Dagur - 30.08.1967, Blaðsíða 8
s
SMÁTT OG STÓRT
S • V'*';- _• ' 'i
SEXTÁN ARNARUNGAR
Fróðir inenn telja, að í sumar
hafi 16 arnarungar koinizt á
legg og orðið fleygir, afkom-
endur 12 arnarhjóna. Fullorðn-
ir ernir eru taldir vera 38 á
landinu og 6 ungir ernir, auk
amarunganna 16 frá þessu
sumri. Svo sem tölur þessar
bera með sér, má ekkert út af
bera ef þessi litli stofn á að
halda velli.
Fallegt seglskip liér á Polliimm
Á MÁNUDAGINN virtu marg-
ir fyrir sér seglskútu í Akur-
eyrarhöfn og síðan á Poll-
inum. Þar var komin hin 40 feta
langa Delight undir stjórn hjón
anna Patriea og Wright Britton.
Hann er prófessor í enskri
tungu og eiga þau heima í New
York og komu á þessum far-
kosti vestan um haf og var Ný-
fundnaland síðasti áfangastað-
urinn áður en þau komu til ís-
lands. Hér ætla þau hjón að
dvelja um skeið, taka myndir
og safna efni fyrir tímaritið
National Geographieal Maga-
zine, sem út er gefið í sex millj
ón eintökum. Héðan er ætlunin
að sigla til Englands. Vonandi
gengur ferðalag og efnissöfnun
greiðlega. Falleg er litla skútan,
en naumast sýnist hún hæf til
ferðalaga um Atlantshaf í stór-
viðrum. □
VAR KIRKJAN VAN-
HELGUÐ?
Brúðkaup „Bahai“-fólks var
fyrir skönnnu gert í Árbæjar-
kirkju í Reykjavík og var á
eftir uppi fótur og fit. Bisku-p
landsms lýsti því yfir að hér
væri um mistök að ræöa. Hins
vegar árnaði hann bruðhjónun-
um heilla og taldi ekki þörf á
að endurvíga kirkjuna vegna
þessa atburðar. En Bahai-trú-
flokkurinn játar ekki kristna
trú.
RÚSSNESK ÞOTA
Það bar við 23. ágúst að rúss-
nesk farþegaþota nauðlenti á
Keflavíkurflugvelli. Hafði hún
hreppt mótvind á leið sinni frá
Havana til Moskvu og varð að
Afhjúpun minnisvarða á Langanesi
Gunnarsstöðum 28. ágúst. Hinn norska sjómenn er týndust þar
19. þessa mánaðar var afhjúp-
aður í Sauðaneskirkjugarði á
Langanesi minnisvarði um 17
Félagsheimili víg) á Raufarhöfn
Raufarhöfn 28. ágúst. Á föstu-
daginn í síðustu viku var vígt
nýtt félagsheimili á Raufarhöfn.
Það hlaut nafnið Hhitbjörg.
Raufailhafnarhreppur, Kvenfé-
lag Raufanhafnar og Slysavarna
deild kvenna á Raufarhöfn eiga
félagsheimilið. Ákvörðun um
byggingu var tekin 1958 en 3.
september 1962 var fyrsta
skóflustungan tekin. Sá hluti
byggingarinnar sem nú var
vígður er 585 fermetrar að flat-
armáli, Teikningar gerði Jósep
Reynis arkitekt og Geir Ágústs
son var byggingarmeistari.
Séra Marinó Kristinsson
Sauðanesi vígði stofnunina og
gaf henni nafn, Kirkjukór Rauf
arhafnar söng, ljóð voru lesin
og ræður fluttar.
í félagsheimilinu er stór sam-
komusalur, leiksvið, búnings-
herbergi, kaffistofa og snyrti-
heibergi. í þeim hluta bygg-
ingarinnar sem ekki er enn ris
inn verður veitingasalur og
fundarherbergi þeirra félaga,
sem að byggingunni standa.
Síldarverksmiðjan hefur nú
tekið 'á rhóti 26 þús. tonnum
síldar. Á sama tíma í fyrra
hafði veiksmiðjan . fengið 42
(Framhald á blaðsíðu 5).
með skipi sínu fyrir 60 órum.
Nokkrir Norðmenn komu til að
vera við afhjúpun minnisvarð-
ans og voru þeir frá Tromsö, en
þaðan var skipið og áhöfn þess.
Norskum fánum og blómsveig-
um hafði verið komið fyrir við
altari kirkjunnar, séra Marinó
Kristinsson prófastur flutti bæn
og kirkjukórinn söng. Úti við
minnisvarðann flutti Jchan
Hager formaður í heimskauta-
félagi í Tromsö ræðu, rakti að-
draganda slysins og minntist
sjómannanna. Skipið hét Frid-
tjof. Norsk stúlka, Inger Stener
sen gekk nú fram klædd þjóð-
búningi og afhjúpaði minnis-
varðann, er sveipaður hafði ver
ið norska fánanum. En afar
hennar báðir fórust með skip-
inu. Þá flutti Árni G. Eylands
ræðu, en hann var hvatamaður
að uppsetningu minnismerkis-
ins og sá um það verk. Aðal-
björn Arngrímsson flutti frum-
samið kvæði og prófasturinn
flutti að siðustu blessunarorð.
Minnisvarðinn er úr granit frá
Tromsö. Á hann eru skráð nöfn
þeirra 17 sjómanna er fórust
með skipi sínu við Langanes
fyrir 60 árum.
Veðrátta hefur nú verið sér-
staklega hagstæð um skeið og
heyskap á túnum er að ljúka.
Margir reyna að bæta sér upp
lélegan töðufeng með því að
heyja á óræktuðu landi. En
óáborið land er mjög lítið sprott
(Framhald á blaðsíðu 5).
AÐALFUNDUR Stéttarsam-
bands bænda verður haldinn á
Hótel Sögu í Reykjavík um
næstu helgi. Þar mæta fulltrú-
ar bænda frá öllum byggðum
landsins.
Verður þar að sjálfsögðu fjall
að um verðlagsmálin og önnur
hagsmunamál bændastéttarinn
ar. Veiðlagsnefnd hefur aðeins
haldið einn fund um búvöru-
verðið en frestað frekari störf-
um fram yfir aðalfundinn. For-
maður Stéttarsambands bænda
er Gunnar Guðbjartsson. □
Nýju Iðju-húsin risu við Ileykjahlíð í sumar, byggð fyrir Kísiliðjuna. Er síðar var grafið með
hjólp loftpressu fyrir skólpleiðslu, kom í ljós hellir inikill þar undir og standa fleiri en eitl á
liellisþakinu. Til vinstri eru eldri hús. (Ljósm.: E. D.)
Stéttarsambandsfundur
fá hér eldsneyti. Þessi vél er
180 tonn fullhlaðin og því hið
mesta ferlíki. Rússneskar flug-
vélar hafa ekki lendingarleyfi á
fslandi, og enginn gagnkvæmur
loftferðasamingur er til milli
landanna. Þarf því ráðuneytis-
leyfi til slíkra lendinga hverju
sinni.
„SAUÐAÞJÓFNAÐUR
VORRA TÍMA“
Framkvæmdarstjóri laxaeldis-
ins í Lárósi á Snæfellsnesi
ságði, áð um eina helgi hefðu
140 laxar gengið, upp í gildrur
stöðvarinnar í ósnum og þar af
19 með netaförum. Hér er um
að ræða stofnfisk, sem öflun
hrogna til klaksins byggist á.
Netaförin vitna um óleyfilega
laxveiði í sjó, og líkir fram-
kvæmdastjórinn þessari ólög-
legu netaveiði við sauðaþjófnað
fyrri tima.
DANIR SIGRUÐU MEÐ 14:2
Það er víst óhætt að telja för
íslenzkra knattspyrnumanna til
Danmerkur í síðustu viku eina
hina liraklegustu, sem um get-
ur. Þeir háðu landsleik við
Dani. Danir sigruðu með 14:2.
Hnefaliögg, svartamyrkur,
smán o. fl. lýsingarorð hafa ver
ið notuð um þennan kappleik.
„Liðið var eins og stjórnlaust
rekald“ á Idretsparken og var
leikið sundur og saman af Dön-
um en 20 þúsundir áhorfenda
æptu af fögnuði segir áhorf-
andi. Það er að vísu sorglegt að
íslenzkir íþróttamenn séu eins
og viðundur veraldar á fjöl-
mennum, erlendum Ieikvangi,
en um leið er lineysan e. t. v.
íþróttafólki að einliverju leyti
holl. Vonandi opnar þessi
dæmalausi íþróttaósigur augu
margra fyrir því, að ekki má
lóta happa- og glappastefnu
ráða í íþróttamálum.
ÞAÐ REYNDIST RÉTT
Fyrir mörgum árum var það
haft eftir Ilalldóri Laxness, að
hann greiddi Dag einan hlaða.
Hann var nýlega að þessu
spurður og kvað hann þetta
rétt vera. En sig vantaði þó
ekki beinlínis lesefni því að
liann fengi að staðaldri yfir 70
blöð og tímarit innlend og út-
lend.
VONDA BJALLAN
Margar hjöllutegundir eru til
hér á landi og eru meinlausar.
En Coloradobjallan, sem flutt
var hingað til lands með pólsk-
um kartöflum ó dögunuin er
ekki meinlaus. Talið er, að síð-
an 1940 hafi hún í Bandaríkjun
um valdið 40 millj. dollara tjóni
á ári hverju á kartöflum. En
vonandi liefur þessi vonda
bjöllutegund endað ævitia í liaf
inu með þeim 200 tonnuin af
kartöflum, sem liún fannst í.
Þörf er á því, að vera vel á
verði gagnvart innflutningi
snýkjudýra, ekki síður en sjúk
dóma, ekki sízt vegna aukinna
ferða og flutninga.