Dagur - 06.09.1967, Page 2
2
Táknræn mynd úr leik ÍBA og KR. Sex KR-ingar innan vítateigs.
Akurnesingar fallnir í 2. deild
Heppni og varnarleikur KR einkenndi leik
Akureyringa og KR síðastliðinn sunnudag
J»AÐ var norðan gola á íþrótta-
vellinum sl. sunnudag er leikur
ÍBA og KR íór fram, að við-
stöddum um 3000 áhorfendiun,
sem greiddu um 100 þús. kr. í
aðgangseyri. — Akureyringar
unnu hlutkestið og léku undan
golunni fyrri hálfleik. Um leik
þennan má segja í stuttu máli,
að KR-lieppni og varnarspil,
þar sem 9 KR-ingar lágu allan
tíman í vörn, nema fyrstu 10
mínútur leiksins, færði KR ann
að stigið, en aldrei var vafi á
því hvort liðið var betra. Leik-
ur þessi var ekki skemmtilegur
fyrir áhorfendur, enda eru leik
ir það aldrei,' þar sem annað
liðið leggur alla áherzlu á vörn,
og knettinum er spyrnt af aug-
um eins langt og hægt er. —
Það her öllum saman um það,
er sáu leikinn, að ekki liefði
verið ósanngjarnt að Akureyr-
ingar hefðu unnið með 2ja
marka mun.
Úrslit þessa leiks þýða það
fyrir Akureyringa, að mögu-
leikar þeirra til sigurs í íslands
mótinu minnka mjög, þó ekki
sé ástæða enn til að afskrifa
alveg þann möguleika, að Fram
og Valur tapi stigi eða stigum í
sínum leikjum, sem fram fara á
laugardag og sunnudag. Fram
hefur nú sennilega mesta
möguleika, þar sem þeir mæta
Akurnesingum, sem nú eru
fallnir í 2. deild, en þó gætu
Akumesingar skilið við deild-
ina á eftirminnilegan hátt, því
margt getur skeð í knattspyrnu.
Dómari í leik þessum var
KA og ÞÓR leika á
fimmtudaginn
NÆSTKOMANDI fimmtudag
fer-fram júlímót í knattspyrnu
(m.fl.) á- íþróttavellinum og
hefst leikurinn kl. 6.30 e h.
Marga mun fýsa að sjá Akur-
eyrarliðin leika. Þau hafa að-
eins leikið einu sinni áður í
sumar og þá vann Þór. .
Steinn Guðmundsson Reykja-
vík og dæmdi hann allvel
í heild, en var fremur aðgerðar
lítill, sem er ekki gott þegar
notaður er varnarleikur, eins
og KR notaði, enda voru nokkr
ar stympingar milli leikmanna,
og oft þvaga við mark KR.
Eitt er það, sem sjálfsagt er
að vekja athygli á, en það er
niðurröðunin í íslandsmótið.
Því léku ekki Fram og Akra-
nes um síðustu helgi? Var
kannski verið að bíða eftir
úrslitum úr leik ÍBA og KR?
Það hefði óneitanlega verið
sanngjarnast að þessir síðustu
leikir mótsins héfðu allir farið
fram' í einu. Búast h'efði mátt
við að Akurnesingar hefðu bar
izt af meiri hörku ef þeir hefðu
ekki vitað um úrslit leiks KR
og ÍBA, en leikið yið Fram á
sama tíma. Niðurröðun leikja
í Islandsmótinu þarf að taka til
athugunar. Það eiga öll liðin að
leika um sömu helgi eða í sömu
viku, og hafa lokið jafnmörg-
um leikjum, en ekki hafa þetta-
eins og tíðkazt hefur, að sum
liðin eiga ólokið 1—2 leikjum
þegar önnur hafa lokið sínum.
Það hefur verið algengast
undanfarin ár að Akurevringar
hafa leikið fyrstu leikina í ís-
landsmótinu og lokið sínum
leikjum fyrst. Þetta verður að
breytast, þetta getur ráðið tals-
verðu um úrslit mótsins. Er
ekki ástæða til að taka þetta
mál til umræðu á ársþingi KSÍ?
Fyrri háifleikur
Á fyrstu mínútum leiksins
skiptust liðin á upphlaupum. Á
4. mín. komst Skúli inn fyrir og
skaut, en skot hans lenti í fót-
um markvarðar KR, þar voru
KR-ingar heppnir. Á 7. mín. er
hætta við mark ÍBA. Á 9. mín.
á Kári skot á mark, en rétt
framhjá. Á 28. mín. brunar Kári
upp, en Ellert fylgir honum fast
eftir og rennir sér að lokum fyr
ir hann og Kári fellur og knött-
urinn fer út fyrir endamörk, og
dæmd markspyma. Á 35. min.
er mark ÍBA í hættu, en Pétur
bjarga-r. Á 40. mín. er horn-
Ekki hef ég séð KR-inga
nota slíka leikaðferð fyrr, sem
þeir notuðu hér sl. sunnudag,
en kannski hafa þeir verið að
æfa sig fyrir leikinn við Aber-
deen, sem fram fer ytra í þess-
ari viku, og sennilega hefði
þessi leikaðferð hentað vel fyrir
íslenzka landsliðið er það lék
við Dani.
ÍBA-liðið sýndi með köflum
góða knattspyrnu, en tókst ekki
að skora að þessu sinni, átti líka
erfitt um vik, þar sem 9 af leik-
mönnum KR voru til varnar
innan vítateigs, en óheppni má
það kalla, að liðinu skyldi ekki
takast að skora og þar með
tryggja sér bæði stigin, en ekki
finnst mér nú ástæða til að
vera mjög óánægður með þessi
úrslit. Það er staðreynd, að í
7 síðustu leikjum sínum í ís-
landsmótinu 1967, hafa Akur-
eyringar fengið 13 stig, unnið
6 leiki og gert 1 jafntefli. Það
eru fyrstu leikimir, sem alltaf
tapast, og í þetta sinn allir með
2 mörkum gegn 1. 2 stig úr
þremur fyrstu leikjunum hefði
þýtt það, að íslandsbikarinn
væri, nú í góðum höndum hér
nyrðra, en um það þýðir ekki
að fást nú. Sv. O.
UNGLINGAKEPPNI I FRJALSUM IÞRÓTTUM
(Ljósm.: H. T.)
spyrna á KR, en ekkert varð úr
henni. Þannig lauk fyrri hálf-
leik.
Síðari hálfleikur.
Margir bjuggust við, að KR-
ingar myndu nú snúa vörn í
sókn undan vindinum, en svo
varð ekki. ÍBA-liðið sótti lát-
laust allan síðari hálfleikinn, en
9 KR-ingar voru til varnar og_
tókst þeim að halda markinu
hreinu. Á 4. mín. er hætta við
mark KR, Kári skaut en KR-
ingar vörðu. Á 13. mín. komst
Kári inn fyrir, lék á markvörð,
sem kom út á móti, en var að-
eins of seinn að skjóta og KR-
ingar spyrntu frá. Á 24. mín. er
enn hætta við mark KR. Á 27.
mín. er svo skalli að marki ÍBA,
en yfir, Á síðustu mín.,leiksins
kemur svo knötturinn óvænt
fyrir fætur Kára og Skúla, en
ekki tckst að spyrna. — Þannig
endaði leikurinn, ekkert mark
skorað, og eru það sjaldgæf
úrslit hér á íþróttavellinum.
Akureyringar eru nú efstir í
mótinu með 13 stig, en menn
bíða spenntir eftir úrslitum
leikja Fram og Vals um næstu
helgi.
NÝLEGA fór fram keppni ung-
linga í frjálsum íþróttum að
Laugum í Suður-Þingeyjar-
sýslu á vegum HSÞ. Þátttak-
endur voru drengir og stúlkur
á aldrinum 10—15 ára.
Þetta er í 11. skiptið, sem
slík keppni fer fram á vegum
ungmennafélaga í Suður-Þing-
eyjarsýslu.
Þessi unglingakeppni er nauð
synleg til þess að hlynna að
íþróttaáhuga æskunnar, koma
til móts við hana og gefa henni
kost á því að keppa á mótum.
Þeir Þingeyingar, sem nú ber
hæst í frjálsum íþróttum, hafa
allir verið þátttakendur í ung-
lingakeppninni og fengið þar
sína fyrstu reynslu.
Hér er farið inn á þá braut
að koma ungmennum fyrr í
snertingu við íþróttirnar, en
oftast er gert, og árangurinn
virðist vera góður. Til þess að
þetta beri árangur, þurfa leið-
beinendur að sinna þessum ald-
ursflokkum sérstaklega hjá hin
um ýmsu ungmennafélögum og
hafa Þingeyingar gert það.
Onnur héraðssambönd ung-
mennafélaga í landinu hafa
sum sótt fyrirmynd í þessu efni
til HSÞ og er ekki að efa, að
hér hefur verið rétt stefnt Q
„Hús og búnaður“
BLAÐIÐ hefur verið beðið að
vekja athygli á mánaðarritinu
„Hús og búnaður", sem sam-
nefnt fyrirtæki gefur út og
kostar árgangurinn 300 krónur.
Ritið fjallar um húsbyggingar
og búnað húsa og er mjög mynd
skreytt. Innréttingar, heimilis-
tæki og annar innri búnaður er
gert að umtalsefni svo og lita-
val, ræsting, upphitun o. fl. Rit
stjóri er Snorri Hauksson hí-
býlafræðingur. — Væntanlegir
áskrifendur hér um slóðir geta
sent óskir sínar þar um í póst-
hólf 49 á Akureyri. Q
Héraðsfundur Eyjafjarðarprófastsdæmis
verður haldinn að Freyvangi
sunnudaginn 17. september n.k.
Fundurinn hefst með guðsþjón
ustu í Munkaþverárkirkju kl.
1.30 e. h. Séra Stefán Snævarr
á Völlum predikar. í messulok
flytur prófastur ávarp og yfir-
litserindi um kirkjumál á síð-
asta ári.
Eftir messu verður fundinum
framhaldið að Freyvangi. Þar
verða rædd venjuleg héraðs-
fundarmál og sérstaklega tekin
til umræðu, samkvæmt ósk
biskups, þingsályktunartillaga
síðasta kirkjuþings varðandi
greiðslu til presta fyrir auka-
verk:
a. hvort greiðslur til presta
fyrir aukaverk í núverandi
mynd skuli niður felldar,
b. hvort, þá og með hvaða
hætti, prestum skuli tryggðar
uppbætur fyrir missj þeirra
tekna, sem um er að ræða.
Á fundinum mun séra Pétur
Sigurgeirsson á Akureyri sýna
skuggamyndir, og ef til vill
verða þar fleiri erindi flutt.
Héraðsprófastur.
I ;
NYTT ÍITGÁFU- OG KVIK-
MYNDAFYRIRTÆKI
TVISTUR, útgáfu- og kvik-
myndafyrirtæki hleypur af
stokkunum þessa dagana með
útgáfu á frumsamdri skemmti-
sögu eftir íslerizkan höfund,
Hreggvið Hlyn.
Svo sem þegar er Ijóst, er
starfsemi þessa nýja fyrirtækis
tvíþætt, annars vegar bókaút-
gáfa, hins vegar kvikmynda-
gerð.
Sem bókaútgáfa mun fyrir-
tækið aðallega halda sig við
frumsamdar íslenzkar skemmti
sögur, og reyna að hleypa lífi í
slíka sögugerð, sem íslendingar
hafa verið svo sorglega fátækir
af. Útgáfan mun ekki binda sig
við jólamarkaðinn, heldur vænt
ir hún þess að bækur hennar
verði það sölulegar að þær
verði keyptar á þeim tíma sem
þær koma út. Miðað er við
handhægar og ódýrar bækur,
hentugar að taka með sér hvert
sem er -r— í ferðalög — bólið
o. s. frv.
Sem kvikmyndaframleiðandi,
hefur fyrirtækið þegar hafið
undirbúning að sjónva'rpskvik-
myndagerð á sumri komanda.
Ung íslenzk menntakona sem
stundar nám við erlendan kvik
myndaháskóla, er nú að leggja
síðustu hönd á kvikmyndahand
ritið sem samið er upp úr ís-
lenzku skáldverki.
Forráðamenn ,,Tvists“ vænta
þess, að landsmönnum finnist
þetta tímabært og forvitnislegt
framtalk og þess vert að styrkja
kvikmyndatökuna að sumri
með því að kaupa bókina sem
nú kemur á markaðinn.
Kápumynd á „2 tvöfaldir &
4 einfaldir“ hefur Hallgrímur
Tryggvason tekið og annast
uppsetningu.
(F r éttatilky nning )
Hinn þjóðkunni íþróttafrömuð-
ur, Sigurður Greipsson í Hauka
dal, varð sjötugur 23. ágúst sl.
íþróttaskóli hans varð fertugur
á þessu ári. Afmælisins var
minnst á verðugan hátt syðra.