Dagur - 30.04.1969, Qupperneq 7
7
SMATT & STORT
(Framhald af blaðsíðu 8).
eftir að draga að sér erlenda
ferðamenn í tugþúsundatali og
þeir eyða fé sínu á meðan þeir
dvelja. Með dæminu um veiði-
árnar og náttúruundur lands-
ins, er þó ekki sagt, að allt eigi
að vera falt þar sem fjármunir
eru í hoði. En þau benda til
þess, að hið frumstæða og tölu-
lega mat lilutanna er víða að
ganga sér til húðar.
SAMTÍNINGUR
Jafnframt því, að Kamal
Yousuf boðar kenningar Mú-
hameðs á íslandi, þýfi var graf-
ið upp úr kirkjugarði í Reykja-
vík, 80 þús. kr. í peningum,
80 smiðir fara til Svíþjóðar og
leiðtogi Frakklands hefur sagt
af sér, er maríuerlan komin og
æðarkóngur með klumbu á nefi
og fjaðrabrúska á baki, spókar
sig konulaus meðal venjulegra
æðarfugla á Akureyrarpolli.
Vísir birtir myndir af fáklædd-
um konum, sem enn fáklæddari
verða metnar til verðlauna í
fegurðarsamkeppni. Sex nætur
klúbbaeigendur í Reykjavík
gistu í „Steininum“, samtímis.
Lengdur var þá afgreiðslutími
veitingahúsa, til að kom,a til
móts við „þarfir“ þeirra, sem
komu að lokuðum næturklúbb-
um. Einvígið, sem reykvískur
læknir bauð til og frægt er,
vekur kátínu yfir kaffibolla, en
fræðimenn rifja upp slíka at-
burði úr fornum sögum og eru
ekki á eitt sáttir hvert einvígi
var síðast. Þetta er óþarfa fyrir
höfn. Til einvígis og stundum
margra er nær daglega stofnað
á flestum dansstöðum á íslandi
og þykir lítt til frásagnar vegna
þess hve algengt það er og „góð
skenuntun“. Verkföll bætast nú
við atvinnuleysi hér á landi, af
því svikist er um að greiða þær
vísitölubætur á laun, sem um
var samið í fyrra.
SVÖRIN
Undanfarnar vikur, þegar at-
vinnuleysið hefur þjakað ein-
staklinga og iðnfyrirtæki hafa
beðið eftir nauðsynlegri fyrir-
greiðslu, flenna stjórnarblöðin
yfir þverar síður fyrirsagnir um
stórvirkjun og stóriðju á Norð-
urlandi. Það eru svörin, sem
gefin eru, þegar ræddur er
vandi atvinnumála og fyrir-
tækja. Það eru svörin við því,
hvar þær séu 300 milljónirnar,
sem lofað var í vetur til skjótra
úrbóta í mesta atvinnuleysinu
— og gleymdist að efna.
SNUÐ
Að sjálfsögðu ber að hyggja til
framtíðar og kanna alla mögu-
leika til stórvirkjunar og stór-
iðju, svo sem til byggingar nýrr
ar álbræðslu á Norðurlandi. Al-
þingi samþykkti á sínum tíma
að rannsakaðir yrðu virkjunar-
möguleikar Jökulsár á Fjöllum.
Efndir hafa engar orðið. En nú
er stóriðju á Norðurlandi hainp
að í staðinn og með því er verið
að stinga snuði upp í þá, sem
kynnu að láta sér það lynda í
stað þess að leysa vanda at-
vinnurekstursins.
Iborgarbí ó|
[ SÍMI 1-15-00. !
! Mynd vikunnar:
í Mjög spennandi og
I áhrifarík ný, amerísk
\ stóimynd í litum.
í ROD TAYLOR j
1 CATHERINA SPAAK |
[ KARL MALDEN f
- Vatnsból
(Framhald af blaðsíðu 1).
verður notuð, að mannvirkja-
gerð, m. a. vatnshreinsistöð,
verði nálægt Selgili í Glerárdal,
eða a. m. k. stífla gerð þar. Sá
staður er nokkru framan við
vatnsgeymana í Glerárdal. Auð
velt er, vegna hagstæðs halla,
að leiða það vatn til bæjarins,
væntanlega án dælu. Og vatns-
þurrð verður ekki í Glerá, en
hreinsa þarf það vatn.
Meðalvatnsnotkun á Akur-
eyri er nú um 86 sek.l. en fer
oft hærra. Hámarks notkun er
sennilega um 120 lítrar á sek.
Þessari vatnsþörf er mætt með
hjálparstöðvum eða vatnsmiðl-
un. En fljótlega kemur að því,
að þetta nægi ekki og er því
þörf á, að vera undir slíkt bú-
inn.
Fimmtíu lítrar á sek. til við-
bótar ætti að nægja fyrst um
sinn og verður eflaust við það
miðað, að næsti áfangi verði
ekki minni,-og að möguleikar
til aukningar séu fyrir hendi
þegar þörfin kallar á ný. Nú-
verandi lindir bæjarins yrðu
notaðar að fullu eftir sem áður.
Vatnsveita frá Glerá er tal-
in kosta 28 millj. kr. móti 33
millj. kr. frá Krossastöðum.
Nú verða þessi mál eflaust
bráðlega til umræðu í bæjar-
ráði og bæjarstjórn og væri
æskilegt, að almennar umræð-
ur geti farið fram um málið,
áður en endanlegar ákvarðanir
eru teknar, svo þær skoðanir,
er fram kynnu að koma, gætu
komið til athugunar við endan-
lega afgreiðslu. □
□ RÚN 59694307 — Atkv.
Lokaf
AKUREYRARKIRKJA. Mess-
að n. k. sunnudag kl. 2 e. h.
Sálmar nr. 17 — 406 — 147 —
354 — 509. — B. S.
MÖÐRU V ALL AKL AU STURS -
PRESTAKALL. Guðsþjón-
usta að Möðruvöllum n. k.
sunnudag 4. maí kl. 2 e. h.
Barnakór úr Barnaskóla Ak-
ureyrar syngur undir stjórn
Birgis Helgasonar. — Sóknar
prestur.
MESSAÐ í skólahúsinu i Gler-
árhverfi kl. 2 e. h. á sunnu-
daginn. Aðalsafnaðarfundur
að lokinni messu. Kosningar.
Rætt um kirkjubyggingu í
Glerárhverfi. — Sóknarprest-
ar.
LAUGALANDSPRESTAKALL
Messað í Saurbæ sunnudag-
inn 4. maí kl. 14. — Sóknar-
prestur.
BARNAKÓRINN og æskulýðs-
félagar flytja í sameiningu
guðsþjónustu í sjúkrahúsinu
kl. 5 fimmtudaginn 1. maí. —
Sóknarprestar.
HJÁLPRÆÐISHER-
INN. — Æskulýðssam-
koma verður 1. maí kl.
8 e. h. Kapt. Krokedal
talar. Munið samkomuna
hvert sunnudagskvöld kl. 8.30
KRISTNIBOÐSHÚSIÐ ZION.
Samkoma sunnudaginn 4.
maí kl. 830 e. h. Ræðumaður
séra Þórhallur Höskuldsson.
Allir velkomnir.
BAZAR og kaffisölu hefur
Kristniboðsfélag kvenna í
Zion fimmtudaginn 1. maí kl.
3 e. h. Komið og styðjið
kristniboðið og drekkið kaffið
í Zion. Allur ágóði rennur til
kristniboðsins í Konsó.
I.O.G.T. stúkan Brynja nr. 99.
Fundur fimmtudaginn 1. maí
kl. 21 í Kaupvangsstræti 4.
Fundarefni: Vígxla nýliða,
fréttir ag þingstúkunni, rætt
um ferðalag, önnur mál. Eftir
fund: Kaffi, ? Athugið breytt
an fundarstað. — Æ.t.
MINJASAFNIÐ er opið á
sunnudögum kl. 2 til 4 e. h.
Tekið á móti skólafólki og
ferðafólki á öðrum tímum ef
óskað er. Sími safnsins er
1-11-62 og safnvarðar 1-12-72
- AÐALDÆLIR UNNU
(Framhald af blaðsíðu 2).
Arnórsson, Árbót. AUir eru
menn þessir ungir og ákvæntir
og hinir álitlegustu menn. Þeir
fá að launum far til Grænlands
og nokkurra daga dvöl á kostn-
að HSÞ, sem að keppninni stóð
í héraði.
Kaupfélagsfundur hófst á
Húsavík í gær, þriðjudag, og
mun ljúka í kvöld. Þykja aðal-
fundir K. Þ. oft hinir ágætustu.
Áhugi á félagsmálum, ekki sízt
samvinnumálum, er mikill aust
ur þar og gamanmál um hönd
höfð í fundarhléum.
Þorsk- og grásleppuafli er
fremur tregur um þessar
mundir.
Sjónleikurinn Púntila og
Matti hefur oft verið sýndur og
aðsókn verið með ágætum (7.
sýning á mánudag) að því er
fréttaritari blaðsins, Þormóður
Jónsson, hefur tjáð blaðinu. □
BRÚÐHJÓN. Hinn 24. apríl
voru gefin saman í hjónaband
í Akureyrarkirkju, ungfrú
Ásthildur Eydís Eiríksdóttir
og Hólmgeir Hólmgeirsson
verkamaður. Heimili þeirra
verður að Brekkugötu 7, Ak.
SLYSAVARNAKONUR, Akur
eyri. Fundur verður í Alþýðu
húsinu föstudaginn 9. maí kl.
8.30 e. h. Mætið allar og takið
með kaffi. — Stjórnin.
VINNINGAR. Dregið var í inn
anfélagshappdrætti Kvenfé-
lagsins Hlífar, Akureyri, á
sumardaginn fyrsta. Eftirtalin
vinningsnúmer komu upp:
1. nr. 493 gólflampi; 2. nr. 634
svefnherbergiskollur; 3. nr.
701 værðarvoð; 4. nr. 808
dralon-dúkur með serviett-
um; 5. nr. 1464 Helku-peysa
(eftir vali); 6. nr. 463 Heklu-
peysa (eftir vali); 7. nr. 921
skál úr íslenzkum leir; 8. nr.
611 værðarvoð; 9. nr. 898 pen
ingar kr. 500.00; 10. nr. 26
púðaborð. — Góðfúslega vitj-
ið vinninga hjá Huldu Jó-
hannsdóttur, Skarðshlíð 9,
milli kl. 6 og 8 e. h. daglega.
LEIÐRÉTTING. í grein, sem ég
skrifaði um gullbrúðhjónin
Indíönu og Finn í Ártuni og
var birt í Degi 26. apríl sl.,
var sagt að gullbrúðkaups-
dagui'inn hefði verið 18. marz
1968, en á að vera 1969. Bið
ég hjónin afsökunnar á þess-
um leiðu mistökum. — Jón
Hjálmarsson.
SUMARGJAFIR til Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri: Á
sumardaginn fyrsta færði Ak
ureyrardeild Hjúkrunarfé-
lags íslands sjúkrahúsinu að
gjöf kennarastól í kennslu-
stofu. Þeirri gjöf fylgdu þakk
ir til lækna fyrir fyrirlestra-
flutning í vetur. — Þá gaf
þakklátur sjúklingur sjúkra-
húsinu 2 þús. kr., og N. N.
9.500 kr. — Með þökkum mót
tekið. — Ingibjörg R. Magnús
dóttir.
I.O.G.T. stúkan Akurliljan nr.
275. Fundur n. k. fimmtudag
kl. 21.00 í Ráðhúsinu. Félagar
fjölmennið. — Æ.t.
L AUF ÁSPREST AK ALL. Ferm
ingarguðsþjónusta í Laufási
n. k. sunnudag, 4. maí kl. 2
e. h. Fermingarbörn: Frey-
garður Jóhannsson, Áshóli,
Sigurbjörg Snæbjörnsdóttir,
Nolli. — Sóknai-prestur.
STARFSMANNAMÓT Skíða-
ráðs Akureyrar 1969 hefst 1.
maí kl. 3 e. h. í Hlíðarfjalli.
Nafnakall kl. 2 e. h. við
Stromp. Þátttöku ber að til-
kynna í síma 2-10-86 og
1-23-55 fyrir kl. 10 á miðviku
dagskvöld 30. apríl. — Allir
starfsmenn SRA hafa rétt til
þátttöku. — Keppendur SRA.
AÐALFUNDUR Barnaverndar
félags Akureyrar verður hald
inn í leikskólanum „Iðavöll-
um“ sunnudaginn 4. maí kl.
4 síðdegis. Venjuleg aðal-
fundarstörf. Rætt um leik-
skólann. — Stjórnin.
TAPAÐ
LYKLAKIPPU
saknað isíðan á laugar-
dag 26. apríl. Óskast skil
að á Skrifstofu Dags,
gegn fundarlaunum.
TIL SÖLU:
íbúð í Aðalstræti 13, 1. hæð að norðan er til sölu.
3 herbergi og eldhús, sér inngangur, geymsla og
þvottahús í kjallara.
Upplýsingar veittar hjá Akureyiarbæ,
síma 2-10-00. — Tilboð óskast send bæjarstjóra
fyrir 10. maí n.k.
? 'í'-v.c '''‘"v'f -4- Ö 'í'rí -ý-'Sí ''Sf ■ý'í? “fSfc -4*
t . . ?
? Innilegt þrtkklœli lil allra er mnndu mig á sjötiu
^ ár.a afmceli minu 16. apríl siðastliðinn.
I
f
j. dKnrusunv jci , simucyi i.
SIGURBJÖRN BENIDIKTSSON,
Skarðshlið 21, Akureyri.
GUÐBJÖRG SUMARLIÐADÓTTIR,
Munkaþverárstræti 25, Akureyri,
andaðist 27. apríl.
Útförin verður gerð frá Akureyrarkirkju laugar-
daginn 3. maí kl. 13.30.
Guðrún Aðalsteinsdóttir.
Guðmundur Guðlaugsson.
Faðir okkar, tengdafaðir og afi
JÓN BALDVINSSON,
Hjarðarholti, Glerárhverfi,
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
þann 27. apríl s.l.
Jarðarförin fer lram frá Akureyrarkiilkju mánu-
daginn 5. ntaí n.k. kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
María Jónsdóttir.