Dagur - 30.04.1969, Qupperneq 1
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Slmi 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJÓSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
Hátíðisdagur verkalfðslns
VERKALYÐSFÉLOGIN á Ak-
ureyri minnast 1. maí, hátíðis-
og baráttudags verkalýðsins, að
vanda með samkomuhaldi, ræð
um og skemmtiatriðum.
Aðalsamkoma dagsins hefst
kl. 2 e. h. í Nýja-bíói, en áður
leikur Lúðrasveit Akureyrar í
liálftíma á Ráðhústorgi.
í Nýja-bíói hefst samkoman
með ávarpi Jóns Helgasonar,
formanns Fulltrúaráðs verka-
lýðsfélaganna. Þá syngja 24
MA-félagar undir stjórn Sigurð
ar Demetz Franzsonar. Önnur
• skemintiatriði verða upplestur
Þráins Karlssonar og frumsam-
inn skemmtiþáttur, sem Jó-
hanna Tryggvadóttir hefur tek-
ið saman og flytur. En ræðu-
FÓTBROTNAÐIÁ
LEIKVELLI
Á SUNNUDAGINN fótbrotnaði
12 ára drengur á leikvelli í
Lækjargili og var hann þegar
fluttur í sjúkrahús. Tveir bif-
reiðaárekstrar urðu þann dag í
bænum og aðrir tveir á mánu-
daginn. Bíll valt út af vegi í
Ongulsstaðahreppi á laugardag-
inn. Enginn meiddist og bíllinn
skemmdist lítið. □
menn verða Bjöm Jónsson, for
maður Verkalýðsfélagsins Ein-
ingar, og Sigurjón Jóhannsson,
ritstjóri.
Kl. 2 hefst einnig samkoma
fyrir börn, og verður hún í
Sjálfstæðishúsinu. Þar verður
fyrst sýnd ltvikmynd, en því
næst sýnir fimleikaflokkur
drengja u-ndir stjórn Kára Árna
sonar kennara og Alli Bergs
flytur gamanþátt. Að lokum
verður dansað við undirleik
Hljómsveitar Ingimars Eydal.
Að kvöldi 30. apríl verður
dansleikur fyrir unglinga í Al-
þýðuhúsinu frá kl. 8—11.300, en
fyrir fullorðna verður dansleik-
ur í Sjálfstæðishúsinu að kvöldi
1 maí og liefst kl. 9. Á dans-
leiknum í Sjálfstæðishúsinu
munu 24 MA-félagar einnig
skemmta með söng.
Aðgöngumiðar að dansleikj-
unum verða seldir við inngang-
inn í danshúsin, en að samkom-
unni í Nýja-bíói verður aðgang
ur ekki seldur sérstaklega, held
ur gilda merki dagsins sem að-
göngumiðar, en þau verða seld
á götum bæjarins allt frá
morgni.
Væntanlgeur ágóði af sam-
komum dagsins rennur í hús-
byggingarsjóð verkalýðsfélag-
anna. □
Frá vinstri: Richarð Þórólfsson, Jakob Frímannsson og Ilarry Frederiksen.
(Ljósm.: E. D.)
Skóverksmiðja Iðunnar fekin til starfa
íslirafl við Grímsey
Grímsey 28. apríl. Mikið af fugli
Var 'komið í björgin en hefur
svifað frá nú vegna íssins. ís-
hrafl er allt í kring um eyna
og bíðum við nú sunnanáttar-
innar.
Grásleppuveiði var mikil síð-
ustu daga en þegar ísinn varð
nærgöngull, var ekki um annað
að gera en að taka netin upp.
Þorskafli var líka ágætur síð-
ustu daga vetrarins þar til norð
anáttin kom með hafísinn.
Einn maður hefur búið svo
um, að hann getur úr landi
dregið net sín og gerði hann það
í dag og aflaði allvel. Sjómenn
fá 5 þús. kr. fyrir tunnuna af
söltuðum grásleppuhrognum og
er því nokkurs um vert hvernig
til tekist með veiðarnar á þessu
vori. S. S.
ÞAÐ sannaðist glöggt um ára-
mótin í vetur, þegar bruninn
mikli varð í verksmiðjum Sam-
bands íslenzkra samvinnufélaga
á Akureyri, að enginn veit hvað
átt hefur fyrr en misst hefur.
Og þá tóku samvinnumenn
strax þá myndarlegu ákvörðun,
að byggja að nýju og stærra en
fyrr. Mæltist það vel fyrir hjá
almenningi og einnig hjá ráða-
mönnum í ríkisstjórn og pen-
ingastofnunum. Síðan héfur ver
ið unnið látlaust að undirbún-
ingi og uppbyggingu. En sem
kunnugt er, voru það Skóverk-
smiðja Iðunnar og Sútunarverk
smiðjan Iðunn, sem skemmdust
í eldinum, en Fataverksmiðjan
Hekla og Gefjun skemmdust
ekki og hélt þeirra starfsemi
áfram af fullum krafti.
Á laugardaginn kallaði fram-
kvæmdastjóri Iðnaðardeildar
SÍS, Harry Frederiksen, frétta-
menn á Akureyri á sinn fund
til að segja þau gleðitíðindi, að
Skóverksmiðjan væri nú að
hefja framleiðslustörf á ný.
Hvar verður næsta vafnsbó! Akureyringa?
AKUREYRINGAR horfast nú í
augu við þann vanda, að þurfa
að afla sér meira neyzluvatns.
En neyzluvatn er grundvöllur
búsetu hér, sem annarsstaðar
og svo er fyrir að þakka, að hér
á landi er nægilegt magn lítt
mengaðs og ómengaðs vatns og
verður það eflaust svo um langa
framtíð, þótt ýmsar þjóðir sjái
fram á þurrð vatns og undirbúi
neyzluvatnsframleiðslu úr sjó.
í þessu efni liggur vandi Alc-
ureyringa í því að velja og
hafna. Lækur eða lind þurfti að
vera við hvert byggt ból á fs-
landi og var það, og vatn er
forsenda búsetu eins og þá, en
sá er munurinn, að unnt er nú
að hreinsa vatn og ennfremur
að flytja það langar leiðir.
Bæjarlækur okkar Akureyr-
inga er Glerá, sem fellur um
bæinn og þótti áður gott, að
lækur félli milli bæjarhúsa. En
vatn Glerár er ekki notað held-
ur góðar lindir í Hlíðarfjalli og
Glerárdal og þykir gott vatn en
Úfigengið fé á Grimstunguheiði
Ási í Vatnsdal. Nýfundnar eru
tvær ær frá Grímstungu,
frammi á Grímstunguheiði, um
tveggja stunda gang frá bvggð.
Var önnur ærin hvít kollótt og
með báða dilka sína frá í haust,
hrút og gimbur. Gimbrin var
nýborin. Hin ærin var mókoll-
ótt og grá dilkgimbur með
henni og báðar komnar að
burði. Allt var fé þetta vel á sig
komið, nema helzt hrúturinn,
sem var fremur magur.
Það var beitarhúsamaðurinn
í Grímstungu, er féð fann. Talið
er, að það hafi ekki gengið á
þeim slóðum í vetur, er það nú
var á. Slíkar heimtur eru sjald-
gæfar hér og skemmtileg til-
viljun, að gimbrarlambið hefur
líklega fæðzt á heiðinni á sumar
daginn fyrsta og það var hið
sprækasta þótt frost væri og
hríðarfjúk. G. J.
Stjórnarformaður Sambands-
ins, Jakob Frímannsson, bauð
fréttamenn velkomna til þessa
Richarð Þórólfsson.
fundar, en framkvæmdastjóri
Iðnaðardeildar rakti síðan í stór
um dráttum undirbúning þess,
að framleiðsla gæti hafist á ný
í bráðabirgðahúsnæði, en verið
væri að byggja Skóverksmiðj-
unni nýtt verksmiðjuhús og
væri það allvel á vegi. En fram-
leiðsla Skóverksmiðjunnar væri
nú að hefjast á ný, eftir fjög-
urra mánaða hlé. Viðstaddir
voru, auk fréttamanna og ann-
arra þeirra er að framan getur,
verksmiðjustjórar Gefjunar,
Heklu og Sútunarverksmiðj-
unnar.
í tilefni af því, að Skóverk-
smiðja Iðunnar er að hefja störf
á ný, snéri blaðið sér sérstak-
lega til Richarðs Þórólfssonar,
verksmiðjustjóra, sem hefur
borið hita og þunga af endur-
byggingarstarfinu, og lagði fyr-
ir hann nokkrar spurningar,
sem hann svaraði góðfúslega.
(Framhald á blaðsíðu 5)
nægir nú ekki miklu lengur og
vatnsaukning á lindasvæði bæj
arins á fyrrnefndum stöðum
talin ólíkleg með borun og verð
ur því að leita annarra ráða.
Vatnsleit hefur verið gerð
undanfarin ár, einkum frammi
í Eyjafirði, með aðstoð jarðfræð
inga og tæknimanna, m. a. bor-
að eftir vatni á Þveráreyrum.
Verkfræðiskrifstofa Sigurðar
Thoroddsen vinnur að saman-
burðar- og framkvæmdaáætl-
unum fyrir aukningu Vatns-
veitu Akureyrar og Sigurður
Svanbergsson vatnsveitustjóri
hefur kannað þessi mál að sín-
um hluta og Jón Jónsson jarð-
fræðingur.
Nú virðist það liggja fyrir að
velja um þá tvo kosti, að taka
vatn í Glerá og hreinsa það,
eða bora til vatns í landi Krossa
staða á Þelamörk og leiða það
til Akureyrar.
Frá Hörgá hjá Krossastöðum
eru um 14 km. til bæjarins. Þar
er talið, að fá megi gott vatn en
flutningur vatnsins er dýr.
Hagkvæmt er talið, ef Glerá
(Framhald á blaðsíðu 7)
Söngfélagið GÍGJAN
syngur 4. og 5. maí
SÖNGFÉLAGIÐ GÍGJAN á
Akureyri syngur undir stjórn
Jakobs Tryggvasonar í Sam-
komuhúsinu 4. og 5. maí n. k.
Á sunnudaginn, 4. maí hefst
söngurinn kl. 5 en síðari daginn
kl. 8.30. Undirleikari er Þor-
gerður Eiríksdóttir, einsöngvari
Björg Baldvinsdóttir. Rabbþjálf
ari er Sigurður D. Franzson.
Fjórtán lög eru á söngskránni,
eftir innlenda og erlenda höf-
unda.
í kórnum eru 40 konur og var
fyrsti samsöngur þeirra í apríl
í fyrra. Sagt er, að kórinn sé
vel æfður og ráðgerð er söng-
för í vor eða sumar.
Stjórnina skipa: Björg Bald-
vinsdóttir, Hrönn Björnsdóttir
og Guðlaug Hermannsdóttir. □
CHARLES de GAULLE segsr aí sér
ÞAU tíðindi urðu í Frakklandi
á sunnudaginn að tillögur de
Gaulle forseta Frakklands um
breytta skipan sveitastjórnar-
mála voru felldar í þjóðar-
atkvæðagreiðslu með 53% at-
kvæða. Hann sagði þegar í stað
af sér, svo sem hann áður hafði
ákveðið, ef breytingarnar yrðu
felldar.
Þe«si aldni og mikilhæfi þjóð
arleiðtogi Frakklands hefur ver
ið talinn bjargvættur lands síns
í mestu hörmungum þess, djarf
ur, vitur og stór í sniðum. Hann
er enn við beztu heilsu. Síðasta
tilkynning hans var þessi:
„Ég hef hætt störfum sem for
seti lýðveldisins. Þessi ákvörð-
un gengur í gildi á hádegi í
dag“, og var hún út gefin á
mánudagsmorgunin.
□