Dagur - 17.08.1966, Síða 8
8
Sigurvegararnir í góðaksturskeppni Bindindisfélags ökunianna á Akureyri (f. v.): Rögnvaldur B.
Ólafsson, Gunnar Eðvaldsson og Björn Signiundsson.
(Ljósmynd: Niels Hansson).
GÖÐAKSTURSKEPPNiN Á AKUREYR!
Þátttakendur voru 12 og stóðu þeir sig allir vel
í mörgum greinum keppninnar
BINDINDISFÉLAG ökumanna
á Akureyri efndi til góðaksturs
keppni sl. laugardag, 13. ágúst.
Framkvæmdastjórar B.F.O. og
V.Á.V. (Varúð á vegum), þeir
Ásbjörn Stefánsson og Sigurður
Ágústsson höfðu komið frá
Reykjavík til aðstoðar við und-
búning og framkvæmd. Eftir
langstæða leiðindatíð var veður
hið bezta þennan dag, og bæjar
búar því mjög bundnir við sitt,
nauðsynjaverk eða skemmti-
ferð með fjölskyldunni. Með-
fram þessa vegna varð þátttaka
minni en ella og mun erfiðara
að fá fólk til starfa, en svona
keppni útheimtir marga til að-
stoðar, eða 50—60 manns, ef vel
á að vera. Þegar á hólminn kom
rættist þó sæmilega úr þessu,
þótt seinna yrði byrjað, en ætl-
að var.
Þátttakendur urðu 12 og
stóðu allir sig vel í mörgum
greinum, þótt útaf bæri hjá
sumum í veigamiklum atriðum.
En keppnisraunir voru mjög
margar, bæði varðandi réttan
akstur, þekkingu á vél og öku-
reglum, ásamt leikni við stjórn
bifreiðarinnar. Ekin var ein
hringferð um bæinn, þar sem
verðir voru staðsettir á mörg-
um stöðum til að fylgjast með,
hvernig snúist var við verkefn-
um í hverjum stað og þau af
hendi leyst, svo og að svara
spurningum.
Einkunnagjöfin í svona
keppni er þess eðlis, að bezt er
að fá sem lægsta tölu; gefin er
talan 1—30, eftir því, hve verk-
efnið er laklega af hendi leyst.
T. d. ef svar vantaði við einni
spurningu af fjórum, var gefin
einkunn 2, en ef öllum var rétt
svarað gafst 0 (núll). Fyrir það
að sinna ekki stöðvunarskyldu
íyllilega kom 25 í einkunnar-
dálkinn og fyrir það að bakka
á pokann (sem eins vel gat ver-
KIRKJURAN
I KRÍSUVÍK
Á MÁNUDAGINN gerðu ferða
menn lögreglunni aðvart um,
að hurðin í gamalli kirkju í
Krísuvík hefði verið sprengd
upp. Við athugun koni í ljós,
að þar hafði kirkjurán verið
framið. Horfið höfðu 2 kirkju-
klukkur, Ijósastjakar af altari,
Ijósakróna og e. t. v. fl. Málið
er í frumrannsókn.
Munir þeir, sem hér um ræð-
ir, eru úr kopar, og getur það
e. t. v. gefið bendingar. En lög-
reglan telur verknaðinn geta
verið allt að 20 daga gamlan. □
ið smábam) var einkunn 30, en
þessar háu tölur hlutu, því mið
ur, einn og einn. Þá fengu marg
ir mínus vegna ónákvæmni í
beygjum og stefnumerkjagjöf.
Leikniprufur (sumar) voru öðr
um þræði til gamans, gengu mis
jafnlega, en höfðu minni áhrif
á einkunn og úrslit.
Keppni.-nf þessu tagi mun
áreiðanlega vekja athygli og
áhuga bæði keppenda og þeirra
er á horfa,' til þess að temja sér
meiri gætni og nákvæmni með
bílinn sinn í umferðinni.
Um kvöldið söfnuðust kepp-
endur, framkvæmdastjórn
keppninnar, ásamt fulltrúum
frá lögreglu og bifreiðaeftirliti
að kaffiborðum í Café Scandia.
Voru þar ræður fluttar og
margt rabbað. Sigurður Ágústs
son gerði grein fyrir keppninni
og lýsti úrslitum. Ásbjörn Stef-
ánsson afhenti fögur verðlaun,
áletraða silfurbikara, þeim
þrem, sem beztum árangri
(lægstri einkunnatölu) náðu..
1. Rögnvaldur B. Ólafsson,
Brekkugötu 45 (eink. 56).
2. Gunnar Eðvaldsson, Greni-
völlum 20 (eink. 63).
3. Björn Sigmundsson, Löngu-
mýri 20 (eink. 68).
Þeii' næstu í röðinni voru
mjög nálægt þessum, en þeir
slökustu náðu talsvert upp á 2.
hundraðið.
Bindindisfélag ökumanna á
Akureyri vill að lokum þakka
öllum þeim mörgu, ekki sízt
ungum skátum og tveimur
frúm, sem góðfúslega hjálpuðu
til við mót þetta. Innan skamms
verða þeir og þær meðal kepp-
enda í góðakstri.
(Fr éttatilky nning )
EININGU BERAST GJAFIR
Verkamaðurinn segir frá því,
að Elísabet Eiríksdóttir fyrrum
formaður Verkakvennafélags-
ins Einingar á Akureyri og
Gunnlaugur Björnsson í Hrauk
bæ hafi gefið Verkalýðsfélag-
inu Einingu húseignina Þing-
vallastræti 14, Akureyri, ásamt
bókasafni Elísabetar. Ennfrem-
ur segir blaðið, að Stefán E.
Sigurðsson fyrrum bókari fé-
lagsins hafi gefið sama aðila
bókasafn sitt.
Gjafir þessar eru hinar mik-
ilvægustu, enda rausnarlegar.
Geta þær væntanlega orðið til
þess að styrkja nýja þætti í
starfsemi Verkalýðsfélagsins
Einingar, og er vonandi, að
gjafir þessar verði félaginu til
þeirra heilla, sem vonir gef-
enda framast standa til.
GÓÐUR GESTUR Á FERÐ
Ilingað til landsins kom nýlega
utanríkisráðherra ísraels, með
föruneyti, í opinbera heimsókn.
Hann heitir Abba Eban. Átti
hann langar viðræður við ráð-
herra landsins og aðra ráða-
menn, bæði um aukin viðskifti
landanna og um menningarleg
samskifti, sem þegar eru nokk-
ur og góð.
SÝSLUFÉLÖG DEILA
f gær átti að gera áreið eina
hér ncrðanlands. Þrír dómarar
og lögfræðingar Skagfirðinga
og Eyfirðinga ætluðu að
leggja upp frá Akureyri og til
sýslumarka, sem um er deilt
og afréttarlönd þessara sýslna.
Landsvæði það, sem á milli ber
er 2—300 ferkílómetra afrétt.
Fyrst mun ferðast á bifreiðum,
síðan á hestum eða fótgangandi.
AUKNIR FLUTNINGAR HJÁ
FLUGFÉLAGI ÍSLANDS
f fréttablaði starfsfólks Flugfé-
lags fslands segir m. a.:
f fyrra jukust flutningar með
flugvélum Flugfélagsins veru-
lega miðað við árið á undan, og
starfsmönnum og öðrum að-
standendum fél. til ánægju
kemur það sama á daginn í ár.
Fyrstu sex mánuði yfirstand-
andi árs voru farþegar í milli-
landaflugvélum félagsins 17.462
en voru 15.168 á sama tímabili
í fyrra. Aukning er 15.%. í inn-
anlandsfluginu eru tölurnar
jafnvel ennþá glæsilegri. Nú
voru fluttir 44.045 farþegar á
móti 34.862 farþegum á sama
tíma í fyrra og er aukning
26.3%. Samtals hafa því verið
fluttir fyrri helming þessa árs
61.507 farþegar en á sama tíma
í fyrra 50.030. Aukning 22.9%,
STRANDFERÐIRNAR
Stjórnarvöldin þrengja enn hag
landsbyggðarfólks með skerð-
ingu strandferðanna. Almenn
óánægjualda mun rísa gegn
þessu gerræði. Hér verða þessi
mál rædd síðar. □
Keppendur í góðakstri hafa raðað bifreiðum sínum við verkstæði Gríms Valdimarssonar á Oddeyri. (Ljósmynd: Niels Hansson).
EESr^. a
Kísilsamningarnir undirritaðir
SL. LAUGARDAG voru undir
ritaðir samningai' um sölu og
rekstur í sambandi við kísilgúr
vinnsluna í Mývatnssveit. í til-
efni samninganna sendi Iðnaðar
málaráðuneytið frá sér eftir-
farandi fréttatilkynningu í gær:
„Undanfarna mánuði hafa
staðið yfir milli fulltrúa ríkis-
stjórnarinnar og bandaríska
fyrirtækisins Johns-Manville
Corporation viðræður um bygg
ingu og rekstur kísilgúrverk-
smiðju við Mývatn.
í samninganefnd ríkisstjórn-
arinnar eiga sæti Magnús Jóns-
son fjármálaráðherra, formað-
ur, dr. Jóhannes Nordal, seðla-
bankastjóri, Karl Kristjánsson,
alþingismaður og Pétur Péturs-
son, forstjóri.
Samningum lauk með sam-
komulagi milli aðila í sl. viku.
Samningarnir eru efnislaga í
samræmi við það sem gert var
ráð fyrir er lög nr. 60, 13. maí
1966 um breytingu á lögum nr.
22, 21. maí 1964 um kísilgúr-
verksmiðju við Mývatn, voru
til meðferðar á Alþingi.
Voru samningar undirritaðir
sl. laugardag 13. þ. m. Er þar
fyrst og fremst um að ræða aðal
samning milli ríkisstjórnarinn-
ar og Johns-Manville Corpora-
tion, og hefur sá samningur að
geyma efnisákvæði um öll meg
inatriði málsins. Jóhann Haf-
stein iðnaðarmálaráðherra und
irritaði aðalsamninginn af hálfu
ríkisstjórnai'innar en Roger
Hacney, framkvæmdastjóri, af
hálfu Johns-Manville Corpora-
tion.
Samkvæmt samningunum var
undirbúningsfélag það er stofn
að var 1964, Kísiliðjan h.f. lagt
niður sl. laugardag, þar sem
hlutverki þess var lokið, og nýtt
félag stofnað til að byggja og
reka verksmiðjuna. Hið nýja fé
lag heitir einnig Kísiliðjan h.f.,
og er lögheimili þess í Skútu-
staðahreppi við Mývatn. Hluta-
fé er 78 milljónir króna, og á
ríkissjóður 51% þess, Johns-
Manville Corporation 39% en
10% verða boðin til kaups sveit
arfélögum á Norðurlandi.
Stjórn hins nýja félags skipa
af rikissjóðs hálfu Magnús Jóns
son, fjármálaráðherra stjórnar-
formaður, Karl Kristjánsson, al
þingismaður og Pétur Péturs-
son forstjóri. Gildir þessi skip-
an til bráðabirgða, þar til Al-
þingi hefur kjörið þrjá stjórnar
menn. Af hálfu Johns-Manville
eiga sæti í stjórninni Roger
Hackney framkvæmdastjóri og
W. E. Lehmann framkvæmda-
stjóri.
Þá var einnig sama dag stofn
að annað hlutafélag Johns-
Manville h.f., sem hefur lög-
(Framhald á blaðsíðu 5).
NÝR VÍGSLUBISKUP
SÉRA Sigurður Pálsson á Sel-
fossi hefur verið kosinn vígslu-
biskup til Skálhortsdæmis og
verður vígður um næstu mán-
aðamót. □
SMÁTT OG STÓRT