Dagur - 03.04.1965, Blaðsíða 8
s
Frá bíla- og búvélasýningu Véladeildar SÍS á Blönduósi.
(Ljósinynd: E. D.)
Sýna bíla og búvélar á ýmsum
stöðmn norðanlands
SMÁTT ÖG STÓRT
SÖLUMENN frá Véladeild SÍS,
Gunnar Gunnarsson og Árni
Reynisson, brugðu sér norður
á Blönduós í upphafi Húna-
vökunnar með bíla og vinnu-
Blönduósi 2. apríl. Húnavakan
stendur yfir en er illa sótt vegna
sótthræðslu fólks. Samkomu-
bann var ekki sett og því var
Húnavöku ekki frestað eða
henni aflýst. Hins vegar varaði
héraðslæknirinn fólk við að
ssekja samkomur, eftir að in-
flúensan var orðin töluvert út-
breidd og taka margir viðvör-
unarorð hans til greina. Senni-
lega hefði verið skynsamlegast
að hætta við fyrirtækið.
Á Skagaströnd er veikin tölu
vert útbreidd, einnig í Vatnsdal
og Þingi. En þrátt fyrir veikind
in skemmtum við okkur á hverri
nóttu og vökum á daginn lika,
því annað sæmir ekki í sól og
Grásleppan komin
á mið Húsvíkinga
F'RÉTTARITARI blaðsins á
Húsavík, Þormóður Jónsson
tjáði blaðinu í vikunni, að nú
væri grásleppan gengin að Tjör
nesi og hefðu sjómenn fengið
þar góða veiði daginn áður. En
Húsvíkingar hafa grásleppunet
í sjó allt frá Húsavíkurhöfða og
norður með nesinu. Þorskveiði
hefur ekki glæðst svo heitið
geti. Þá sagði fréttaritari, að
Héðinn Maríusson og synir hans
hefði í gær skotið tvo höfrunga
frammi á flóanum en það þættu
engin tíðindi austur þar, þótt
þeir feðgar skytu höfrunga,
seli eða hnýsur, svo vanalegt
væri það. Þessu til viðbótar seg
ir þormóður: Herðubreið, sem
búin er að vera ísteppt hér á
Húsavík eina viku fór héðan
f.h í dag. Hún mun freista þess
að komast vestur á Hvamstanga
og flytja þaðan vörur til Hólma
víkur.
vélar og voru þar í tvo daga. —
Síðan voru þeir einn dag á
Sauðárkróki og verða þar á ný
um „sæluvikuna."
í framhaldi af þessu sýnir
jafnvel logni, sem er sjaldgæft
á Blönduósi. O.S.
LEIKFÉLAG Ólafsfjarðar hef-
ur undanfarnar vikur æft sjón-
leikinn Hamarinn eftir séra
Jakob Jónsson. Leikurinn var
frumsýndur í gærkvöldi í félags
■heimili Ólafsfirðinga, Tjarnar-
borg.
Leikur þessi var fyrst sýndur
á Akureyri 1948 og á Siglufirði
síðar það sama ár, en kemur nú
í ofurlítið breyttri mynd, þar
Véladeild KEA Vauxhall Viva,
5 manna fólksbíl, sem þegar er
farið að selja og kcstar um 148
þús. kr.
Svo sem meðfylgjandi mynd
ber með sér, sendi Véladeild
SÍS þessar tegundir til Norður-
lands að þessu sinni:
Farmall B-414 traktor með
B-901 moksturstækjum og
sláttuvél. Rokdreifari fyrir hús-
dýraáburð. Rokblásari fyrir
hey. New Idea dreifari fyrir til-
búinn áburð. Bedford KGL 7
tonna og Vauxhall Viva De
Luxe fólksbifreiðir. □
sem séra Jakob hefur sent fé-
laginu breytingar, er hann hef-
ur seinna gert á síðasta hluta
leiksins. Þó að Leikfélag Ólafs-
fjarðar sá ekki fjölmennur fé-
lagsskapur, hefur það ekki látið
aftra sér að nær 20 leikarar
koma fram í Hamrinum.
Leikstjóri og leiktjaldamálari
er Kristinn Jóhannsson, skóla-
stjóri. □
AU3IINGJA HESTURINN
Á síðustu árum hefur mátt sjá
hross flutt á bifreiðum og gefst
það vel þótt áður þætti óliæfa.
En um flutninga lifandi búpen-
ings gilda ýms ákvæði, sem
liafa ber í heiðri. Virðist stund-
um út af því brugðið. Fyrir
nokkrum dögum ók vörubifreið
um bæinn og fremur greitt. Á
palli hennar var dráttarvél og
hestur og hesturinn ekki í sér-
stakri stíu og enginn maður
gætti lians. í beygjum átti hest-
urinn örðugt með jafnvægið og’
slengdist til. Hér var öðruvísi
að farið en vera átti.
ÁTTA SÖLTUNAR-
STÖÐVAR
Á Seyðisfirði síanda yfir mikl-
ar framkvæmdir um þesar
mundir og er þar ekkert at-
vinnuleysi þótt ekki fáist bein
úr sjó og ísinn Iegðist að landi,
næstum inn í fjarðarbotn. Ver-
ið er að undirbúa móttöku
bræðslusíldar og standa vonir
til, að tvær síldarbræðslur geti
brætt 10 þús. mál síldar á sól-
arhring næsta sumar. Þar verða
starfræktar átta söltunarstöðv-
ar í sumar.
ÞAÐ ÞÓTTI ÞEIM GOTT
í REYKJAVÍK
Eftirfarandi saga barst frá
Reykjavík: Feðgar tveir á Ak-
ureyri hjóluðu á ísilögðum
Pollinum. Faðirinn datt í vök.
Sonurinn vildi ekki rétta hon-
um hjálparhönd fyrr en búið
væri að mynda hann! Menn
geta hugleitt sannleiksgildi sög-
unnar. — En hér kemur sönn
saga: Æfður frístundaljósmynd-
ari var á ísnum þennan dag og
tók margar myndir. Þá vildi
það til að kunningi hans datt
niður um ísinn og varð ekki
meint af. En Ijósmyndarinn
gleymdi því á þeirri stundu, að
hann hafði myndavélina með-
ferðis og nagar sig nú í liandar-
bökin.
FYRIR KONUR
Bændaklúbburinn evfirzki hef-
ur á mánudaginn klúbbfund og
hafa framsögu þau frú Ragna
Sigurðardóttir frá Þórustöðum
og ÓIi Valur Hansson garð-
yrkjuráðunautur og ræða um
garðyrkju. Konum er sérstak-
Iega á það bent, að hér er til-
valið tækifæri fyrir þær að
fræðast um garðyrkju og taka
þátt í umræðum. — Það væri
ánægjulegt að húsmæður fjöl-
menntu á þennan fund.
LÁGÞRÝSTISVÆÐI VERRI
EN HÁLKA
Margra ára víðtækar og ná-
kvæmar rannsóknir á umferð-
arslysum, sem gerðar liafa ver-
ið í Þýzkalandi og víðar, hafa
leitt í Ijós, að lágþrýstisvæðin
eru ökumönnum liættulegri en
liálkan. Loftslagið hefur mikil
áhrif á manninn og hæfni hans
til starfa, bílstjóra eins og aðra.
Lágþrýstisvæðin draga úr ein-
beitingarhæfni ökumanna, án
þess þeir geri sér það Ijóst.
Könnuður, sem rannsakaði 67
þús. bílslys, fullyrðir, að 85 til
90% þeirra hafi orðið við óhag-
stæð veðurskilyrði er voru
mannslíkamanum mótdræg. —
Það þykir sannað, að þar sem
lágþrýstisvæði fari yfir, fari
eiimig bílslysafaraldur yfir,
samtímis.
ÞEIR, SEM SVARA
Það er gamall og góður siður
manna að svara þegar á þá er
yrt. Þetta gerði t. d. Búnaðar-
bankinn í nokkuð Iangri grein,
eftir að Dagur birti opinbera
skýrslu um hag bankans og Iét
þá frómu ósk í Ijós, að bænda-
stéttin nyti að nokkru „góðær-
isins“ í bankanum.
ÞEIR, SEM EKKI SVARA
Það gegnir öðru máli með Út-
vegsbankann. Þaðan heyrist
hvorki hósti né stuna, þótí fyrir
bankastjórnina séu lagðar mjög
skýrar spurningar og þess efn-
is, að sómakærar stofnanir
myndu flestar telja það Ijúfa
skyldu að gefa greinargoð svör
við þeim. En Útvegsbankinn
lætur þögnina tala fyrir sig,
enn sem komið er.
DRUKKNAR ROTTUR
FENGU MAGAKRABBA
Á ráðstefnu 70 vísindamanna,
sænskra og finnskra, vakti það
(Framhald á blaðsíðu 2).
NORÐFJÖRÐUR
FULLUR AF ÍS
Neskaupstað 30. marz. Hér er
allt fullt af ís og siglingar alger
lega útilokaðar eins og er. En
heldur sýnist mér ísinn gisnari
í dag, enda sunnanátt og þýð-
viðri. Viðfjörður og Hellisfjörð
ur eru líka fullir af ís.
Verið er að ryðja snjó af Odds
skarðsvegi og opnast hann til
umferðar í dag. Flugferðir í síð
ustu viku voru fjórar, svo við
erum ekki alveg einangraðir.
Olíuskip varð að snúa við fyrir
skömmu. Nú er siglingafært að
Norðfj arðarhorni og batnandi út
lit.
Um leið og ísinn kom hvarf
allt líf, svo ekki sést einu sinni
mávur eða æðarfugl hvað þá
meira. Og sjórinn er fisklaus.
Bátar voru teknir á land og hef
ur hvorki orðið tjón á þeim eða
hafnarmannvirkjum vegna íss-
ins- H.O.
HÚNAVAKAN! MOLÚM
vegna inflúensu, sem gengur í Húnavatnssýslum
Leikarar Leikfélags Ólafsfjarðar á æfingu.
„Hamarinn" leikinn í ÓlafsfirSi