Dagur - 05.06.1965, Síða 1
Dagur
SÍMAR:
11166 (ritstjóri)
11167 (afgreiðsla)
er- "■ ......-■. " " ?
Dagur
kemur út tvisvar í viku
og kostar kr. 25,00 á
mán. í lausasölu kr. 4,00
Skipin streyma til Raufarhafnar
Gamla frystihúsið Jökull brann í gær
Raufarhöfn 4. júní. — Nú er ís
inn farinn veg allrar veraldar og
nú streyma skipin hingað með
síldina enda stytzt til Raufar-
hafnar af veiðisvæðinu. Þessi
skip eru á leiðinni: Viðir II. með
900 mál, Jörundur II. með 1500,
Arnar með 1200, Bergur með
1200, Haraldur með 1250 og
Pétur Sigurðsson með 1100 mál
og von er á fleiri. Þótt verksmiðj
an sé ekki alveg tilbúin að hefja
bræðslu, verður tekið á móti
(Framhald á blaðsíðu 2).
Stríð út af skellinöðrum
Tvær bifreiðir lentu út af og skemmdust
í FYRR.AKVÖLD var bifreið ek
ið austur af vegarkanntinum og
niður í sjó, norðan við Sam-
komuhúsið á Akureyri. Bifreið
inni var ekið af stæðinu við Sam
komuhúsið og ætlaði bifreiðar-
stjóri að sveigja til hægri og
fara suður skipagötu og hring
inn. Mun hann hafa fengið að-
svif og lenti bifreiðin út af, fram
hjólin fóru niður í sjó, en aftur
hjólin stöðvuðust á vegkantin-
um. Var mesta mildi að bifreið
in skyldi ekki kollsteypast.
Bifreiðarstjóri mun ekki hafa
meiðst, en lítilsháttar skemmd-
ir urðu á bifreiðinni. — Sjá
mynd á bls. 2.
Klukkan tæplega ellefu í gær
kvöldi lentj bifreið út af á mót
um Oddeyrargötu og Oddagötu.
Ekki urðu meiðsl á mönnum, en
bifreiðin braut nokkur tré og
dældaðist talsvert.
í fyrrinótt handtók lögreglan
ölvaðan mann við akstur.
Mikið hefur borið á skelli-
nöðrufaraldri undanfarið og
hafa verið mikil brögð að því,
að ökumenn þeirra hafi verið
réttindalausir. Auk þess hafa
margar skellinöðrur verið tekn
ar úr umferð vegna þess, að þær
hafa verið ótryggðar og jafnvel
óskrásettar. Mega þeir skelli-
nöðrueigendur, sem hafa trass-
að að tryggja eða skrásetja farar
tæki sín búast við, að þau vérði
tekin úr umferð fyrirvaralaust.
Bræðsla cr hafin í Krossanesi og þar er verið að setja síldardælu í flutningaskipið Polana, seni þar
liggur. (Ljósm.: E. D.).
Dælur settar í flutniugaskip ey-
firzku sí 1 darverksmið j anna
EINS OG undanfarin ár eru
ráðgerðir síldarflutningar til
síldarverksmiðjanna við Eyja-
fjörð, Krossaness og Hjalteyr-
ar, miðað við að aðalsíldveiði-
svæðin verði á svipuðum slóð-
um og tvö síðustu ár.
Aððlfundi K.E.A. lauk sl. miðvíkudag
Samþykkt að gefa 100 þús. kr. til Davíðshúss
K. E. Á.
FYRIR 30 árum var heildar-
vörusala KEA í sölubúðun-
um 2,5 millj. kr. Nú er hún
250 milljónir kr. Þá lögðu
bændur inn 2 millj. I. mjólk-
ur. Nú nálgast mjólkurinn-
Jcggið 20 millj. lítra. A sama
árabili hefur félagmanna-
tala tvöfaldast.
Fastráðið starfsfólk KEA
nú, er 525 manns. Launa-
greiðslur sl ár voru rúml 87
millj kr. þar af til verka-
manna, sjómanna Útgerðafé-
lags KEA 27 milli. kr. Svar-
ar þeíta til launa nál. 1000
verkamanna, miðað við gild
andi taxta og 8 síunda vinnu
dag.
Stofnsjóðsinnstæða var um
sl. áramót nál. 33 millj. kr. og
Mjóíkursamlagsstofnsjóður
15,6 millj. kr.
í KEA eru 2f félagsdeild-
ir í héraðinu og víðar. Félags
tala í þeim öllu er 5416
anns. Fuilírúaréft á aðalfundi
áttu 193.
A aðalfundinum 1. og 2.
júní sl. var sá háttur upp tek
inn að allar ræður voru tekn
ar á segulband og geymdar
til síðari tíma, og er það
raunar vonum seinna.
AÐALFUNDI Kaupfélags Ey-
firðinga, er stóð í 2 daga, lauk
sl. miðvikudagskvöld. Fulltrúar
voru nær tvöhundruð talsins og
auk þess sóttu fundinn margir
gestir svo og að sjálfsögðu
stjórnarnefndarmenn, fram-
kvæmdastjóri endurskoðendur
og forstöðumenn hinna ýmsu
deilda. Umræður um skýrslu
stjórnar og framkvæmdastjóra
urðu miklar og fjörugar, svo
sem oft er venja.
Heildar vörusala félagsins og
fyrirtækja þess á innlendum og
erlendum vörum, þegar með
eru taldar útflutningsvörur,
verksmiðjuframleiðsla og sala
þjónustufyrirtækja, jókst úr
550 milljónum í 712 milljónir
króna, og er þar enn um raun
verulega söluaukningu að ræða
auk hækkandi krónutölu verð-
bólgunnar.
í'undurinn ákvað að verja
tekjuafgangi 5,6 milljónum kr.
til andurgreiðslu á 4% af ágóða
skyldri vöruúttekt félagsmanna
og leggist upphæðin í stofnsjóð
þeirra.
Ennfremur ákvað fundurinn
að greiða í reikninga félags-
manna 6% af úttekt þeirra í
Stjörnuapóteki, sem þeir hafa
sjálfir greiít.
í stjórn félagsins var endur-
kjörinn til þriggja ára Kristinn
Sigmundsson oddviti Arnarhóli,
Sigurður Oli Brynjólfsson, kenn
(Frainhald á blaðsíðu 7).
Þessar verksmiðjur hófu
sameiginlega þessa flutninga
með leiguskipum og var það
happasæl nýjung. Enn munu
síldarverksmiðjurnar hafa vin-
samlega samvinnu, en hafa nú,
hvor fyrir sig, leigt sér síldar-
flutningaskip. Annað þeirra er
komið, sænska skipið Polana,
sem á að geta flutt allt að sjö
þús. málum. Samkvæmt viðtali
við Guðmund Guðlaugsson verk
smiðjustjóra Krossanesverk-
smiðjunnar, kom skipið hingað
s.l. sunnudagskvöld og liggur
við verksmiðjubryggjuna. Þar
er unnið að því að setja nýja,
ameríska síldardælu niður í
skipið og verður því verki senni
lega lokið í næstu viku og er
skipið þá tilbúið til síldarflutn-
inganna.
Krossanesverksmiðjan hóf
bræðslu í fyrradag. En hún fékk
(Framhald á blaðsíðu 6).
Málið er unnið
SÍÐUSTU dagar hafa verið
söfnunamefnd Davíðshúss á
Akureyri gjöfulir. Frá Kaup-
félagi Skagfirðinga barst 25
þús. króna gjöf, frá kaupfé-
lagi Eyfirðinga 100 þús. kr.,
frá sýslusjóði Eyjafjarðar-
sýslu 25 þús. kr. og frá Menn
ingarsjóði Akureyrarkaup-
staðar 100 þús kr. Og enn ber
ast gjaíir frá einstaklingum.
Þótt enn vanti herzlumun-
inn að nægu fé liafi verið
safnað, er málið imnið. Dav-
íðshús verður keypt, eigum
þjóðskáldsms verður ekki
sundrað, þjóðin eignast dýr
mætan stað, helgan af mann
inum og skáldinu Davíð Stef-
ánssyni, sem átti engan sinn
líka. □
Veiðileyfið koslar hálit
fjórða þúsund á dag
Leigan hefur margfaldast á síðustu árum
Blönduósi 4. júní Hrafl er enn
af hafís með landinu og er hann
þéttari lengra út t.d. út af Vatns
nesi og út Húnaílóa og austan.
Skipalei'ð er lokuð eins og er til
Blönduóss og Skagastrandar.
Þessi ís hefur áður legið við
Strandir en rak austur yfir.
Hí'útafjörður og Miðfjörður eru
nú íslausir orðnir. Sauðburður
hefur gengið vel þótt gjafafrekt
væri og nú flevgir gróðri fram.
Stangaveiðimenn hyggja nú að
veiðarfærum sínum og fylgjast
af áhuga með veiðifréttum. Lax
veiðin er þó naumast hafin. —
Leiga fyrir veiðiárnar hefur
margfaldast á síðustu árum.
Laxá á Ásum var leigð á 700 þús
und krónur, Blanda og Svará á
6—700 þús. Víðidalsá á 1100 þús
und krónur, Miðfjarðará á 6—
800 þúsund krónur. Samanlagt
munu árnar í Húnavatnssýslum
vera leigðar fyrir hátt á fimmtu
milljón á þessu ári.
Veiðileyfin fyrir hverja stöng
á dag eru misdýr, en hæst munu
þau vera allt að 3500 krónur á
dag. Ó.S.