Dagur - 09.10.1965, Blaðsíða 8
8
SMÁTT OG STÓITf
Tryggvi Helgason flugmaður á Akureyri og nokkrar flug-
vélar hans á jörðu og í lofti.
NORÐURFLUG A AKUREYRI
Viðtal við Tryggva Helgason flugmann
HÉR á landi eru mörg flugfé-
lög. En aðeins eitt þeirra hefur
bækistöð sína og starf algerlega
utan Reykjavíkur, og er það
Norðurflug á Akureyri.
Fyrstu drög að þessu flugfé-
lagi lagði Jóhann heitinn Helga
son með sínu flugmannsstarfi.
Þeir bræður, hann og Tryggvi
flugmaður Helgason, Rauði-
krossinn og Slysavarnardeild
kvenna hér á Akureyri keyptu
fyrst eina flugvél, einkum ætl-
aða til sjúkraflugs, árið 1959.
Síðar fórst Jóhann, eins og
kunnugt er, og flugvélin eyði-
lagðist.
Um þær mundir var Tryggvi
orðinn flugmaður hjá Fí. Hann
kaus að taka upp hið fallna
merki bróður síns, hætti störf-
um hjá Ff og hefur síðan starf-
að hér á Akureyri, sem flug-
maður og forstjóri Norðurflugs
í sex ár.
Blaðið hitti Tryggva Helga-
son að máli nú í vikunni og
lagoi nokkrar spurningar fyrir
hann um þessa starfsemi.
Er það rétt, að Norðurflug sé
nú sex ára?
Jú, ég hef miðað aldur Norð-
urflugs við tilkomu tveggja
ENN ÚTI AF FYRRI
SLÆTTI
ENN eru úti hey af fyrri slætti
á Langanesi og í Þistilfirði, að
því er tíðindamaður blaðsins,
Óli Halldórsson frá Gunnars
stöðum sagði núna í fyrradag.
Þar spratt óvenju seint, og þeg-
ar loks var unnt að hefja hey-
skapinn, komu óþurrkar, sem
síðan hafa lengst af verið. Hey
eru því lítil, þótt ekki sé um
kalskemmdir að ræða. Á aust-
anverðri Sléttu, Langanesi og í
Þistilfirði er fyrirsjáanlegur
niðurskurður búfjár, ef hey fæst
ekki keypt. En menn frá „kal-
nefndinni“ svokölluðu hafa ver
ið hér til að kynna sér ástand-
ið. Á þetta svæði vantar nokk-
ur þúsund hesta heys. Q
hreyfla sjúkraflugvélarinnar,
sem ég kom með vestan um haf
1. nóvember, fyrir sex árum. —
Fyrst í stað virtist ekkert glæsi
legt að setja svona fyrirtæki af
stað og aðstaðan ekki góð. Flug
félag íslands var að vísu stofn-
að á Akureyri á sínum tíma, en
reynslan af flugstarfsemi utan
Reykjavíkur var þó af skorn-
um skammti.
Hvernig h'efur svo þetta starf,
sjúkraflugið fyrst, — og síðan
meiri starfsemi, — gengið?
Það hefur gengið mjög vel,
— þrátt fyrir slæma aðstöðu.
Flugið hefur aukizt ár frá
ári. Fyrsta árið var mjög litið
áð gerá, en síðan hefur flugið
vaxið mjög mikið og stöðugt, og
nú í sumar ér það langtum
meira en nokkru sinni áður. —
Vélakosturinn hefur líka verið
áð aukast. Nú á fyrirtækið 5
vélar, þrjár tveggja hreyfla og
tvær minni. En vegna slæmrar
aðstöðu hér og örðugleika með
lánsfjárútvegun hafa aðeins 3
vélarnar verið í notkun í sum-
ar, tvær tveggja hreyfla og ein
eins hreyfils vél. Tvær vélanna
'efú af Beechcraft-gerð, átta
farþega. En þetta er fyrsta
sumarið, sem önnur átta far-
þega vélin er í notkun. Hún er
búin að fara til fjölda staða á
landinu, t. d. hefur hún verið
mikið í förum milli Akureyrar
og' Austurlands. Flugtími þeirr-
ár vélar frá Akureyri til Reykja
víkur er nálægt klukkutíma, en
. samtals hefur vélin flogið mörg
hundruð tíma í sumar. Ætlunin
er að hin Beechcraft-vélin verði
tilbúin til notkunar næsta vor.
Hvernig er aðstaðan hérna til
flugstarfsemi Norðurflugs?
Hún hefur smábatnað. Að
vísu er húsakosturinn ófullkom
inn ennþá, eitt flugskýli, sem
rúmar aðeins minni vélarnar.
Tvær stærstu tveggja hreyfla
vélarnar verða að standa úti,
þar til nýja flugskýlið kemur.
Við þurfum að hafa fullkoniið
(Framhald á blaðsíðu 2).
Brædd á Raufarhöfn 218 þús, mál
Raufarhöfn 8. október. Það hef-
ur verið líflegt hér síðan 5.
október. En síðan hafa borizt
hingað 35 þúsund mál í bræðslu
en í allt eru komin 218 þúsund
mál, þar af hundrað þúsund á
rúmlega mánaðartíma. Skip
hafa komið hingað á hverjum
sólarhring að undanförnu. Bú-
ið er að salta í 45 þúsund tunn-
ur síldar. Langhæsta söltunar-
stöðin er Norðursíld h.f. með
13.273 tunnur. Annars hefur
söltun verið hér lítil, bæði er
langt hingað með síldina af
miðunum og svo hamlar fólks-
eklan
Ægir fann núna síld 60 til 80
mílur út af Langanesi, en hún
var nokkuð dreifð. Annars er
allur flotinn á sömu slóðum og
undanfarna daga.
Félagsheimilið okkar verður
senn fokhelt og verður þá hægt
að halda áfram að vinna við
það í vetur. Fimm íbúðarhús,
sem byrjað var á í sumar og
haust, eru í smíðum, mismun-
andi langt á veg komin.
Þorskafli hefur verið m.eiri í
sumar og haust en undanfarin
ár. Enn er góður afli bæði á línu
og færi. Frystihúsið hefur því
haft töluvert verkefni að þessu
sinni. H. II.
SINNASKIFTI SJÁLF-
STÆÐISMANNA
Sveinn Guðmundsson forstjóri
í vélsmiðjunni Héðni, einn af
varaþingmönnuni Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík, flutti á
Alþingi, í tíð vinstri stjórnarinn
ár, svohljóðandi tillögu:
„Alþingi ályktar að fela rík-
isstjórninni að hlutast til um
að Seðlabankinn endurkaupi
framleiðslu- og hráefnavíxla
iðnaðarfyrirtækja eftir ákveðn-
um reglum, er settar verði með
svipuðu sniði og reglur þær, er
gilda um endurkaup framleiðslu
víxla sjávarútvegs og landbún-
aðar.“
Alþingi samþykkti tillögu
Sveins árið 1958. Skömmu síð-
ar urðu síjórnarskifíi og flokk-
ur Sveins varð mestu ráðandi
um landsmál. En svo leið ár
eftir ár, að stjórn sú, sem Sveinn
studdi, Iét ekki framkvæma
þingsályktunartillöguna. Á síð-
ustu þingum hefur Þórarinn
Þórarinsson flutt tillögu Sveins
á ný og reynt að fá hana endur-
samþykkta. En þá bregður svo
við, að Sjálfstæðismenn hafa
ekki viljað greiða henni at-
kvæði og jafnvel ekki Sveinn
sjálfur!
GARÐYRKJUSKÓLI A
AKUREYRI
Tillaga, sem allir þingmenn í
Norðurlandskjördæmi eystra
fluttu saman á síðasta þingi um
stofnun garðyrkjuskóla á Akur-
eyri eða í nágrenni hennar, náði
ekki fram að ganga að þessu
sinni, en verður væníanlega
tekin upp aftur nú í vefur. Hér
eru góð skilyrði fyrir slíkan
skóla og af inörgum ástæðum
eðlilegt, að garðyrkjuskólar séu
heldur tveir en einn í landinu.
Gæti þá verið verkaskifting
milli þeirra. Garðyrkjugreinar
eru margar og niikil sérhæfing
komin þar til sögunnar.
Um árafugi voru í Gróðrar-
stöðinni á Akureyri haldin garð
yrkjunámskeið, mjög til menn-
ingarauka. Sú síarfsemi lagðist
því miður niður, enda mun
garðyrkjukunnáttu hafa á viss-
an hátt hrakað á síðari árum.
En vel fer á því, að garðyrkju-
mennfun verði liér aftur upp
tekin, og mjög nauðsynlegt.
FISKELDISSTÖÐ A NOEÐ-
URLANDI
Sömu þingmenn fluítu tillögu
um að stofna á Norðurlancli
Um 190 í skólum í Ólafsfirði
Ólafsíirði 8. október. Miðskóli
Ólafsfjarðar var settur 1. okt.
í skólanum eru 70 nemendur.
Skólastjóri er Kristinn Jóhanns
son og með honum tveir fastir
kennarar og nokkrir stunda-
kennarar.
Barnaskólinn var settur 4.
október. í honum eru nálega
120 nemendur. Við skólann
kenna þrír fastir kennarar, auk
Björns Steíánssonar skólastjóra
og þriggja stundakennara.
Hingað kom Skagfirðingur á
miðvikudaginn með 1100 tunn-
ur og fengust 500 uppsaltaðar
úr þeim afla.
Þorskafli er skárri en í sum-
ar og fæst einn og einn góður
róður.
Bændur fjölga fé sínu þessi
árin. Slátrun er lokið og er fé
vænna en í fyrra. B. S.
klak- og eldisstöð fyrir lax og
silung. Hér norðanlands er stór-
vaxnari laxastofn, a. m. k. í
sumum ám, en fyrir sunnan. —
Veiðimálastjóri ríkisins er, eins
og fíðkazt hefur til þessa, stað-
settur í höfuðborginni og hefur
komið upp eldisstöð við bæjar-
vegginn hjá sér, í Kollafirði.
Hér nyrðra eiga menn erfitt
með að fá hann eða aðra sér-
fræðinga til að atliuga skilyrði
til fiskiræktar, þó góð séu víða.
Við svo búið má ekki Iengur
standa.
Um tillöguna fór eins og gárð
yrkjuskólamálið, og náði ekki
fram að ganga. Hér er við ramm
an reip að draga, þótt oft sé
fagurlega talað um nauðsyn
jafnvægis miili landshlutanna.
SMYGLA KJÖTVÖRUM
Smyglið hér á landi er orðið
svo algengt, að menn bera
naumast kinnroða fyrir því. —
Allir vita um stórfellt vínsmygl,
og stundum í stórum mæli, stór-
felld innkaup ferðafólks o. s.
frv. og í landi hinna miklu kjöt
birgða, sem sumir virðast hafa
áhyggjur af, er uppvíst orðið
um kjötsmygl. Ræðir kunnur
blaðamaður um það nýlega, að
sííkar vörur Iiafi verið til sölu
í ýmsum verzlunum í höfuð-
borginni, þ. e. danskar kjötvör-
ur.
MARGT ER TALIÐ
íslendingar telja ýmsa hluti,
svo sem hreindýr í fjöllum, laxa
í ám, gæsir á heiðum, bíla á veg-
um og börn í skólum. En það er
sama hvar spurt er um þann
fjölda ungra manna og kvenna,
sem ekki fá skólavist vegna
ónógra skóla, enginn getur gef-
ið svar við þvi. Væru þó örugg-
ar upplýsingar um það ekki síð-
ur nauðsynlegar. Þær eru bein-
línis aðalforsenda fyrir því, að
unnt sé að vinna að úrbótum á
skynsamlegan hátt og sækja það
mál með rökum.
HYGGNAR HÚSMÆÐUR
Fregnir berast af því, að marg-
ar húsmæður kaupi á þessu
hausíi meira til vetrarins í slát-
urtíð en oft áður, einnig ungar
kcnur, sem lítt eru sláturgerð
vanar. Væntanlega er það einn-
ig svo hér á Akureyri, enda tal-
inn hygginna háttur, eins og
verðlagi er nú háttað. Sláturtíð
(Framhald á blaðsíðu 7).
Gagnfræðaskóli Húsa-
víkur 20 ára
GAGNFRÆÐASKÓLI Húsa-
víkur var settur 2. október. —
Skólastjórinn, Sigurjón Jó-
hannesson setti skólann með
ræðu og minntist þess, að 20 ár
eru liðin frá stofnun gagnfræða
skóla á úsavík. Skólinn býr nú
við þröngan húsakost — hjá
Barnaskólanum. Hafinn er und-
irbúningur að byggingu nýs
gagnfræðaskóla. — Kennaralið
skólans er óbreytt frá fyrra
ári. Þ. J.