Dagur - 24.02.1965, Síða 7
7
„YEARS OF LIGHTNING, DAY OF DRUMS"
frumsýnd samtímis á Akureyri og í Reykjavík
FÖSTUDAGINN 26. febrúar n. k. verður kvikmyndin um Kennedy
Bandaríkjaforseta frumsýnd samtímis í Háskólabíó í Reykjavík
og Borgarbíó á Akureyri. Kvikmynd þessi, sem er með íslenzku
tali, segir söguna af þeim tveim árum og tíu mánuðum, sem John
F. Kennedy var leiðtogi þjóðar sinnar. Segja má, að hún sé eins
konar minnisvarði honum til heiðurs — því að „hin Ieiftrandi ár“
sýna aðalmálin, sem hann beitti sér og barðist fyrir, þar til ævi
hans lauk eins válega og raun ber vitni. En um leið er kvikmynd
þessi sönnun á staðföstum vilja Bandaríkjamanna til að gera öllum
þjóðum heims kleift að búa við frelsi og jafnrétti.
Sex meginþættir stefnuskrár
Kennedys forseta eru uppistaða
myndaritipgjj en þættirnir voru
þessir: Friðarsveitirnar, fram-
farabandalagið, mannréttinda-
lögin, geimrannsóknir í friðsam-
legum tilgangi, baráttan fyrir
varanlegum, öruggum friði og
vigbúnaður í öryggis þágu.
Myndin sýnii' Kennedy flytja
boðskap sinn um frið og fram-
farir meðal ýmissa þjóða, og
hann ræðir einnig brýnustu
vandamál heima og erlendis,
um leið og brugðið er upp
myndum af framvindu þeirra.
Teknir eru kaflar úr frægustu
ræðum hans.
Inn á milli kafla um framlag
Kennedys forseta sjálfs og fram-
lag stjórnar hans í þágu stefnu-
skrár hans er skotið þáttum frá
útför Kennedys. Ur þessu verð-
ur því heimildarkvikmynd, sem
er ekki aðeins hrífandi svip-
myndir af hinum mikilhæfa
manni, heldur og lýsing á af-
drifaríkum kafla veraldarsög-
unnar.
„Það var satt, að forsetinn var
myrtur. En það var einnig
satt, að morðinginn missti
marks; hann vildi John F.
Kennedy feigan, En honum
varð ekki að ósk sinrii ...
leiftrandi ár getur enginn
myrkvað á einum ógnardegi.“
Á þessum orðum hefst kvik-
myndin um Kennedy Banda-
ríkjaforseta, sem sýnd verður
samtímis í Háskólabíó og Borg-
arbíó á Akureyri föstudaginn 26.
febrúar. Og það er rödd Gunn-
ars Eyjólfssonar leikara, sem
segir þessi inngangsorð, því að
hann er þulur myndarinnar, en
Ásgeir Ingólfsson blaðamaður
les kafla þá úr ræðum Kenne-
dys forseta, seni heyrast í mynd-
inni og forsetinn flytur að sjálf-
sögðu sjálfur, því að notaðir
eru þættir úr fjölmörgum mynd-
um, sem teknar voru af starfs-
ferli hans.
Ymsir beztu kvikmyndatöku-
menn Bandaríkjanna voru ráðn-
ir til að taka myndir af útför
forsetans, og einnig voru teknar
kvikmyndir í tugum erlendra
borga, þar sem efnt var til minn-
ingarathafna.
Gerð kvikmyndarinnar tók
marga mánuði, og lögðu kvik-
myndarsmiðirnir höfuðkapp á,
að treginn vegna fráfalls forset-
ans bæri ekki ofurliði og
skyggði á afrek hans, markmið
þau, sem hann vildi, að þjóð
hans stefndi að og næði, og gam-
ansemi þá, sem hann var þekkt-
ur og ástsæll fyrir.
Kennedy-fjölskyldan hafði
mikinn áhuga á gerð myndar-
innar og frú Kennedy, ekkja
hins látna forseta, lánaði til
dæmig. myndir úv einkasafni
fjölskyldunnar, þar sem m. a.
má sjá Karólínu litlu á hest-
baki og John yngri ganga um
með körfu á höfði. Við gerð
myndarinnar skoðuðu framleið-
endurnir hvorki meira né minna
en 750.000 fet kvikmynda úr
öllum áttum.
í tilefni af frumsýningu
Kennedy-kvikmyndarinnar hér
á Akureyri, mun Mr. Jack
Whiting verða viðstaddur sem
sérlegur fulltrúi ambassadors
Bandaríkjanna á íslandi og
mun hann flytja stutt ávarp áð-
ur en sýningin hefst.
Þá hafa forráðamenn Borgar-
bíós ákveðið, að allur aðgangs-
eyrir sem inn kemur fyrir frum
sýningu Kennedy-myndarinnar
föstudaginn 26. febrúar, skuli
renna í söfnunarsjóð til kaupa
á Davíðshúsi, □
Faðir minn,
BENEDIKT SIGFÚSSON,
andaðist að heimili okkar, Hamarstíg 29, Akureyri,
18. þ. m. — Jarðarförin fer fram frá Möðruvöllum í
Hörgárdal fimmtudaginn 25. þ. m. kl. 2 e. h. — Bíl-
ferð verður frá Sendibílastöðinni kl. 1.30 e. h.
Sigríður Benediktsdóttir.
Hjartans þakkir færum við öllum þeim, sem auð-
sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
föður okkar, tengdaföður og afa
JÓSEFS ÍSLEIFSSONAR.
Sérstakar þakkir færum við læknum, hjúkrunarkon-
um og starfsfólki á Kristneshæli fyrir góða umönnun
í veikindum hans. — Guð blessi ykkur öll.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall
SOLVEIGAR ÞÓRU JÚLÍUSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Fjórðungssjúkrahúss-
ins á Akureyri fyrir hjúkrun í veikindum hennar.
Vinir.
HULD 59652247 — IV/V — 2.
I.O.O.F. Rb! 2 - 1142248Ví* - III.
I. O. O. F. — 146226814: —
MESSA: — Messað verður í Ak
ureyrarkirkju n.k. sunnudag
kl. 2 e.h. Sálmar: 434—106—
226—203. B.S.
MÖÐRUVALLAKLAUSTUR-
PRESTAKALL. — Messáð á
Möðruvöllum, sunnudaginn 28
febrúar kl. 11 f.h. og á Bakka
sama dag kl. 2 e.h.
Sóknarprestur.
DREN G J ADEILD!
heldur fund fimmtu-
dagskvöldið kl. 8. —
Stúlknadeildinni , er
boðið á fundinn. — Mætið vel
nýir félagar velkomnir.
Stjórnin.
ADALDEILD. Fundurinn er
vera átti í síðustu viku, verð-
ur í kvöld miðvikudagskvöld.
kl. 8,30 í Kapellunni. Skugga
myndasýning. Veitingar.
Stjórnin.
KRISTNIBOÐSHÚSIÐ ZION:
Sunnudaginn 28. febrúar —
Sunnudagaskóli kl. 11. f.h. —
Oll börn velkomin. Fundúr í
Kristniboðsfélagi kvenna kl. 4
e.h. — Allar konur velkomnar
Samkoma kl. 8,30 e.h.
Allir velkomnir.
I. O. G. T. — st. BRYNJA nr. 99
heldur fund í Bjargi fimmtu-
daginn 25. febr. kl. 8,30. —
Inntaka nýrra félaga Upplest
ur, söngur með gítarundirleik
o.fl. Æ. t.
ST. BRYNJA NR. 99. — Hefur
skemmtifund að Bjargi, laug
ardaginn 27. febrúai' kl. 8. e.
h. Sýndur verður gamanleik-
urinn Happið eftir Pál J. Ár-
dal. Dans, allir templarar vel-
komnir. — Munið að taka með
ykkur gesti, nánar auglýst á
Brjmju-fundi á fimmtudaginn.
Nefndin
SKÓGRÆKTARFÉLAG Tjarn
argerðis heldur aðalfund á
Stefni fimmtudaginn 25. febr.
kl. 8,30 e.h. — Venjuleg aðal-
fundarstörf. Stjórnin.
GÓUGLEÐI húnvetninga verð-
ur í Landsbankasalnum nk.
laugardag. Sjá augl. í blaðinu
í dag.
IILÍFARKONUR. Fundur varð
ur haldinn í Oddeyrarskólan-
um fimmtudaginn 25. febrúar
n.k. kl. 8,30 e.h. Nefndarkosn
ingar, og Vinnufundur. Takið
með ykkur Kaffi. Stjórnin
AKUREYRINGAR æskulýðs-
vika Hjálpræðishersins stend
ur yfir. í kvöld miðvikudag
kl. 8,30 verður samkoma, og
á morgun fimmtudag kl. 8,30
sýnir Níels Hansson skugga-
myndir. — Kapt F. Kifjell
stjórnar þessum samkomum.
Mikill söngur. — Barnasam-
komur á hverju kvöldi kl. 6.
Allir hjartanlega velkomnir.
Hj álpræðisherinn.
Framlög í Davíðshús
Til Davíðshúss hafa blaðinu
borizt eftirfarandi gjafir: Guð-
rún og Theodór, Bjarmalandi,
kr. 1000. Álfheiður Pálsdóttir
og Vilborg Sigurðardóttir 500.
Hólmgeir Þorsteinsson 1000.
Margrét Þorsteinsdóttir 100.
Áheit frá ónefndum aðdáanda
200. Álfheiður Guðmundsdóttir
og Gunnlaugur Jónsson 1000.
J og B 200. Loftrún Guðmunds-
dóttir, Hraukbæjarkoti, 300.
Margrét Antonsdóttir 500. Bene
dikt Sæmundsson 500. Gunnur
Sæmundsdóttir 1000. BMA 200.
GJ 200. Kristín Guðmundsdótt-
ir, Hléskógum 300. Arnbjörg og
Baldur, Grýtubakka 500. Helgi
Simonarson, Þverá 500. Eyiar-
rósarsveit ÆFAK 125. Þorgils
Jónsson, Daðastöðum 100.
- SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8).
sinn safna saman stráum í
*
hrciður sitt og bindast æfilangri
tryggð. Þannig er líka það unga
íólk, sem ekki er lialdið andleg-
um meinlokum og ekki apar
hvert eftir öðru og galla og
lieimsku liinna eldri að auki.
Það kærir sig ekki um að vera
eftirmynd af amerískum töff-
gæjum eða skrípamynd af
fihnstjörnu, það kærir sig held-
ur ekki um að vera eins og all-
ir aðrir. Heilbrigt og eðlilegt
fólk vill hafa heilann í lagi og
hjartað á réttum stað.
- ÁVARP
(Framhald af blaðsíðu 8).
bindindisvikunni með því að sækja þær samkomur, sem
stofnað er til, hvetja aðra til þess og beita áhrifum sínum
á annan hátt til þess, að hún nái sem bezt tilgangi sínum.
BINDINDISFÉLAG ÖKUMANNA
Jónas Jónsson.
ÍÞRÓTTABANDALAG AKUREYRAR
fsak Guðmann.
UNGMENNASAMBAND EYJAFJARDAR
Þóroddur Jóhannsson.
ÆSKULÝÐRÁÐ AKUREYRAR
Hermann Sigtryggsson, Pétur Sigurgeirsson.
FÉLAG ÁFENGISVARNANEFNDA VID EYJAFJÖRÐ
Ármann Dalmannsson.
SKÁTAFÉLAG AKUREYRAR
Tryggvi Þorsteinsson.
ÆSKULÝDSFÉLAG AKUREYRARKIRKJU
Sigurður Sigurðsson.
ÞINGSTÚKA AKUREYRAR
Arnfinnur Arnfinnsson, Eiríkur Sigurðsson, Jón Ivristinsson.
^0<H>PbÞWHK(ÞÖÖ-Ö-tKHÍbM*SH>CBXHKHKH>Ö-ÞSHKHKH3íB>Ö-p-0SH>