Dagur - 04.05.1966, Blaðsíða 8
8
Stóratorgið og „Stadshótelið“, Dóinkirkjuturninn í baksýn.
VINABÆRINN VESTURAS
SMÁTT OG STÓRT
Yasterás 27. apríl. Sviþjóð er
land málma og skóga. Auðlegð
sína sækir þjóðin í námurnar og
gróður jarðar. Þá hefur hún
byggt upp fjölþættan iðnað, svo
að landsfólkið er of fátt til
starfa í iðnaðarfyrirtækjum og
þarf að flytja inn erlent vinnu-
afl. í sumum iðngreinum hér í
Vasterás vinnur fólk frá 15 þjóð
löndum.
Hér í Vasterás — vinabæ Ak-
ureyrar —-er myndarbragur á
Öllu. Ráðhúsið nýja, Dómkirkj-
an og Bókhlaðan eru miklar
byggingar. Á Ráðhúsinu eru
gólf og útveggir úr marmara, en
hann fæst hér í fjöllunum. Nýir
skólar og barnaheimili eru
byggð og ekkert til sparað.
Vasterás er mikill iðnaðar-
bær. Hér eru mörg stór iðnaðar-
fyrirtæki. Það stærsta þeirra
ASEA, hefur 10 þúsund manns
í þjónustu sinni hér í bænum,
eða fleira fólk en býr á Akur-
eyri.
Vorið hér er mjög kalt. Snjó-
að hefur við og við fram að
þessu. Allir akrar blautir. Að-
eins einn og einn sólskinsdagur
hefur komið ofurlítið hlýrri.
Fóik hér telur þetta harðasta
vetur á þessari öld. Stöðuvötn
eru hér allögð ísi.
Vásterás er sögufrægur stað-
ur. Engelbrekt Engelbrektsson,
frelsishetja Svía, vann fyrst
konungshöllina úr höndum
I HYLLINGUM
Brjóstvörn þá, er samvinnu-
menn hafa víða um land skapað
fólki, vilja margir Sjálfstæðis-
menn eyðileggja og hafa séðst
þess mörg merki undir núver-
andi stjórnarstefnu. í hyllingum
sjá hinir reykvísku bogmenn
fésýslumanna hin mörgu tæki-
færi, ef öflugu starfi samvinnu-
manna ýrði hnekkt, svo sem nú
er að unnið. Þeir telja sig rétt-
boma erfingja liins danska
einokunarvalds, sem fyrir löngu
var brotið á bak aftur, en hefur
þó Jifað í brjóstum þeirra
manna, sem skennnst eru komn
ir í menningarátt í mannlegum
samskiptum.
HIÐ „PÓLITÍSKA
JAFNVÆGI“
Það var angi af þessari gömlu
stefnu, sem vel þróast i Morgun
blaðshöllinni, og var hvíslað í
eyra Gísla Jónssonar á sínum
tíma er liann hóf sína kosninga
baráttu fyrir fjórum árum og
sagði nauðsyn á að „skapa póli-
tískt mótvægi gegn hinu mikla
valdi samvinnusamtakanna“ —
og féll síðan. Sú rödd
er líka að sunnan, og
úr sömu sauðargærunni, sem
reynir að skapa tortryggni inn-
an samvinnufélaganna, gegn
þeim stjórnmálaflokki sem runn
in er af sömu rót og þau og með
þeim hefur staðið í blíðu og
stríðu. Þessar eru raddirnar að
sunnan, sem nú bergmála t. d. í
íslendingi á Akureyri, blaði
Sjálfstæðismanna, og gerir þá
svo ósjálfstæða, sem raun er á.
FYRSTI MAÍ.
Fyrsti maí er nú lögskipaður
frídagur, jafnframt því að vera
alþjóðlegur hátíðisdagur verka-
lýðsins. Hér á landi hafa verka-
lýðsfélögin sett fram þær meg-
inkröfur, sem þau telja rétt-
látar, miðað við, þjóðarhag. En
einkenni okkar tíma er Iengri
vinnutími en annarsstaðar þekk
ist og góðar tekjur vegna þess.
Hins vegar hefur kaupmáttur
hinnar eiginlegu dagvinnu
minnkað, svo af henni geta hin-
ar kauplægri stéttir ekki Iifað.
VILJA FÁ SINN HLUT
Á síðasta ári jókst fiskaflinn um
20%, viðskiptakjör bötnuðu um
10% og þjóðartekjurnar eru
taldar hafa hækkað um 9%.
Með þetta í huga hafa verkálýðs
félögin í landinu krafizt meiri
Iilutdcildar sér til handa en þau
fá af ört vaxandi þjóðartekjum.
Fjölmörg félög hafa nú sagt upp
samningum til að undirstrika
þetta sjónarmið og fylgja fram
kröfum sínum í verki.
VANEFNDIR ANNARS
AÐILANS
Júnísamkomulagið svokallaða
var að því leyti merkilegt, að
þá sömdu verkalýðsfélögin í
heild við ríkisvaldið um kaup
og kjör. 1 þeim samningi lofaði
ríkisstjórnin að stöðva verð-
bólguna. Nú liggja fyrir van-
efndir hennar á því sviði og ný
verkfallsalda ógnar afkomu og
atvinnulífi landsmanna. Engri
ríkisstjórn var sýndur eins mik-
ill trúnaður af verkalýðsfélög-
um. En hún reyndist þeim trún-
aði óverðug.
EFTIRMÆLI „VIÐREISNARINNAR”
Óbragð er að þeirri dúsu
Á FJÓRUM þingum er stjómarliðið búið að svæfa lagafrum-
varp Framsóknarmanna um byggðajafnvægisstofnun og
byggðajafnvægissjóð eða vísa því frá, en samkvæmt þessu
frumvarpi áttu 2% af ríkistekjunum ár hvert að renna í
byggðajafnvægissjóðinn (nú 70—80 millj. kr.). Byggðarlögin
áttu sjálf að eiga hlut að uppbyggingarstarfinu og áætlunar-
gerð og gera átti sérstakar skyndiráðstáfanir vegna lífvæn-
legra byggðarlaga, þar sem eyðing ér ýfirvöfandi.
Stjómarliðið lýsti yfir því við þinglokin fyrir 2—3 árum,
að slík löggjöf væri óþörf með öllu. En eftir að stjórnin ákvað
staðsetningu stóriðjunnar við baöjarvegg Reykjavíkur fór
henni að verða órótt út af þessu móli,
Nú á að friða þá, sem eru á mótá þessu ráðslagi, með því
að bjóða þeim part af hugsanlegum álskatti í jafnvægissjóð.
Óbragð er að þeirri dúsu.
NOREGSFERÐ FRÁ AKUREYRI
FERÐASKRIFSTOFAN Sunna
leigir flugvél frá F. í. og aðra
írá Loftleiðum til Noregsferðar,
beint frá Akureyri 23. maí n. k.
Ferð þessi stendur í sex daga
og kostar 5.600 krónur fyrir
manninn. Gefst farþegum kost-
ur á að aka hina 'fögru leið milli
Álasunds og Lillehammers og
kynnast Noregi austan fjalls og
vestan.
Með flugvélum þessum fara
yfir hundrað unglingar frá
Gagnfræðaskóla Akureyrar, en
hægt er að taka um 40 manns
NYTT BILAUMBOÐ
RÁ.ÐGERT er, að á laugardag-
inn verði opnuð í húsakynnum
Lorelei, Geislagötu 26 Akur-
eyri, byggingavöruverzlun og
bílaumboð. En kexverksmiðjan
er hætt störfum. Það er Jón
Loftsson, sem tekið hefur þetta
húsnæði á leigu fyrir hinn nýja
rekstur. □
í þau sæti, sem ætluð eru félög-
um í Normannslaget og félaginu
fsland — Noregui'. Ferðaskrif-
stofan Sunna veitir að sjálf-
sögðu allar upplýsingar. □
Dana. Síðar brauzt Gústaf Vasa
hér til valda og þjóðin fékk inn-
lendan konung.
Hið nýja stílhreina ráðhús
bæjarins stendur á gömlum
klausturrústum. Af því er kom-
ið merki bæjarins jómfrú María
og rósin, sem er viðkunnanlegt
og yfirlætislaust.
Freistandi væri. að segja
meira frá Vasterás, en til þess
vinnst ekki tími, því að margt
er hér að skoða.
Við hjónin höfum dvalið hér
í Vasterás eina viku og notið
(Framhald á blaðsíðu 5.)
Akureyringar gamlir og kafkaðir?
f bæjarstjórnarkosningunum
1962, varaði fulltrúi Sjólfstæðis-
flokksins bæjarbúa við því að
veita samvinnumönnum of mik-
il völd innan bæjarstjórnar Ak-
ureyrar. Þessu svöruðu Akur-
eyringar með því að fella þann
hinn sama í nefndum kosning-
um, en juku fylgi Framsóknar-
manna mjög verulega. Nú brýzt
hinn nýi ritstjóri Islendings,
æskumaður úr Kópavogi, fram
á ritvöllinn og ætlar að telja
kjósendum Akureyrarbæjar trú
um að Framsóknar- og sam-
vinnumenn hér í bæ séu svo
kalkaðir, að stór hætta sé að
fela þeim nokkur völd innan
bæjarstjórnarinnar. Það mætti
ætla að þessi ungi ritstjóri, hafi
lítið farið um bæinn síðan hann
kom hingað, þess í stað setið
meir i ritstjórastólnum og reynt
þar eftir andlegum efnum og
ástæðum að hnoða saman mis-
(Framhald á blaðsíðu 2.)
ÞINGSLIT VÆNTANLEGA I ÞESSARI VIKU
NÚ MUN almennt vera gert
ráð fyrir því, að þingi verði
slitið fyrir helgi, sennilega á
fimmtudag eða föstudag. Á
mánudags- og þriðjudagskvöld
voru hinar svonefndu stjóm-
málaumræður frá Alþingi í
ríkisútvarpinu. En þær koma
í staðinn fyrir hinn gamla „eld
húsdag“, sem venja var að
halda rétt áður en fjárlaga-
frumvarp var vísað til 2. um-
ræðu ár hvert. Eitt af aðalein-
kennum umræðnanna að
þessu sinni þ. e. fyrra kvöldið,
var það, að ýmsir ræðunienn
stjómarflokkanna viður-
kenndu nú afdráttarlaust, að
ríkisstjórnin réði ekki við dýr
tíðina og hefði ekki gert. —
Mörg mál hafa verið af-
greidd frá þinginu síðustu vik
ur og einkum síðustu daga.
Nokkur mál voru lögð fram
af ríkisstjórninni eftir páska,
með það fyrir augum að þau
yrðu afgreidd, og liefur því að
sjálfsögðu orðið nokkur fljóta
skrift á meðferð sumra þeirra
í þinginu.
Á öðrum stað hér í blaðinu
er sagt frá álmálinu, sem er
það mál, sem einna mesta at-
hygli hefur vakið. Varðandi
mál, sem allmikið hafa verið
umtöluð rnanna í milli, þótt
ópólitísk séu, má geta þess, að
bjórfrumvarpið var fellt í
neðri deild fyrir nokkru og
fór því ekki til efri deildar, en
minkafrumvarpið komst í
gegn um neðri deild en var
fellt í efri deild með tveggja
atkvæða mun. Frumvarp um
hægrihandar akstur var sam-
þykkt í gær (þriðjudaginn).
Það var samþykkt í neðri deild
með allmiklum atkvæðamun
og nú síðast í efri deild við
aðra umræðu með 13 atkvæð-
um gegn 7, og var þá aðeins
þriðja umræða eftir. Búið er
að afgreiða lög um atvinnu-
jöfnunarsjóð, sem á að fá
hluta af álskattinum er stund-
ir líða, verðtryggingu fjár-
skuldbindinga, vélstjóranám,
iðnfræðslu og heimild til að
kaupa afla úr erlendum skip-
um, þegar sérstaklega stend-
ur á.
Mörg merk mál, sem Fram-
sóknarmenn og aðrir stjórnar-
andstæðingar hafa flutt á
þessu þingi, verða, að því er
virðist, svæfð eða vísað frá.
Þeirra á meðal er frumvarp
Framsóknarmanna um sérstak
ar ráðstafanir til að stuðla að
jafnvægi í byggð Iandsins,
jafnvægisstofnun ríkisins, jafn
vægissjóð, sem búið er að
flytja á fjórum þingum.
Þjóðnýt mál munu ganga
fram í einu eða öðru formi,
þótt síðar verði, ef almenn-
ingur veitir þeim nauðsynleg-
an stuðning. □