Dagur - 04.05.1966, Page 1
Dagur
SÍMAR:
11166 (ritstjóri)
11167 (afgreiðsla)
XLIX. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 4. maí 1966 — 33. tbk
FERBASKRIFSTOFAN
TÚNGÖTU 1
Símar 1-14-75 og
1-16-50
ÖRN SKÍRÐ í EINU
ÞAÐ bar við sl. sunnudag á
Hlöðum í Glæsibæjarhreppi, að
átta börn þeirra hjóna, Stefáns
bónda Halldórssonar og Önnu
Jónsdóttur voru skírð, hið
yngsta tveggja mánaða og það
elzta 11 ára, hinn myndarleg-
asti hópur. En þau hjón eiga
tvö börn eldri. Feðgarnir á
Möðruvöllum séra Sigurður
Stefánsson vígslubiskup og séra
Ágúst Sigurðsson sóknarprest-
ur skírðu börnin. En atburðir
sem þessir munu næsta sjald-
gæfir hér á landi og sendir blað
ið fjölskyldunni beztu árnaðar-
óskir í tilefni af hinni marg-
földu skirnarhátíð. □
Sjóðir ekki lengur
geymdir í sokkbolum
Egilsstöðum 3. maí. Hallorms- og silfurs í sokkbolum. í þess-
staðarskóla var slitið á laugar-
daginn, en því miður var ég
ekki þar. Nú er verið að hefja
framkvæmdir að byggingu nýs
útibús Landsbankans á Eski-
firði, því menn kunna ekki við
það lengur, að geyma sjóði gulls
AUSTGAUKUR
Gunnarsstöðum 3. maí. Fyrst
heyrðist í hrossagauk í austri,
þótti það fyrrum harla gott og
var þá kallað austgaukur.
Víðast er kominn hagi, nema
á innstu bæjum er allt í kafi í
snjó ennþá.
Skólum er hér lokið nema
vorskólum fyrir yngstu börnin.
Sæmilega veiðist af hrogn-
kelsunum. O. H.
ari byggingu verður einnig íbúð
fyrir útibússtjóra.
Nýja síldarbræðslan er að
rísa upp á leirunum innan við
Eskifjörð, við hafnarmannvirki,
sem þar eru í smíðum. Þegar
er farið að vinna við uppsetn-
ingu vélanna. Settir verða upp
4 síldargeymar og einnig tank-
ar fyrir lýsi og olíu. En öll
þessi mannvirki standa á fyrr-
nefndum leirum.
Heita má snjólaust, nema
skaflar i giljum. Vegir eru að
verða ófærir vegna aurbleytu,
bæði á Héraði og í Fagradal.
Fjarðarheiði er enn lokuð
vegna snjóa, einnig Breiðdals-
heiði. En nýlega var Vatnsskarð
rutt og opnuð leið til Borgar-
fjarðar. V. S.
EFTIRMÆLI „VIÐREISNARÍNNAR”
Viðreisnin er unnin fyrir gýg
ARIÐ 1958 var sjávaraflinn 580 þús. tonn. Á árinu sem leið
var hann fram undir 1200 þús. tonn. Verðlag sjávarafurða
hefur stórhækkað erlendis síðustu árin.
Tekjur ríkissjóðs í heild á árunum 1960—1964 fóru rúm-
lega þúsund millj. kr. fram úr áætlun fjárlaga. Samt varð
greiðsluhalli á ríkisreikningi árið 1964.
Þjóðin hefur unnið mikið og búið við afla- og markaðs-
góðæri, peningaveltan því verið mikil, en eftir hefur verið
hlutur stjórnarvaldanna: Að halda stöðugu verðlagi í Iand-
inu. Þcss vegna er „viðreisnin“ unnin fyrir gýg, eins og
Ólafur Thors sagði — og kaupmáttur krónunnar heldur
áfram að minnka.
Sitjandi frá vinstri: Halldór Jónsson, Haraldur Guðmundsson, ísak Guðmann formaður ÍBA,
Áskell Jónsson og Már Vestmann. Sitjandi frá vinstri: Haraldur Sigurðsson glímukennari,
Einar Bcncdiktsson, Sigurður Sigurðsson, Þóroddur Jóhannsson, Valgeir Stefánsson, Ólafur
Ásgeirsson og Þorsteinn Kristjánsson þjáifari Glímusamb. ísl. Sjá bls. 2. (Ljósm.: N. H.)
NÚ FER SOGDÆLAN í GANG
r
Al-frumvarpið samþykkt með 10 atkv. gegn 9
ÁLVERKSMIÐJUFRUMVARP
ríkisstjórnarinnar varð að lög-
um í efri deild Alþingis sl. laug-
ardag. En það var lagt fram í
neðri deild í aprílbyrjun og um
það urðu miklar umræður í báð
um deildum. Viðureign stund-
um allhörð og einkum þá, er
Eysteinn Jónsson, að gefnu til-
efni, rakti stjórnmálasögu fyrri
tíma. Ræðumenn voru margir
úr stjórnarandstöðuflokkunum
en ráðherrarnir Jóhann Haf-
stein og Bjarni Benediktsson
héldu uppi vörnum að mestu
fyrir stjórnarliðið, einkum hinn
fyrrnefndi.
Við lokaatkvæðagreiðslu í
efri deild var frumvarpið sam-
þykkt með 10:9 atkvæðum. Einn
af ráðherrunum var fjarverandi.
Tillaga Ingvars Gíslasonar og
Þórarins Þórarinssonar um að
vísa málinu frá, var í neðri deild
felld með 21:19 atkvæðum. En
Björn Pálsson og Jón Skaftason
sátu síðan hjá síðari atkvæða-
greiðslu og viklu með því gefa
til kynna, að enda þótt þeir
teldu álsamninginn óaðgengilég
an, og tíma til stórframkvæmda
óhentugan, gætu þeir síðar hugs
að sér álframleiðslu á vegum út
lends fyrirtækis, sem betur
væri um búið.
Við fyrstu umræðu í néðri
deild flutti Gísli Guðmundsson
langa ræðu, þar sem hann gerði
grein fyrir norðlenzku viðhorfi
til virkjunarmála og sagði, að
stóriðja í Straumsvík mundi
auka ójafnvægið milli lands-
hluta. Kaflar úr þeirri ræðu
voru birtir í Tímanum 30. apríl.
Við aðra umræðu í neðri
deild var íngvar Gíslason fram-
sögumaður fulltrúa Framsókn-
arflokksins í álnefnd deildarinn
ar. Hann sagði, að álbræðslan
myndi búa við sérreglur í skatta
málum og yrði í ágreiningsmál-
um óháð lögsögu íslenzkra dóm-
stóla en fengi undanþágu frá
greiðslu aðflutningsgjalda.
Landshlutar, sem ættu við at-
vinnumálaerfiðleika að stríða
yrðu í mikilli hættu vegna að-
dráttarafls stóriðjuframkvæmd-
anna.
í efri deild vakti ræða Ólafs
Jóhannessonar prófessors mesta
athygli, m. a. vegna aðdróttana,
sem ráðherra hafði borið fram
í hans garð út af gerðardóms-
ákvæðum álsamningsins. Fór
ráðherra mjög halloka fyrir
Ólafi í þessari viðureign, enda
ljóður á hans ráði.
Jónas Rafnar tók einu sinni
til máls og fann að því, að und-
irrituð hefðu verið mótmælí
gegn álfrumvarpinu, hér í Norð
urlandskjördæmi eystra. □
ÍBÚÐARHÚSIÐ í MIDDAL BRANN
Karlakór Akureyrar syngur um helgina
STJÓRN Karlakórs Akureyrar
gaf blaðamönnum kost á, að
hlusta á nokkur lög á æfingu
sl. mánudag. En kórinn ætlar
nú að halda samsöngva, fyrst í
Nýja bíó á laugardaginn, kl. 3
e. h. og í Sjálfstæðishúsinu á
sunnudaginn kl. 4 e. h. og að
kveldi sama dags kl. 8.30.
Söngskráin verður að þessu
sinni óvenju fjölbreytt, og
nokkur hluti hennar hefur ekki
áður verið kynntur héi'. Má þar
á meðal nefna tvö lög eftir Jó-
hann Ó. Haraldsson tónskáld,
en þau verða frumflutt.
Talsverðar breytingar hafa
orðið á starfsemi kórsins að und
anförnu. Áskell Jónsson, sem
verið hefur söngstjóri um árabil
og átt hefur hvað mestan þátt í
mótun kórsins, lét af stjóm á sl.
hausti. Við söngstjórninni tók
Guðmundur Jóhannsson, og hef
ur hann æft kórinn í vetur af
miklum dugnaði. Þá hefur frk.
Ingibjörg Steingrímsdóttir kennt
einstökum meðlimum kórs-
ins raddbeitingu um tíma og
verið leiðbeinandi á æfingum.
Undirleikari er Kristinn Gests-
son kennari við Tónlistarskól-
ann. Tveir nýir einsöngvarar
koma nú fram með kórnum,
þeir Ingvi R. Jóhannsson og Þor
(Framhald á blaðsíðu 5).
LAUST eftir hádegi á mánudag
inn, 2. maí, brann íbúðarhúsið
í Miðdal í Svartárdal í Lýtings-
staðahreppi til grunna. Þar búa
hjónin Oskar Eiríksson, frá Ak-
ureyri og Sigríður Árnadóttir
frá Þverá í Öngulstaðahreppi,
ásamt tveim börnum sínum.
Miðdalur er nýbýli frá Svartár-
dal og íbúðarhúsið nýlega
byggb einnar hæðar timburhús.
Erfitt var um slökkvistarf,
bæði vegna lítils vatns og illra
vega í nágrenninu, sem torveld-
aði skjóta hjálp. Einhverju af
innbúi var bjargað úr eldinum.
Tjón þessa landnámsfóiks í
Mið dal er mikið og tilfinn-
anlegt, þótt eigi grandað'i eldur-
inn fólki. □
LOFTLEIÐAHÓTELIÐ
VÍGT
HINN 1. maí var hið nýja hótel
Loftleiða í Reykjavík formlega
tekið í notkun. Það stendur á
Reykjavíkurflugvelli, hefur 108
.gestaherbergi, getur hýst 216
manns og liefur margskonar
þægindi, er vönduð gistihús ein
hafa. Stærð hótelsins er 25.500
rúmmetrar. Fastráðið starfsfólk
er um 100 manns. Hótelstjóri er
Þorvaldur Guðmundsson. □