Dagur - 13.08.1969, Síða 2
2
Akureyrarmót í knattspyrnu:
Lokið er 3 leikjum, og hefur KA
sigrað í öllum
AKUREYRARMÓT í knatt-
spyrnu stendur nú yfir og er
lokið leikjum í þrem aldurs-
flokkum, og hafa úrslit orðið
þau, að KA hefur sigrað í öllum
leikjunum. í 6. fl. sigraði KA
með 1:0. f 5. fl. urðu úrslit 2:0
fyrir KA og í 3. fl. sigraði KA
Svæðamótið í knattspyrnu liefst um helgina
einnig með 4:3. Keppni í 4. fl.
fer fram í kvöld, miðvikudag.
Keppt er um verðlaunagripi,
sem gefnir eru af Knattspyrnu-
ráði Akureyrar, og verða grip-
irnir væntanlega afhentir að
loknu móti. Þá er eftir að leika
í 2. og mfl. karla, og fara þeir
leikir trúlega fram innan
skamms.
Sv. O.
Oft var sótt fast að marki sunnanmanna þótt árangur væri vonum minni.
(Ljósm.: E. D.)
EITT JAFNTEFLIÐ ENN
SL. SUNNUÐAG, kl. 5, hófst
keppni í 1. deild í knattspyrnu
á ný, eftir nokkurt hlé, og
mætti Ffam til leiks á Akur-
eyrarvelli. Leikurinn var mjög
tvísýnn og spennandi allt til
leiksloka, en leiknum lauk svo,
að jafntefli varð, 1 mark gegn 1,
og voru bæði mörkin skoruð í
fyrri hálfleik. Framarar áttu
meira í fyrri hálfleik framan af,
en Akureyringar sóttu mjög
undir lok hálfleiksins, en tókst
ekki að skora nema einu sinni.
Þung sókn var á Fram-markið
•alian síðari hálfleik, en allt kom
fyrir ekki, Akureyringum tókst
ekki að skora, og höfðu þó all-
flestir leikmenn liðsins reynt
markskot. í síðari hálfleik átti
Fram nokkur snögg upphlaup
og skapaðist hætta við mark
ÍBA í nokkur skipti.
LEIKURINN.
Fram byrjaði vel og sóttu
Framarar fast fyrstu mínúturn-
ar, og á 6. mín. lá knötturinn í
netinu á marki ÍBA-liðsins,
eftir laglega fyrirgjöf og vel
heppnað skot. Eftir .markið virt
ust Akureyringar átta sig á hlut
unum og ógnuðu marki Fram,
en allt bjargaðist þar til á 26.
mín., að Þormóði tókst að skora
fallegt mark, eftir fyrirgjöf.
Liðin áttu bæði góð tækifæri í
þessum hálfleik, en tókst ekki
að skora. Nokkurrar hörku tók
að gæta undir lok hálfleiksins,
og áttu Fi'amarar upptökin, en
mikil harka færðist í leikinn í
síðari hálfleik, og sáust jafnvel
hnefar á lofti, og fannst mér
dómarinn, Óli Ólsen, ekki hafa
nógu góð tök á leiknum er líða
fór að leikslokum og sleppti
mörgum ljótum brotum hjá báð
um liðum, þó sérstaklega Fram-
liðinu.
Mikil spenna var í þessum
leik og bæði liðin virtust ákveð-
in í að sigra, en allt kom fyrir
ekki, hvorugu liðinu tókst að
skora, þrátt fyrir góð tækifæri.
ÍBA-liðið sótti ákaft í síðari
hálfleik, og var þung pressa á
Fram-markið, og skot á markið
óvenjumörg, en þótt ótrúlegt sé
lenti knötturinn aldrei í mark-
inu heldur ýmist ofan við þver-
slá eða rétt utan við stengur,
eða markvörður Fram bjargaði.
Það fór því svo að þessum leik
lauk með jafntefli, og er þetta
fjórða jafntefli ÍBA-liðsins í
sumar. Þessi leikur er glöggt
dæmi um íslenzka knattspyrnu,
liðin leika þokkalega úti á vell-
inum og skapa sér góð tæki-
færi, en það vantar endahnút-
inn, það vantar menn, sem geta
skorað mörk. — Akureyringar
léku nú án Steingríms Björns-
sonar og Jóns Stefánssonar.
Sv. O.
ÁKVEÐIÐ er nú, að Svæðamót
í knattspyrnu í yngri flokkum
hefjist um helgina og fara flest-
ir leikirnir fram á Akureyri, en
2 á Húsavík og 1 í Ólafsfirði.
Niðurröðun leikjanna verður
þessi:
16. ágúst (Húsavíkurvöllur):
Þór — Völsungur 4. fl.
16. ágúst (Akureyrarvöllur):
KA — Völsungur 5. fl. kl. 15.
Þór — Dalvík 5. fl. kl. 16.
17. ágúst (Húsavíkurvöllur):
KA — Völsungur 4. fl.
17. ágúst (Akureyrarvöllur):
KA — Dalvík 5. fl. kl. 14.
Þór — Völsungur 5. fl. kl. 15.
21. ágúst (Akureyrarvöllur):
Ólafsfjörður — Völsungur
5. fl. kl 17.30.
22. ágúst (Akureyrarvöllur):
KA — Þór 5. fl. kl. 18.
23. ágúst (Akureyrarvöllur):
Þór — Ólafsf. 5. fl. kl. 10 f. h.
Völsungur — Dalvík 5. fl.
kl. 11 f. h.
Þór — Ólafsf. 3. fl. kl. 13.30.
KA — Völsungur 3. fl. kl. 15.
24. ágúst (Akureyrarvöllur):
KA — Ólafsfjörður 5. fl.
kl. 10.30 f. h.
Völsungur — Ólafsfjörður
3. fl. kl. 14.
Þór — KA 3. fl. kl. 15.
28. ágúst (Ólafsfjarðarvöllur):
Dalvík — Ólafsfjörður 5. fl.
30. ágúst (Akureyrarvöllur):
KA — Ólafsf. 3. fl. kl. 14.
Völsungur — Þór 3. fl.
kl. 15.30.
Þetta er í fyrsta sinn, sem
slíkt mót fer fram hér á Norður
landi, og gefur vonandi góða
raun.
á Einarsstöðum
Þessi unga stúlka, Ingunn E. Einarsdóttir, Akureyri, er einhver
efnilegasta íþróttakona landsins um þessar mundir, og sigraði í
tveimur greinum, 100 in. grindahlaupi og langstökki, á íslandsniót-
inu í frjálsíþróttum, sem fram fór á Laugarvatni í júlí. — Myndina
tók II. T. á Akureyrarvelli.
Laugum 20. júlí. Eins og fram
kom hér á undan, stendur nú
yfir Fjórðungsmót norðlenzkra
hestamanna á Einarsstöðum.
Hefur þess að sjálfsögðu gætt
hér í nágrenninu í ferðum
hesta, manna og bíla. Stór tjald
borg á Einarsstaðatúni blasir
við héðan frá Laugum og tjöld
eru á víð og dreif við veginn á
milli.
Veður var hagstætt á föstu-
dag og í gær — laugardag — en
í dag er norðaustanátt, kalsa-
veður og veruleg rigning.
Aðstaða til að halda slík mót
er ágæt á Einarsstöðum. Áhorf-
endasvæðið við skeiðvöllinn er
brekka móti suðri, landrými
gott og gistiaðstaða í næsta ná-
grenni á Laugum. Aðstæður
leyfa 800 m. sprettfæri á beinni
braut og á skeiðvelli hlaupa
hestar á afmörkuðum brautum,
svo sem venja hefur verið hér
í Þingeyjarsýslu um árabil, þótt
lítt eða ekki hafi verið tiðkað
annarsstaðar. Talið er, að 6—
700 hestar hafi komið á mótið
og fjöldi manna báða mótsdaga.
Hér fara svo á eftir úrslit í
góðhestakeppni og kappreiðum
á mótinu.
Afkvæniasýndir stóðhestar:
1. Glæsir nr. 656. Eigandi Jón
Baldursson, Dæli, Skagafirði. 2.
Fjölnir nr. 595. Eigandi Hrossa-
ræktarsamband Norðurlands. 3.
Blesi nr. 664. Eigandi Sigríður
Skarphéðinsdóttir, Kimbastöð-
um, Skagafirði.
Stórliestar 6 vetra og eldri:
1. Dreyri nr. 621. Eigandi Kyn
bótabúið á Hólum í Hjaltadal.
Einkunn 8.14. 2. Hrollur nr. 689.
Eigandi Bjarni Frímannsson,
Efri-Mýrum. Einkunn 808. 3.
Blakkur nr. 614. Eigandi Sveinn
Jóhannsson, Varmalæk, Skaga-
firði. Einkunn 8.02.
Stóðhestar 4—5 vetra:
1. Sörli nr. 653. Eigandi
Sveinn Guðmundsson, Sauðár-
króki. Einkunn 8.24. 2. Eyfirð-
ingur nr. 654. Eigandi Hrossa-
ræktarsamband Norðurlands.
Einkunn 8.05. 3. Blakkur nr.
685. Eigandi Halldór Antonsson,
Tumakoti, Óslandshlíð. Einkunn
7.96.
Afkvæmasýndar hryssur:
1. Drottning nr. 3474. Eigaiidi
Ingibjörg Jósefsdóttir, Enni,
Refasveit. (Onnur verðlaun fyr
ir afkvæmi). 2. Iða nr. 2839. Eig
andi Einar Höskuldsson, Mos-
felli, Svínadal. (Önnur verðlaun
fyrir afkvæmi).
Hryssur, 6 vetra og eldri
(einstaklingar ):
1. Elding nr. 3246. Eigandi
Guðmuhdur Sigfússon, Eiríks-
stöðum. Einkunn 8.55. 2. Hrafn-
tinna nr. 3250. Eigandi Þor-
steinn Jónsson, Ósi, Akureyri.
Einkunn 8.36. 3. Perla nr. 3251.
Eigandi Haraldur Tryggvason,
Svertingsstöðum,
Einkunn 8.23.
Eyjafirði.
Hryssur, 4—5 vetra
(einstaklingar):
1. Kolbrún nr. 3440. Eigandi
Kynbótabúið á Hólum í Hjalta-
dal. Einkunn 8.35. 2. Muska nr.
3464. Eigandi Kynbótabúið Hól-
um. Einkunn 7.98. 3. Iða nr.
3467. Eigandi Sigurður Stefáns-
son, Sauðárkróki. Einkunn 7.94.
Alhliða gæðingar:
1. Léttir Guttorms Óskarsson
ar, Sauðárkróki, 10 vetra. Eink-
unn 8.09. 2. Sindri Jóns Guðna-
sonar, Eiríksstöðum, Svartár-
dal, 16 vetra. Einkunn 8.06.
3. Smyrill Helgu Ólafsdóttur,
Höllustöðum, 7 vetra. Einkunn
7.93.
Klárhestar með tölti:
1. Blossi, 9 vetra. Eigandi Jón
as Egilsson, Akureyri. Einkunn
7.68. 2. Skjóni, 9 vetra. Eigandi
Sfeingrímur fótbrofnaði
OKKAR kunni knattspyrnu-
maður, Steingrímur Björnsson,
fótbrotnaði í æfingaleik við KR
fyrir skömmu, og má með sanni
segja, að Steingrímur sé okkar
óheppnasti íþróttamaður. Stein
grímur verður frá vinnu í
nokkrar vikur, og hefur fé ver-
ið safnað í bænum til styrktar
fjölskyldu hans, og er það vel,
því allir gera sér í hugarlund
hvaða áfall það er fyrir fjöl-
skyldu, ef fjölskyldufaðirinn er
frá vinnu vikum saman vegna
meiðsla.
En vegna þessa slys, vaknar
sú spurning. Hvernig er hagað
tryggingum fyrir okkar íþrótta-
menn? Verða þeir sjálfir að
taka á sig áhættuna af slysum,
sem þeir verða fyrir? Hvað fær
t. d. íþróttamaður á Akureyri í
dagpeninga, sem verður fyrir
óhappi á borð við Steingrím?
Nauðsynlegt er að fá svar við
þessum spurningum, og ef svo
reynist að íþróttamenn, sem
alltaf eiga á hættu að slasast,
pins og knattspyrnumenn, fá
kannski 100—200 krónur í dag-
peninga, ef þeir slasast, þá verð
ur að taka þau mál til ræki-
legrar endurskoðunar, og það
fyrr en seinna, því nóg finnst
manni að fjölskyldumenn fórni
flestum frístundum sínum í
æfingar og keppni, þótt þeir
eigi ekki á hættu að geta ekki
séð fyrir fjölskyldum sínum ef
óhapp kemur fyrir.
- - Sv.O.