Dagur - 07.02.1968, Side 2

Dagur - 07.02.1968, Side 2
2 Handknattleiksmót íslands: Akuicyringar leika við Þrótt í Iþróttaskemm- unni næstkomandi laugardag kl. 4 LEIKIR Akureyringa og Vest- mannaeyinga í Iíandknattleiks- móti íslands, 2. deild, eru ekki umtalsverðir. Liö IBV er áreið- anlega það lang-lélegasta, sem leikið hefur á Akureyri, enda taiar markatalan þar Ijósustu máli. Það voru skoruð 113 mörk í 2 leikjuni, þar af skoruðu Ak- ureyringar 83 gegn 30 mörkum ÍBV, og er slíkt mjög fáheyrt. Fyrri leiknum, sem fram fór á laugardagskvöld, lauk með 45:19 fyrir ÍBA, en í hálfleik var staðan 21:7. Síðari leikurinn var spegil- mynd af hinum fyrri. í hálfleik var staðan 20:6 fyrir ÍBA og leiknum lauk með 38:11 fyrir Akureyringa. Ekki get ég ímyndað mér, að þetta lið Vestmannaeyinga fái eitt einasta stig í íslandsmót- inu. Ekki er unnt að spá neinu um velgengni ÍBA-liðsins í 2. deild, eftir þessa leiki við ÍBV, vegna þess hve Vestmannaeyingar v.oru lélegir, en úrslit í leikjum ÍBA og Þróttar og ÍBA og Keflvíkinga, benda til þess, að Akureyringar muni koma til með að berjast um efsta sætið ásamt Ármanni og ÍR. Einn leikur í 2. deild fór fram í Reykjavík sl. sunnudag. Þrótt ur sigraði Keflvíkinga með 23:15, og komu þau úrslit á óvart, en þau sýna að erfitt er að spá um úrslit fyrirfram. Fimm lið, Ármann, ÍR, ÍBA, ÍBK og Þróttur eru öll mjög svipuð og gæti hvert liðið sem er farið með sigur af hólmi í íslandsmótinu. Það skýrist þó fljótlega hvaða lið taka þátt í lokabaráttunni, og ekki er ótrú legt að hún fari fram á Akur- eyri, því öll þessi lið eiga eftir að mœta Akureyringum á heimavelli. Slórhríðarmól HIÐ árlega Stórhríðarmót var haldið í HMðanfjalli um helgina. Keppendur voru 63 í átta flokk um. Mótsstjóri var Halldór Olafsson. Snjór er nægur, ný- fallinn snjór er mótið fór fram, ágætt skíðafæri, en brautir gróf ust nokkuð. Veður á laugardag var stillt og bjart og fram að . hádegi á sunnudag var einnig gott veður en gekk þá í norðan hríð. í 11—12 ára drengjaflokki sigraði Gunnar Guðmundsson, í sama aldursflokki telpna sigr- aði Svandís Hauksdóttir. í sútlknaflokki 13—15 ára bar Sigþrúður Siglaugsdóttir sigur úr býtum og í drengjaflokki 13 —14 ára varð Gunnlaugur Frí- mannsson sigursælastur. í flokki pilta 15—16 ára sigraði Guðmundur Frímannsson og í kvennaflokki Guðrún Siglaugs dóttir. í A-fJokki karla sigraði Magnús Ingólfsson en í B- flokki unnu þeir Árni Óðinsson og Bjarni Jensson sér rétt til keppni í A-flokki næsta vetur. ÞROTTUR—ÍBA Á LAUGAR- ÐAGINN. Á laugardaginn kemur, 10. fehrúar, kí. 4 e. li., leika í íþróttaskemmunni á Akureyri ÍBA og Þrótíur. Ekki er að efa að sá leikur verður skemmti- legur, því bæði liðin hafa fullan hug á að sigra. Vonandi verður hvert stæði skipað í íþrótta- skemmimni á laugardag og Akureyringar hvetja lið sitt ef- laust vel, enda er leikurinn hirai þýðingarmesti fyrir bæði liðin. Akureyringar hafa nú tekið forystu í 2. deild, hafa hlotið 6 stig í 4 leikjum, Ármann hef- ur fengið 3 stig í 2 leikjum, ÍBK 3 stig í 3 leikjum, ÍR 2 stig í 2 leikjum, Þróttur 2 stig í 3 leikjum og ÍBV 0 stig í 2 leikj- um. Ármann hefur tapað 1 stigi, ÍBA og -ÍR 2, ÍBK 3, Þróttur 4 og ÍBV 4. Þannig standa stigin fyrir leikinn við Þrótt á laugardag- inn, en sá leikur er 5. leikur ÍBA í íslandsmótinu, en hvert lið leikur 10 leiki. Því er ekki að neita, að síðari 5 leikir ÍBA- liðsins verða erfiðari en fyrri 5 leikirnir, en það er þó bót í máli að 3 af þeim leikjum fara fram á heimavelli okkar, Íþróttaskemmunni. Vonandi tekst Akureyringum vel upp í þeim leikjum sem eftir eru og ekki er að efa að handknatt- leiksmenn leggja sig alla fram. Sv. O. EINS og menn muna sigraði Þór í fyrsta leik sínum í íslands mótinu í körfuknattleik, 1. deild, sem fram fór í íþrótta- skemmunni. Síðan hafa Þórs- arar leikið 3 leiki og tapað þeim öllum með litlum mun, leiknum við KR hér í íþróttaskemmunni með 6 stiga mun og nú síðast, sl. föstudag, töpuðu þeir fyrir KFR í Laugardalshöllinni með litlum mun. Þeir hafa leikið 4 leiki og hlotið 2 stig, og hafa nú lokið leikjum sínum við KR og KFR. Sex leiki eiga þeir eftir að leika í deildinni og eru keppi nautar þeirra ÍR, ÍKF og Ár- mann. Þrír af þessum leikjum fara fram í íþróttaskemmunni og verður gaman að fylgjast með Þórsliðinu í síðari hluta keppninnar. Um helgina leika Þórsarar við ÍR og fer sá leikur fram í Laugardalshöllinni í Reykja- vík. Eflaust verður sá leikur ferfiður fyrir Þór. SL. ÞRIÐ JUDAGSKV OLD lauk 1. flokks keppni B. A. Sveit Harðar Steinbergssonar bar sigur úr býtum, hlaut 69 stig. Auk hans eru í sveitinni Jón Stefánsson, Sveinn Sigur- geirsson, Júlíus Thorarensen og Aðalsteinn Tómasson. Onn- ur varð sveit Jóhanns Jónsson- ar 52 stig, sveit Stefáns Gunn- laugssonar 50, sveit Bjarna Jóns sonar 43, sveit Péturs Jósefs- sonar 37, sveit Páls Pálssonar 30, sveit Viðars Valdimarsson- ar 26, sveit Arnalds Revkdal 22, sveit Ola Þorbergssonar 16 og sveit Valdimars Halldórssonar 15 stig. Urslit í síðustu umferð í 1. flokki urðu: Hörður vann Ola 8—0 Jóhann vann Valdimar 8—0 Páll vann Arnald 8—0 Viðar vann Stefán 6—2 Pétur vann Bjarna 5—3 Einmenningskeppni félagsins hófst í gærkveldi í Landsbanka salnum og er keppnin 5 kvöld. Keppendur röðuðu sér upp á íshokkívellmum á Krókeyri og voru kynntir. (Ljósm.: E. D.) 80 ÁRA Jóhannes Árnason, Þórisstöðum Heill þér vinur höfðingsmaður hress í máli, jafnan glaður. Þú hefur lifað tíma tvenna, séð tækni áhöld veginn renna, Þórisstaðir í þjóðbraut stendur þar hafa unnið líknar hendur. Þreyttir komu. Þaðan fóru þakkir góðar hjónum sóru. Bónda setri var breytt í höllu bei’jamóar í töðuvöllu. Erjaði langan ævi daginn, öllu breytt í gæðahaginn. Húsbóndinn úr hlaði lítur, höfuðsvörður oi'ðinn hvítur. Blærinn akra bylgir græna. Blessar kúa og sauðhjörð væna. Eftir fjölmörg ár og dag afgreitt var hans vona lag. Akureyringar ásæknir við mark sunnanmanna. (Ljósm.: E. D.) Ákurevringar sisruðu Reykvíkinga með 17:0 Þakkar sveitin, sýslan, þjóðin, ■syni landsins, unnin störf, orti í jörðu ljúfust ljóðin, líf sem gefúr, auðnu og þörf. Blessun yfir bæ óg hjónum björg var líka i görðum, sjónum. Blessa dísir dags og nætur dyggðum búinn höfðingsmann. Hlýtt er enn um hjartarætur héraðs gesti í góðum rann. Send er því af lilýju hjarta heilla ósk um daga bjarta. 10. janúar 1968. Jón G. Pálsson frá Garði. *b' FYRSTA bæjakeppnin í ís- hokkí, sem fram fer hér á lamdi var háð á skautavelli Sfcauta- félags Akureyrar síðdegis á laugardag. Þar áttust við sveit- ir Reykvíkinga og Akureyringa. Keppninni lauk með yfirburða- sigri Akureyringa, 17 mörkum gegn 0. Ingólfur Ármannsson, for- maður Skautafélags Akureyrar kynnti keppendur, en Hermann Stefánsson, formaður ÍBA setti riiótíð. En á meðan á keppni stóð kynnti Ingólfur Ármanns- son leikinn fyrir áhorfendum. Að kappleiknum loknum af- henti Hermann Sigtryggsson, íþróttafulltrúi sigurvegurunum verðlaunagrip, (farandgrip), sem Sjóvátryggingafélag ís- lands gaf. (Umboð Kristjáns P. Guðmundssonar). Á sunnudaginn var háð íirað- keppni. Hver leikur stóð 2x15 mín. Fyrir hádegi keppti A-lið Reykvíkinga og drengir (14— 17 ára) úr Skautafélagi Akur- eyrar, sem sigruðu með 3 mörk um gegn 2 og B-Iið Reykvík- inga og B-lið Akureyringa, sem sigraði með 7 gegn 1. Eftir hádegi keppti A-lið Reykjavíkur og B-lið Akureyr inga. Reykvíkingar sigruðú 5 gegn 3. Loks áttust við B-lið Reykvíkinga og drengjasveit Akureyrar sem sigraði með 9 gegn 0. V^nn drengjaliðið þann ig báða leiki sína. Æfingar standa nú yfir hjá Skautafélagi Akureyrar bæði í listhlaupi og hraðhlaupi og ver ið er að athuga möguleika á að koma á Norðurlandsmóti í skautagreinum.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.