Dagur - 30.10.1968, Page 8
í 8
l
Tryggvi Helgason hjá nýuppgerðri flugvél sinni. (Ljósm.: E. D.)
Flugvél endurbætt á Akureyri
SMATT & STORT
HIÐ ÓMÖGULEGA
TRYGGVI HELGASON flug-
maður á Akureyri bauð nýlega
fréttamönnum nyrðra í flugferð
um nágrennið í endurbættri
Beeckraft-flugvél sinni, sem um
tveggja ára skeið hefur verið
gerð upp og endurbætt af hon-
um og starfsmönnum hans. En
það var árið 1964, sem Tryggvi
safnsins á Akureyri verður vígð
laugardaginn 9. nóvember n. k.
Athöfnin hefst í bókhlöðunni,
HERRA Páll páfi sjötti hefur
veitt íslandi þann heiður, að
endurreisa hér á landi fyllilegan
kaþólskan biskupsdóm, eins og
j Aðalheiður Guðmundsdóttir
KIRKJUTÓNLEIKAR
Á AKUREYRI
AÐALHEIÐUR Guðmundsdótt
ir, söngkona, mun halda tón-
leika í Akureyrarkirkju, sunnu-
daginn 3. nóvember kl. 21.
Á söngskránni eru m. a. sex
andleg ljóð eftir Beethoven við
texta eftir Gellert, en þessi
fagri ljóðaflokkur hefur sjaldan
verið fluttur hér á landi áður.
Páll Kr. Pálsson, organleikari,
leikur með á orgel.
Aðalheiður hefur sérstaklega
lagt stund á kirkjulega tónlist
og ljóðasöng. □
H ANDKN ATTLEIKSDEILD
KA á Akureyri hefur boðið
hingað Fimleikafélagi Hafnar-
fjarðar — FH — til að keppa
við í handknattleik.
Leikirnir fara fram í íþrótta-
skemmunni — hinn fyrri á laug
keypti tvær notaðar Beeckraft
C-45 H-flugvélar vestan hafs og
hefur önnur verið í notkun. Sú
flugvél fer nú í skoðun, en hin
nýuppgerða flugvél kemur til
nota í staðinn. Vélin tekur nú
9—10 farþega, hreyflar hennar
eru nýir, útblásturskerfi hreyfl-
anna hefur verið breytt, stélhjól
er heimill aðgangur meðan hús-
rúm leyfir.
Að lokinni vígsluathöfn mun
áður var, með því að stofna
Reykjavíkurbiskupsdæmi, sem
nær yfir landið allt, eins og seg-
ir í fréttatilkynningu. Hefur páf
inn þá um leið útnefnt hans
herradóm Hinrik Freher, sem
fyrsta biskup þessa íslenzka
biskupsdæmis. Hann er 51 árs
að aldri, tungumálagarpur mik-
ill og góður. kennari. Hann hef-
,ur, þar til nú, verið yfirmaður
stofnunar þeirrar í Rómaborg,
er hefur með að gera að rann-
saka og kenna fræði þau öll,
sem snerta heiður og vegsemd
þá, er ber Maríu Guðsmóður.
FRÁ SIíÁKFÉLAGI
AKUREYRAR
HAUSTMÓT Skákfélags Akur-
eyrar hófst sl. mánudagskvöld.
Þátttakendur eru 11 í meistara-
flokki og 9 í fyrsta flokki.
Urslit fyrstu umferðar í meist'
araflokki urðu þessi:
Jón Björgvinsson vann Hauk
Jónsson, Jóhann Snorrason
vann Ármann Búason, Halldór
Jónsson vann Þorgeir Stein-
grímsson, Jón Ingimarsson vann
Guðmund Búason og Oddur
Árnason vann Hrein Hrafnsson.
Kristin Jónsson átti frí.
Næsta umferð verður tefld í
kvöld, miðvikudag, kl. 8 e. h. í
Alþýðuhúsinu. Menn eru hvatt-
ir til að koma og sjá spennandi
keppni. □
DAGUR kemur næst út mið-
vikudaginn 6. nóvember.
ardag kl. 4, en síðari leikurinn
fer fram á sunnudaginn kl. 2.
í liði FH eru 5 keppendur,
sem verið hafa í landsliðinu,
iþeir Geir, Om, Birgir, Auðunn
og Hjalti. □
hækkað, vöruflutningahurð sett
á hana, afstöðu vængja og stéls
breytt o. s. frv. Vélin hefur nú
meiri flughraða en áður og er
auðveldari í stjórn. Allar eru
breytingar þessar gerðar í sam-
ráði við flugvélaverkfræðing en
framkvæmdar af heimamönn-
um. □
bæjarstjórn bjóða nokkrum gest
um til fagnaðar í Landsbanka-
salnum kl. 4 síðdegis, en bók-
hlaðan verður öllum opin til
sýnis (ekki útlána) til kl. 7 e. h.
sama dag. Starfsemi bókasafns-
ins hefst svo með venjulegum
hætti kl. 1 e. h. mánudaginn 4.
nóvember. □
Á MORGUN, fimmtudaginn 31.
október, flytur sendiherra
Bandaríkjanna hér á landi ræðu
í Sjálfstæðishúsinu á Akureyri
kl. 8.30 e. h. og eru allir boðnir
velkomnir á meðan húsrúm
leyfir, án inngangseyris. Stuttur
útdráttur ræðunnar verður þar
fluttur á eftir á íslenzku og ein-
hver skemmtiatriði fara fram.
Ræðan fjallar um forsetakosn-
ingarnar í Bandaríkjunum.
Sendiherrann heitir Karl
Fritjof Rolvaag, er norskur að
ætt, var í landher Bandaríkj-
Enn hefur það skeð í íþrótta-
keppni, að þau afrek eru unnin,
sem vísindamenn hafa ekki tal-
ið möguleg. En þar er átt við
afrek Olympíuleikanna, sem í
ýmsum greinum taka hinum
fyrri langt fram. í þessu sam-
bandi hafa hormónagjafir orðið
umræðuefni til skýringar og
undrataflan emdabol, sem er
næringarlyf, og inniheldur
vissa hormóna, sem mjög
þroska vöðvabyggingu manna.
íslendingar hafa víst ekki neytt
þessara lyfja!
HÓPHJÓNABÖND
Danski þingmaðurinn Paul Dam
hefur lagt fram frumvarp, sem
gerir ráð fyrir hóphjónabönd-
um og systkinahjónaböndum. í
hóphjónaböndum er gengið út
frá því, að hópur karla og
kvenna búi saman, konurnar
séu „allra eign“ í kynferðislegu
tilliti og öfugt. Frumvarpið hef-
ur valdið fjölþættum umræðum,
en ekki er því spáð sigri.
SKERA OG SKERA
Á tveggja ára afmæli hringorms
ins við Eyjafjörð nú í haust var
enn beitt sömu aðferðum og
áður í baráttunni. Fé á Dvergs-
stöðum í Hrafnagilshreppi og
Moldhaugum í Glæsibæjar-
hreppi var lógað en kýrnar sett-
anna, sæmdur Silfurstjörnunni
fyrir vasklega framgöngu, varð
ríkisstjóri í Minnesota um skeið.
Karl Fretjof er hálf sextugur
að aldri og hefur gegnt sendi-
herraembætti hér á landi frá
1967. Kona hans er f-rá Texas,
Florenee A. Boedeker og kemur
hún með manni sínum hingað.
Það er íslenzk-ameríska fé-
lagið, sem gengst fyrir þessu
fræðslu- og skemmtikvöldi, en
formaður þess er Ragnar Stef-
ánsson menntaskólakennari. □
ar á. Sauðfé er nær ónæmt fyrir
sjúkdómi þessum og hefur ekki
til þessa fundizt hringormasjúk
kind á sláturhúsi hér, en naut-
gripirnir næmir fyrir veikinni.
Ef kappkosta ætti, að breiða
veikina út, mætti segja, að sæmi
lega væri að unnið.
EINKENNILEG VINNU-
BRÖGÐ
Blaðinu hefur verið tjáð, að
sami maður gegni fjósamanns-
starfi innan varnargirðingar á
Grund í Eyjafirði og bæ einum
utan girðmgar, þar sem nefndr-
ar veiki hefur ekki orðið vart.
Mætti fremur telja slíkt til út-
breiðslustarfsemi en varna, ef
rétt er. Varnarkákið í Eyjafirði
fer nú senn að kosta eins mikið
■og niðurskurður alls búpenings
á sýktum bæjum hefði kostað í
upphafi!
MAGNÚS OG
„TREGÐULÖGMÁLIГ
Fyrir 10 árum talaði Magnús
Jónsson um það, skýrt og skil-
merkilega á Alþingi, að sparn-
aður á ríkisfé væri mest undir
fjármálaráðherranum kominn.
Hann er nú búinn að vera fjár-
málaráðherra í þrjú ár og hefur
margan skattinn hækkað, svo
um munar og bætt nýjum við.
En sparnaðarloforðin 59, sem
hann gaf út í félagi við Gunnar
Thoroddsen, eru nú flest ónot-
aðir fomgripir í skjalasafni ríkis
ins. í fjárlagaræðunni í vikunni
sem leið, sagði Magnús sínar far
ir ekki sléttar og nefndi dæmi.
Hann sagðist hafa gefið fyrir-
mæli um allmikinn sparnað í til
tekinni ríkisstofnun, en engin
framkvæmd á orðið. Stafaði
það, sagði liann, að einhverju
„óskiljanlegu tregðulögmáli“.
HÆFNI RÁÐHERRA
En ber það ekki einmitt vott um
hæfni fjármálaráðherra, hvernig
honum gengur að fást við
„tregðulögmálið“? Er það ekki
heldur sjaldgæft, að þeir sem
eyða ríkisfé, komi til fjármála-
ráðherrans og bjóðist til að
spara?
ANNÁLL
Halldór E. Sigurðsson lýsti
vinnubrögðum stjórnarinnar 11
síðustu mánuði á þessa leið í
umræðum á Alþingi um nýja
fjárlagafrumvárpið:
Nóvember 1967: Gengisbreyt-
ing, sögð sérlega vel undirbúin.
Desember ’67: Fjárlagaaf-
greiðsla. Tollalækkun um 250
milljónir boðuð síðar.
Janúar ’68: Uppbótakerfið
aukið um 320 millj. ofan á geng-
islækkunina.
Febrúar ’68: Tollalækkunin
var aðeins 160 milljónir í stað-
inn fyrir 250 milljónir.
Marz ’68: Hækkun á tekju-
stofnum, áfengi, tóbak og fl. og
fl., frestun ríkisútgjalda til fram
kvæmda, stofnað til nýrrar lán-
töku vegna ríkisútgjalda.
Apríl: Skattahækkun vegna
vegamála 160—190 millj.
Maí—júní: Síldarvíxillinn
samþykktur, fjárhæð ókunn.
(Frámhald á blaðsíðu 4)
Bókhlaðan verður vígð 9. nóvember
HIN NÝJA bókhlaða Amtsbóka Brekkugötu 17, kl. 2 e. h. Öllum
Kaþólskur biskupsstóli á ný í Rvík
FH leikur tvo leiki á Akureyri
Sendiherrahjónin, Karl Fritjof og frú.
SENDIHERRA BANDARÍKJANNA Á ÍSLANDI
talar um forsetakosn
ingarnar á morgun