Dagur - 30.04.1969, Side 8
8
SMÁTT & STÓRT
Þingeyjarsýslur eru auðugastar af norðlenzkum náttúruundrum.
FerSelögin eru orðin verzlunarvara
MENN velta því stöðugt fyrir
sér hvort æskilegt sé að ísland
verði verulegt ferðamannaland
í framtíðinni og flestir slá því
föstu, að við eigum að taka þátt
í kapphlaupinu um ferðamenn-
Hreppakeppni UMSE
ÚRSLIT í hreppakeppni Ung-
mennasambands Eyjafjarðar
fai’a fram í Sjálfstæðishúsinu á
Akureyri fimmtudaginn 8. maí
n. k. kl. 9 e. h. Þar keppa
Hrafnagilshreppur, Öngulsstaða
hreppur og Dalvíkurhreppur
um sigur í þessari keppni. □
ina. í útreikningum þeirra, sem
um ferðamál fjalla er hver út-
lendur ferðamaður metinn til
verðs, svo sem bóndi metur
einstaklinga hjarðar sinnar og
komist að þeirri niðurstöðu, að
móttaka ferðamannanna sé
gjaldeyrisskapandi og arðvæn-
leg atvinnugrein og verður því
naumast mótmælt.
Skipulögð og stórfelld ferða-
lög landa og heimshorna á milli,
sem er ávöxtur eða afsprengi
tækniframfara í samgöngumál-
um á okkar öld er áður voru
ekki til, er nú staðreynd, sem
við blasir og mjög vaxandi þátt
ur viðskipta. Ferðalög eru orð-
in þýðingarmikil verzlunarvara,
móttaka ferðamanna aðalat-
vinnugrein á ýmsum stöðum,
veigamikil gjaldeyrisöflun
heilla þjóða o. s. frv.
Og straumur ferðamanna vex
árlega, einkum í Evrópu og
Bandaríkjunum, þar sem fólk
hefur mestar tekjur til ráðstöf-
unar og eyðir vissum hluta
teknanna til ferðalaga.
Það eru íslenzku flugfélögin,
sem hafa unnið að auknum
fjölda ferðamanna til íslands á
undanförnum árum og nú er
svo komið, að flestir eru orðnir
vakandi fyrir þessu máli og eru
(Framhald á blaðsíðu 2).
HELLA NIÐUR MJOLK?
Ekki standa bændur í verkföll-
um en verða að sætta sig við að
koma ekki mjólk á markað
þessa daga, frá því á sunnudag
til fimmtudags. Þetta skapar
ýmsa fyrirhöfn hjá þeim og
hætt er við, að allmiklu af
mjólk hafi orðið eða verði að
hella niður vegna geymslu-
vandræða. Bændur eiga yfir-
leitt mjólkurbrúsa undir
tveggja sólarhringa framleiðslu
en það hrekkur skammt nú. En
lokun Mjólkursamlags KEA er
einn liður þeirrar kjarabaráttu,
sem nú stendur yfir.
NEYTENDUR HEPPPNIR
Neytendur mjólkur hér um slóð
ir eru heppnari en á höfuðborg
arsvæðinu og leit ekki út fyrir
það í gær, að mjólkurskortur
yrði í búðum og geta þeir vel
við unað eftir atvikum vegna
þess hve dreifingarkerfið er
gott og mikil mjólk, miðað við
markað og því af miklu að taka,
er þessa daga kemur að góðum
notum. Mjólkurmagn það, sem
að undanförnu hefur daglega
borizt samlaginu er um 42—44
þús. lítrar og er það um 5 þús.
lítrum minna en í fyrra á sama
tíma. Af þessu mjólkurmagni
fer aðeins um fimmti hluti til
neyzlu sem nýmjólk.
TVÆR LEIÐIR
Þar sem lax gengur í ár, getur
unglingur með lítilli aðstoð hirt
þá veiði í kistur eða net, er úr
sjó kemur upp í árnar. Þar get-
ur eftirtekjan orðið góð fyrir
hverja vinnustund. En það er
líka hægt að leigja sömu ár til
veiða með stöng og oftast fyrir
margfalt verð, miðað við verð-
mæti aflans. Og þá er farið að
selja ámiðinn, fuglasöngmn og
landslagið, ásamt voninni í
fiski. En þetta er það, sem nú
er farið að gera í ríkum mæli,
bæði hér á landi og um allan
heim. Og æ fleiri komast á þá
skoðun að kaupandinn geri góð
kaup, hvað sem veiðinni líður.
ANNAÐ DÆMI
Hið eina og sanna aflamat í töl-
um er ekki lengur hægt að
leggja á hlutina, eins og dæmið
að framan sýnir, fremur en t. d.
að meta Gullfoss eða Geysi í
krónum. En hve oft eru náttúru
undur landsins ekki seld fyrir
peninga, þ. e. að horfa á þau og
njóta þeirra, og aðeins þau tvö,
er hér voru nefnd, eiga eflaust
(Framhald á blaðsíðu 7)
Fjórar höfuðkröfur
Á HÁTÍÐIS- og baráttudegi skipulagningu og alhliða upp-
verkalýðsfélaganna hér, er lögð byggingu atvinnulífsins. □
höfuðáherzla á þessi atriði:
1. Tafarlausir samningar um
óskert launakjör.
OSKAR JONSSON
Skógarrestir í Eyjafirði 450
2. Útrýming
þráð og lengd.
__
atvinnuleysis í LATINN
AÐALFUNDUR Skógræktar-
félags Eyfirðinga var haldinn á
Hótel Varðborg á Akureyri
laugardaginn 26. apríl sl.
Guðmundur Karl Pétursson
formaður félagsins bauð full-
trúa og gesti velkomna, en
meðal þeirra voru Hákon
Bjarnason skógræktarstjóri,
Ingvi Þorsteinsson landgræðslu
fulltrúi, Snorri Sigurðsson
erindreki, Sigurður Blöndal
skógarvörður, ísleifur Sumar-
liðason skógarvörður, Oddur
Andrésson bóndi á Neðra-Hálsi
í Kjós og skógarvörðurinn
Gunnar Finnbogason á Akur-
eyri.
Formaður skýrði frá störfum
félagsins á liðnu ári, en að
venju voru þau tvíþætt, þ. e.
rekstur gróðrarstöðva og skóg-
græðsla. Gróðursetning var
með minna móti á árinu sakir
skorts á plöntum og því mest
áherzla lögð á plöntuuppeldi og
umhirðu skógreita félagsins, en
félagið hefir afskipti af um 60
reitum í héraðinu sem alls eru
(Framhald á blaðsíðu 4)
3. Sérstakar ráðstafanir af
hálfu hins opinbera til að
tryggja ungmennum skólanna
hæfilega sumaratvinnu.
4. Horfið verði að fullkominni
ÓSKAR JÓNSSON fuUtrúi á
Selfossi, Óskar frá Vík, eins og
hann var oft nefndur, lézt á
laugardaginn, tæplega sjötugur
að aldri. Hann var minnzt á Al-
þingi á mánudaginn. □
Kynningarráðsfelna BSR
Hafísinn veldur siglingaföfum
SAMKVÆMT umsögn Veður-
stofunnar í gær var siglingaleið
frá Horni að Skaga erfið og í
stuttu máli voru ísfregnir á
þessa leið og m. a. byggðar á
ískönnunarflugi á mánudags-
kvöld en að öðru leyti frá veð-
urathugunarstöðum í gær:
BJARGAÐI ÞYZKUM
TOGARA
TOGARINN Víkingur frá Akra
nesi bjargaði þýzkum togara úr
ís við Austur-Grænland og
hafði hann fengið vörpuna í
skrúfuna og var því bjargar-
laus, 100 metra inn í ísnum og
bað um hjálp. Víkingur var
nærri, náði togaranum og dró
hann til Reykjavíkur. Þýzki
togarinn heitir Husum og er frá
Kiel.
Eigendur Víkings krefjast 18
millj. kr. tryggingar vegna
björgunarinnar. Q
ísmagn hefur aukizt á Skaga
fii'ði, á Siglunesi hefur ísinn
færzt nær landi, við Grímsey er
minni ís til suðurs að sjá. Á sigl
ingaleið suðvestan við Straum-
nes voru dreifðir jakar en 4—
6/10 ís er á siglingaleið frá
Straumnesi að Horni. Sama ís-
magn 8 km. frá Kögri og 2 sjó-
mílur undan Horni.
Frá Horni yfir Húnaflóa að
Skaga er ís 4—6/10 og 7—9/10
að þéttleika, en vegna þoku var
ekki unnt að kanna siglinga-
leiðina sem skildi. Siglingaleið
frá Straumnesi að Skaga verð-
ur að telja varhugaverða nema
sterkustu skipum. Frá Skaga að
Eyjafirði eru dreifðir jakar,
einnig á Grímseyjarsundi og
norðan við Grímsey 1—3/10 er
þéttist er norðar dregur og er
4—6/10 5 sjómílur norður af
eyjunni.
Á skipaleið frá Eyjafirði að
Hraunhafnartanga eru aðeins
jakar á stangli, en þar liggur ís,
(Framhald á blaðsíðu 4)
Á SUNNUDAGINN hélt BSRB
kynningarráðstefnu á Hótel
KEA á Akureyri, er var vel sótt
og þótti takast vel.
Ráðstefnunni stjórnaði Karl
Guðjónsson alþingismaður. Ein
ar Ólafsson flutti ræðu Krist-
jáns Thoi'Iasiusar, form. banda-
lagsins, sem gat ekki mætt sök-
um veikinda, og fjallaði hún um
sögu samtakanna, skipulag og
verksvið. Guðjón Baldvinsson
flutti erindi um rétt og skyldur
embættismanna og Haraldur
Steinþórsson ræddi um kjara-
málin nú og fyrr.
Bandalagið bauð viðstöddum
til kaffidrykkju að frumræðum
loknum, en að henni lokinni hóf
ust umræður. Var mörgum fyr-
irspurnum beint til ræðumanna,
sem gáfu greið svör. Mun al-
menn ánægja hafa ríkt yfir
kynningarráðstefnu þessari,
enda er kynning og fræðsla
þörf i þessum félagsskap, sem
öðrum — m. a. til þess að geta
haldið uppi eðlilegu félagslífi.
Frá kynningarfundi BSRB á Hótel KEA.
(Ljósm.: G. P. K.)