Dagur - 17.08.1966, Qupperneq 2
2
Kappreiðarnar á Einarsstöðum
Á SUNNUDAGINN fóru fram
kappreiðar og góðhestasýning á
Einarsstöðum í Reykjadal í
hinu fegursta veðri. Til þeirra
efndu hestamannafélögin Þjálfi
í S.-Þing. og Grani á Húsavík.
Alls voru skráð til keppni 45
hross og höfðu verið dæmd dag
inn áður. Dómnefnd skipuðu:
Þorsteinn Jónsson og Guðmund
ur Snorrason Akureyri og
Hólmgeir Sigurgeirsson Völlum
Reykjadal.
Erindi á þessu móti hesta-
manna flutti Karl Kristjánsson
alþingismaður og lúðrasveit frá
Húsavík lék. Mótsstjóri var Sig
úrður Hallmarsson. Á kappreið
unum og góðhestasýningunni
sást enginn maður ölvaður og
þykir í frásögur færandi hjá
hestamönnum. Allt fór mót
þetta hið bezta fram.
Urslit urðu þessi:
andi Helga Björnsdóttir
Húsavík. Einkunn 7,62.
3. Neisti, grár 6 vetra, eigandi
Stefán Björnsson Húsavík.
Einkunn 7,54.
Klárhestar með tölti.
1. Freyfaxi, jarpur 6 vetra, eig-
andi Freyr Bjarnason Húsa-
vík.
2. Geisli, bleikur 9 vetra, eig-
andi Vilhjálmur Pálsson
Húsavík.
3. Goði, bleikur 14 vetra, eig-
andi Friðbjörn Þórðarson
Húsavík.
300 metra stökk.
1. Vængur, 12 vetra, eigandi
Jón H. Ólafsson Kraunastöð
um, 24,0 sek.
2. Neisti, 12 vetra, eigandi Gísli
Ólafsson Brúum, 24,3 sek.
3. Stormur, 7 vetra, eigandi Sig
urður Örn Haraldsson Jaðri,
24,6 sek.
Folahlaup.
1. Fákur, 5 vetra, eigandi
Jakob Kristjánsson Norður-
hlíð, 20,3 sek.
2. Bógatýr, 5 vetra, eigandi Eva
Tómasdóttir Glaumbæ, 20,4
sek.
3. Freyfaxi, 6 vetra, eigandi
Freyr Bjarnason Húsavík,
20,5 sek.
Um sveitarfélög og
framtíð þeirra
Alhliða góðhestar Þjálfa.
1. Gustur, gráskjóttur 8 vetra,
eigandi Jón A. Jónsson Hömr
um. Einkunn 7,97.
2. Þjálfi, brúnn 8 vetra, eigandi
Sigfús Jónsson Einarsstöð-
um. Einkunn 7,91.
3. Hesjuvallarauður, rauður 12
vetra, eigandi Baldvin Sig-
urðsson Yztafelli. Einkunn
j ■ 7,90.
« -rr
Alhliða góðhryssur.
1. Gríður, grá 8 vetra, eigandi
Jónas Stefánsson Stóru-
Laugum. Einkunn 8,15.'
2. Blesa, rauðblesótt 11 vetra,
eigandi Kristinn Jónsson
Einarsstöðum. Einkunn 7,89.
3. Sletta, brún 8 vetra, eigandi
Þóra Sigfúsdóttir Einarsstöð
um. Einkunn 7,47.
Klárhestar með tölti.
1. Neisti, rauður 12 vetra, eig-
andi Gísli Ólafsson Brúum.
f * . * •
2. Blakkur, brúnn 13 vetra, eig
andi Árni Kr. Jakobsson
Rangá.
3. Stjarna, brúnskjótt 8 vetra,
eigandi Jón A. Jónsson
Hömrum.
Alhliða góðhestar Grana.
1. Reykur, brúnn 7 vetra, eig-
andi Rögnvaldur Jóhannes-
son Húsavík. Einkunn 7,94.
2. Mósi, mósóttur 5 vetra, eig-
Tíminn hefur að undanförnu
verið að birta skýrslu þá, sem
formaður liinnar nýskipuðu
Sameiningarnefndar sveitarfé-
laga lagði fyrir nefndina. Kem-
ur þar fram ýmislegur fróðleik-
ur um sveitarfélög, eins og þau
eru nú. Kaupstaðimir eru nú
14 talsins og hrepparnir 213. —
Samkyæma bráðabirgðamann-
talinu-1. -ides. var fjölmenni
hreppanna sem hér segir:
Minna en
100 íbúar 40 hreppar.
fl00 til 200 íbúar 68 hreppar.
. 200 til 300 íbúar 42 hreppar.
300 til 400 íbúar 23 hreppar.
400 til 500 íbúar 13 lireppar.
500 til 600 íbúar 4 hreppar.
600 til 700 íbúar 4 hreppar.
700 til 800 íbúar 3 hreppar.
800 til 1000 íbúar 10 hreppar.
1000 til 2000 íbúar 5 hreppar.
Fjölmennasti hreppurinn er
Selfosshreppur í Árnessýslu —
með rúmlega 2000 íbúa. — Þess
má geta, að 5 kaupstaðir eru
fámennari en Selfosshreppur.
. Samkvæmt gildandi sveitar-
stjórnarlögum, nr. 58 frá 1961,
geta lilutaðeigandi hreppsnefnd
ir ákveðið að sameina lireppa,
og framkvæmir stjórnarráðið
þá sameininguna, ef sýslunefnd
mælir með. En hvergi hefur
slík sameining átt sér stað sam-
kvæmt þessum lögum. Hafi
hreppar færri íbúa en 100 get-
ur stjórnarráðið sameinað þá
öðrum lireppuni, ef sýslunefnd
samþykkir. En ekki hafa sýslu-
nefndir forgöngu um slíka sam-
einingu. Hjá hreppsnefndum
virðist þó ekki áhugi fyrir sam-
einingarmálum hingað til, hvað
sem verða kann. Tveim hrepp-
um eða fleiri er heimilt að ráða
sér sveitarstjóra sameiginlega,
ef þeir hafa fleiri en 500 íbúa
samtals. Sú heimild mun ekki
hafa verið notuð. En nokkur
dæmi eru um það, að hreppar
hafi haft samstarf í fræðslumál
um og sameinast urn byggingu
heimavistarskóla. Hins vegar
hefur þróunin til skamms tíma
fremur verið í þá átt að fjölga
hreppum en fækka þeim. Sveit
ir og sjávarþorþ, sem áður hafa
verið eitt sveitarfélag, hafa víða
verið aðskilin.
Fyrir 2—3 árum mælti meiri
hluti allslierjarnefndar Alþing-
is á móti því, að Alþingi eða
ríkisstjórn hefði afskifti af sam
einingarmálinu. Taldi það eiga
að vera mál hreppanna sjálfra
og sambands sveitarfélaganna
að eiga þar frumkvæði, ef ósk-
að væri, samkvæmt gildandi
lögum. En nú hefur það verið
tekið upp á ný á þann hátt,
sem skýrt liefur verið frá liér í
blaðinu. □
Frá Gollklúbbi Akureyrar
MEISTARAMÓT AKUREYR-
AR í golfi hófst ,um síðustu
helgi. Er keppt í þrem flokkum
72 holur í hverjum. Mótið hófst
með öldungakeppni, en kepp-
endur þar verða að hafa náð
fimmtugsaldri. Eru þar leiknar
18 holur og full forgjöf reiknuð.
Þeirri keppni lauk þannig, að
Hafliði Guðmundsson lék þess-
ar 18 holur á 66 höggum, Jón
Guðmundsson á 68 þöggum og
Jón Sólnes á 73 höggum.
í meistaraflokki voru leiknar
36 holur á laugardag og sunnu-
dag. Að þeim loknum stóðu
leikar svo að Hafliði Guðmunds
son hafði leikið á 157 höggum,
Gunnar Konráðsson á 166 högg
um og Ragnar Steinbergsson á
175 höggum.
í fýrsta flokki var keppnin
mjög jöfn og stóðu leikar þann-
ig, að eftir 36 holur hafði Hörð-
ur Steinbergsson leikið á 176
höggum, Ingólfur Þormóðsson
á 177 höggum og Jóhann Guð-
mundsson á 178 höggum.
í öðrum flokki lék Jón Guð-
mundsson á 183 höggum, Frí-
mann Gunnlaugsson á 186 högg
um og Jón Sólnes á 206 högg-
*um.
Staðan í öllum flokkur er
mjög tvísýn og verður engu um
úrslitin spáð.
Mótið heldur áfram um
næstu helgi ög lýkur á sunnu-
dag. • □
MYNDARLEG BÆNDAHÁTÍD
EYFIRÐINGA
BÆNDADAGUR Eyfirðinga,
sem haldinn var í Árskógi á
Árskógsströnd 7. ágúst, var
mjög fjölsóttur svo að húsrými
var hvergi nóg. En vegna þess,
að veður var svalt, fóru hin
auglýstu skemmtiatriði fram
innanhúss, í samkomu- og
skólahúsinu, nema íþróttirnar.
Allt fór þar fram með myndar-
brag og ánægjulegt, hve þátt-
takendur voru margir, fyrst og
fremst sveitafólkið sjálft, svo
og fjölmargir aðrir.
Eins og fyrr var fi’á sagt, er
það Ungmennasamband Eyja-
fjarðar og Búnaðarsamband
Eyjafjarðar, sem slíka hátíðis-
daga hafa undirbúið síðan 1957.
Formaður BSE, Ármann Dal-
mannsson, stjórnaði samkom-
unni, og að öðru leyti var dag-
skráin óbreytt frá því sem aug-
lýst var. Um kvöldið var fjöl-
mennur dansleikur og sagður í
betri dansleikja röð, þar sem
vín er ekki bannað.
Fyrsti bændadagur Eyfirð-
inga var 1957, eins og áður seg-
ir, og hann var líka haldinn í
Árskógi. Þá fóru ræðuhöldin
fram á grænum velli við ilm-
andi trjágróður þar á staðnum.
Þar flutti Davíð skáld Stefáns-
son frá Fagraskógi eina af sín-
um snjöllu ræðum og menn
urðu allir að eyrum á meðan
hann talaði. Þar flutti líka
Steingrímur Steinþórsson fyrr-
verandi forsætisráðherra ræðu.
Hann flutti sína ræðu á eftir,
og sagðist í upphafi máls síns
þurfa að afsaka sína ræðu, eft-
ir að hafa hlytt á þjóðskáldið.
Þennan dag, 8. ágúst 1957, var
glampandi sól og'bjartar vonir
tengdar landbúnaðinum.
í ræðu sinni sagði þjóðskáld-
ið meðal annars:
„Búskapur á ekkert skylt við
hernað eða happdrætti, eftir-
sókn eftir vindi eða verðlauna
fýsn. Hann er hin hljóðláta cg
virðulega starf, sem veitir vel
fenginn arð, ef allt gengur að
óskum.
Framleiðsla bóndans er ekki
frá neinum tekin. Hún er upp-
skera jarðar og ávöxtur, lífs-
viðurværi heiðarlegra manna,
sem að loknu dagsverki geta
gengið til hvíldar án alls sam-
vizkubits.
Starf bóndans er ræktun og
friðarstarf, andstætt öfgum og
ráðleysi. Það stuðlar að jafn-
vægi þjóðfélagsins og andleg-
um þroska □
MINNINGARSJÓÐUR- Jakobs
Jakobssonar. — Minningar-
spjöld fást í Verzluninni Ás-
byrgi h.f., og Bókaverzlun
Jóhanns Valdimarssonar.
Örnelni í Saurbæjarhreppi
Angantýr Hjörvar Hjálmarsson og Pálmi
Kristjánsson liafa safnað og gefið út
í DEtíI 3. ágúst í sumar birtist
samtal við Jóhannes Óla Sæ-
mundsson kennara. Meðal anru-
ars var einn kaflinn um örnefna
söfnun hans í sýslunni. Er það
að sjálfsögðu mikið verk, og
efast ég ekki um að það muni
vel af hendi leyst. En hann mun
nú hafa lokið því að mestu.
En eina athugasemd vil ég þó
gera við þetta. Það var ekki get
ið um að búið var að safna ör-
nefnum í fremri hluta Eyja-
fjarðar. Það var árið 1953, sem
við byrjuðum að safna þar, við
Angantýr sem stuttu síðar varð
kennari í Sólgarði i Saurbæjar
hreppi og ég fyrrverandi kenn-
ari þar, en þar kenndi ég lengst
af sem aðalkennari um 35 ára
skeið. Við gáfum svo út bók
1957 með örnefnalýsingu af
þessu svæði og var hún Ijós-
prentuð í Reykjavík. En hún
það nákvæm að ég hygg að
ekki þurfi um það að bæta.
Bókin er nú víða til, en þó er
nokkuð enn óselt. Ef að hitt
safnið yrði á einhvern hátt gef-
ið út, þyrftu þeir að eiga þessa
bók líka, sem eignuðust þetta
safn. Því er spáð að bók okkar
fari í hátt verð, er fram líða
stundir. Ég vil bæta því við, að
mér var það kærkomið verk að
eiga þátt í að skrifa lýsingu af
sveitinni minni, þar. sem ég
hafði starfeð lengst sem kenn-
ari með nokkrum árangri að ég
held, óg 'þóttist skilja allvel við
hana með þessu riti, áður en ég
fluttist burtu, að mestu má
segja.
Þó að bókin nái ekki nema
yfir lítið svæði, er hún þó all-
merkileg og sérstæð, því að
með öllum óbyggðum dölum og
fjalllendi er þétta allstórt svæði.
Fram úr aðalsveit Eyjafjarðar
liggja margir óbyggðir dalir
með um 30 nöfnum. Það var
fyrst og fremst mjög aðkall-
andi, að safna örnefnum þar,
því að þar var hætta mest á að
þau gleymdust. Nær byggðinni
eru gamlar rústir af eyðibýlum,
og víða á þessum dölum eru
rústir af seljum og fjárréttum.
Þegar bókin var gefin út, var
þetta meðal annars skrifað:
„Lýsingin er svo nákvæm, að
ókunnugur maður, sem fýsir að
kynnast einhverju vissu svæði
í hreppnum, geturfundið öll ör
nefnin á því svæðl eftir lýsing-
unni. Inn í lesmálið er svo flétt
að fjölmörgum smásögum, sem
hafa geymzt í munnmælum og
snertu eitthvað. örnefnin í sveit
inni. í bókinni er einnig mynd
af hverjum byggðum bæ, ásamt
nokkrum yfirlits- og landslags-
myndum“.
Pálmi Kristjánsson.