Dagur - 14.04.1965, Blaðsíða 2
2
- SLYSAVARNARDEILD AKUREYRAR
Aðalfuiidur H.S.Þ.
Húsavík 23. marz. Aðalfundur
Héraðssambands Þingeyinga
var haldinn í barnaskólanum í
Aðaldal dagana 20. og 21. þ. m.
Venja er, að aðalfundir sam-
bandsins eru haldnir í boði fé-
lagsdeildanna á víxl. Að þessu
sinni var fundurinn haldinn í
boði Ungmennafélagsins Geisla
í Aðaldal. Félagar í Geisla sáu
um móttöku aðkominna fundar-
manna, en félagskonur sáu um
matseldun og veitingar allar.
Hvort tveggja ynntu gestgjafar
af hendi með mestu prýði, svo
sem af þeim mátti vænta.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa fjallaði fundurinn allmik
ið um Landsmót Ungmennafé-
lags íslands, sem fyrirhugað er
að Laugarvatni næsta sumar.
Gert er ráð fyrir að mótið muni
sækja 70 til 80 manns frá Hér-
aðssambandi Þingeyinga, —
íþróttamenn, þjálfarar og farar-
Stjórar.
Á fundinum gerðust þau tíð-
indi, að fram var borin og sam
þykkt tillaga um furðulega starf
tilhögun. Samþykktin fól það í
sér, að næstum 1/4 hluti full-
trúa var útilokaður frá setu á
fundinum meðan tekin voru til
umraeðu og endanlegrar af-
greiðslu flest helztu dagskrár-
rriál fundarins. Að sjálfsögðu var
samþykktinni ekki framfylgt, en
mistök þessi sköpuðu nokkur
leiðindi, sem auðvelt hefði átt að
koma í veg fyrir.
Óskar Ágústsson, íþróttakenn
ari að Laugum, var endurkjör-
inn formaður sambandsins. Ur
stjóminni áttu að ganga, Stefán
Kristjánsson, Nesi, Fnjóskadal
og Vilhjálmur Pálsson, Húsa-
vík. Þeir voru báðir endurkjörn
ir.
f fundarlok voru Stefáni
Kristjánssyni, Nesi og Jóni A.
Jónssyni, Hömrum, Reykjadal
afhend heiðursmerki frá Frjáls
íþróttasambandi íslands fyrir
margra ára margþætt störf í
þágu H. S. Þ. Þorm. J.
FRETTABREF UR REYKJAHVERFI
(Framhald af blaðsíðu 8).
Grenjaðarstaðarkirkju vildu
leggja henni nokkurt Iið, nú þeg-
ar þetta merka afmæli fer í hönd.
Bvggingaframkvæmdir voru
fremur litlar í sveitinni á sl. ári.
Á nýbýli að Þverá var byggð hey-
hlaða við fjárhús, sem bvggð voru
1968, og hafinn undirbúningur að
byggingu íbúðarhúss. Á nýbýlinu
Rein, sem er iðnaðarbýli, var
byggt íbúðarhús, en verkstæði var
byggt 1963.
Allmikið var unnið á vegum
Landnáms ríkisins bæði að fram-
rækslu, ræktun og girðingum og
mun einn ábúandi á vegum þess
flytja inn í sveitina á þessu vori.
Fremur hefur verið dauft yfir
skemmtana- og félagslífi x sveit-
inni. Enda er það fáa fólk, sem
heima er alltaf önnum kafið. Þó
voru snemmá vetrar haldnar tvær
samkomur í þeim hluta félags-
heimilis sveitarinnar, sem þegar er
byggðúr. Þá var hjónaball, sem
'váf h'ífin bezti mannfágnaðtxr,
haldið á Góu.
Okkur /heimsóttu góðir gestir
27. f. m., voru það þeir Páll FI.
- GOÐ REKSTURSAFKOMA K.Þ.
(Framhald af blaðsíðu 1). ;
endurbyggingu verzlunarhúss,
sem félagið á' sunnan Búðarár
á Húsavík.
Ennfremur að halda áfram
slátur- og frystihússbyggingu,
sem félagið hefur í smíðum á
Húsavík.
Mörg málefni önnur voru
rædd og ályktanir um þau gerð-
ar, svo sem; um áburðarverk-
smiðjuna, vegamál, iðnaðai-mál,
vinnuhagræðingu, varðveizlu
gamla bæjarins á Þverá í Lax-
árdal, en þar var stofnfundur
FIRMAKEPPNI B.A.
FIRMAKEPPNI Bridgefélags-
ins lauk s.l. föstudagskvöld. —
Þátttakendur voru 96 firmu og
spilaðar voru þrjár umferðir.
Þessi firmu hlutu yfir 300 stig:
1. K. Jónsson & Co. (Mikael
Jónsson) 335 stig.
2. Landsbankinn (Halldór
Helgason) 318 stig.
3 Dagur (Reynir Haraldsson)
314 stig.
4. Póstbáturinn Drangur
(Þórður Björnsson) 313 stig. •
5. Vélsmiðja Steindói's (Skarp
héðinn Halldórsson) 309 stig.- -
6. Valgarður Stefánsson (Guð
mundur Þorsteinsson) 307 stig.
7. Tómas Steingrímsson & Co.
(Páli Jónsson) 302 stig.
Jónsson og Finnur Kristjánsson,
kaupfélagsstjóri. Fluttu Jxeir báð-
ir ræður um samvinnumál og Páll
sýndi kvikmyndina „Bú er land-
stólpi" og fleiri kvikmyndir 78
þakklátum áhorfendum, en það
er hávaði sveitarbúa.
Trúlofunarfaraldur virðist lið-
inn hjá um sinn og birtast Jxær nú
einungis sem einangruð tilfelli.
Ó. S.
(Framhald af blaðsíðu 1).
um. Þar var mættur forseti
Slysavarnafélags íslands, Gunn
ar Friðriksson og Gróa Péturs-
dóttir formaður Slysavarnar-
deildar höfuðstaðarins. Enn-
fremur eini heiðursfélagi Akur-
eyrardeildarinnar, Sigríður Þor
láksdóttir. í hófi þessu voru
margar ræður fluttar auk fjöl-
breyttra skemmtiatriða.
Stjórn félagsins skipa; Sess-
elja Eldjám formaður, Sigríður
Árnadóttir gjaldkeri og Fríða
Sæmundsdóttir ritari; Með-
stjórnendur eru: Dorothea
Kristinsdóttir, Birna Finnsdótt-
ir, Margrét Sigurðardóttir og
Valgerður Franklín.
Forseti Slysavai-nafélags ís-
lands færði deildinni fána að
gjöf og Gróa Pétursdóttir færði
henni blómsturvasa, hina ágæt-
ustu gripi. Og Slysavarnafélag
íslands sendi Sesselju Eldjám
áletraðan silfurskjöld á út-
skornum fæti. Skipstjórafélag
Norðlendinga sendi deildinni
Áhugamál húsmæðra rædd á Bændaklúbbsfundi
. Kaupfélags Þingeyinga haldinn
20. febrúar 1882.
Sjö menn eiga sæti í stjórn
félagsins. Þrír þeirra höfðu lok-
ið kjörtíma: Karl Kristjánsson,
Teitur Björnsson og Þráinn
Maríusson. Fundurinn endui--
kaus þá alla. Aðrir í stjórn eru:
Baldur Baldvinsson, Illugi Jóns
son, Skafti Benediktsson og
Ulfur Indriðason.
Varamenn í félagsstjói’i voru
kosnir: Oskar Sigtryggsson og
Þráinn Þórisson.
Endui-skoðandi var endurkos-
inn Jón Gauti Pétursson. Vara-
endurskoðandi kosinn Arnþór
Björnsson.
Fulltrúar til þess að mæta á
aðalfundi SÍS voru kjörnir:
Karl Kx-istjánsson,Teitur Björns
son, Baldur Baldvinsson, Pétur
Jónsson (Reynihlíð) og Ingi
Tryggvason.
Að kvöldi fyrri fundardags-
ins bauð félagið fundai-mönnum
á sjónleikinn Tengdapabbi, sem
leikflokkur frá ungmennafélag-
inu EfHng í.Reykjadal sýndi á
Húsávík. Leikstjói-i var Kristj-
• án Jónssön -leikari.
Leikurinn þótti takast mjög
vel,- ...- ■
Við kaffiboi'ð báða fundardag
Áanat. skejnþtíxj : menn sér við
söng, ávörp og flutning lausa-
vísn a'öglj óð a. □
(Framhald af blaðsíðu 8).
meðfram gangstígum, við hús-
hliðar og annai's staðar í garð-
inum, þar sem henta þætti.
Einnig töldu þau sjálfsagt að
hafa berjarunna svo sem ribs-
sólber, stikilsber og jafnvel
hindber.
Um ræktun matjurta sagði
frú Ragna, að það væri hverju
heimili bæði til hagsbóta og holl
ustu að rækta kál og annað
„Orrustan á Háloga-
landi“ í Freyjulundi
UNGMENNAFÉLAG Möðru-
vallasóknar hefur að undan-
förnu æft gamanleikinn Orr-
ustan á Hálogalandi eftir
Ai-nold & Back og frumsýndi
hann í Freyjulundi sl. fimmtu-
dag.
Þessi leikur hefur víða verið
sýndur hér á landi við góðar
undirtektir. Hlutvei'k eru 10 í
leiknum og eru mörg þeirra vel
af hendi leyst, og í heild var
sýningin vel heppnuð. Það' er
mikið átak fyrir fámennt byggð
arlag að koma upp svo stórum
leik sem þessum, og sannar það
hve miklu er hægt að áoi’ka þeg
ar vilji og samhugur er fyi-ir
hendi. Það er óhætt að hvetja
fólk til að eyða einni kvöld-
stund til að horfa á „Orrustuna
á Hálogalandi.“
Guðmundur Frímannsson
skólastjóri á Hjalteyri annast
leikstjórn, og einnig hefur
Björg Baldvinsdóttir, Akureyri,
verið til aðstoðar. □
Bíóin og símsvararnir
FYRIR JÓLIN í vetur voru
sjálfvirkir símsvarar. ■ teknir í
notkun í Borgarbíó og Nýja
Bíó á Akureyri. Eru_ þeir; í
gangi frá kl. 9 á mox-gnaha til
kl. 18,30. Þessir símsvarar, sem
eru í sambandi við símanúmer
bíóanna, gefa upplýsingar um
(Framhald á bls. 7).
grænmeti og nefndi dæmi um
hve dugmiklar konur hefðu
haft mikil búdrýgindi af þeirri
ræktun. Taldi hún upp ýmsar
tegundir svo sem blómkál,
hvítkál, rauðkál, hreðkur, gul-
rætur, salat o. fl. Einnig áleit
hún, að hagkvæmt væri að
hafa beð í garðinum fyrir gul-
rófur og annað fyrir kartöflur,
þar sem sáð væri snemma og
uppskera til heimilisnota gæti
komið fyr.r en úr aðalmatjurta-
görðunum, þar sem rófur og
kartöflur eru ræktaðar til sölu.
Einnig kom Ragna inn á það
hverjir möguleikar væru fyrir
geymslu hinna ýmsu grænmet-
istegunda.
Á eftir þessum fræðsluerind-
um frummælenda sýndi Óli
Valur skuggamyndir frá ýms-
um stöðum hér á landi og frá
Noregi, einkum Norður-Noregi,
þar sem liann var á ferð s.l. sum
ar. Þar kom m. a. fram, að í
héruðum, sem liggja norðar en
ísland, hafa sumir bændur veru
legar tekjur af framleiðslu jarð
arberja. Myndir þessar gáfu til
kynna ýmsan fróðleik varðandi
ræktun runna og blóma, auk
þess sem þar komu fram sýnis-
horn af skrúðgörðum í sveitum
og borgum.
Frú Ragna kom einnig inn á
skjólbeltaræktun almennt, —
vegna fyrirspurna, er fram
komu á fundinum. — Taldi hún
skjólbeltaræktun mikið nauð-
synja- og framtíðarmál fyrir ís-
lenzkan landbúnað vegna garð-
yrkju, akuryrkju, grasræktar
og til skjóls fyrir búfé í hret-
viðrum.
Fundur þessi, sem mun vera
síðasti Bændaklúbbsfundurinn
á þessum vetri, var sannarlega
þörf vakning í þessu mikla vel-
ferðar- og menningarmáli sveit
anna, sem til þessa hefur orðið
allt of mikið útundan.
Raunhæfar aðgerðir valdhafa
til eflingar leiðbeirtingarstarf-
semi og annarri aðstoð í þessu
- máli'eru aðkallandi. □
kvæði og lét fylgja 5 Jjús. kl.
gjöf og eru þá ótalin skeyti og
blómagjafir, sem bárust á þess-
um tímamótum.
Blaðið árnar hinni þrítugu
slysavarnadeild allra heilla og
þakkar hið óeigingjarna og
þróttmikla starf í mannúðar-
málum. □
TIL KArENNADEILDAR
SLYSAVARNARFÉLAGS
ÍSLANDS, AKUREYRI
Hver er I»j«>nusta
þegnsamlegri j
en firra óvaran fári?
Efla aðgát
öðrum gefa
öruggt eftirdæmi.
Stirðum fótum '
»
fetar gætinn, j
kenist þó kjörinn veg.
Óvarkárt j
íturmenni
lieltist á hálfri leið.
Flýtur óvarr
að feigðarósi, '
glatar himingjöf.
Varúðar
vökuliðar
skyldu sína skilja.
i
Þakkar alþjóð
áratuga
þriggja, þrotlaust starf.
Biðja ykkur
brautargengis
sjómenn um sævarslóð.
Akureyrí 9. apríl 1965.
Með þökk og virðingu,
Skipstjórafélag Norðlendinga.
Fraralög í Davíðshús
SAFNAÐ í Dýrafirði af séra
Stefáni Eggertssyni: Jóhannes
Davíðsson kr. 250. Kristján Dav
íðsson 300. Guðný Gilsdóttir
100. Arngrímur Jónsson 500.
Valdimar Gíslason 100. Berg-
sveinn Gíslason 100.
SAFNAÐ af Angantý Einars-
syni, Þórshöfn: Jósef Vigfússon
kr. 100. Kristinn H. Jóhannsson
100. Arigantýr. Einarsson 100.
Ottar Eiriarsson ■ 100. Sigurður
Tryggvason 100. Lárus Jóhanns
son 200. Haukur Kjartansson
200. F. K. Sveinsson 200. Ingi-
mar Ingimarsson 200. Hólmgeir
Halldórsson 100. Arnór Haralds
son 100.
SAFNAÐ af Þóru Jóhannsdótt-
ur kaupkonu, Sauðárkróki:
(Sundurliðun birt síðar) kr.
6750. Safnað í Kelduhverfi:
(Sundurliðun birt síðar) 8540.
Starfsmannafélag Akureyrar-
bæjar 5000. Guðm. B. Árnason
1000. Ragnar Stefánsson mennta
skólakennari 1000. Nemendur
Skógaskóla (Jón R. Hjálmars-
son) 1000. Sigfús Jóelsson,
Reykjavík 500. Víglundur Möll-
er, Reykjavík 500. Flelgi Hall-
grímsson menntaskólakennari
200. Fatahreinsun Vigfúsar &
Árna 500. N. N. 500. Inga og
Sverrir Sigurðsson 1000. Bald-
vin Ringsteð' 20Ó0. Jón Sigurðs-
son, Akureyri, 100. Iðja h.f. 500.
Guðm. K. Óskarsson 100. Guðm.
Þorsteinsson 100. Jón Stein-
bergsson 100. — Beztu þakkir.
— Söfnunarnefnd.