Dagur - 13.08.1969, Page 1
LII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 13. ágúst 1969 — 32. tölublað
FILMU HÚSIÐ
Hafnarslræti 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJÖSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
Opinber heimsókn forseta íslands
fil Akureyrar og Eyjafjarðarsýslu
$S$$$$$$$$$55$$$55555S$$$$$$$$$$$$$S5$SSe$$$S$$$S$$$5S$$$$$$$5S$$$S5$5$5$$$$$$$S$$$5$$$SS$$$$5$5$S$$$5$S$Sfl
FORSETI fslands, lierra Krist-
ján Eldjárn, og forsetafrú, Ilall
dóra Ingólfsdóttir, koma í opin-
bera heimsókn til Eyjafjarðar-
sýslu og Akureyrar mánudag-
inn 18. ágúst n. k. Yfirvöld
sýslu og bæjar munu fara til
móts við forsetann og fylgdarlið
hans að sýslumörkum Eyja-
fjarðar- og Skagafjarðarsýslu,
við Grjótá á Öxnadalsheiði kl.
10.30. Þaðan verður ekið til
Akureyrar. Að hádegisverði
loknum munu forseti og frú
lians skoða Akureyri og heim-
sækja m. a. Elliheimili Akur-
eyrar, Amtsbókasafnið og Fjórð
ungssjúkrahúsið. Opinber mót-
tökuathöfn fer fram í Lystigarð
inum á Akureyri kl. 17.30 af
hálfu yfirvalda Eyjafjarðar-
sýslu og Akureyrarbæjar.
Lúðrasveit Akureyrar mun
(Framliald á blaðsíðu 7)
Japanskur sölumaður á ferðinni
Yoshiro Matsumoto,
sölumaður.
barðarnir eru seldir í 80 lönd-
um og þykja mjúkir og ending-
argóðir. □
um sumartímann
BANDARfKJAMAÐUR einn,
fjármálamaður og viðriðinn
ferðamál vetra, hefur athugað
ýmiskonar aðstöðu á Akureyri
til sumarskíðaiðkana. En í vor
HINGAÐ til Akureyrar kom
fyrir helgina japanskur sölu-
maður, Yoshiro Matsumoto að
nafni, og starfar á vegum Yoko
hama-verksmiðjanna. Með hon
um á ferð voru tveir starfsmenn
SÍS, þeir Gunnsteinn Karlsson
og Björn B. Björnsson. SÍS hóf
sölu Yokohama-hjólbarðanna
fyrir fjórum árum og er salan
mjög vaxandi um allt land hjá
samvinnufélögunum. Hér um
slóðir munu Yokohama hjól-
FYRSTA
PLASTSUNDLAUGIN
Á BLÖNDUÓSI var nýlega
vígð og tekin í notkun ný sund-
laug úr trefjaplasti, sú fyrsta af
þessari gerð hér á landi. Hún
er 12.5x7.5 m. að flatarmáli og
rúmlega meters djúp og verður
kennslulaug.
Hlutar laugarinnar voru
fengnir erlendis en aðrir fram-
leiddir á Blönduósi. Laugin er
talin kosta 11—12 hundruð þús.
kr. með katli, hreinsi- og klór-
tækjum og einföldu þaki.
Laug þessi er við barna- og
unglingaskóla staðarins. Verður
nú væntanlega fylgzt vel með,
hversu hún dugar til notkunar
í íslenzkri veðráttu. □
Hreindýraslofninn lelur nú 3273 dýr
NÝLEGA fór fram árleg taln-
ing hreindýra á íslandi á veg-
um menntamálaráðuneytisins
og að venju var flugvél notuð
við talninguna. Reyndust hrein
dýrin alls 3273, þar af 2508 full-
orðin. Hafði dýrunum fjölgað
nokkuð frá því í fyrra.
í haust verður leyft að skjóta
600 fullorðin hreindýr og hefj-
ast þær veiðar 20. september.
Hreindýraeftirlitsmaður er Egill
Gunnarsson, Egilsstöðum, Fljóts
dal.
ar. Nokkrir bændur hafa nú
þegar auglýst algert bann við
hreindýradrápi á jörðum sínum.
Þótt hreindýr séu stygg, eru
þau mun gæfari nú hin síðari
ár, enda vanist manninum
meira og dvalið í byggðum mán
uðum saman á vetrum. Þykir
mörgum því réttara að tala um
hreindýraslátrun en veiðar.
Enginn íslenzkur bóiídi. á enn
þá hjörð hreindýra og hrein-
dýrum hefur enn ekki verið
beitt fyrir sleða á íslandi, og
þrátt fyrir þennan þrjú þúsUnd
dýra stofn á Norðausturlandi,
er hreindýrarækt engin til og
virðist ekki meðal áhugamála
landsmanna. Margt bendir þó
til, að hreindýr gætu gefið eig-
endum sínum góðar tekjur hér,
ekkert síður en á ýmsum öðrum
norðlægum slóðum, þar sem
hreindýrarækt er búgrein. □
Ævinlýri á næsla leiti?
Yindheimajökull mjög girnilegur skíðastaður
barðar vera 7—8 af hverjum 10.
Hinn japanski sölumaður
sagði, að í Yokohama-verk-
smiðjunum væru starfsmenn
um 7 þús. og framleiðslan 60
þús. hjólbarðar, margra teg-
unda, dag hvern og er fyrir-
tækið 53 ára. Yokohama-hjól-
komu hingað bandarískir ferða-
skrifstofumenn í boði flugfélag-
ana og leizt vel á staðinn, sem
var kynntur í blaðaheiminum
og vakti áhuga margra.
í skíðalandinu Sviss og víðar
í Evrópu þarf hátt til fjalla á
sumrin til að komast á snjó og
hefur þunna loftið vissa erfið-
leika í för með sér. Vestur í
Bandaríkjunum er víðast of
heitt á jöklum uppi mikinn
hluta dagsins. En á Vindheima-
jökli er hitinn talinn hinn æski
legasti á sumrin og tiltölulega
auðvelt að komast þangað með
skíðalyftu.
Segja má, að mál þetta sé í
senn ævintýralegt ennþá og þó
vert fullrar lathugunar vegna
sérstöðu staðarins. □
Dr. Halldór Pálsson,
búnaðarmálastjóri.
firði og í Kjósasýslu. Mjög eru
bændur ólíkt á vegi staddir með
heyskapinn. En sýnilegt er, að
heyfengur verður lítill. Á norð-
anverðum Vestfjörðum gengur
betur. Á Fljótsdalshéraði geng-
ur heyskapur vel. Ný köl eru í
túnum sunnanlands í vor og
arfinn er það eina, sem vel
(Framhald á blaðsíðu 5)
Ker það á Þórshöfn, er sökk í sæ á skökkum stað á dögunum og frá var sagt í blaðinu. (Ljós-
myndina tók E. D.)
Léleg spretta og óþurrkar syðra
DR. HALLDÓR PÁLSSON bún
aðarmálastjóri sagði blaðinu á
mánudaginn, að þetta sumar
væri sunnlenzkum bændum eitt
hið erfiðasta í langan tíma.
Hann sagði: Óþurrkasvæðið
nær yfir alla Austfirði vestur
um Suðurland, norður um Vest
urland og austur í A.-Húna-
vatnssýslu. Á mið-Suðurlandi
er ástandið þó nokkru betra, en
þar náðust mikil hey fyrir
rúmri viku. Margir bændur á
þessu stóra óþurrkasvæði hafa
enn ekki fengið þurrt strá í
hlöður, en margir hirt nokkuð
í votheysgeymslur. Sprettan er
víðast hin ömurlegasta á nefndu
svæði. Klaki var óvenjumikill
í jörð í vor og þá rigndi mjög
og jörðin var köld og vatnssósa.
Fyrir stuttu var jarðklaki um
eitt fet.á þykkt í skurðruðning-
um í Borgarfirði. Feikimikil
hey eru nú úti t. d. í Borgar-
Ágæfis filboð frá Suðurbyggð
Fundir Framsóknarmanna í Norð-
ur-Þingeyjarsýslu 14. og 15. ág.
Meðal bænda eystra er mjög
vaxandi óánægj'a yfir því hvern
ig hreindýraveiðar fara fram,
enda hafa þeir séð mörg lemstr-
uð hreindýr eftir skot veiði-
manna og ganga raunar mjög
ljótar sögur af hreindýraskytt-
um, sannar eða ósannar. Ef
sannar eru, hefur framferði
sumra veiðimanna verið ósæmi
legt.
Fréttir herma, að eftirlit verði
nú aukið og muni lögreglumenn
verða eftirlitsmanni til aðstoð-
FRAMSÓKNARFÉLÖGIN í
Norður-Þingeyjarsýslu efna til
funda fimmtudaginn 14. ágúst á
Þórshöfn, fundurinn hefst kl.
20.30, og föstudaginn 15. ágúst
á Kópaskeri kl. 20.30, þar sem
meðal anuars verða rædd stjórn
mál almennt og héraðsmálin
einnig .
Á fundu-m þessum mæta al-
þingismenn flokksins í kjör-
dæminu, þeir Gísli Guðmunds-
son, Ingvar Gíslason, Stefán
Valgeirsson og Jónas Jónsson.
fBÚAR við Suðurbyggð á Akur
eyri sendu í sumar erindi til
bæjarráðs þess efnis, að þeir,
23 að tölu, buðust til að leggja
fram 15 þús. kr. hver, óaftur-
kræft framlag til að malbika
götuna Suðurbyggð nú í sumar.
En þessi upphæð, 345 þús. kr.
samtals, eru þrír áttundu hlutar
kostnaðar við malbikunina eða
rúmlega það.
Þetta tilboð áhugasamra borg
ara er bæði skemmtilegt og
örvandi, því það sýnir áhuga
fólks á meiri og örari varan-
legri gatnagerð. Og í því felst
mikil fjárhagsleg aðstoð við
bæjarsjóð. Bæjarráð sá sér þó
ekki fært að taka þessu tilboði
í ár, en mun að sjálfsögðu halda
slíkum leiðum opnum við gerð
næstu fjárhagsáætlunar bæjar-
sjóðs. Ættu þá fleiri, er kynnu
að hafa samskonar tilboð í
huga, að koma þeim á framfæri,
áður en sú áætlun og áætlun
um gatnagerðarframkvæmdir
fyrir næsta ár, eru samþykktar.