Dagur - 06.09.1967, Side 5
4
* 5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Sírnar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Tekjur bænda
lækkuðu
AÐ þessu sinni var engin sumar-
slátrun vegna nægra kjötbirgða í
landinu. Kindakjöt var um eitt þús-
und lestum meira en á sama tíma í
fyrra, eða 3900 lestir 1. júní og þá
var einnig til meira af nautgripa-
kjöti en á sania tíma í fyrra.
Smjörsalan jókst á síðasta ári úr
1093 lestum í 1535 lestir og er aukn-
ingin um 40%. í ársbyrjun 1966
voru smjörbirgðir 1132 lestir en
voru 1. júní komnar niður í 503
lestir og eru nú 230 lestir, þó hefur
ekkert smjör verið flutt úr landi.
Þarna gætir því aðgerða Framleiðslu
ráðs í því að auka söluna með verð-
lækkun og draga úr smjörframleiðsl-
unni með því að koma smjörfitunni
á markað erlendis í öðru formi en
smjöri.
Mjólkurframleiðslan hefur dregist
nokkuð saman í landinu á þessu
ári, einkum fyrra hluta þess. Hér á
Akureyri hefur mjólkurmagnið til
samlagsins minnkað um 6,38%, það
sem af er árinu, miðað við fyrra ár.
Á aðalfundi Stéttarsambands bænda
nú um helgina kom það fram hjá
formanni samtakanna, Gunnari Guð
bjartssyni, að tekjur bænda árið
1966 höfðu farið lækkandi. Hann
sagði, að afurðaverð þyrfti að hækka
um 20% nú í haust til að fá sömu
tölu launatekna þeim til handa og
reiknað var með í verðlagsgrund-
vellinum s.l. ár eða kr. 197.358,00.
Formaðurinn nefndi þær breytingar,
sem lægi til grundvallar þessari þörf
á liækkuðu búvöruverði og sagði síð-
an í ræðu sinni:
„Nú vita allir, að verðstöðvunar-
lög eru í gildi, og gilda til 1. nóv.
n.k. Þau ná til verðlags á hvers kon-
ar vörum og þjónustu, en ekki til
kaupgjalds. Þegar rætt er um verð
á búvöru, er um að ræða raunveru-
legt kaupgjald bændanna, þótt breyt
ing þess komi fram í verðlagi bú-
vörunnar. Verðstöðvunarlögin geta
ekki svipt bændur þeim rétti, sem
þeir hafa skv. framreiðsluráðslögun-
um til verðbreytinga 1. sept. ef full-
nægjandi rök eru fyrir slíkum breyt-
ingum, en hins vegar þyngja þau
þann róður, að fá viðurkenningu á
réttmæti verðbreytinga búvörunn-
ar.“
Þess mun nú skammt að bíða, að í
ljós komi, hvort framleiðsluráðslög-
in halda gildi sínu. Enn fremur hvort
bændur fá hlut sinn réttan í nýjum
verðlagsgrundvelli, svo sem lög mæla
fyrir. Bændur munu ekki una því
endalaust að búa við skarðari hlut
en aðrar stéttir þjóðfélagsins — og
þjóðfélaginu er annað sæmra.
99
MAIBLOMIÐ
99
Ameríkubréf 23. ágúst.
VIÐ dveljum hér um sinn og
fram eftir hausti í friðsælum og
fögrum bæ, sem ég geri mér í
hugarlund, að sé álíka fjölmenn
ur og Húsavík, en það er ekki
auðvelt að gera sér grein fyrir
stærð bæjanna 'hér í Come-
cticut-dalnum, því að við göt-
urnar og kringum húsin eru há
vaxin lauftré og byggðin hálf
falin í þessum fagra trjágróðri.
En í gegnum bæinn liggur þjóð
vegur, sem innan bæjar nefnist
Aðalstræti (Main Street) og þar
þarf að vera á verði gegn um-
ferðinni. Hinu megin við fljótið
liggur hraðbraut nr. 91. Eftir
henni komum við 23. júlí, og
eftir henni lögðum við af stað
nýlega suður í Massachusetts í
4. daga ferð. Ferðinni var heit-
ið til Boston og út á Cape Cod,
sem ég kalla Langanes og ber
það nafn með rentu. Þar úti
fyrir er opið haf, Atlantshafið.
Við gistum næstu nótt og
aðra síðar í borginni Rochester
ca. 100 km. frá Boston, á ís-
lenzku læknisheimili. Þarna
stunda trveir ungir • íslenzkir
læknar framhaldsnám, báðir
fjölskyldumenn, Þetta fram-
haldsnám lækna í Bandaríkjun
um, árum saman, virðist ekki
vera heiglum hent. Vinnutími
þeirra og næturvökur á sjúkra-
húsum meiri en mér hefði kom
ið til hugar og fræðilegt nám að
auki. Þannig er uppeldi allra
sérmenntaðra lækna hér í landi.
Kaup er greitt, en myndi þykja
lágt heima, og bifreið verða
þessir læknar að eiga og reka á
sinn kostnað. Talið er, að fram-
haldsmenntun sú og starfsþjálf
un, beri mikinn árangur. En
leikmanni sýnist, að minna
mætti gagn gera. Margt er hér
í landi útlendra lækna við nám
og starf af þessu tagi, og mun
það koma sér vel hér eins og
sakir standa, því að margir
bandarískir læknar hafa verið
kvaddir til þjónustu við sára og
sjúka austur í Viet-Nam.
Daginn sem við komum til
Rochester, fórum við í stutta
ferð til Boston, sem er höfuð-
borg Massachusetts-ríkis, og
raunar fræg borg t. d. úr sögu
uppreisnarinnar gegn Bretum á
18. öld, og nú síðast af því, að
Kennedy forseti var þaðan upp
runnin, og ætt hans þar mjög
umrædd um þessar mundir.
Þama dvöldum við stundakorn
í State House, mikilli höll og
fagurri, sem er í senn aðsetur
löggjafarþings þessa ríkis, ríkis
stjórna og ráðuneytanna. Þama
eru forsalir miklir, með hátíða-
brag og skreyttir listaverkum
og minjum. Með veggjum fram
í svonefndum fánasal rísa gaml
ir og nýir fánar Bandaríkjanna,
allt frá þeim tíma, er stjörnurn
ar voru aðeins 13 að tölu þang-
að til nú, að þær eru 50. Þarna
var höggmynd mikil og fögur
af hjúkrunarkonu, sem ber ör-
magna hermanni svaladrykk,
þar sem hann mæðist af sárum
sínum, gefin til minningar um
líknarstörf, er unnin voru í
borgarastyrjöldinni (þrælastríð
inu) 1861—65. Þarna var líka
merkileg mynd af Lincoln, sem
tók á sig ábyrgðina á því að
koma í veg fyrir að Suðurríkin
klyfu ríkjasambandið, banda-
ríska stórveldið, hið öflugasta
nú á tímum, má með miklum
rétti kallast hans verk og
þeirra, sem með honum unnu.
En sambúðarvandamál hvítra
manna og svartra er enn ugg-
vænlegt í þessu stóra landi, og
hafa nú í sumar gerzt mikil tíð-
indi og ill í sambandi við það
mál sem kunnugt er. Við kom-
um snöggvast á áheyrendapalla
þingsins í Massachusetts, og sat
það þá á fundi. Pallar voru
þarna tveir, aðrir fyrir konur,
hinir fyrir karla. Það sá ég
strax, að margir þingmenn voru
ekki í sætum sínum og hugsaði
heim. Ræðumaður talaði af
miklum ákafa um vegamál. For
seti, í bláum einkennisjakka,
barði bylmingshögg í borð með
gríðarstórum tréhamri. Þá þagn
aði sá, er í ræðustólnum stóð,
en annar reis úr sæti fram í sal
og gerði athugasemd, sem tók
drjúgan tíma. Þá annað bylm-
ingshögg í borðið, og sá er í
stólnum stóð, hélt áfram ræðu
sinni, en hinn settist. Þetta var
svipmynd ein, ég sá, og ekki
hafði ég tíma til að kynnast því
nánar, sem þarna fór fram. Síð-
an litum við inn á listasafn og
skoðuðum þar aðallega fræga
mynd frá Suðurhafseyjum eftir
franska málarann Gouguin, sem
við höfðum séð eftirmynd af
áður, en frummyndin er þarna
niður komin, og þykir víst ein
höfuðprýði þess mikla safns, eft
ir staðsetningu að dæma. Furðu
mikið er þama af listaverkum
Norðurálfu-meistara frá fyrri
tímum.
Daginn eftir fórum við alla
leið út á Langanesfont og gist-
um þar í tjaldi, en nesið reynd-
ist miklu lengra en við hugðum.
En þar sem annarsstaðar eru
vegir góðir og hratt farið. Áður
en leiðin lá út á nesið höfðum
við all langa dvöl í borginni
Plymouth, sem er við sjó, mikill
ferðamannastaður og baðstað-
ur. Þama og á Langanesi eru
frægar sögustöðvar og minjar
frá landnámi hér í álfu. í Ply-
mouth liggur seglskipið Mai-
blómið (Mayflower II) — eða
eftirlíking þess við bryggju. Á
þessu skipi komu hinir svo-
nefndu „pílagrímar“ frá Eng-
landi vestur um haf haustið
1620, tóku land utarlega við
Langanes og stofnuðu nýlendu
í Plymouth. Pílagrímarnir voru
sértrúarflokkur, sem hafði sagt
sig úr ensku kirkjunni, og flýði
fyrst til Hollands, til að stunda
þar sína þuðsþjónustu, en
sömdu síðan við Lundúnakaup-
menn um flutning til hins nýja
heims, og urðu fyrstir hvítra
manna til að nema land í Nýja
Englandi, en svo nefnast einu
nafni 6 ríki í -norðausturhluta
Bandaríkjanna. í 'hópnum virð-
ist hafa verið um 100 manns, og
eru nöfn þeirra flestra gleymd,
en helmingur þessa fólks lézt á
fyrsta ári, flestir í smitandi
veiki, en slík sótt og e. t v. sú
sama hafði þá rétt áður eytt
Indíánum, sem áður voru á þess
um slóðum. Indíáni einn, sem
eftir lifði, kom á fund landnáms
manna og varð þeim að miklu
liði. Sambúð „pílagrímanna“
við Indíána nærlendis var jafn-
an góð, og í Plymouth er stand
mynd af Indíánahöfðingja, sem
landnemarnif og næstu afkom-
endur þeirra minntust með
þökk. En víða mun sambúð
hvítra landnema og frumbyggja
landsins, því miður, hafa verið
með öðrum hætti.
Við skoðuðum „Maíblómið“
og fórum þar um borð. Skipið
mun vera á stærð við miðlungs
síldarbát íslenzkan, en bygging
arlagið eins og myndin sýnir.
Við sáum líkön af landnemun-
um um borð, körlum, konum og
bömum, við ýmsar aðstæður,
fallbyssurnar, sem áttu að vera
þeim og kaupskipinu til varnar,
ef til árásar kæmi, siglingar-
tæki 17. aldar og margt fleira.
Eins og fyrr var sagt, er skipið,
sem nú er til sýnis, aðeins eftir-
líking, gerð eftir upplýsingum
um almenna gerð slíkra skipa.
Það er gjöf frá Bretum, smíðað
í Bretlandi, og var siglt vestur
vun haf 1957. í landi er til sýnis
stór steinn, brot af granitklöpp-
inni, þar sem talið er, að land-
námsmennimir hafi stigið á
land í Plymouth.
Langanes er lágt og sendið,
og í gegnum það innanvert er
skipaskurður. Baðstaðir eru
þar víða með ströndum fram og
var þar fjöldi fólks í sjóbaði eða
á sundi. Sjórinn er svalur nokk
uð, en því hlýrra var ofansjáv-
ar, enda heitt í veðri þessa
daga. Við fórum um kvöldið út
á vegarenda yzt á nesinu fyrir
opnu hafi, óðum í „Atlantshaf-
inu“ og söfnuðum fjörustein-
um. Þarna var margt fólk í
kvöldhúminu um og eftir sólar-
lag. Ungur maður svartur og
úng stúlka jafn svört, bæði fríð
sýnum, sátu saman í hvítum
sandinum og lögðu brosandi
kinn að kinn. Tjaldstaður okkar
var í furuskógi. Og nú minnist
ég þess, að við erum búin að
gista 8 nætur samtals í hjól-
húsa- og tjaldborgum í 3 USA-
ríkjum og 2 Kanada-ríkjum. I
sumum þessara tjaldborga hafa
trúlega gist hundrúð eða jafn-
vel þúsundir manna samtímis.
Ætla mætti, að háváði væri og
ölvun á slíkum stöðum um næt
ur. En ekki varð ég þess var að
neinn í okkar hópi kvartaði
undan slíku. Sjálfsagt hefir
þarna verið eftirlit. Lítið urð-
um við þess þó vör. En prúð-
mennska fólksins, sem þarna
gisti í tjöldum sínum og hjól-
hýsum, er frásagnarverð. Þarna
virtust gilda óskráð lög um að
vera ekki öðrum til óþæginda
og ganga vel um. Ella væri líka
óverandi á slíkum stöðum, og
þá yrði margur, sem ekki hefir
efni á að dvelja á gistihúsi
(hóteli eða móteli), að sitja
heima í sumarleyfinu. Morgun-
in eftir lögðum við af stað inn
eftir Langanesi. Skógartrén í
hinni sendnu jörð þarna á nes-
inu, eru aðallega barrviðir og
trén kræklóttari en ég hefi séð
annarsstaðar hér í landi. Sums
staðar utan til á nesinu eru hvít
sandhólasvæði innan um trjá-
gróðurinn. Það þótti mér
fallegt. Þarna eru mörg þorp
eða smábæir með nokkrum þús
undum íbúa hver, einkum við
sjó fram. Við dvöldum um
stund í bænum Hyannis (íbúar
3—4 þús.). Þar býr Jósep gamli
Kennedy, faðir forsetans, og
kona hans a. m. k. um sumar-
tímann, og á þar hús. Við bað-
ströndina í Hyannis skoðuðum
við minnismerki, nýrisið, hlað-
inn steinvegg með stækkaðri
lágmynd af forsetanum. Þar var
þess getið, að minnismerkið
væri gjöf frá nafngreindum bæ
þar á nesinu. Svo busluðum við
um tvo tíma í sjónum, höfðum
ekki getað komið því við fyrr í
ferðinni Þarna er sandfjara eins
og annarsstaðar á grunnsævi.
Var þetta góð tilbreyting og
hressandi. Á slíkum stöðum er
án efa heilsusamlegt að dvelja.
Við fórum af Langanesi ná-
lægt nóni og komum fyrir mið-
aftan aftur til Rochester, en þá
er venjulega kvöldverðartími
hér í landi. Umferðin á móti
okkur út á Langanes hinumeg-
in á hraðbrautinni var gífurleg,
enda föstudagur og helgarfrí lík
lega að hefjast. hjá sumum í
Boston og nágrenni hennar. Við
fórum fram hjá kaþólskri bíla-
kirkju í skógarjaðri. Þar er
hægt að draga sig út úr um-
ferðinni og gera bæn sína við
altari drottins undir beru lofti.
Kaþólskir eru margir í Massa-
chusetts og víst einnig hér í
New Hampshira.
Á laugardaginn komum. við
heim hingað til New Hamps-
hira, en fórum aftur á sunnu-
dag suður til Pittsfield í Massa-
chusetts snögga ferð. Fórum
fyrst hraðbraut nr. 91 sem fyrr,
en síðan eftir vegi, sem kallað-
ur er Indíánaslóð og liggur um
þrönga dali í fjalllendi Massa-
ehusetts. Fjöll eru þar allt að
1000 m. öll skógi vaxin. Mjög
er hér fagurt, en við léntum í
votviðri með steypiregni öðru
hverfu. Frægar standmyndir
eru þarna við veginn, elgurinn
og Indíáninn, sem fagnar sólar-
uppkomu með uppréttum hönd
um og margt annað minnir á
Indíánana, sem héðan komu og
herjuðu á frændur sina suður
(Framhald á blaðsíðu 7).
Gunnar Friðriksson
bifreiðastjóri
MINNINGARORÐ
Suðrænar ferðamyndir
ÞEGAR við augum manns
blaktir fáni í hálfa stöng, boðar
það að einhver hefir hoi'fið sjón
um okkar af þessari jörð. Við
spyrjum og fáum svar. Miðviku
daginn 24. ágúst, um hádegið
blakti fáni við hálfa stöng á
verzlunarhúsi KEA. Ég hitti
mann á götunni og spyr: Hver
er dáinn? Og svarið var: Gunn-
ar Friðriksson bílstjóri á Stefni.
Óvænt var hún mér þessi
frétt, og hugurinn leitar til lið-
ins tíma, til ársins 1938, þegar
við Gunnar gerðumst stofnend-
ur að Vörubílastöð Akureyrar.
Þá voru atvinnuleysisár og
erfiðir tímar. Marga daga var
ekkert að gera. Þá varst það þú,
Gunnar, vinur minn, sem með
þínu bjarta brosi, hlýju og inni
legu framkomu, sem færðir
gleði yfir til hinna félaganna,
sem óhyggjur höfðu út af fram-
tíðinni. Það var alltaf líf, gleði
og fjör, þar sem þú varst. Ég á
svo margar minningar um sam-
verustundir okkar á ferðalög-
um og öðrum samverustundum,
þegar erfiðlega gekk, bilaður
bíll eða eitthvað amaði að, áttir
þú létt með að leysa vandann
og gera erfiðleikana að léttvæg
um atburði.
Það er mikils virði að eiga
minningu um svo góðan dreng,
handtak segir meira en nokkur
orð. I því birtist hugur og hjarta
gæzka, þess sem höndina réttir.
Fá handtök eru mér minnis-
stæðari en handtak þitt, vinur
minn. Því gleymi ég aldrei.
Þegar ég svo hugsa um það,
hvað þú varst mér góður vinur,
verður mér það ljóst, hvað fjöl-
skylda þín hefir mikils að
sakna. Þar á ég því miður eng-
in orð til, sem veitt gætu þeim
huggun, aðeins hlýjar, innilegar
hugsanir, sendi ég öllum að-
standendum, eiginkonu, börn-
um og öðrum ástvinum. Örugg
trú mín er sú, að öll eigum við
eftir að hittast aftur á morgni
nýs lífs. Góður Guð blessi þig,
Gunnar minn, og alla ástvini
þína. Að lokum þetta:
Þegar jarðneskt brestur band
búin lífsins glíma,
og ég kem á ljóssins land
Ijá mér hendi þína.
Kári Larsen.
Áðalfundur Æ.S.K. í Hólasfiffi
um næstu helgi
ÁTTUNDI aðalfundur Æsku-
lýðssambands kirkjunnar í Hóla
stifti verður haldinn um næstu
helgi á Hvammstanga, og hefst
hann laugardaginn 9. septem-
ber kl. 4 e. h. í nýja félags-
heimilinu. Verður þá flutt
skýrsla stjórnarinnar og hinna
ýmsu starfsgreina innan sam-
bandsins. Flutt verður stutt
erindi um föndur af frú Dóm-
hildi Jónsdóttur á Skagaströnd
og sýndir munir, sem unglingar
hafa unnið. Jón Þorsteinsson,
Ólafsfirði, flytur erindi um
skemmtanir og kristindóm.
Um kvöldið verður kinkju-
kvöld í Hvammstangákirkju
bæði fyrir almenning og full-
trúana og flytUr séra Bolli
Gústavsson framsöguerindi um
mál fundarins: Skemmtanir og
kristna trú. Gylfi Jónsson sum-
arbúðastjóri sýnir litskugga-
myndir frá starfi sumarbúð-
anna við Vestmannsvatn, sem
starfa á vegum ÆSK, einnig
verða sýndir ýmsir þættir frá
æskulýðsstarfinu. Kirkjukór
Hvammstangakirkju syngur, og
þá verður almennur söngur.
Séra Jón Bjarman æskulýðsfull
trúi flytur ávárp, og í lok kirkju
kvöldsins verður almenn altaris
ganga. Kirkjukvöldinu stjómar
séra Gísli Kolbeins prestur á
Melstað.
Sunnudaginn 10. sept. flytur
séra Kári Valsson morgunbæn.
Síðan starfa umræðuhópar. Kos
ið verður í nefndir og stjórn
ÆSK — og fundinum slitið um
hádegi.
Kl. 2 síðdegis fara fram guðs-
þjónustur á 6 kirkjum í sam-
bandi við fundinn og starfa
Byecherstræti 40, Miinchen,
sunnudag 13. ágúst 1967. —
RÓLEGT íbúðarhverfi, drjúg-
an spöl frá miðborginni. Trjá-
garður. fyrir hverjum dyrum.
Af ganghellunum má seilast í
epli og perur á aldintrjánum,
en þráðbein, 20 m. há, hvít-
stofna birkitré, kastaníutré og
greni vaxa út við götuna. I
verzslunarhverfi miðborgarinn
ar er umferðin geysileg og fólks
mergðin eins og sauðfé í rétt
úti á íslandi — á hvíldarlausu
iði og verður að bugða sig
hallir hverja annarri skraut-
legri og íburðarmeiri og er
þessi talin hápunkturinn og
ótrúlega hlaðin skrúði og lista-
verkum. Því trúir enginn óséð.
Viðhafnasalurinn er tæplega
100 m. langur og var allur lýst-
ur með kertaljósum, sitja kert-
in í glitrandi kristalhjálmum og
voru 40 menn um hálftíma að
kveikja á þeim öllum. Allsstað-
ar er logagilt tréskurðarútflúr
og hefur kóngur auðsjáanlega
haft fræbærum tréskurðarmönn
um á að skipa. Hann eyddi líka
ganga þangað vagnar á tog-
braut upp snarbratta hlíðina
(120 m. yfir borgarána). Býggð
ur á dögum hinna fyrstu ís-
lenzku biskupa, endurbættur
um 1500 og lítur enn furðu vel
og traustlega út. Þar er minja-
safn og útsýn er hið mikilfeng-
legasta yfir borgina. Salzburg
liggur í rúmlega 400 m. hæð
yfir sjó og er borgin og borgar-
stæðið talið með þeim fegurstu
í Evrópu. í gamla borgarhlutan
um standa mörg hús frá mið-
öldum og eru sumar göturnar
prestar og æskulýðsfélagar sam
an við flutning messugjörð-
anna. Messað verður á eftir-
töldum kirkjum: Efra-Núps-
’kirkjú, Melstaðarkirkju,
Hvammstangakirkju, Staðar-
bakkakirkju, Tjamarkirkju og
Víðidalstungukirkju, sem allar
eru í Húnavatnsprófastsdæmi.
Fundinn sækja prestar og
æskulýðsfélagar af Norður-
landi, og var sambandið stofnað
1959. Eru það frjáls samtök
presta og æskulýðsfélaga til
eflingar kristni og kirkju í
stiftinu. Mark og mið samtak-
anna felst í æskulýðsheitinu:
Ég vil leitast við að fremsta
megni að hafa Frelsara vom
Jesúm Krist að leiðtoga lífs
míns.
(Fréttatilkynning frá ÆSK í
Hólastifti).
áfram í þrönginni. Merki stríðs
ins eru að mestu horfin af yfir-
borðinu. Þá var Múnchen fyrir
66 miklum loftárásum og er tal
ið að þriðjungur alls íbúðarhús
næðis hafi eyðilagzt. I útjaðri
borgarinnar gefur að líta hæð
alvaxna grasi, runnum og blóm
um. Þarna eru skíðabrekkur
barna á vetrum og góð útsýn
yfir borgina og í björtu veðri
mótar fyíir tindum Alpafjalla.
En hissa varð ég, þegar hæðin
mikla reyridist af mannahönd-
um gjörð, hún er ruslahaugur,
þ. e. múrsteinabrot og annað
brak húsa sem hrundu í stríð-
inu. Þessu var öllu ekið í þenn-
an gríðarmikla haug og tyrft
yfir.
Lestin þýtur áleiðis til hinnar
miklu ferðamannaborgar Salz-
burg í Austurríki. Þorp og skóg
ar virðast þjóta framhjá. Við
stígum úr lestinni í Prien og
ökum í fornfálegum lestarvagni
út að fallegu vatni, þar sem
fjöldi skemmtibáta var á sigl-
ingu, og sumir stignir áfram
líkt og reiðhjól. Það er stutt út
í „Herraey“ og þangað ganga
ferjur allan daginn fullar af
ferðafólki, sem vill skoða fræga
höll Lúðvíks Bæjarakonungs,
reista fyrir hér um bil einni
öld. Lúðvík lét byggja einar 8
GODAR GJAFIR ÞAKKADAR
í ÞANN MUND, er Bama-
'heimilið við Ástjöm var að
hefja starf sitt á þessu sumrí
barst því mjög myndarleg pen-
ingagjöf frá Lionsklúbb Akur-
eyx-ar. Var hún ágóði af Bingói,
sem haldið var sl. vetur. Mörg
fyrirtæki og einstaklingar lögðu
þar fram góðar gjafir og mikla
vinnu. Mun fjárhæð þessari
verða varið í það stórátak, sem
nú er framundan, en það er að
fá rafmagn til heimilisins. Verð
ur línan lögð væntanlega á
næsta ári.
Þá færði Guðmundur Jör-
undsson, útgei-ðarmaður í
Reykjavik, heimilinu bát að
gjöf (jullu). Er ekki að efa, að
á þeim báti munu mörg sjó-
mannsefnin taka sín fyrstu ára-
tog.
Við þökkum Lionsfélögum af
alhug þessa stórgjöf, svo og öll-
um þeim, sem studdu þá í fram
taki þeirra. — Einnig þökkum
við allar aðrar gjafir frá ein-
staklingum.
Sá fámenni hópur, sem styð-
ur við starf Barnaheimilisins,
er innilega þakklátur fyrir
þann mikla hlýhug, sem kemur
fram í verki. Við biðjum Guð
að launa ykkur þetta allt.
Fyrir hönd Bamaheimilisins
Ástjörn. Bogi Pétursson.
ótrúlegum fjárfúlgum í þetta og
þjáði lýðinn eins og Salómon
Gyðingakóngur, sagði annar
leiðsögumaðurinn, snaggaraleg
ur náungi, sem minnti á Jón
Sólnes skólabróður minn.
Skammt frá Herraey liggur
Frúarey, þar er enn nunnu-
klaustur. Ex’u systumar þar m.
a. frægar fyrir brauðgerð og
Ijúffengan líkjör, sem þær
blanda og selja með góðum
hagnaði.
Við erum í Salzburg, borg
sem er eldri en íslandsbyggð og
höfðu Rómvei'jar þama rriarkað
og tollstöð. Allt er fullt af ferða
mönnum (yfir milljón á hverju
ári) og erfitt stimdum að fá
gistingu. Við náum í herbergis-
ávísun á jámbrautarlestinni og
flýtum okkur að komast á stað-
inn. Allt í lagi — herbergin
hreinleg og verð hóflegt, en
þetta er raunar fi'emur dýr
boi’g, mun dýrari en gististað-
irnir í Tyi-ol. Gegnt glugganum
blasir við mikið fjall 638 m. hátt
og nær þvei'hnípt eins og fugla
bjarg, en alvaxið skógi upp á
brúnir. Löng gata liggur með-
fram fjallinu og nokkrar fornar
byggingar hallast alveg upp að
hömrunum. Mér kom ósjálfrátt
í hug „Ólfur reið með björgum
fram“. En það ævintýri.þekkist
miklu víðar en á íslandi. Það er
til í ýmsum myndum víða um
EVrópu, allt suður á Balkan-
skaga. Ellefta ágúst gengum við
víða um borgina í góðu veðri
og sáum furðu margt forvitni-
legt. Kirkja hins sæla Blasiusar
stendur fast við klettana, byggð
1350, mjög falleg. Salzburg er
fæðingarstaður Mozarts óg er
hús hans og munir þar til sýnis
og þangað sífelldur straumur
ferðamarma, enda margt að sjá.
Hátíðarhljómleikar í minningu
Mozarts hafa verið haldnir í
hálfa öld og hlýddum við á einn
þátt þeii-ra í mai-marasalmxm,
þar er hljómburður óvenju
skýr og góður. Okkur varð
hugsað til Háskólabíós — ham-
ingjan hjálpi þeim þar!! Kastali
mikill og fagur uppi á „Munka-
fjalli“ gnæfir yfir boi-gina og
bara þi-öng sund og bannaðar
bílum, en verzlun er þar afar
mikil og sífelldiu' straumur
ferðamanna svo innfæddir eru
í minnihluta mikinn hluta árs-
ins. En þeir græða vel á ferða-
fólkinu. Veitingastaðir eru alls
staðar, margir hverjir smáir og
fornlegir að búnaði, með múr-
steinshvelfingar, súlur og boga.
Við snæðum kvöldverð á einum
staðnum, sem rúmar svona 30
manns við boi-ðin og fengum
góðan mat og þjónustu. Úti í
horni heyrist hvísl og tíst líkt
og í fuglahóp. Þar sátu 6
japanskar skátastúlkur í aust-
rænum^ sloppum og foringi
þeirx-a í góðum fagnaði. Sáum
við hópinn aftur á Mozart-tón-
leikum seinna um kvöldið,
hlustandi með andakt á
strengjasveit fi'á Pi-ag. Úti á göt
unum streymdi mann'hafið fram
og aftur og heyrðust ót.al tungu
mál. Þar var svartskeggjaður
Arabi með grænan vefjai-hött
og indverskar konur í drag-
síðum slæðuklæðum. Leiðsögu-
maður hélt fyrirlestur á ensku
um boi-gina úti á miðju toi-gi.
Mér brá, því að þarna var Helgi
Sæm. lifandi kominn, limabux-ð
ur og andlitsfall, ótrúlega svip-
að. Ég var orðinn svangur og
gekk að grænmetisvagni, en
hvern sá ég — annan en Þói’ð
mirrn á Sæbóli, hann stóð við
vagninn, þi-ekvaxinn og íbygg-
inn og hrópaði „ferskjui-. vín-
ber og bananar". Fleiri mann-
gerðir þóttist ég þekkja að
'heiman, þótt vitanlega væri um
allsendis óskylt fólk að ræða.
Ég labbaði um sólbi-endur með
sti-áhattkúf þarlendan og í frá-
hnepptu „biskupavesti“ brúnu
heiman af íslandi. Ó, fjallabúi,
Tyrólar, sögðu Ameríkanarnir
og tóku myndir í ákafa! Konur
gengu um rogandi með fullar
körfur af nýkeyptum minja-
gripum og handiðnaðarvörur
allskonar, en þær eru hér mjög
smekklegar og úi-val mikið.
Tyrol og nágrenni er tilvalið
ferðamannaland ekki síður en
Spánn og Kanaríeyjar.
IngóKur Davíðsson. j