Dagur - 24.02.1965, Page 8
8
SMÁTT OG STÓRT
Á SJÓVINNUNÁMSKEIÐINU á Akureyri. Leiðbeinendurnir Helgi Hálfnánarson og Friðþjóf-
ur Gunnlaugsson í aftari röð. (Ljósmynd: E. D.)
M*..
Starf American Field Service á Islandi
AMERICAN FIELD SERVTCE er ópólitísk einkastofnun, sem
gengst fyrir nemendaskiptum milli Bandaríkjanna og annarra
landa. Starfsemin er þannig tvíþætt; annars vegar fá nemendur
styrk til ársdvalar, dvelja á bandarískum heimilum og ganga í
skóla, en hins vegar eru bandarískir unglingar sendir til tveggja
mánaða sumardvalar í öðrum Iöndum.
Á þeim sjö árum, sem ísland
hefur tekið þátt í starfi Ameri-
can Field Service hafa 92 nem-
endur á gagnfræða- eða mennta
skólastigi haldið vestur um haf,
en hingað hafa komið 6 banda-
rísk ungmenni. Þegar þessar
tölur eru hafðar í huga dylst
engum, að æskilegt er að fjöldi
bandarískra nemenda á íslandi
aukist að mun til þess að kynn-
ingarstarf American Field Serv
ice nái takmarki sínu.
Það er þess vegna mikilvægt,
að við íslendingar leggjum okk-
ar skerf að mörkum í þessu
starfi, en það getum við gert
með því að taka á móti banda-
rískum unglingum inn á heimili
okkar. Sérhver fjölskylda, sem
til greina kemur, fær því banda
rískan pilt eða stúlku á aldrin-
um 16—18 ára til tveggja mán-
aða dvalar á næsta sumri.
Viss skilyrði eru höfð í huga
við val heimila, t. d. að einhver
af heimilisfólkinu sé á aldrin-
um 16—18 ára, að einhver tali
ensku, og framar öllu, að skipti
nemandinn finni að hann sé vel-
kominn og litið verði á hann
sem einn af fjölskyldunni.
Hér að ofan hefur verið mið-
Raforku- og stóriðju-
nefndin nýja
RAFORKU- og stóriðjunefndin
nýja, sem skipuð er sjö alþing-
ismönnum, er tekin til starfa.
Blaðið hefur átt tal við Gísla
Guðmundsson, alþingismann,
sem á sæti í nefndinni. Hann
sagði, að nefndin hefði haldið
nokkra fundi, en k'vaðst ekki
að öðru leyti vilja neitt um mál-
ið segja að svo stöddu. Þess
gat hann þó, að nefndin væri
ekki skipuð af ríkisstjórninni,
heldur væru nefndarmenn til-
nefndir af þrem þingflokkum,
eftir ósk iðnaðarmálaráðherra.
að við að nemendur verði tekn-
ir til sumardvalar. Ársdvöl kem
ur einnig til greina. En ef til
vill er æskilegt að byrja á hinu
fyrrnefnda, þar sem enn hefur
ekki fengist reynsla í þessum
Hreppsfjóraskipfi á Raufarhöfn
Raufarhöfn 22. febrúar. Starfs-
menn frá Björgun h.f. vinna
stöðugt við þýzka skipsflakið.
Er nú búið að skera skips-
skrokkinn í tvennt og er aftur-
hlutinn laus af strandstaðnum,
og er á floti á flóði. Ekki hefur
enn tekizt að losa frampartinn.
Ætlunin er að búa svo um,
að báðir partarnir haldist á
floti og koma þeim þannig í
„slipp.“ Enginn sjór hefur kom-
izt í vélarúmið og Ijósavél
skipsins er alltaf í gangi. Gott
veður hefur verið hér síðustu
FÖLK HEIMSKAST
MEIRA OG MEIRA
Ófeigsstöðum, 19. febrúar Hér
hafa verið geysilegar hlákur og
snjóa leyst. Skjálfandafljót hef-
ur þó ekki brotið af sér klaka
böndin, eins og Lexá gerði nú
í vikunni. Hinsvegar hafa vegir
skemmst vegna vatnsflóða, sem
ræsin hÖfðu ekki undan að
flytja. — Farin var nýlega fjár-
leit í Náttfaravíkur en ekkert
fannst af fé.
Hér er fábrotið líf og því fylg
ir heilbrigði til líkama og sálar.
Ein og ein kýr dettur niður í
doða en rís upp aftur. — Eg hef
verið að hugsa um hversu vax
andi heimska og lenging skóla
tíma fer ptvírætt saman. Það er
viðburður ef gagnfræðingar af
nýja tímanum eru sendibréfs-
færir, svo ekki sé nú talað um
annan þroska. B. B.
MENN OG DYR
Mörg dýr hafa fullkomnari
skilningarvit en maðurinn.
Hundar hafa næmara lykíar-
skyn, laxinn er ratvissari, fugl-
amir hafa betra jafnvægisskyn
og leðurblakan hefur radar-
kerfi og flýgur óhindrað í svarta
myrkri, maurar eru félagslynd
ari, en maðurinn hefur miklu
þroskaðri framheila og þess-
vegna meiri dómgreind. Maður-
inn getur hugsað hærra og dýpra
og gert greinarmun á réttu og
röngu. Þessvegna er hann æðsta
skepna jarðarinnar. Eitthvað á
þessa leið mælti Páll Kolka á
degi bindindissamtakanna ný-
lega.
ÞEGAR FRAAIHEILINNN
ER TEKINN ÚR SAMBANDI
En það er hægt að taka þetta
furðulega og göfuga líffæri úr
sambandi, sagði læknirinn,
kúpla því frá svo máttlaus
skrokkurinn verði eftir, stjóm-
laus, máttlaus og viílaus. Eg
hef oft orðið að gera þetta við
sjúklinga mína, ef þurft hefur
að gera á þeim holskurð eða
taka af þeim lim. Þetta er ein
falt mál. Maður lætur þá anda
að sér nógu miklu af eter. Þá
lamast framheilinn. Fyrst verða
þeir örir og æstir, síðan mátt-
lausir svo tungan í þeim drafar,
síðan missa þeir sjón og heyrn
og svo að síðustu meðvitund-
ina.
NASKYLT ETERNUM ER
ÁFENGIÐ
Mennirnir hafa sál og hún er
ókaflega' undarleg, ekki hvað
síst á því millibilsstigi æfinnar,
þégar maður er ekki lengur
krakki og þó ekki orðinn full-
orðinn. Þessi mótunartími sem
maðurinn býr að alla æfina er
að mörgu Ieyti yndislegur tími.
Eg vildi að ég væri ekki sjötug
ur heldur 17 ára. En þetta æfi-
málum hér á Akureyri og í ná-
grenninu.
Það er einlæg ósk American
Field Service á íslandi, að Ak-
ureyringar og þeir, sem búa í
nágrenni bæjarins, íhugi þetta
mál, en allar upplýsingar verða
veittar hjá eftirtöldum aðilum:
Snorra Péturssyni í síma 1,1432,
Oddi Sigurðssyni í síma 1-1370
og Olafi H. Oddssyni í síma
1-1012. □
daga og hefur það létt undir við
bj örgunarstarf ið.
Hreppstjóraskipti urðu hér
nýlega. Einar Jónsson lét af
embætti fyrir alduvs sakir, en
við tók Friðgeir Steingrímsson,
héðan úr plássinu.
Nokkrir smábátaeigendur eru
að búa báta sína fyrir grásleppu
veiði, þar sem verð á hrognum
fer hækkandi. H. H.
ÁYARP
ÁFENGISNEYZLA þjóðarinnar er mörgum áhyggjuefni,
ekki aðeins vegna hinnar óþörfu fjársóunar, sem henni
fylgir, heldur fyrst og fremst vegna þeirra hörmunga, sem
svo ótalmargir þjást undir af hennar völdum og vegna þess
siðleysis og ómenningar, sem af henni leiðir.
Niðurstöður þeirra tilrauna, sem gerðar hafa verið á vís-
indalegan hátt um áhrif áfengis, gefa eigi aðeins vísbend-
ingu, heldur leiða í ljós ótvíræða sönnun þess, að áfengis-
neyzla lami heilsu og starfsorku manna, sljógvi dómgreind
og valdi á stundum aldurtila.
Hættan, sem af ofdrykkju stafar er flestum Ijós, en al-
menningur virðist aldrei gera sér það eins ljóst og skyldi,
að hófsöm neyzla áfengis er undanfari ofdrykkju. Mörgum
tekst ekki að stöðva sig, þegar undan hallar og renna þá
lengra niður en til var ætlast.
Með félagslegum samtakamætti hefur íslenzku þjóðinni
tekist að lyfta „grettistökum" í framfara- og menningarmál-
um.
Þjóð, sem vill halda sjálfstæði sínu og vernda þjóðerni
sitt, þarf á þeim mætti að halda, ef ekki á að reka undan
vindum og straumum.
Bindindisvikan er viðleitni til þess að sameina hug al-
mennings um nauðsyn endurbóta á þessu mikla vandamáli
þjóðarinnar.
Við undirritaðir heitum á þau félög og félagasamtök, sem
við erum fulltrúar fyrir að gerast virkir þátttakendur í
(Framhald á bls. 7).
bKhWhKhKhKh>Þ<hKhKk«hKhs<hKh><h«hKhKhKh><hí<hKhí<h><hK
skeið á sér mörg vandamál.
Mann dreymir stóra drauma
og ætlar að verða eitthvað fram
úrskarandi mikið. Þó er maður
á þessum aldri með einlwerja
vanmetakennd gagnvart lífinu,
vilja ekki viðurkenna það og
fela það. Þessu fylgir oft upp-
reisnarhugur gagnvart eldri kyn
slóðinni og það er von, því full
orðna fólkið er vandræðafólk.
ÆSKAN ER STUTT OG
KEMUR ALDF(EI AFTUR
Svo er það svo undarlegt, að
unglingarnir vilja oft sýnast
fullorðnir fyrir tímann, gleym-
andi því, að æskan er stutt og
kemur aldrei aftur og fullorðins
árin eru löng og verða mörg-
um Ieiðinleg. Þegar maður er
ungur, vill maður sýnast full-
orðinn og þegar maður er full-
orðinn, vill maður sýnast ungur.
Svona er mannskepnan undar-
leg.
Þegar ég var í skóla þóttist
enginn maður með mönnum
nema liann gengi við staf. Nú
á tímum ganga skólastrákar
ekki með staf, þótt slíkt geti vel
komið aftur í tízku. Nú nota
sumir aftur á móti áfengi, eins
og nokkurs konar montprik til
þess að vera eins og karlamir,
sem stundum hressa sig á áfengi
af því skrokkurinn er farinn að
stirna og æðarnar að kalka.
Ungir inenn drekka líka stund-
um til að yfirvinna feimni og
verða frjálsmannlegri, og eru
þá í sinn hóp státnir af því
livað þeir eru ómótstæðilegir.
Það er í hæsta máta eðlilegt
að hugir pilta og stúlkna leiti
saman. En það er í liæsta niáta
óeðlilegt, að til þess þurfi pilt-
arnir að vera sætkenndir,
drukknir eða fullir og stúlkurn
ar farðaðar og flennulegar eins
og vændiskvendi í hafnarhverfi.
HVER VILL VERA EINS OG
VILLINAUT?
ViIIinaut og bufflar berjast um
hylli kvenkynsins þar til ann-
ar flýr eða fellur. Það er eðlilegt
að kvendýrið aðhyllist þann
sterkari af því hann er hæfast-
ur til að verja maka sinn og af-
kvæmi fyrir rándýrum. En ung
stúlka er ekki kvíga í naufa-
hjörð, og því ættu yfirburðir í
áflogum ekki að vera nein sér-
stök meðmæli í hennar augum.
Við skulum lieldur taka fugl-
ana til fyrirmyndar. Þeir búast
sínu bezta fjaðraskrauti, syngja
og dansa fyrir framan maka
(Framhald á blaðsíðu 7).
GOÐ SILUNGSVEIÐI
Reynihlíð 22. febrúar. Dágóð
silungsveiði hefur verið í Mý-
vatni að undanförnu. Veiðin
hófst í byrjun þessa mánaðar,
°g er veitt í net. Hafa allmargir
bændur nokkrar tekjur af þess
ari veiði.
Fjölmennt og vel heppnað
þorrablót var haldið í Skjól-
brekku s.l. laugardagskvöld, á
vegum Búnaðarfélagsins.
Góð skepnuhöld og næg hey
eru hér í sveit. P. J.