Dagur - 23.10.1968, Síða 5
4
5
Skorturinn á skólaliúsnæði er uggvænlegur
Skrifstofur, Haínarstræti 90, Akureyri
Símar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
FÓLKIÐ BÍÐUR
LANDSFÓLKIÐ bíður tíðinda frá
stjórn landsins og Alþingi. Ráðherr-
ar og blöð þeirra hafa lýst yfir
kreppuástandi í efnahagsmálum
þjóðarinnar. Og sömu aðilar hafa
auglýst getuleysi sitt til átaka við
þann vanda, sem nú steðjar að. At-
vinnuleysi virðist víða framundan.
Nýlega var lagt á 20% aðflutnings-
gjald á allar innfluttar vörur, sem
talin var nauðsynleg bráðabirgðaráð
stöfun, sem ekki gat beðið, til
að afstýra greiðsluþroti ríkissjóðs í
stuttan tíma. Á sama tíma og þessu
eldsneyti var kastað í verðbólguna,
hófust viðræður milli allra stjórn-
málaflokka landsins um efnahags-
mál. Ekki hefur það borizt lands-
mönnum til eyrna, að þar hafi nokkr
ar markverðar upplýsingar komið
fram, eða tillögur um meðferð efna-
hagsmálanna. Sagt var, að gagnasöfn-
un stæði yfir og viðræður myndu
standa yfir í margar vikur. Fyrir
nokkrum dögum var svo fjárlaga-
frumvarp ríkisstjórnarinnar lagt
fram á Alþingi. Það var eins og í
fyrra og að sögn fjármálaráðherra
var þar nánast um málamyndar frum
varp að ræða, þar sem enn væri allt
í óvissu um efnahagsmálin í landinu
og hafa aldrei lieyrzt vesælli skýring-
ar fjármálaráðherra með fjárlaga-
frumvarpi.
Almenningur í landinu bíður
framvindu efnahags- og atvinnu-
mála. Hann er orðinn þreyttur á
aðburðaleysi þeirra manna, sem með
völd fara og stofnuðu til viðræðna
við stjómarandstöðuna, án þess að
hafa látið í ljósi nokkra stefnu í þeim
málum, sem boðað var að rædd yrðu.
Og stjómarandstæðingamir hafa
heldur ekki borið fram ákveðnar til-
lögur, hvað þá nýmæli í þessum við-
ræðum, nema leynt fari. í loftinu
liggur, að grípa þurfi í haust til rót-
tækra ráðstafana til að halda atvinnu
vegunum á floti, á kostnað lífskjara
almennings. Nýir skattar og tollar
eða ný gengisfelling er umræðuefni
manna síðustu vikurnar og kemur
glögglega fram minnkandi jx»lin-
mæði fólks og æ minni vonir um
nauðsynlegar aðgerðir núverandi
valdhafa, sem við megi una. Með
degi hverjum hækka nauðsynjavömr
í verði, eftirvinna er sjaldgæf orðin,
atvinnuleysi yfirvofandi og ýmis at-
vinnuskapandi fyrirtæki komin í
þrot. Þetta er myndin af því öng-
þveiti, sem skapazt hefur m. a. fyrir
óstjórn núverandi valdhafa, í lok
hins mesta góðæristímabils, sem
nokkru sinni hefur orðið á íslandi.
Á rnorgun munu ráðherrar og þing-
menn ræða fjárlagafrumvarpið
frammi fyrir al}>jóð, í útvarpi. Vænt
anlega verða menn einhvers vísari að
þeim umræðum loknum. □
Á FUNDI þeim, sem Framsókn-
armenn héldu sl. fimmtudag bar
margt á góma og urðu fjörugar
umræður að ræðum málshefj-
enda loknum. En það voru bæj-
arfulltrúamir Stefán Reykjalín
og Sigurður Óli Brynjólfsson,
sem fluttu frumræður fundar-
ins um nokkur bæjarmál.
Sigurður Óli Brynjólfsson
gerði fyrst grein fyrir verkleg-
um framkvæmdum bæjarfélags
ins, það sem af er árinu og gerð
ar eru á vegum bæjarsjóðs.
Taldi hann miklar líkur á, að
framkvæmdir yrðu jafn miklar
og áætlanir þær, sem gerðar
voru í ársbyrjun, gerðu ráð fyr-
ir. Taldi hann nauðsyn, að fram
hald yrði á slíku.
Hann minnti á, að ekki hefði
reynzt unnt við síðustu fjárhags
áætlun að ætla nema 14.5 millj.
kr. til framkvæmda við nýbygg-
ingu gatna og holræsa og var
kostnaður við ný stofnholræsi á
þessu ári og tveim sl- árum svo
gifurlega mikill, að það hefði
orðið að koma niður á malbik-
uninni, sem væri því allt of lítil.
Vonir stæðu til þess, að strax á
næsta ári yrði þessi holræsageyð
minni og því mætti vænta þess
að malbikun yrði þá verulega
aukin, enda mikil þörf á því. í
þessu sambandi sagðist ræðu-
maður vilja leiðrétta þann mis-
skilning, sem hann hefði oft orð
ið var við, að eigi hefði verið
'hægt að malbika í bænum
vegna malbikunar á flugvellin- .
um. Malbikun flugvallarins, sem
Akureyraibær framkvæmdi,
hefði verið til þess gerð m. a. að
skapa malbikunarstöð bæjarins
verkefni og væntanlega kæmi
fljótlega að því, að hún fengi
verkefni við að malbika vegina
út frá Akureyri, því stærð henn
ar eða afkastageta væri svo mik
il, að hún gæti vel annað auka-
verkefnum þótt malbikun yrði
stórlega aukin í bænum.
Til nýbygginga var áætlað að
verja 8.2 millj. kr. úr bæjarsjóði
en auk þess kæmi framlag úr
rikissjóði til sumra bygginganna
og nær þriggja millj. kr. láns
var aflað til þess að unnt væri
að Ijúka við nýju Amtsbóka-
safnsbygginguna, sem verður
tekin í notkun á næstunni. Stofn
kostnaður hennar verður um 12
■millj. kr. í>á hefur, sagði ræðu-
maður, verið unnið við lögreglu
söðina nýju, sem nú hefur verið
tekin í notkun. En kostnað við
þá byggingu hafa borið, auk
Akureyrarbæjar, ríkissjóður,
Bifreiðaeftirlit og Veðurstofan.
Þvottahús við Fjórðungssjúkra-
húsið er komið allvel á veg og
iðnskólahúsið er fokhelt og
kostnaður við það milli 11 og 12
þær væru liður í framtíðarskipu
lagi, að miðast við það, hvernig
auðveldast væri að bæta úr
ástandinu almennt, til bráða-
birgða. Kæmi í því sambandi
helzt til greina að reisa skóla-
hús, sem ætlað væri bömum á
skyldustiginu öllu, þ. e. börnum
frá 7—14 ára. Sjálfur sagðist
hann hafa beitt sér fyrir því, að
slíkur skóli yrði byggður í Gler_
árhverfi. En um það væru skipt
ar skoðanir hvort fyrr ætti að
koma skóli þar eða uppi í Lunds
hverfi, sem útlit væri fyrir að
yrði aðal byggingarsvæðið
næstu ár. En hann taldi, að deil
ur um það, hvar skóli yrði fyrr
reistur, mættu ekki rísa svo
hátt, að eigi yrði hafist handa
strax að vori á öðrum þeirra.
Sýnt væri, að á báðum stöðum
væri þörfin brýn. E. t. v. yrði að
nota skólabifreiðar við flutning
á nemendum til bráðabirgða.
Sagðist ræðumaður vona, að
þessi mál og íþróttahúsmálin
yrðu fljótlega leyst.
Jón P. Hallgrímsson;
Fæddur 16. maí 1916 — Dáinn 13. október 1968
VINUR minn, Jón P. Hallgríms
son, er látinn. Það er ótrúlegt,
en staðreynd eigi að síður.
Við Jón kynntumst fyrst í
barnaskóla, enda jafnaldrar. Þar
lágu leiðir saman í leik, þótt Jón
byggi á eyrinni en ég á brekk-
unni.
Er við nálguðumst tvítugsald-
urinn fórum við að vinna saman
VILJA AKUREYRINGAR STYÐJA STÓRSÐJU HÉR?
Sigurður Óli Brynjólfsson.
millj. kr. Er þess vænst að nægi
legt ríkisframlag fáist á næsta
ári til þess að hægt verði að taka
a. m. k. hluta hússins í notkun
að ári liðnu. En þá fer eýði-
merkurgöngu Iðnskóla Akureyr
ar væntanlega að ljúka og er
mál að linni.
Þá ræddi Sigurður Óli um
hið geigvænlega ástand, sem er
að skapast vegna skorts á hús-
næði fyrir barna-, unglinga- og
gagnfræðastigin. Sýnt væri, að
næstu aðgerðir í byggingarmál-
um skólanna hlytu, um leið og
STEFÁN REYKJALÍN bæjar-
fulltrúi vék í upphafi ræðu sinn
ar að stofnun atvinnumálanefnd
ar bæjarins fyrir rösku ári síð-
an. En í henni eiga sæti: Valur
Arnþórsson, Stefán Reykjalín,
Árni Jónsson, Jón Ingimarsson
og Valgarður Haraldsson. For-
maður nefndarinnar er Stefán
Reykjalín. Einnig situr bæjar-
stjóri alla fundi nefndarinnar og
vinnur með henni.
Þessi nefnd hefur, sagði ræðu
maður, beitt sér að verkefnum
líðandi stundar og einnig að því,
að gera sér grein fyrir fram-
tíðimii, í atvinnumálum og
reyna að finna leiðir í þeim mál
um með komandi tíma í huga.
Þjóðinni fjölgar ört og þarf að
skapa mörgum atvinnu á næstu
árum. Akureyringar þurfa að
halda vöku sinni í því, að efla
vaxtarmöguleika staðarins.
Gerð hefur verið, á vegum
nefndarinnar, athugun á at-
Skemmfanir fyrir yngstu börnin
NÆSTKOMANDI sunnudag
hyggst Kvenskátafélagið Val-
kyrjan halda veglega skemmtun
fyrir yngstu borgara þessa bæj-
ar. Skemmtunin verður haldin í
samkomusal Gagnfræðaskólans.
Um 100 skátar og ljósálfar
munu koma fram og verður
ýmislegt nýstárlegt að sjá. Þar
verða m. a. furðukarlarnir
Karáus og Baktus, krummahjón
koma í heimsókn, sýnt verður
ævintýri í útilegu, auk fleiri
atriða. Einnig verður mikill söng
ur þ.á.m. smáópera og prinsessu
kór. Skemmtunin er fyrst og
fremst miðuð við börn 4—12 ára
en ætlun okkar að margir miklu
eldri munu geta skemmt sér
prýðilega. Gerið ykkur því glað
an dag í byrjun vetrar og takið
börnin með.
Sýningar verða: Sunnudaginn
27. okt. kl. 3 e. h. og kl. 8 e. h.
Forsala aðgöngumiða er frá kl.
1 á sunnudag. Verð aðgöngu-
miða er kr. 50 fyrir fullorðna og
kr. 30 fyrir börn.
(Fréttatilkynning)
Vestur-íslenzkar æviskrár
Séra Benjamín Kristjánsson,
fyrriun prófastur í Eyjafirði.
BÓKAFORLAG Odds Björns-
sonar hefur nýlega sent frá sér
3. bindi hins gagnmerka ritverks
„Vestur-íslenzkar æviskrár11 og
hefur sr. Benjamín Kristjánsson
séð um útgáfuna, eins og á hin-
um fyrstu tveimur bindum.
Fyrsta bindi þessa mikla rit-
verks kom út árið 1961 og vakti
þá strax mikla athygli bæði vest
an hafs og austan. Annað bindið
kom síðan út árið 1964 og hefir
höfundur þegar viðað að sér
miklu efni í fjórða bindi rit-
verksins, sem hann hefur nú í
undirbúningi.
f þessu nýja bindi „Vestur-
íslenzlu-a æviskráa“ er hafður
sami háttur á og áður, að teknir
eru heilir ættbálkar, þar sem
kostur hefur vei'ið á nægum
upplýsingum, sagt fyrst frá land
námsmönnunum vestan hafs og
síðan gerð grein fyrir öllum af-
komendum þeirra, lífs eða liðn-
vinnumálum fyrstu átta mánuð-
um yfirstandandi árs. Kemur þá
fram, að vinnulaun, sem helztu
fyrirtæki á Akureyri greiða, eru
17 milljón kr. hærri en á sama
tíma árið 1967. Sú launahækk-
un hefur að helmingi komið frá
Utgerðarfélagi Akureyringa h.f.
og eru launagreiðslur þar 8.5
millj. kr. hærri en í fyrra. Vinnu
laun í Slippstöðinni hafa einnig
hækkað verulega, eða um 14.5%.
Á sama tíma hafa Sambands-
verksmiðjurnar greitt 35—40
um. Bókin er 450 blaðsíður og
prýða hana 955 mannamyndir.
í lok hvers bindis er ítarleg
mannanafnaskrá og nær hún nú
samanlegt yfir um það bil 16
þúsund nöfn manna, sem getið
er í ritverkinu.
Útgáfa „Vestur-íslenzkra ævi
skráa“ þjónar tvenns konar til-
gangi. Annars vegar er þar skjal
festur og um leið gerður heyrin
kunnur á íslandi nokkur þáttur
af þeirra sögu, sem landar vorir
hafa skapað í Vesturheimi, og
gefið sýnishorn af þeirri þjóð-
félagsaðstöðu, sem þeir hafa
skapað sér, þar sem þar er getið
starfa og stöðu mikils fjölda
manna af íslenzkum stofni. Á
hinn bóginn eiga æviskrárnar
að skapa möguleika á, að koma
á fót beinum persónulegum
kynnum milli manna yfir hafið,
og er útgáfa þeirra einn þáttur
í sköpun nýrra tengsla. □
Stefán Reykjalín.
milljónir króna í vinnulaun.
Sjáum við á þessu hvað verk-
smiðjurnar eru þýðingarmikið
atvinnufyrirtæki í bænum. En
þessir tveir þættir atvinnulífs-
ins, Sambandsverksmiðjurnar
og togaraútgerðin eru svo mikil
vægir fyrir Akureyri, að tæpast
er hægt að hugsa sér afleiðingar
þess,- ef draga þyrfti saman segl-
in á öðrum eða báðum stöðum.
Atvinnumálanefndin tók tog-
araútgerðina sérstaklega til með
ferðar og hafði viðræður með
stjórn Ú. A., einkum til að ræða
möguleika á endurnýjun togar-
anna. Það er von atvinnumála-
nefndar, að takast megi sam-
vinna milli hennar og Ú. A. og
Slippstöðvarinar um athugun á
því, á hvern hátt skipastóll Ú. A.
verði bezt endurnýjaður. En
smíði nýrra togara er nú fram-
kvæmanleg hér í bænum, sem
kunnugt er.
Fram að þessum tíma hefur
ekki borið á teljadi atvinnuleysi
á Akureyri. En veturinn er nú
framundan, sagði ræðumaður.
Það má búast við því, að um
atvinnuleysi verði að ræða, t. d.
í sambandi við byggingariðnað-
inn. Nægilegt húsnæði virðist
nú fyrir hendi í bænum. En ef
hér kæmu upp öflug atvinnu-
fyrirtæki, örfast innflutningur
fólks og húsnæðisþörfin kallar
þá á margar hendur á ný, á
þessu sviði.
Oft er spurt um starfrækslu
Tunnuverksmiðjunnar. Jafnan
hefur gengið seint að fá Sildar-
útvegsnefnd til að taka ákvörð-
un um rekstur þessarar verk-
smiðju hér. Atvinnumálanefnd-
in hefur tekið þetta mál á dag-
skrá og var bæjarstjóra falið, að
vinna að skjótri ákvörðun. Það
hefur oft komið í Ijós, síðast nú
fyrir fáum dögum, er síld tók að
veiðast fyrir sunnan, hvers virði
það er að hafa nokkurt magn af
tunnum hér á Akureyri, til
miðlunar. Tugir bílfarma voru
þá fluttir til Akraness.
Þegar litið er til framtíðarinn
ar, sjáum við nauðsyn þess að
gera allt sem við getum til þess,
að efla iðnað þessa bæjar. Bær-
inn hefur byggst upp af iðnaði
og verzlun og svo hverskonar
þjónu.stustörfum við héraðið.
Akureyri er iðnþróaðasti bær
landsins og er viðurkennt. Við
vonum, að við séum að komast
yfir þær þrengingar, sem undan
farið hafa verið í iðnaðinum og
treystum því, að ríkisstjórnin
sjái að sér og hætti að vinna
gegn iðnaðinum, eins og hún hef
ur óneitanlega gert á undan-
förnum árum. En sjálfir verð-
um við að hafa frumkvæði að
nýjum iðngreinum, jafnframt
því að efla þann iðnað, sem fyrir
er. Sambandsverksmiðjurnar
hafa möguleika á að verða stór
útflutningsfyrirtæki. Hjá þeim
er um stóriðju að ræða, sem
sennilega getur mai'gfaldast. Og
þar er eingöngu unnið úr ís-
lenzku hráefni, þar sem um er
að ræða búvörurnar. Engu að
síður verður að huga að nýju,
sagði ræðumaður og benti á,
að innan skamms gætu Akur-
eyringar þurft að svara þeirri
spurningu, hvort þeir vilji
styðja nýja stóriðju hér, studda
erlendu fjármagni. Spurningin
gæti líka verið um það, hvort
landsbyggðin vill byggja nýjan
Kópavog á Reykjanesskaga eða
skapa vinnandi höndum aðstöðu
á Mið-Norðurlandi, sagði Stefán
Reykjalín bæjarfulltrúi að lok-
um. □
ALFREÐ OG RAGNAR
ERU NÚ EFSTIR
FYRRA þriðjudagskvöld var
spiluð að Bjargi 2. umferð (alls
5 kvöld) í tvímenningskeppni
Bridgefélagsins. Keppnin er nú
þegar orðin hörð og skemmti-
leg. Röð efstu manna er þessi:
1. Alfreð — Ragnar 384
2. Dísa — Mikael 368
3. Jóhannes — Þorsteinn 364
4; Ármann ■ — Jóhann 361
5. Soffía — Angantýr 347
6. Baldur - - Baldvm 344
7. Júlíus — Sveinn 331
8. Guðm. — ■ Haraldur 327
9. Baldur — - Sveinbjörn 326
10. Knútur - - Jóhann 323
11. Frímann — ÞoiTnóður 319
12. Guðjón - - Skarphéðinn 316
13. Páll—Ævar 316
14. Björn — Jóhann 315
að félagsmálum, urðum brátt
stjórnarmeðlimir í íþróttafélag-
inu Þór og unnum saman að mál
um þess upp frá því. Ég var þó
ekki hálfdrættingur á við Jón,
í þeim störfum, því enginn mað
ur hefir setið lengur í stjórn
Þórs en Jón, eða 'hvíldarlítið frá
1934. Ætíð var hann boðinn og
búinn til starfa fyrir það félag
og taldi aldrei eftir þær stundir
er hann fórnaði því.
Við urðum einnig samstarfs-
menn við Kaupfélag Eyfirðinga
um rúmlega 30 ára skeið og auk
þess náin vinátta á milli heimila
okkar, eftir að við stofnuðum
eigin heimili.
Ég tel mig því hafa þekkt Jón
öðrum mönnum betur. Maður-
inn var einstakt prúðmenni í
allri framgöngu, bóngóður með
afbrigðum og hjálpsamur svo
fátítt má teljast. Vinmargur var
hann, enda kom það í ljós við
útför hans sl. laugardag. Fyrir
löng og ljúf kynni er mér ljúft
og skylt að þakka þér, Jón, nú
er leiðir skiljast.
Við söknum þín, gömlu félag-
arnir úr Þór, en við erum allir
á sömu leið, aðeins misjafnlega
langt á veg komnir. Þegar við
hittumst aftur verður fagnaðar-
fundur og þá verður haldinn
fundur í gömlu Þórsstjórninni
og rifjaðar upp gamlar endur-
minningar frá liðnum dögum.
Eftirlifandi ástvinum Jóns
sendi ég mínar alúðarfyllstu
samúðarkveðj ur.
S. B.
TVEIR COÐIR
AÐ NORÐAN
SANA h.f. gaf Golfklúbbi Akur
eyrar tvo bikara er keppa skildi
um í tvíliðaleik. Leiknar voru
18 holur méð fullri forgjöf.
Úrslit urðu þau að Ragnar
Steinbregsson og Sveinbjörn
Sigurðsson sigruðu, léku á 136
höggum nettó. Nr. 2 Frímann
Gunnlaugsson og Sigtryggur
Júlíusson á 137 höggum nettó.
Nr. 3 Jón Guðmundsson og Gest
ur Magnússon á 142 höggum
nettó.
X 31.
Vetraráætlun iunan-
landsflugs FÍ í gildi
HINN 1. okt. sl. gekk vetrar-
áætlun Flugfélags íslands á flug
leiðum innanlands í gildi. Eins
og í áætlun sk. sumars verða
allar ferðir frá Reykjavík flogn-
ar með Friendship skrúfuþot-
um. Allar ferðir frá Reykjavík
eru til eins staðar úti á landi án
viðkomu nema flug til Horna-
fjarðar og Fagurhólsmýrar á
miðvikudögum, sem er sam-
einað.
Bindindisdagurinn 1968
STJÓRN Landssambandsins
gegn áfengisbölinu hefur ákveð
ið, að hinn árlegi og almenni
bindindisdagur skuli vera sunnu
daginn 10. nóvember n. k. Og nú
biðjum við um velvild og aðstoð
blaðanna og annarra góðra
krafta í landinu, til þess að dag-
urinn veki sem allra bezt þjóðar
athygli, svo að öllum geti orðið
Ijós nauðsyn þess að ráðin sé
bót á þeim mikla ófarnaði, sem
áfengisneyzlan veldur þjóðinni.
Við trej'stum því, að félög
áfengisvarnanefnda, stúkurnar
og önnur þau félagasamtök, sem
sérstaklega vinna að uppeldi
æskunnar, bindindi og áfengis-
vörnum, geri sitt ítrasta til þess
að bindindisdagurinn verði
áhrifamikill og nái tilgangi sín-
um. Við treystum sérstaklega
prestum landsins til að nota sín
góðu tækifæri í ræðustólnum
sunnudaginn 10. nóvember, til
þess að minna þjóðina á, að af-
leiðingar áfengisneyzlunnar er
eitt allra sárasta mein þjóðar-
innar.
Og nú einu sinni enn biðjum
við um samhug og samstarf
allrar þjóðarinnar í þessum efn-
um. Með samtakamætti er unnt
að koma miklu góðu til vegar.
Munið bindindisdaginn 10. nóv-
ember n. k.
Undirbúningsnefndin.
- A MOTIÖLINU
(Framhald af blaðsíðu 2).
Landssambandið gegn áfengis
bölinu hefur nú ákveðið að 10.
nóv. n. k. verði almennur bind-
indisdagur. Munu þessi vanda-
mál þá vreða tekin til meðferðar
í blöðum og útvarpi. □
Önnur DC-3 flugvél Flugfé-
lagsins mun áfram verða stað-
sett á Akureyri og annast flug
til staða á Norð-Austurlandi í
framhaldi af flugi frá Reykja-
vík. Ennfremur verður flugvél-
in í ferðum milli Akureyrar og
Egilsstaða.
Flug frá Reykjavík til ein-
stakra staða verður sem hér
segir:
Til Akureyrar verða tvær
ferðir alla virka daga og ein
ferð á sunnudögum.
Til Vestmannaeyja verða
tvær ferðir mánudaga, þriðju-
daga, fimmtudaga, föstudaga og
laugardaga, en ein ferð á mið-
vikudögum og sunnudögum.
Til Egilsstaða verða ferðir alla
virka daga.
Til ísafjarðar verða ferðir
virka daga og á sunnudögum til
27. október.
Til Sauðárkróks verður flogið
á þriðjudögum, fimmtudögum
og laugardögum.
Til Húsavíkur á mánudögum,
miðvikudögum og föstudögum.
Til Fagurhólsmýrar á mið-
vikudögum og til Hornafjarðar
á mánudögum, miðvikudögum
og föstudögum.
í framhaldi af flugi frá Reykja
vík verða ferðir frá Akureyri til
Raufarhafnar og Þórshafnar á
mánudögum, miðvikudögum og
föstudögum. Ennfremur verða
ferðir milli Akureyrar og Egils-
staða á mánudögum og föstu-
dögum. □
Þróttmikið starf kirkjulegra æslculýðssam-
taka á Norðurlandi
FRA 9. AÐALFUNDI Æ.S.K. í HÓLASTIFTI
Byggja sumarbúðir fyrir milljónir króna, reka
bókaútgáfu og bréfaskóla, gefa út hljómplötu,
Æskulýðsblaðið, auglýsingablað og jólakort
ÆSKULÝÐSSAMBAND kirkj-
unnar í Hólastifti hélt 9. aðal-
fund sinn á Ólafsfirði dagana 7.
og 8. sept. sl. Fundinn sóttu um
50 fulltrúar, þar af 14 prestai'.
Fundurinn var haldinn í boði
Ólafsfjarðarsafnaðar og fóru
fundarstörf fram í skólahúsinu
á staðnum.
í skýrslu formanns, sr. Pétui'S
Sigurgeirssonar, og hinna ýmsu
nefnda, er bei-a uppi starf sam-
bandsins, kom í Ijós, að starfið
hefur enn vaxið að mun og er
í miklum blóma. Nýr svefnskáli
hefur verið reistur við Vest-
mannsvatn og rúmar hann 26
manns í 2ja manna hei'bergjum.
Auk þess er hei'bei'gi fyrir um-
sjónai-mann, snyi'ting, dagstofa
o. fl. Hefur aðstaða öll, bæði
fyrir börn í sumardvöl og annað
starf, batnað að mun. Skapast
nú einnig aðstaða til skóla- og
námskeiðahalds á vetrum.
Bókaútgáfa sambandsins gaf
á starfsárinu út 4. bók sína,
Sólrún og sonur vitavai'ðarins,
eftir sr. Jón Kr. ísfeld. Einnig
gaf sambandið út í samvinnu
við Fálkann h.f. sína fyrstu
hljómplötu. Hlaut hún nafnið
Jólavaka, en á henni flytja börn
jólaguðspjallið og jólasöngva
undir stjórn Birgis Helgasonar,
Akureyri. Er þarna um mex-kan
atburð að ræða, er fyrsta lxljóm
platan kemur út á vegum kirkj-
unnar, en erlendis notar kirkjan
þær mikið í boðun sinni og
starfi.
Æskulýðsblaðið kemur nú aft
ur út, og hefur ÆSK tekið við
útgáfunni af æskulýðsnefnd
kix-kjunnar. Ritstjóri er sr. Bolli
Gústafsson.
Bréfaskóli ÆSK er orðinn
mjög vinsæll til sveita, þar sem
sunnudagaskólastai'fi verður
ekki við komið. Honum stjórn-
ar sr. Jón Kr. ísfeld.
Til fjáröflunar voru gefin út
jólakort, sem seldust vel. Merki
voru seld og tekin samskot á
æskulýðsdaginn. Einnig var gef
ið út auglýsingablaðið Noi'ðlend
ingui'. Sambandið naut einnig
nokkurra styrkja frá Alþingi,
bæjarfélögum og félagasamtök-
um. Alls námu tekjur sambands
ins um 665 þús. kr. á árinu.
í athugun er, hvort unnt reyn
ist að stofna til skólahalds á
Vestmannsvatni á vetri kom-
anda í samvinnu við Hólafélagið.
Efnt var til ritgerðarsam-
keppni um gildi fermingarinnar.
Þátttaka var góð og þrenn verð
laun veitt. Foringjanámskeið
var haldið fyrir stjórnir æsku-
lýðsfélaganna, einnig voru hald
in fei'mingai'barnamót og al-
mermt æskulýðsmót.
Aðalmál fundarins var stax'f
unga fólksins innan kii'kjunnar.
Framsögumenn voru Ingibjöi'g
Siglaugsdóttir og sr. Birgir Snæ
björnsson, Akureyri. Málið var
síðan rætt í umræðuhópum.
Margt kom þar fram athyglis-
vert. M. a. taldi einn hópui'inn,
að margir foreldrar brygðust í
uppeldishlutverki sínu. Þeir
töluðu aldi’ei um trúmál við
'börn sín, og yfii'leitt væri sam-
bandið þeirra á milli ekki nógu
gott og náið. En í öllu ungu fólki
býr dulin þrá til að ræða trú-
mál og önnur alvarleg mál. Þeg-
ar foreldrarnir bragðast þarna,
skoi'tir tengiliðinn milli unga
fólksins og kirkjunnar. Einnig
kom mjög skýrt fram, að unga
fólkið vill starfa í kii-kjunni, en
það vill þar sem annarsstaðar
hugsa sjálfstætt og reyna nýjar
leiðir.
Ýmsar tillögur voru sam-
þykktar um innri mál sambands
ins, ennfremur þessar tvær:
Aðalfundur ÆSK hvetur
presta þjóðkii'kjunnar og söfn-
uði til að rækja trú sína og
rækta með reglulegri altaris-
göngum en tíðkast hafa innan
kirkjunnar síðustu áratugi.
Aðalfundur ÆSK vill hvetja
þjóðina til meiri samheldni og
árvekni í trú sinni og þjónustu.
Fundurinn væntir þess af for-
eldrum og uppalendum öðrum,
að þeir gegni þeirri heilögu
skyldu að kenna hinum yngri
veg trúrækni og innræta þeim
kristilegar dyggðir í daglegri
breytni. Á hættufullum tímum
og viðsjárvei’ðum kemur skýr-
ast í Ijós, vernd kii'kjunnar og
blessun til að vera þegnum þjóð
arinnar styi'kur í lífsbaráttunni.
Því vill fundurinn hvetja öll
landsins börn yngri sem eldri til
að fylkja sér saman í kii'kju ís-
lands til vöku í bæn sinni og
guðsþjónustu safnaðarins.
í sambandi við fundinn var
haldið kii-kjukvöld í Ólafsfjai'ð-
ai’kirkju laugardagskvöldið, en
kl. 2 á sunnudag var messað.
Sr. Sigurður Guðmundsson á
Gi'enjaðai’stað predikaði, en sr.
Ingþór Indriðason á Ólafsfirði
og sr. Þórir Stephensen á Sauð-
árkróki þjónuðu fyrir altari.
Um 60 manns gengu til altaris í
messunni, flest ungt fólk. Að
messu lokinni var fundinum slit
ið í hófi, er Ólafsfjarðarsöfnuð-
ur hélt fundarmönnum í félags-
heimilinu Tjarnarborg. Þar
voru Ólafsfirðingum einnig
þakkaðar rausnarlegar móttök-
ur og höfðingleg gestrisni.
Stjórn ÆSK í Hólastifti skipa:
Sr. Pétur Sigurgeirsson, Akur-
eyi'i, sr. Sigurður Guðmunds-
son, Grenjaðarstað, sr. Þórir
Stephensen, Sauðárkróki, Guð-
mundur G. Arthúrsson, skrif-
stofum., Akureyri og Sigurður
Sigurðsson, verzlunarm., Akur-
eyri. Varamenn: Sr. Bolli Gúst-
afsson, Laufási, sr. Birgir Snæ-
björnsson, Akureyri og Þor-
valdur Kristinsson, stud. ai't.,
Akureyri. (Fréttatilkynning)
- SÉRSTAKT BLAÐ
(Framhald af blaðsíðu 1).
kerfi, bygging gagnfræðaskóla
og læknisbústaðar, skipulags-
framkvæmdir o. fl. Á allt þetta
er drepið í Bæjarfréttum og
rætt þar á hófsaman og áreytnis
lausan hátt en blaðið er ritað af
bæjarfulltrúum Framsóknar-
flokksins, þeim Guðjóni Ingi-
mundarsyni, Marteini Friðriks-
syni og Stefáni Guðmundssyni.
Útkoma blaðsins verður ekki
reglubundin heldur „fer eftir
því, sem ástæður þykja til“. „
mhg—i |