hlutfalli.
Jarðepli voru um 4 þús. tunn-
ur, sem til geymslu komu á Ak
Pylsugerðin jók enn sína
starfsemi til muna.
Félagið tók á móti svipuðu
magni fiskafurða og árið áður.
Freðfiskur í hraðfrystihúsun-
um á Dalvík og Hrísey var alls
1.307 þús kg. Saltfiskur frá Hrís
ey, Árskógsströnd, Hjalteyri,
Grenivík, Grímsey og Akureyri
var 332 þús. kg. Skreið frá Hrís-
ey, Dalvík, Árskógsströnd og
Akureyri 88.6 þús. kg.
Framkvæmdastjórinn sagði,
að sjávarafurðir seldust mjög
greiðlega og væri á sumum
stöðum ekki nándarnærri unnt
að annast eftirspurnina erlend-
is, birgðir hefðu því engar ver-
ið um síðustu áramót. Svipað
mætti segja um sauðfjárafurðir,
en mjólkurafurðir seljast
dræmt.
Að lokinni skýrslu fram-
kvæmdastjórans hófust umræð-
ur, og lýstu ræðumenn ánægju
sinni yfir góðu gengi félags
síns og þökkuðu framkvæmda-
stjóranum og starfsfólki vel
unnin störf í þágu almennings,
en gerðu síðan margvíslegar
fyrirspurnir og athugasemdir,
sem framkvæmdastjórinn svar-
aði skilmerkilega. Verða þær
ekki ræddar að sinni, nema
þeirrar samþykktar fundarins
getið, að „fundurinn beinir
þeim tilmælum til stjórnarinn-
ar, að hún hlutist til um, að
mál þetta (þ. e. verðjöfnun á
mjólkurflutningum) verði sent
heim í deildirnar til umræðu á
aðalfundum þeirra“.
Því var fagnað á félagsráðs-
fundinum, að enn hefur happa-
sælt starf aukist hjá eyfirskum
samvinnumönnum og framund
tn mörg og verðug verkefni fyr
ir hin traustu félagssamtök að
fóst við og leysa, á grundvelli
samvinnunnar.
1 RONALD FANGEN |
IEIRÍKUR HAMAR |
I Skáldsaga |
<hSíhKHKBS<bSíhkhi< 15 CBSÍHSÍBKHSÍKHKHIÍHS
En fyrst og fremst skyldi hann líka leggja til orrrtstu. . . .
Þetta var að vísu furðuleg afstaða, að þeim Fylki, samherj-
unum, skyldi lenda saman sem andstæðingum. En nú
þurfti hann sannarlega á slíkri hressingarhvöt að lialda:
Eiríkur var orðinn þreyttur á þessu öllu saman. Það var
blátt áfram líkamleg kvöl að minnast fyrstu daganna hér
á skrifstofunni. Þetta er engin rómantísk hólmganga, liugs-
aði liann þá, engin heimskautaför og ævintýri, en hólm-
ganga engu að síður. Hressandi gleðikennd vegna jress að
viðskipti hans jukust, og fleiri og fleiri þræðir sameinuð-
ust í höndum hans, og verk hans varð umsvifamikið — allt
var þetta frískt og hressandi, og eitt var víst: Hann gæti
ekki þolað að tapa neinu áþreifanlegu máli, þar sem Fylk-
ir myndi reyna að koma höggi á hann, hann yrði að standa
fast og traust á hverju Jrrepi. Málefni Bjarts var ekki hans
málefni, — og sennilega yrði honum ekki bjargað, en hann
yrði að minnsta kosti að reyna Jrað. — Þeir ætluðu að knýja
hann til gjaldjnots, Jrað stæði Jrví um að afla honum fjár.
Og Jrað ætti að geta tekist með aðstoð móður lians.
Eiríkur fór til að hitta Bjart,
Hann kom ekki heim fyrr en stundarfjórðungi fyrir fimm.
Systir hans gæti komið á hverri stundu. Bjart hafði hann
hvergi getað fundið, og einbeitni hans og áhugi var Jrorrinn.
Hann var þreyttur, — svo Jrreyttur, svo Jrreyttur. Slíka J^reytu
gat hann ekki munað frá nokkru sinni fyrr á ævinni, eitt-
hvað svo óeðlileg, og honum virtist að engin hvíld gæti úr
Jressn bætt, því Jressi þreyta átti eiginlega hvergi heirna, ekki
í líkamanum, ekki í huganum, hún var fullteins mikið
utangátta eins og í honurn sjálfum, — allur heimurinn og
lífið sjálft var Jrreytt. Undan þessari þreytu gat hann ekki
komist.
— Get ég ékki fengið viskí og selters! öskraði liann og
hugsaði um leið: Nú ertu víst all-langt áleiðis að verða
drykkjumaður.
Stúlkan kom þjótandi. Hann sá Jregar á svip hennar, að
hún var bæði ráðleysileg og hálfskelkuð. Hún staðnæmd-
ist hjá kringlótta tímaritsborðinu með hálfopinn munninn
og glápandi áugu og spurði móð og másandi:
— Var það ekki viskí og salters?
— Einnritt! Og Jrað í hvelli, Jrví systir mín getur kornið á
hverri stundu.
Hún þaut af stað og kallaði um öxl:
— Það liggur bréf á skrifborðinu!
Bréf? Honum var meinilla við bréf. Eins og hann' fengi
ekki meira en nóg af þeim!
Honum varð hugsað til stúlkunnar, er hann gekk inn í
vinnustofu sína. Henni virtist víst greinilega, að tilveran
öll væri gengin úr skorðum. — Jæja, — bréfið var frá Edith.
Hann stóð kyrr og liorfði á Jrað. Hann var ekki vitund
forvitinn. Hann vissi hvað J)ar mundi standa, lnin sæi ef-
laust eftir þessu og iðraðist auðvitað og vildi liefja nýjan
leik og mynda sér nýja árásarstöðu. En Jrað vildi hann alls
ekki. (Nú var viskí og selters og glas sett gætilega fram, og
hann blandaði í skyndi og drakk, Jrað var gott ,hann drakk
annan teyg, indælt).
Nei, Jrað vildi h^iin ekki, Jrá væri betra að fá öllu lokið.
Elvers vegna? spurði hann. (Eða réttara sagt: það var eitt-
hvað innra með honum, gömul löngun til að vita, hvers
vegna hann meinti Jrað, sem hann meinti?) Hann svaraði
sjálfum sér hastarlega hér um bil því sarna sem í fyrra: Það
kemur Jrér ekkert við. — Bréfið las hann ekki.
Þá var lrringt. Hann tæmdi glasið og stakk bæði því og
flöskunum inn í skrifborðsskápinn. Hlægilegur heigulshátt
ur? hugsaði hann samtímis. Var hann ekki fullorðinn mað-
ur, ög var nokkuð athugavert við það, þótt hann tæki sér
glas? — En hitt var samt augljóst, að systir hans var lítil
stúlka sem ekki Jrurfti að hafa nein kyrini af Jrví, Joó hann
drykki viskíblöndu! Þau skyldu aftur á móti drekka gott
rauðvín með matnum.
Hún stóð í dyrunum, — hann fann nærveru hennar og
sneri sér við og sá hana.
Hann gat ekki kreist upp úr sér nein kveðjuorð, — Jrví
hann þekkti hana ekki!
Þetta var fullorðin stúlka, já, J)að hlaut hann að vita,
framvindnan er hröð á Jressum aldri. En Jretta var tekin
og hart leikin kona, ekki vitund ungstúlkuleg, — hamingj-
an góða, hún var Jró rétt aðeins tvítug. Andlitið fyrst: lokað,
augun vökuþreytt, vansvefta og brennandi, og ofurlítil
sepamyndun fyrir neðan Jrau, varirnar voru litaðar rauðar,
— og yfir allri persónunni var eitthvað —eitthvað,— hann
kveið fyrir að hugsa orðið, — en Jrað var eitthvað lauslætis-
drósarlegt — í fasi og klæðarburði. Það var ekkert eftir af
systurinni hans, litlu blíðlyndu systurinn hans í hvítum og
bláum og rauðum hnékjólum ,ekkert! — En verst þó af
öllu: Þetta var hún, hann sá Jrað nú, bæði á augum og
munni og líkamsvexti.
Rödd hennar gerði honum hverft við á ný, vakti blátt
áfranr líkamlega andtið hans.
— Þú þekkir mig víst ekki aftur, sagði hún. Hún sagði
Jretta nreð slíkri taminni kvenrödd, senr orðið hefir að sætta
sig við nrikla skömnr: Ég er nú Jrannig.
Og svo sagði hún Jxrð einnig skyndilega: — Þú verður að
sætta Jrig við mig, eins og ég er, Eiríkur, — og hún lrló lrörð-
unr gleðisnauðum lrlátri.
Þetta gleðisnauða liljóð kom honum til að átta sig aftur.
Hann tók rögg á sig'í einum rykk, svona hegðun var með
öllu óhæf:
— Velkomin Elín! Nei, Jrað er satt, ég Jrekki Jrig varla
aftur. Nú eru líka nokkur ár, síðan við höfunr sézt.
Nú varð rödd hennar dálítið eðlilegri, andlit lrennar einn
ig ofurlítið sviphreinna.
— Já, að hugsa sér, sagði hún. Það er langt síðan.
Hún settist á armstól fast við skrifborðið. Hann sætti
sig brátt við hana, enda Jrekkti hann hana nú aftur á ýmsum
smámunum. Og nú varð honum ljóst það sem lrann hafði
ekki áttað sig á, rneðan hún stóð í dyrunum: — hve van-
bjarga hún var og óttaslegin. Þetta vakti hjá honum snefil
af hinni gömlu ásthyggju lrans fyrir litlu systur:
— Það var gaman að sjá þig loksins aftur, sagði hann og
settist líka.
— Það er gott, sagði hún. — Segðu mér, Eiríkur, eigum
við að borða strax, eða gettirn við tekið okkur sopa í glasi
áður?. Ég er svo taugakviksk.
Þetta var of hlægilegt, hann gat ekki stillt sig um að
hlægja.
— Af hverju ldærðu? spurði lnin dálítið móðguð.
— Jú, ég skal segja þér, að rétt áður en þú komst, um leið
og jni hringdir, flýtti ég nrér að fela viskíflösku, ég var ný-
búinn að fá mér blending, og ég vildi ekki að Jrú, litla sak-
lausa systir mín, skyldir sjá Jrað.
Þau hlógu bæði að Jressu, og það kom Jreim að nokkru
haldi. Þau höfðu hér fundið einskonar samræðugrundvöll.
Og nú varð auðveldara að spjalla. Hún sagðist gjarnan vilja
portvínsglas (lélegur snrekkur, hugsaði Eiríkur), og hún
fékk Jrað. Eiríkur blandaði sér nýjan „sjúss“. Hún hældi
íbúðinni hans og hve hann hefði verið duglegur, að hugsa
sér að hafa staðið sig svona vel.
Síðan borðuðu Jrau og héldu áfram að spjalla um ekkert.
Eiríkur vildi ekki spyrja, og henni veittist erfitt að kom-
ast að erindi sínu. Það var ekki fyrr en eftirá, þau sátu
inni í herbergi hans og drukku munkaveig og kaffi, að hún
komst að efninu:
— Veistu að ég hefi verið hér í borginni síðan löngu fyrir
jól?
— Hefirðu verið Jrað, Elín?
— Já, enginn veit Jrað, og heima mega Jrau ekki vita Jrað.
Vandræða þögn.
— Það er karlmaður, skilurðu, sagði hún svo og Jragði
aftur.
Honum skildist, að nú yrði hann að hjálpa henni.
— Hvaða náungi er Jrað?
— Mig langar ekki- til að segja Jrað, en Jn'i verður að
hjálpa mér, svo ég verð víst sarnt að glopra Jrví út úr mér.
Það er framkvæmdarstjóri sem ég hitti í Lundúnum. Hann
heitir Hinrik Rútur.
Eiríkur fann að hann náfölnaði og hríðskjálfti fór um
hann allan, hugstin hans varð algerlega lömuð, Jrað var
allt líffærakerfi hans, sent án allrar skírskotunar til hugsun-
ar hans og hugleiðinga birti honum í einu vetfangi, að þetta
væri öllu illu verra, Jrað versta sem fyrir gat komið, ægiæs-
andi svívirðing.
— Hinrik Rútur, tautaði hann, skipamiðlarinn?
Hún varð Jress vör, hve skelfdur hann varð og stirnaði
einnig öll. I einhverri óljósri von hafði hún leitað til hans,
Eiríkur myndi geta hjálpað henni. En nti var allt vonlaust
á ný. Hún sagði aðeins lágt og hljómlaust.
— Þekkir þú hann?.
Eiríkur svaraði ekki. Hann sansaði sig smámsaman aftur,
og hægt, mjög hægt varð hann gegntekinn furðulegri bræði,
sem honum var óljóst, hvernig hann ætti að snúast r ið. Sem
allra snöggvast beindist Jretta að systurinni: Að hún skyldi
hafa getað lagt lag sitt við þann náunga, að Jrað skuli vera
mögulegt, hann með sitt kvennska klæðasviptandi augna-
ráð, með tóma ruddalega karldýrs-smettið, — hvílíkur smekk
ur. Hvernig liafði hún getað kákað og klaskrað með tilfinn-
Framhald.