Dagur - 21.06.1967, Qupperneq 1
HOTEL Herbergis-
pantanir.
F«r8a-
skriistoían
Túngötu 1.
Akuroyrl.
Sími 11475
L. árgangur — Akureyri, miðvikudaginn 21. júní 1987 — 50. tölub.
Ferðaskrifsfofan lETSm
Skipuleggjum
ódýrustu
ferðirnar
tíl
annarra
landa.
ÁITi FJÓRA KÁLFA Á EINU ÁRI
Stórutungu 12. júní. Vatnavext
ir eru miklir og er Skjálfanda-
fljót með því mesta sem það
hefur orðið. Lækur flæðir yfir
veginn sunnan við Skjálfanda-
fljótsbrú að vestan, en hefur
ekki skemmt neitt ennþá.
Sauðgróður er að verða sæmi
legur. Ottast er um kalskemmd
ir í túnum.
Það bar til tíðinda í Víðikeri
að kýr átti tvo kálfa núna í vor
og átti tvo kálfa í fyrra og var
ekki ár milli burða.
Vegir hafa verið vondir fram-
antil í dalnum en nú er von um
að þetta lagist og er unnið að
viðgerðum síðustu daga. Þ. J.
Verkfal! enn bannað með lögum
Á FÖSTUDAGINN voru enn
gefin út bráðabirgðarlög sem
banna verkfall. Að þessu sinni
beindist þau að verkfalli yfir-
manna á kaupskipaflotanum er
hófu vinnustöðvun 25. maí.
Bráðabirgðarlögin kveða á
NÝR BÆJARFÓGETI
EMBÆTTI bæjarfógeta á Akur
eyri og sýslumanns í Eyjafjarð-
arsýslu var auglýst til umsókn-
ar og um það sóttu Sigurður M.
Helgason bæjarfógetafulltrúi á
Akureyri og Ófeigur Eiríksson
bæjarfógeti í Neskaupstað. Um
sóknarfrestur rann út 16. þ. m.
Óstaðfestar fregnir herma, að
Ófeigur muni hljóta embættið.
um það, að deilan fari í gerðar-
dóm er hæstiréttur tilnefnir
menn í. Núverandi samningar
skulu gilda þar til gerðardóm-
ur fellur eða samningar hafa
tekizt og vinna hefjist tafar-
laust. Þeir sem í verkfallinu
voru, voru stýrimenn, vélstjór-
ar og loftskeytamenn. Mikill
hluti kaupskipaflotans hafði
stöðvast, en lét strax úr höfn.
Með þessum bráðabirgðarlög-
um hefur enn verið vegið í sama
knérunn og vinnudeildur bann
aðar með valdboði ríkisstjórnar
innar. Ber að harma, að lausn
slíkar deilna hefur ekki náðzt
eftir venjulegum leiðum og virð
ist ríkisstjórninni mjög mislagð
ar hendur í þessum efnum sem
fleiri. □
e> .r.
1
I
I
|
|
1
r,c
-<•
d>
I
í
|
s
I
±
©
Til stuðningsmanna B-listans
í Norðurlandskjördæmi eystra
ALÚÐARÞAKKIR viljum við, frambjóðendur B-listans í
Norðurlandskjördæmi eystra, tjá öllum þeim, sein í alþingis-
kosningunum 11. þ. m. og í undirbúningi þeirra lögðu Fram-
sóknarflokknuni lið liér í kjördæmi.
Við þökkum áhuga þeirra, sem sóttu framboðsfundi —
víða við erfiðar aðstæður — svo og öllum þeim, sem með
gestrisni á heimiluni sínum og á annan hátt greiddu götu
okkar á ferðalögum vegna kosninganna.
Sér í lagi minnumst við með þakklæti hinna mörgu sjálf-
boðaliða á kosningaskrifstofum, einstökum byggðarlögum
eða kjördeiidum, sem inntu af hendi ómetanlegt starf í þágu
sameiginlegs málstaðar.
Frambjóðendur Framsóknarflokksins
í Norðurlandskjördæmi eystra.
NÝSTÚDEMAK FRÁ M.A. 104
Hafin bygging raunvísindadeildar í sumar
HINN 17. júní útskrifuðust frá
Menntaskólanum á Akureyri
104 stúdentar, 44 úr stærðfræði
deild, sá 45. á ólokið prófi vegna
veikinda, og 59 úr máladeild.
Skólaslitin fóru fram í Akur-
eyrarkirkju að viðstöddu miklu
fjölmenni og þar flutti settur
skólameistari, Steindór . Stein-
dórsson, skólaslitaræðuna og
afhenti nýstúdentum skírteini
sín og verðlaun, þeim sem verð
laun hlutu. Fulltrúi 25 ára
stúdenta, séra Bjarni Sigurðs-
son prestur á Mosfelli, tók til
máls, einnig fuHtrúi 10 ára
stúdenta, séra Heimir Steins-
son, Seyðisfirði. Þeir færðu
skólanum gjafir og fluttu hon-
um árnaðaróskir. Skólameistari
gat þess að 40 ár væru liðin síð-
an fyrstu stúdentarnir, sem
numið hefðu til stúdensprófs
hér hefðu lokið prófi, en þeir
tóku prófið fyrir sunnan. Þeirra
á meðal var Þórarinn BjÖrns-
son skólameistari, Brynjólfur
Sveinsson yfirkennari, Jóhann
Skaptason sýslumaður, Jón Guð
mundsson forstjóri og Eyjólfur
heitinn Eyjólfsson kaupfélags-
stjóri. Aðeins þessi eini árgang
ur þurfti að taka prófin fyrir
sunnan, síðan hafa þau verið
tekin hér á Akureyri.
Hæstu einkunn á stúdents-
prófi hlaut Guðmundur Péturs
son, Akureyri, stærðfræðideild,
og Margrét Skúladóttir var hlut
skörpust í máladeild. Hæstu
einkunn í miUibekkjarprófi
hlaut Alda Möller, Siglufirði.
í sumar hefst bygging nýs
húss við skólann. Búið er að
bjóða út bygginguna, og á hún
að standa vestan við íþróttahús
Menntaskólans. Þessi bygging á
að vera fyrir kennslu í stærð-
fræði, eðlisfræði og háttúru-
fræði og í kjallara hússins verð
ur rúmgóður samkomusalur,
enda er mál til komið að létta
samkomuhaldi af gamla „Sal“,
(Framhald á blaðsíðu 2)
ÍKSkSxSx$KSkS>SkS>Sk$xSk$K$K»^^
IÍBA-AKRANES
á Akureyri 27. júní
ÞRIÐJUDAGINN 27. júní,
kl. 19.30 (7.30), leika Akur-
eyringar sinn 5. leik í íslands
mótinu og mæta Akurnesing
um ó íþróttavellinum á Akur
eyri, en Akumesingar em
nú neðstir í I. deild, hafa
ekkert stig hlotið að loknum
4 leikjum. Ef að vanda lætur
fjölmenna knattspyrnuunn-
endur á völlinn, og hvetja
vonandi lið sitt betur, en í
leiknum við Fram. Q
<®K$>3xSX$x$k$^k£<$kS>^@>^$*^X$x3xSxSX$^
Stúdentar frá
Menntaskólanum
á Akureyri 1967
voru 104 talsins.
Myndina tók
Eðvarð Sigurgeirs
son í Lystigarði
Akureyrar.