Dagur - 19.03.1969, Page 1

Dagur - 19.03.1969, Page 1
FIL.MU HÚSIÐ Hafnarstræti 104 Akureyri Simi 12771 • P.O. Box 397 SERVERZLUN: LJÖSMYNDAVÖRUR FRAMKÖLLUN - KOPIERING Margar auðlindir ennþá ónýttar JAKOB JAKOBSSON fiski- fræðingur ritar í síðasta hefti Ægis grein, er hann nefnir Bræðslufisk. Bendir hann þar fyrst á loðnuna, sem að vísu er nytjafiskur en alltof lítið er vit- að um, nema að hún gengur í stórum torfum að landinu fyrri hlut'a árs og er þá veidd í bræðslu og ögn til beitu. En lítt hefur verið fylgzt með loðnu göngum ennþá. Telur fiskifræð ingurinn, að unnt sé að lengja veiðitíma til mikilla muna, eða byrja loðnuveiðarnar tveim mánuðum fyrr en nú er gert. Spærlingurinn heldur sig nokkru sunnar en loðnan, en Útsgöniufé í Eyjafjarðardöium Á SUNNUDAGINN fóru tveir menn frá Akureyri, þeir Stefán Sveinsson og Sigþór Þorgríms- son, í kindaleit í Eyjafirði. En ær annars þeirra, sem sást í haust og í vetur er óheimt enn- þá. Var þó gerð leit að henni um mánaðamót janúar—febrú- ar, sást þá enn en náðist ekki því hún fór’ upp í ógenga kletta í Hraungerðisdal er hún varð manna vör. Lömb hennar náð- ust í haust. Á sunnudaginn fóru þeir fé- lagar upp með Finnastaðaá, rákust þar á kindaslóðir, röktu þær og handsömuðu þrjár kind ur í Grundarfjalli. Var það ær með tvo dilka sína með marki Kristins bónda á Stórhóli í Hrafnagilshreppi. Var fé þetta í góðum holdum og hornahlaup á hrútnum. En ána, sem upp- haflega átti að sækja, sáu leitar menn ekki. Verður hún eflaust viðfangsefni leitarfúsra manna. aivinnuleysi á Siglufirði Siglufirði 18. marz. Siglfirðing- ur kom hingað í gær með 90 tonn eftir viku veiðar. Hafliði landaði 120 tonnum í sl. viku, en Margrét hefur verið í lamasessi um þriggja vikna skeið en mun nú vei'a tilbúin til veiða, eða því sem næst. Litlu bátarnir hafa ekki komizt á sjó, vegna þess að þeir hafa verið innilokaðir af lagís hér í höfninni. Nú mun þetta hafa lagazt og bátarnir munu hefja veiðar á ný ef gæftir verða. í niðursuðuverksmiðjunni var uppihald í eina viku vegna vönt unar umbúða. Skráðir atvinnulausir 1. marz voru 183 og mun það lítið hafa lagazt síðan. Búið er að greiða hér 2.8 millj. kr. í atvinnuleysis bætur tvo fyrstu mánuði ársins. Ágætt bílfæri er nú vestur, Guði sé lof. J. Þ. finnst oft í miklu magni á ís- landsmiðum en hefur aldrei verið veiddur hér að nokkru ráði, en Danir og einnig Norð- merm veiða hann í stórum stíl. Sandsílið nefnir fiskifræðing- urinn í þriðja s'æti, sem bræðslu fisk, er veiða megi allmikið af hér við land. Og að síðustu nefn ir hann svo kolmunnan, sem síldveiðisjómenn hafa bölvað mest, af því hann festist stund- um í síldarnótum og er mikill fiskstofn. Fiskleit og bi-eyttar veiðiaðferðir gera auknar loðnu veiðar mögulegar og veiðar hinna fisktegundanna einnig. En auk þess, sem fiskifræð- ingurinn talar um, eru mögu- leikar á betri nýtingu aflans en felst í mjöl- og lýsisframleiðslu. Nú eru sælindýrategundirnar kúfskel og hörpudiskur meðal þeii'ra vei'ðmæta í sjó, sem von ir eru bundnar við að unnt vei'ði að selja góðu verði á er- lendum mörkuðum. Auðlindir hafsins umhverfis ísland eru því ekki enn allar nýttar og hér drepið á fátt eitt af því, sem nú er á dagskrá í því efni. □ Raforku frá nýju gufuveitunni í Bjamarflagi var hleypt á rafveitu- kerfi Laxárvirkjunnar litla stund sL föstudag. En þetta er í fyrsta sinn hér á landi, að gufuorku er breytt í raforku. (Ljósm.: Sv. Sig.) Ferðamálafélag Akureyrar FERÐAMÁLAFÉLAG AKUR- EYRAR boðaði fréttamenn á sinn fund á laugardaginn. For- maður þess er Hei-bert Guð- mundsson ritstjóri. Félag þetta var nýlega endurreist og vill nú í INDLANDI er málum svo komið, að íbúarnir eru nú taldir vex-a rúmlega 500 milljónir, og fjölgar þeim árlega um 2.5 pró- sent eða sem nemur 41 barns- fæðingu á hverja 1000 íbúa. í flestum vanþróuðu landanna fæðast árlega yfir 25 börn á hvei-ja 1000 íbúa, en í iðnaðar- löndunum er talan víðast hvar lægri en 25. Indverjar hafa sett sér að koma árlegum barns- fæðingum niður í 25 á hverja 1000 íbúa. í bæklingi, sem indverska heilbrigðismálaráðuneytið lét Þórsstúlkurnar á Aliureyri urðu Islandsmeistarar bæði í meistaraflokki og 2. fl. í körfubolta. Til vinstri er Einar Bollason þjáífari en Haraldur Helgason formaður Þórs til hægri. Mynd af meistaraflokki. (Ljósm.: M. G.)‘. KSS$SSS$SS$$SS$S$SSSSS3S$SS$SSSSSSSSSSSSS$ÍSSSSSSSS5S$S3SSSSSS$5SS$SSS prenta árið 1967, segir að aukn- ing í matvælaframleiðslunni, minnkun atvinnuleysis og aukn ir menntunarmöguleikar hafi horfið í svelg fólksfjölgunarinn ar. Talið var að þæi' 13 milljón- ir manna sem árlega bættust við íbúatölu landsins þyi'ftu 126.000 nýja skóla, 372.500 nýja kennara, 2.500.000 nýjar íbúðir og 4.000.000 nýjar stöður árlega. Indland var fyrsta landið sem afréð — árið 1952 — að gera takmörkun barneigna að veiga- miklum þætti í þróunaráætlun- um sínum. í tilmælum sínum um sér- fræðilega hjálp Sameinuðu þjóð anna benti egypzka stjórnin einnig á þá staðreynd, að hin öra fólksfjölgun og álag hennar á þjóðfélagið í heild hindri bætt lífskjör þrátt fyrir þær fram- farir sem orðið hafa í iðnaði, landbúnaði, skólamálum og fé- lagshjálp. í nóvember 1965 samþykkti ríkisstjórnin að beita sér fyrir takmöi'kun barneigna. Sett var upp róð sem hafa skyldi á hendi yfirstjórn þessara mála, og var formaður þess forsætisráðherr- ann, en í því áttu einnig sæti aðrir ráðherrar sem fóru með málefnaflokka er snei'tu tak- mörkun barneigna. Um allt landið hafa verið reistar 2600 sjúkrastofur fyrir takmörkun barneigna. Sérfræð (Framhald á blaðsíðu 5) standa betur í ístaðinu á vett- vangi fei'ðamála, en það áður gerði. En verkefni þess er að kynna Akureyi'i, sem ferða- mannabæ og í öðru lagi, að vinna að því að unnt sé að taka á móti vaxandi fjölda ferða- mann.a. Eðvai'ð Sigurgeirsson sýndi tvær stuttar kynningarkvik- myndii', þá fyrri um vetrar- íþi'óttaaðstöðuna hér en hin myndin er frá fögrum og sér- kennilegum stöðum á Noi'ður- landi. Ferðamálafélagið hefur látið gera þessar myndir, undir býr útgáfu ferðamannabæklings og fleira. Lúðvik Hjálmtýsson fram- kvæmdastjóri Ferðamálaráðs mætti á fundinum og gaf ýmsar merkar upplýsingar um ferða- mál á íslandi. Hann sýndi hve ferðamenn væru mikilsverðir fyrir afkomu þjóðarbúanna. Hér á landi skiluðu erlendir fei'ðamenn 150 millj. kr. í er- lendum gjaldeyri á sl. ári. Tala þeiri'a var það ár nær 48 þús- und, þar af komu um 80% með flugvélum. Árið 1968 fóru 26700 færri íslendingar utan, en þeir útlendingar, sem hingað komu á sama tíma. Ferðamálin voru rædd frá möi'gum hliðum á þessum fundi og þess að vænta, að umræður leiði til nauðsynlegra úrbóta. □ Afli er að glæðast á Sauðárkróki Sauðárkróki 18. marz. Afli er heldur að glæðast. Drangey landaði 90—100 tonnum hjá Fiskiðjunni í gær, Sigurður- Bjarnason og Loftur Baldvins- son leggja hér upp líka. Hitt frystihúsið á staðnum er lokað. Iðnskólinn er þétt setinn nem endum úr öllu umdæminu nema Siglufirði en 71 nemandi er í skólanum og þrír bekkir starfræktir. Fyrsti bekkur stai'f ar á grundvelli hinnar nýju reglugerðar um iðnfræðslu. Skólastjóri er Jóhann Guðjóns- son og með honum starfa sex kennarar við skólann. Hestamannafélagið Léttfeti á Sauðárkróki starfrækir hér tamningastöð. Eru þar 30—35 hestar. Tamningamenn eru Sig- ui'jón Gestsson, Reykjavík og Heibert Hjálmarsson, Sauðár- króki. Stöðin er starfrækt í marz og apríl og aftur í maí- mánuði. Mjög mikið er þar af efnilegum hestum og aukinn áhugi á hestamennsku á Sauð- árkróki. Einnig er mikill áhugi hrossaframleiðenda í Skagafh'ði á útflutningi hrossa — og að skagfirzki hesturinn haldi þeim sess, er hann hefur þegar unnið sér á erlendri grund. S. G. SAMKVÆMT upplýsingum lög reglunnar á Akureyri, hefur hún í tvö skipti fundið heima- bruggað áfengi í bænum. í síð- ara sinn um 50 lítra hjá manni einum í leiguherbergi. ílát þau, sem notuð voru und ir bruggsull þetta, voru 10 lítra mjólkurplastpokar, sem getið hafa sér hið ágætasta orð sem fyi'irmyndar mjólkurumbúðir. Rólegt hefur verið í bænum að undanförnu. □

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.