Dagur - 14.04.1965, Side 8
8
SMÁTT ÖG STÓRT
HRAUNGOSIÐ í Surtsey er nú
ársgamalt og ekkert lát á því
ennþá. Hraunstraumar renna
stöðugt úr eldgígnum mikla, nið
ur hlíðarnar og í sjó fram. Víða
eru hraunelfurnar lokaðar
Á Bændaklúbbsfundinum að
Hótel KEA 5. þ. m. gerðu þau
•frú Ragna Sigurðardóttir og Oli
Valur Hansson garðyrkjuráðu-
nautur glögga grein fyrir því
í framsöguræðum sínum hvern-
ig haga skuli gerð skrúðgarða
við sveitabæi og gáfu jafnframt
upplýsingar um plöntuval í
garðana til skjóls, skrauts og
nytja, Æskilegast töldu þau,. að
garðurinn væri við ibúðarhús-
ið eða sem næst því, þannig að
húsmóðirin ætti sem auðveld-
ast með að ná í grænmeti þann
tíma, sem hægt væri að taka
það beint úr garðinum. Jarðveg
ur þyrfti að vera frjór og eigi
þynnri en 30—40 sm. Það fyrsta
væri að undirbúa jarðveginn
og koma upp girðingu kringum
garðinn. Skipulagning garðsins
gæti verið með ýmsu móti.
Bæði lögðu þau áherzlu á, að
þar væru grasfletir og kæmi
hvorutveggja til greina að sá í
þá grasfræi eða þekja með tún-
þökum. Sáðfletir yrðu venju-
lega áferðarfallegri, en nota
skildi fræ af lágvöxnum teg-
STÓRHRÍÐARBYLUR
Á RAUFARHÖFN
RAUFARHÖFN 12. apríl. - Nú
hefur skipt svo uni hér, að hafís-
inn er allur farinn, það er séð
verður og líklega til Þistilfjarðar.
Er því greið leið á sjóinn þegar
veðri slotar, en hins vegar orðið
étfært á landi vegna snjóa. Bílar
á leið til eða frá Húsavík hafa
stöðvast, enda stórhríðarbylur síð-
an í gær og feikna snjókoma.
H. H.
þunnri hraunskorpu. Þar sem
hraunsíraumurinn fellur í haf-
ið myndast gífurlegir gufumekk
ir og sprengingar.
Tvö gos aðeins, hafa staðið
lengur en Surteyjargos, og er
undum svo sem túnvingulsfræ
eða venjulega fræblöndu í lóð-
ir. Oli Valur ráðlagði einnig að
hafa sem minnst af opnum
RAGNA SIGURÐARDÓTTIR.
gangstígum í garðinum, hag-
kvæmara væri og færi betur að
hafa steinhellur, sem féllu í
grasfletina. Bæði réðu þau frá
því að gróðursetja trjáplöntur,
ÓLI VALUR HANSSON.
það Mývatnseldur 1725—1729 og
Heklugos 1766—1768.
Meðfylgjandi mynd er tekin
úr riti Flugfélags íslands, þar
sem sumaráætlanir félagsins
eru sérstaklega kynntar.
sem gætu orðið hávaxin tré, of
nærri íbúðarhúsnum, einkum
fraln undan gluggum. Slíkum
gróðri skildi planta lengra frá í
raðir eða sem sérstökum trjám.
Til skjóls í limgirðingar benti
Oli Valur á ýmsar runnategund
ir svo sem nokkrar tegundir af
víði og lóniceru. Einnig kæmu
til greina birki, álmur, aspir,
greni o. fl. Þá bentu þau á
ýmsar tegundir skrautjurta og
blóma til þess að hafa í beðum,
(Framhald á blaðsíðu 2).
Fréftabréf úr
RF.YKJARHÓLI, 6. apríl 1965. -
I dag er hér sólskin og sunnan
þeyr, enda þótt isröndin sé tæp-
ast úr augsýn. Enn fáum við að
reyna hinar hrikalegu andstaeður
islenzks veðurfars og íslenzkrar
náttúru. „Surtur fer að sunnan",
en að norðan „landsins forni
fjandi“. Ef til vill hafa andstæður
náttúrunnar nokkur áhrif til að-
lögunar á þjóðina. Gætir ekki
með heniii nokkurra áhrifa frosts
og funa?
Eftir fréttum að clæma mætti
ætla að framkvæmdir færu að
hefjast við undirbúning að starf-
rækslu kísilgúrverksmiðju við Mý-
vatn.
Sá þáttur þeirrar framkvæmdar,
senr Reykhverfingar renna m.est-
um vonaraugum til, er bygging
akvegar frá verksmiðjunni til
Húsavíkur. En samkvæmt gerðum
athugunum virðast allar stoðir
renna undir það, að sá vegur liggi
um Reykjahverfi og væri þar með
bætt úr brýnni þörf sveitarbúa
fyrir vegabætur.
Þá mætti ætla, að þingsályktun-
artillaga um athugun á skilyrðum
fyrir íiskieldisstöð norðanlands.
LOKSINS NAFNSKÍRTEINI
Samkvæmt nýjum lögum frá
Alþingi skulu allir þegnar þjóð-
félagsins, sem 12 ára eru eða
r
eldri, bera nafnskírteini og á
Hagstofan að gefa þau út. Þar
skal fram tekið: Nafn, nafn-
númer samkvæmt þjóðskrá,
fæðingardagur og ár, úígáfutími
skírteinis og reitur fyrir mynd.
Þar eru og ákvæði um framvís-
unarskyldu o. fl.
Eflaust verður þessu fagnað,
þar sem vöntun slíkra skilríkja
hefur torveldað að framfylgt
væri öðrum lögum og reglum.
IIRÓPAÐ Á MEIRI SAM-
VINNU
Lífið liefur kennt mönnum að
vinna saman í daglegum störf-
um, ekki aðeins við að setja bát
eða smala lieiðalönd, heldur
einnig á breiðari vettvangi. Og
hvarvetna er krafist meiri sam-
vinnu við lausn þeirra vanda-
ntála, sem einum er oftast of-
vaxið. Þessar kröfur eru jafn
háværar í borg og sveit, sem á
alþjóðavettvangi, og auðsyn um
samvinnu jafn knýjandi á hin-
um ýmsu sviðum framvindunn-
ar, sem í því að koma í veg fyr-
ir holskeflur dauðans af völdum
drápstækja. Um leið og menn
treysta leiðir samvinnu til úr-
lausnar vandamálanna og eygja
þar stærstu von í stormasöm-
um heimi, er félagsbundinn
samvinnufélagsskapur á tak-
mörkuðum sviðum, eitur í bein-
um þeirra, sem vilja, hrifsa til
sín fjármuni er aðrir skapa með
vinnu sinni.
MINKURINN ÖRFAR
MÆLSKUNA
Á fimmtudaginn hófst á Alþingi
umræða um, hvort Ieyfa skuli
á ný eldi minka hér á landi og
voru margir á mælendaskrá.
Reykjðhverfi
sé miðuð við nýtingu jarðhita í
Reykjahverfi, sem mun vera sá
mesti í byggð norðanlands. Slíkar
stofnanir er nauðsynlegt að starf-
rækja í hinunt nú alltof fámennu
sveitum.
Eitt af málum dagsins í dag,
sem þó snertir ekki beint nema
nokkurn hluta Reykhverfinga,
þar sem þeir eiga ekki allir kirkju-
sókn að Grenjaðarstað, er endur-
bygging og stækkun kirkjunnar
þar. Gamla kirkjan verður 100 ára
á næsta sumri og er áformað að
endttrbyggingu hennar verði lok-
ið, svo að endurvígsla geti farið
fram á 100 ára afmæli kirkjunn-
ar. Hér er um gagngera endur-
bvggingu að ræða. Hefur kirkjan
verið lengd um 4 m og á hana
byggður turn. Hins vegar er stíl
hennar að utan og innan raskað
svo lítið sent verða má. Þarna er
um fjárfreka framkvæmd að ræða
og hefur söfnuðurinn þegar lagt
fram mikið fé í frjálsum framlög-
uni og gefið fyrirheit um nteira.
Sóknarnefnd hefur ekki talið ólík-
legt, að burtfluttir safnaðarmenn
og konur svo og aðrir velunnarar
Framhald á blaðsíðu 2.
Er útlit fyrir, að umræður þess-
ar ntuni skáka hinuni þekktu
og landskunnu umræðum um
rjúpuna á löggjafarþingi þjóð-
arinnar. Er það mikil furða, að
60 manna hópur greindra þing-
manna skuli stundum „gripinn“
málgleði þegar hin minni mál
eru á dagskrá, á sama tíma og
hin stærri þjóðmálin bera úr-
ræðaleysinu glöggt vitni.
SEGLIN DREGIN SAMAN
Hvarvetna berast fregnir af
lélegri og ntinnkandi atvinnu
hér norðanlands. Iðnfyrirtæki á
Akureyri ltafa fækkað starfs-
fólki vegna söluíregðu á fram-
Ieiðslunni og peningavandræða.
Ýmsir gæðingar í stétt við-
skiptamanna hafa fengið leyfi
til að flytja inn iðnaðarvörur,
jafnvel sardínur frá Portúgal
og sér þess strax merki í niður-
suðuiðnaðinum á Akureyri. í
klæðagerð hafa þau undur skeð,
að leyft hefur verið að flytja
inn mjög ódýra umframleiðslu-
slatta ýntis konar fafuaðar, sem
innlend framleiðsla getur ekki
keppt við. Slíkt er ekki fram-
búðarlausn til ódýrra vöru-
kaupa en getur sett innlend
framleiðslufyrirtækj á höfuðið.
Byrjað er að selja dönsku hús-
gögnin og væri annar innflutn-
ingur sannarlega nauðsynlegri.
Allir vita hvernig innfluíningur
á kexi og sumum sælgætisvör-
um hefur truflað liliðsíæða
framleiðslu hér á Iandi. Ríkis-
stjórnin svarar atvinnuleysinu
með því að skera niður opinber-
ar framkvæmdir og boðar jafn-
framt stóriðju fyrir sunnan og
næga atvinnu þar.
MINNA TIL VEGANNA
í umræðum á Alþingi um vega-
áætlunina benti Skúli Guð-
mundsson á, að framlög ríkis-
sjóðs til nýrra akvega, annarra
en hraðbrauta og vega í kaup-
stöðum og kauptúnum, væru
áætluð 66% hærri 1965 en þau
voru 1958, en hins vegar hefði
vegagerðarkostnaðurinn hækk-
að um 76,5% síðan 1958. Hækk-
un ríkisframlaga til brúargerða
frá 1958—1965 nemur 34% en
kostnaður við brúargerðir hef-
ur á sama tíma hækað um
94»3%. □
TILMÆLI M.F.Í.K.
Á FUNDI Menningar- og friðar-
samtaka íslenzkra kvenna, Akur-
eyrardeild, var eftirfarandi sam-
þykkt:
„Fitndur i Akurcyrardeild
M. F. I. K.,-haldinn 7. april 1965,
beinir að marggefnu lilefni þeirn
eindregnu tilmœlum lil hús-
meeðra, að þccr kaupi ekki vörur
frci S.-Afriku, ög jafnframt til mat-
vöruvcrzlana, að þœr hafi ekki
slikar vörur á bo.ðstólum.
Fundurinn er sammála um, að
einmitt mcð þvi að kaupa ekki
vörur frá S.-Afriku geti frélsisunn-
andi þjóðir heims helzt liaft áhrif
til að draga úr þeirri ógnarstjórn,
sem i S.-Afriku rikir og hverjurn
hugsandi manni hlýlur að blöskra
°g vilja gera það, scm i lians vatdi
stendur, til að linni.“
(Fréttatilkynning.)
Áhugatnál húsmæðranna á Bændaklúbbsfundi
Frú Ragna Sigurðardóttir og Óli Valur
höfðu framsögu á fundinum