Dagur - 15.01.1969, Page 7
7
SMÁTT & STÓRT
- SAMNINGAR
(Framhald af blaðsíðu 1).
atvinnuvegirnir fái aukið rekstr
arfé til að mæta kostnaðaraukn
ingunni vegna gengisfellingar-
innar. Ennfremur að leysa
vanda útgerðar á þann Veg, að
hún geti hafist. í þriðja lagi eru
svo málefni iðnaðarins, sem
verður að sinna á þann veg, að
hann geti gengið með eðlilegum
hætti.
Loks ber svo að geta um at-
vinnunefndakerfi, sem við
berjumst fyrir að komið verði
upp og að það fái fjárráð og
framkvæmdavald.
Sennilega eru um 4 þús.
manns atvinnulausir í landinu
nú og þarf að hverfa aftur til
kreppuáranna milli 1930 og 1940
til að finna einhverja hliðstæðu,
sagði Björn Jónsson að lokum
og þakkar blaðið þessar gfeinar
góðu upplýsingar. □
(Framhald af blaðsíðu 8).
eitt Akureyrarblaðið með tölu-
legum rökum, að það þætti
árangursríkt að auglýsa í Degi
en árangurslítið að auglýsa í fs-
lendingi—fsafold. En í hvaða
blaði var þetta rökstutt svona
rækilega? Þótt óírúlegt megi
virðast, var það gert í biaðinu
•íslendingi—ísafold og til þess
varið meira en þriðjungi úr síðu,
ásamt illyrðum um samvinnu-
hreyfinguna.
LÉLEG FRAMMISTAÐA
í sama blaði er álíka löng grein
um deyfð og úrræðaleysi bæjar-
stjórnar á Akureyri. Ef ritstjóri
íslendings—ísafoklar hefur
frammistöðu sinna manna í
huga, er von hann óttist um mál
efni bæjarfélagsins, og veit a.
m. k., að bjargráðin koma ekki
frá þeim. Sjálfstæðismenn kusu
í Vfejarstjórn Jón Þorvalds-
son, Árna Jónsson og Jón Sól-
nes. Tveir þeir fyrmefndu eru
týndir úr bæjarstjórninni, hvor
með sínum hætti, og það sem
þeim þykir þó enn verra: Sá
þriðji siíur þar ennþá. Það er
von, að ýmsir Sjálfstæðismenn
horfi döprum augum fram á veg
inn þegar svona illa tekst til hjá
þeim. Að hinu skulu menn þá
einnig hyggja, að málefni þjóðar
og bæjarfélaga eru svo nátengd
í efnaliags- og atvinnumálum,
að ekki er að undra, eins og
þeim málefnum þjóðarinnar er
komið, að hér sé einnig þungt
fyrir fæti.
KARLMANNLEGA TEKIÐ
A MÁLUM
Það hefur vakið almenna
ánægju að forráðamenn Sam-
bandsins brugðust fljótt og
drengilega við eftir bruna verk-
smiðjanna á Akureyri 3. og 4.
jan. sl. Þeir ákváðu að byggja
verksmiðjurnar upp að nýju,
bæði stærri og fullkomnari en
þær áður voru. Og það eru fleiri
en liinir óbreyttu borgarar, sem
þessu fagna. Iðnaðarmálaráð-
herra landsins mælti m. a. svo
í blaðaviðtali fáum dögurn síðar:
„Mér þykja ólik viðbrögð stjórn
ar Meistarafélags járniðnaðar-
manna (í Reykjavík, sem vilja
selja vélar sínar úr landi) og
forráðamanna SÍS, sem hafa af
mikilli karlmennsku og festu
brugðizt við þegar fyrirtæki
þess á Akureyri varð fyrir hin-
um gífurlega eldsvoða nýlega.
Það hefur verið ákveðið að brjót
ast áfram og byggja upp aftur“.
TVÆR RÆÐUR VÖKTU
ATHYGLI
Ræður tveggja manna á ný-
byrjuðu ári hafa orðið mörgum
umhugsunrefni. Þessar ræður
fluttu fórsætisráðlierrann,
Bjarni Benediktsson, og forseti
íslands dr. Kristján Eldjárn.
Ræðu forsætisráðherra hafa
sumir Iiaft í flhntmgum og er
það illa gert, þótt menn yrðu
fyrir vonbrigðum. Nýársræða
forsetans hefur aftur á móti orð
ið mönnum því hugstæðari, sem
hún er betur athuguð. Hún var
yfirlætislaus og í senn viturleg
og þjóðleg. Þótt hún hafi áður
birzt í blöðum, þykir Degi sér-
stök ástæða til að birta hana í
lieild, með þeirri ósk, að hún
verði lesin og hugleidd í góðu
tómi, sem nýr og mikilvægur
boðskapur hins nýja þjóðhöfð-
ingja.
ÞRfR GÓÐIR FUNDIR
Á AKUREYRI
Fundur knattspyrnuunnenda
með Albert Guðmundssyni á
laugardaginn, var sérstæður og
eftirminnilegur. Bar tvennt til.
Stjórn þess fundar fór fram
með nýjum hætti og rætt var
um knattspymu frá nýjum
sjónarhóli.
Afmælishóf, sem Bernharði
Stefánssyni var haldið 8. jan.
var án víns og alveg óvenjulegg
ánægjuleg samkoma.
Þá minntust templarar á Ak-
ureyri þess 10. janúar, að 80 ár
voru liðin frá stofnun fyrstu
stúkunnar hér á landi, en hún
var stofnúð í Friðbjarnarhúsi á
Akureyri. Var þá „opið hús“ í
Varðborg og komu þangáð ýms-
ir gestir.
- Vegir greiðfærir
(Framhald af blaðsíðu 8).
Reykjavík er góður éins og er.
Stærri bílum er fært til Húsa
víkur og allt til Kópaskers, en
þó er færi að þyngjast á Tjör-
nesi. Þá er einnig fært til Mý-
vatnssveitar. Vaðlaheiði og
Fljótsheiði munu ekki hafa ver
ið farnar síðan fyrir helgi, enda
hægt að sneiða fyrir þær báðar.
Svellbólstrar eru á nokkrum
stöðum og eru þeir hættulegir,
eins og ætíð. □
§ ?
* Hjartanlegar þakkir flyt ég öllum þeim mörgu, ©
© körltéfn og konum, víðsvegar um land, sem sýndu *
|c mér vináttu og glöddu mig á áttrceðisafmceli minu |
f 8. þ. m. . t
f Sérstakar alúðar þakkir flyt ég Framsóknarfélög- f
® unurn i Eyjafjarðarsýslu og á Akureyri, Kaupfé- £
X lagi Eyfirðinga og Ungmennasambandi Eyja- -v
$ fjarðar, fyrir veglegt samsœti, sem mér og fjöl- 't
skyldu minni var haldið og ágcetar gjafir frá 4
I þeim. . |
Bið ykkur öllum, okkar fagra héraði, íslandi og i_
I islenzku þjóðinni allrar blessunar. ©
BERNHARÐ STEFANSSON.
©
-v
©
4
©
4-
Kcerar þakkir fyrir gjafir, heimsóknir og góðar
kveðjur á 75 ára afmceli rnifiu þann 10. þ. m.
STEFÁN BJARMAN.
Hugheilar þakkir fceri ég öllum þeim sem glöddu f
mig með gjöfíim og hcillaóskum á nírceðisafmceli ¥
minu þann 14. desemebr s.l. t
Guð gefi ykk'úr öl'lum gcef urikt ár.
JÓN BALDVINSSON, |
Hjarðarliolli. ?
t
^S-©-V'*S-©'í'*S-©-i'*S-©-5'^S-©-V-*S-©-í'*S-©-í'*S-©-VíiiS-©S'*S-©-V'*^-g ©
Mccðrastyrksnefnd vill þakka bcejarbúum, fyrir- ¥
tcekjum og skátafélögurmm. framlag þeirra og í
margháttaðan stuðning við söfnunina. í
Jafnframt óskar nefndin öiluni bcejarbúum árs og Í
friðar á nýbyrjuðu ári. %
MÆÐRASTYRKSNEFND AKUREYRAR. t
© ‘©-V*S-©-V*S-©^*S-©-V?^S-©-Víi'cS-©-V#S-©-VíSS-©-V*'V©-V*-S.©-V*s-©-í'l f
Í — f
X Kcerar þakkir til lcekna og hjúkrunarkvenna á Í
,t Sjúkrahúsinu á Akureyri. Einnig þakka ég heim- %
£ sóknir og gjafir. Ennfremnr Aðalgeir minum, er ^
i oft fœrði mér jólaþóstiyin, Jóni frá Helluvaði, ©
© Guðlaugu og Kristjáni þakka ég orgelspil og söng
og öllum öðrum góða viðkynningu. f
© Sérstaklega þakka ég Magnúsi Asmundssyni, jj
f lcekni, fyrir einstceða lipurð og nærgœtni i véik- f
© indum rríinum. %
Guð blessi 'ykkur öll. ®
| SIGFRÍÐUR ÁRNADÓTTIR, ©
4 Gránufélagsgötu 43, Akureyri. f
t ©
^S-©'i'«-S-©-i'-SJS-©-i'51;-S-©-í'7ÍVS-©-í'-*S-©-!'?i'cS-©-5'Si'cS-©S'^©-i'i!C-S-©-i'í^!-©-í'í!:-S-©<
m HULD 59691157 VI. 2 .
I.O.O.F. — 1501178V2
MESSAÐ verður í Lögmanns-
hlíðarkirkju n. k. sunnudag
kl. 2 e. h. Sálmar: 577 — 327
— 303 — 201 — 681. Bílferð
verður úr Glerárhverfi kl.
1.30. — B. S.
MESSAÐ í Akureyrarkirkju kl.
2 e. h. á sunnudaginn kemur.
Sálmar nr. 497 — 577 — 107
— 303 — 153. — P. S.
MÖÐRUV ALL AKL AUSTURS -
PRESTAKALL. Glæsibæjar-
kirkja: Guðsþjónusta sunnu-
daginn 19. janúar kl. 2. e. h.
Möðruvallakirkja: Safnaðar-
kvöld sunnudaginn 19. janúar
kl. 9 e. h. Ingibjörg Svava
Siglaugsdóttir flytur erindi
um störf unga fólksins innan
kirkjunnar og sýnir myndir
frá dvöl sinni sem „skipti-
nema“ í Ameríku. Almennur
safnaðarsöngur. — Sóknar-
prestur.
AÐALFUNDUR KFUM verður
föstudaginn 24. jan. kl. 8.30
e. h. í Zion. Venjuleg aðal-
fundarstörf. — Stjórnin.
KRISTNIBOÐSHÚSIÐ ZION.
Sunnudaginn 19. jan. hefur
Kristniboðsfélag kvenna sam-
komu kl. 8.30 e. h. M. a. verð-
ur lesin frásaga um neyð
heiðingjans og starfsemi
kristniboðans, einnig lesinn
reikningur kristniboðssjóðs.
Komið og heyrið hvernig
Guðs blessun hvílir yfir starf-
inu. Tekið á móti gjöfum til
ki'istniboðsins í Konsó. Allh'
hjartanlega velkomnir. —
Sunnudagaskóli kl. 11 f. h.
FRÁ starfinu á SJÓNARHÆÐ.
Sunnudagaskóli kl. 1.30 e. h.
Öll börn velkomin. Almenn
samkoma kl. 5 e. h. Allir vel-
komnir. Mánudagur. Drengja
fundur- kl. 5.30 e. h. Allir
drengir velkomnir. Þriðjudag
ur. Telpnafundur kl. 5.30 e. h.
Allar telpur velkomnar.
SAMKOMUR votta Jehóva.
Föstudaginn 17. jan. kl. 20.20,
Guð getur ekki farið með- lygi,
kvikmyndasýning að Bjargi,
Hvannavöllum 10. Laugardag
inn 18. jan. kl. 20.30, samkoma
að Kaupvangsstræti 4, II hæð.
Sunnudaginn 19. jan. kl. 16,
„Orsök eilífrar gleði“, opin-
ber fyrirlestur fluttur af Kjell
Geelnard, fulltrúa Varðturns
félagsins að Kaupvangsstræti
4, II hæð. Samkomurnar eru
opinberar og allir velkomnir.
Aðgangur ókeypis.
SKOTFÉLAGAR. Æfing á föstu
daginn kl. 8.15 til 9.15. Ath.
breyttan æfingatíma.
HJÓNAEFNI. Á gamlársdag
opinberuðu trúlofun sína ung
frú Jóna Friðfinnsdóttir, Sæ-
borg, Akureyri og Árni Páls-
son rafvh'kjanemi, Raufar-
höfn.
MALFUNDUR fyrir
allar deildir kl. 8 í
kvöld (miðvikudags-
kvöld). Rætt um félags
starfið. Fjölmennið — Stjórn-
DREN G J ADEILD! — Fundur
fimmtudagskvöld kl. 8
I.O.G.T. st. Ísafold-Fjallkonan
nr. 1. Fundur íimmtudaginn
16. þ. m. í Alþýðuhúsinu kl.
8.30 e. h. Fundarefni: Vígsla
nýliða, kosning embættis-
manna, önnur mál. — Æ.t.
SLYSAVARNAKONUR Akur-
eyri. Fjáröflunardagur deild-
arinnar er 2. febrúar. —
Nefndirnar.
SLYS AV ARN ADEILDINNI
hafa borizt kr. 1000 frá félags
konu. — Beztu þakkir. —
Sesselja Eldjárn.
FRÁ stjórn Elliheimilis Akur-
eyrar. Nýlega barst bygginga-
sjóði Elliheimilis Akureyrar
kr. 100.000.00, eitt hundrað
þúsund — að gjöf frá Krist-
björgu Sigurðardóttur og
Steindói'i Pálmasyni, Hvanna
völlum 4, Akureyri. Stjórn
Elliheimilisins færir gefend-
um hjartanlegar þakkir fyrir
þessa höfðinglegu gjöf. —•
Fyrir jólahátíðina barst vist-
fólki Elliheimilisins fjöldi
gjafa frá einstaklingum og fé-
lögum, og ýmislegt var gert
vistfólki til ánægju og dægra-
styttingar. Stjórn Elliheimilis
ins færir öllum þeim, sem að
þessu hafa unnið, alúðarþakk-
ir fyrir góðvild og fórnfýsi í
garð vistfólks og stofnunar-
innar.
LEIÐRÉTTING. Leið prentvilla
var í niðurlagsorðum Stefáns
Valgeirssonar alþingismanns í
síðasta tölublaði, þar sem
hann ritaði um Bemharð
Stefánsson áttræðan. En þar
stendur illilegustu, í stað inni-
legustu og leiðréttist þetta
hér með.
LIONSKLÚBBURINN
HUGINN. — Fundur
fimmtudaginn 16. þ. m.
kl. 12.00 að Hótel KEA.
MINNINGARSPJÖLD Fjórð-
xmgssjúkraliússms fást í bóka
verzl. Bókval.
ÞÝZK-fSLENZKA félagið. Les
stofan opin alla föstudaga kl.
8—10 og á laugardögum eftir
samkomulagi.
JUVEL
hrökkbrauð
ÓDÝRT
KJÖRBÚÐIR KEA