Dagur - 15.01.1966, Blaðsíða 2
2
Mynd þessi er af þátttakendum á vinabæjarmóti æskulýðsleiðtoga er haldið var í Kanders í Danmörku síðastliðið sumar. Þátttakend-
ur voru frá Álasundi, Lahti, Kanders og Vásterás og 6 frá Akureyri.
Yfirlit yfir sförf Æskulýðsraðs Akureyrar árið 1965
og hvað framundan er á nýbyrjuðu ári
ÆSKULÝÐSRÁÐ AKUREYRAR hélt 18 bókaða fundi á árinu og
tók fyrir ýmis atriði er varðar æskulýðsstarfsemina í bænum. Þau
helstu voru þessi:
Námskeiðin.
Námskeið í hjálp í viðlögum.
14. jan. til 30. jan. Haldið í sam
ráði við Skátafélag Akureyrar
og Flugbjörgunarsveitina. Að-
alkennari Tryggvi Þorsteins-
son, skátaforingi. Nemendur 45.
Kennt í íþróttavallarhúsinu.
Sjóvinnunámskeið. Tveir ald-
ursfiokkar. 28. jan. til 18. febr.
Kennarar Björn Baldvinsson,
skipstjóri og Helgi Hálfdánar-
son, netagérðarmaður Nemend-
ur 20. Kennt í íþróttavallarhús-
inu.
Námskeið i bridge. 4. febr.
til 8. marz. Haldið í samráði við
Bridgefélag Akureyrar. Aðal-
kennari Ármann Helgason,
kennari. Nemendur 34. Kennt í
íþróttahúsi Akureyrar.
í febrúar til apríl leiðbeindi
Dúi Eðvaldsson félögum úr
„Sjóferðafélagi Akureyrar“ í
smíði smábáta og módela. Kennt
var í vinnuherbergi sem innrétt
að hefur verið í gamla flugskýl-
inu.
Námskeið í hestamennsku.
26. maí til 19. júní. Námskeiðið
haldið í samráði við Hesta-
mannafélagið Létti. Kennarar
Ingólfur Ármannsson og Þor-
steinn Jónsson. Nemendur 75.
Kennsla fór fram að Kaupangs-
bakka.
Svifflugnámskeið. 5. ágúst til
15. ágúst. Námskeiðið haldið í
samráði við Svifflugfélag Akur
eyrar. Kennarar Arngrímur Jó
hannsson og Húnn Snædal.
Nemendur 12. Kennsla fór fram
á athafnasvæði Svifflugufélags-
ins á Melgerðismelum.
Ljósmyndanámskeið, með-
ferð myndavéla. Hófst 2. des-
ember og stendur enn yfir.
(Framh. ljósmyndanámskeiðs,
framk. og kopering, er hófst 16.
nóv. 1964 og stóð fram í janúar
1965). Kennarar Karl Hjaltason
og ísak Guðmann. Nemendur
alls 27. Kennt í Landsbankasaln
um og íþróttavallarhúsinu.
Leiklistai-námskeið. Hófst 2.
des. og stendur enn yfir. Hald-
ið í samráði við Gagnfræðask.
Akureyrar. Kennari Ágúst
Kvaran. Nemendur 16. (50 um-
sóknir bárust og væntanlega
verður tímum fjölgað og fleiri
teknir á námsk. eftir áramótin.)
Kennt í Gagnfræðaskólanum og
Landsbankasalnum.
Unglingaskemmtanir.
Æskulýðsráð Akureyrar tók
þá ákvörðun árið 1963 að
Mynd af leikfimisflokki Elínar Önnu Kröyer en hún sýndi m. a.
flokk sinn 17. júní sl. Tveir flokkar æfa á hennar vegum í vetur.
Hermann Sigtryggsson,
æskulýðs- og íþróttafulltrúi.
skemmtiklúbbár unglinga yrðu
starfandi á vegum ráðsins og
stæðu fýrir dánsskemmtunum
unglinga á aldrinum 14—18 ára.
Tveir skemmtiklúbbar hafa
síðan séð um þessa starfsemi að
mestu leyti, en æskulýðsráð
jafnan haft fullorðinn eftirlits-
mann á staðnum.
Á þessu ári hafa skemmíanir
þessar verið einu sinni til tvisv
ar á mánuði í félagsheimilinu
Lóni. Eftirlitsmenn hafa verið
Dúi Björnsson, Stefán Ámason
og æskulýðsfulltrúi bæjarins.
Tilraun var gerð með að hafa
„opið hús“ í Lóni s. 1. sumar.
Var starfsemi þessari haldið
uppi í tvo mánuði og húsið op-
ið tvisvar í viku frá kl. 8 e. h.
til 11.30 e. h. Þar gátu ungling-
ar komið og skemmt sér við ým
is konar töfl og spil og á staðn-
um voru seldir gosdrykkir og
sælgæti. Æskulýðsráðið réði
Stefán Árnason til að gegna eft-
irlitsstörfum þegar húsið var
opið.
Mjög mikil aðsókn var að
kvöldum þessum, en umgengni
misjöfn hjá unglingunum og
var starfsemi þessari því hætt.
Vera má að skort hafi meira
eftirlit og þá fleira starfsfólk,
en þar sem útliald þetta kostaði
allmikið fé, treysti æskulýðs-
ráð sér ekki til að halda húsinu
opnu lengur en þessa tvo mán-
uði.
Starfsemi við G. A.
Síðastliðið vor varð það að
samkomulagi milli Gagnfræða-
skóla Akureyrar og æskulýðs-
ráðs að auka samstarf í sam-
bandi við tómstundastörf ung-
linga. Starfsemi þessi er nú á
byrjunarstigi. Gagnfræðaskól-
inn hefur ráðið tvo kennara
nemendum sínum til aðstoðar í
félags og tómstundastörfum, Þá
hefir G. A. einnig leyft afnot af
húsnæði sínu, sem bæði er mik-
ið og gott og á margan hátt
heppilegt fyrir þessa starfsemi.
Æskulýðsráðið hefir heitið að-
stoð sinni við þessa starfsemi
eftir því sem það hefur ráð á.
Blaðið „Unga Akureyri“.
Upplýsingarit æskulýðsráðs,.
„Unga Akureyri" kom út í jan
úar. Er þar getið hver yrði
helzta starfsemi æskulýðsráðs-
ins á árinu, auk þess sem þar er
skrá ýfir félög og félagasamtök
í bænum sem á einhvern hátt
hafa æskulýðsmál eða verkefni'
fyrir unglinga á sinni stefnu-
skrá. í blaðinu eru einnig grein
ar og myndir, svo og auglýsing-'
ar, sem bera að mestu upp
kostnað við blaðið.
„Unga' Akureyri“ var borið í
hús bæjarins' seinni hluta jan.
Næsta blað er nú tilbúið til
prentunar. Verður það með
svipuðu sniði og blöð þau sem
komin eru út áður.
Húsnæðismál.
Svo sem að framan greinir,
hefir starfsemi æskulýðsráðsins
verið til húsa á ýmsum stöðum
í bænum og að mörgu leyti er
gott að geta dreift starfseminni
í hina ýmsu bæjarhluta.
Miðstöð starfseminnar er í
íþróttavallarbyggingunni, þar
sem æskulýðsráð hefur afnot af
skrifstofu íþróttabandalags Ak.
fyrir framkvæmdastjóra og
fundi ráðsins og búningsher-
bergi hússins eru nótuð að vetr
inum fyrir námskeið, fundi,
kvikmyndasýningar o. fl. Nokk
uð hefir þó dregið úr afnotum
æskulýðsráðs af húsinu í vetur,
þar sem æfingar íþróttafélag-
anna hafa aukizt þar og búnings
klefar hússins einnig notaðir
vegna starfsemi íþróttaflokka í
Rafveituskémmunni.
Bankastjóri Landsbankans á
Akureyri hefir sýnt ráðinu þá
velvild að bjóða því afnot af
Landsbankasalnum endurgjalds
laust.
Með tilkomu þessa húsnæðis
hyggur æskulýðsráð á aukna
starfsemi eftir áramótin og nýt-
ir væntanlega húsnæði þetta til
fulls.
Önnur mál.
Æskulýðsráð Akureyrar tók
þátt í bindindisviku, ásamt
nokkrum félagssamtökum í h.-r-n
um, sem haldin var í marz og
hafði forgöngu um að bindindis-
mót væri haldið um verzlunar-
mannahelgina í Vaglaskógi.
í sambandi við áfengismálin
hefir æskulýðsráðið einnig stofn
að til funda með eftirlitsmanni
vínveitingahúsanna hér, for-
manni áfengisvarnarnefndar,
yfirlögregluþjóni bæjarins, for-
manni Barnaverndarnefndar Ak
ureyrar o. fl. aðilum og rætt þar
vandamál er varðar drykkju-
skap og hegðun unglinga.
í ágúst sóttu 6 manns frá
æskulýðsfélögum bæjarins mót
æskulýðsleiðtoga vinabæja okk
rr í Randers. Æskulýðsráð Ak-
ureyrar hafði forgöngu um ferð
þessa. Fararstjóri var æskulýðs-
fulltrúi bæjarins.
í september fóru 6 unglingar
á vegum æskulýðsráðsins í
heimsókn til Reykjavíkur og
kynntu sér starfsemi æskulýðs-
ráðsins þar.
'.'.:;''Fý^irgreiðslu í Reykjavík
önnuðust æskulýðsfujltrúi
Reykjavíkur Reynir Karlssön,
Jón Pálsson tómstundaráðuiTáut
ur og Guðmundur Þorsteinsspn,
kennari.
Æskulýðsráð Akureyrar
greiddi fyrir heimsókn 6
sænskra unglinga, sem komu
hingað í júní.
Æskulýðsráð tók þátt i sfarf-
semi nefndarinnar „Herferð
_gegn hungri“ hér á Akureyri.
Geta má bess hað s.endar hafa
verið kr. 630.000.00 til fram-
kvæmdanefndar H. G. II. í
Reykjavík Fó þessu var safnað
í nóvember og desember.
(Framhald á blaðsíðu 7.)
Nemendur á námskeiði Svifflugfélags Akurevrar og Æskulýðsráðs
Akureyrar er haldið var á athafnasvæði Svifflugfélagsins á Mel-
gerðismelum síðastliðið sumar.