Dagur - 13.08.1969, Side 7
7
Innilegar þakkir færum \ ið öllum, sem sýndu
okkur samhug við andlát og útför föður okkar,
ÁRMANNS SIGURÐSSONAR frá Urðum.
Börnin.
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför
ÞORGERÐAR STEFÁNSDÓTTUR
frá Þórðarstöðum, Hlíðargötu 10, Akureyri.
Vandamenn.
Þökkum innilega auðsýnda samtið \ið andlát og
jarðarför
STEFÁNS GUÐMUNDSSONAR,
Brekkugötu 30, Akureyri.
Vandamenn.
Þakka auðsýnda samúð og hlýhiug við andlát og
jarðarför
TRYGGVU KRISTJÁNSDÓTTUR.
Sérstakt þakiklæti til stárfsfólks Eliiheimilis Ak-
ureyrar og Kristneshælis.
Hallfríður Rósantsdóttir.
Alúðarþakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát
og útför
HERMANNS GUÐNASONAR frá Hvarfi.
Sérstaklega þökkum við laaknum og starfsfólki
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri.
Vandamenn.
Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns og
föður,
SIGURÐAR JÓNSSONAR,
Sólvöllum 11, Akureyri.
Sérstakar þakkir færum við starfsmönnum hjá
Kaupfélagi Eyfirðinga.
Jóhanna Sveinbjörnsdóttir,
Sigrún Sigurðardóttir.
Hjartans þakklæti til allra, sem auðsýndu okkur
samúð og vinarbug við andlát og jarðarför
HALLDÓRS ÁRNASONAR
frá Tréstöðum í Hörgárdal.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Fjórðungs-
sjtilkrahússins á Akureyri og Elliheimilis Akur-
eyrar fyrir umönnun og hjúkrun í langvinnum
veikindum.
Börnin.
Þakka innilega auðsýnda samúð og /vinarlnig við
andlát og jarðar.för eiginkonu rninnar,
HELGU JÓNSDÓTTUR frá Öxl.
Einnig þakka ég læknum og hjúkrunarliði á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri frábæra um-
önnun og hjúkrun í veikindiun hennar.
Ennfremur þakka ég þeirn, sem t ottað hafa henni
virðingu með gjöfum til menningar- og hjálpar-
stofnana.
Páll Magnússon.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför
BENIDIKTS JAKOBS JÓNSSONAR,
Pétursborg.
Sérstaklega þökkum við séra Þórhalli Höskulds-
syni fyrir alla lians aðstoð.
Brigitte Jónsson,
Lotta Jakobsdóttir, Jóna Jakobsdóttir,
Jón Jakobsson, Hilmar Jakobsson,
María Rósa Jakobsdóttir,
Helgi Helgason, Helgi Jakob Helgason.
MESSAÐ verður í Lögmanns-
hlíðarkirkju n. k. sunnudag
kl. 2 e. h. Sálmar: 578 — 379
— 139 — 238 — 674. Bílferð
verður úr Glerárhverfi kl.
1.30. — B. S.
L AU G AL ANDSPREST AK ALL
Messað í Kaupangi 17. ágúst
kl. 14.00.
LAUFÁSSÓKN. Messað í Lauf
ási n. k. sunnudag kl. 2 e. h.
— Sóknarprestur.
BIBLÍULESTUR í -Vinaminni
laugardagskvöld kl. 8.30. -—
Sæmundur G. Jóhannesson.
- Heimsókn forsetans
(Framhald af blaðsíðu 1)
leika þar, kórar bæjarins syngja
og ávörp flytja forseti bæjar-
stjórnar, Bragi Sigurjónsson, og
forseti íslands, herra Kristján
Eldjárn, en að lokum verður
þjóðsöngurinn leikinn og su-ng-
inn. Um kvöldið kl. 19.30 sitja
forseti íslands, frú hans og
fylgdarlið ásamt fleiri gestum
kvöldverðarboð bæjarstjórnar
Akureyrar og sýslunefndar
Eyjafjarðarsýslu. Þar flytja
ávörp sýslumaður Eyjafjarðar-
sýslu, Ófeigur Eiríksson, Bjarni
Einarsson, bæjarstjóri og for-
seti Islands, herra Kristján Eld
járn. Fyrir hádegi þriðjudaginn
19. ágúst mun forsetinn aka um
Eyjafjörð framan Akureyrar,
en halda síðan til Dalvíkur þar
sem sveitungar hans og sýslu-
nefnd Eyjafjarðarsýslu munu
taka sérstaklega á móti honum.
Það er vinsamleg ósk sýslu-
og bæjaryfirvalda, að í tilefni
komu forsetahjónanna verði
starfsfólki almennt gefið frí frá
kl. 17.00 n. k. mánudag og verzl
unum lokað frá sama tíma þann
d .gaEinnig að íslenzki fáninn
blakti sem víðast við hún í bæ
og héraði meðan á forsetaheim-
sókninni stendur, og almenn-
ingur geri sér far um að setja
hátíðasvip á bæ og hérað.
Ef veður hamlar móttöku-
athöfn í Lystigarðinum, hefst
hún á sama tíma í íþrótta-
skemmunni.
(Fréttatilkynning)
MESSAÐ verður í Akureyrar-
kirkju n. k. sunnudag kl.
10.30 f. h. Sálmar: 578 — 379
— 139 — 238 — 674. — B. S.
MÖÐRU V ALL AKL AUSTURS -
PRESTAKALL. Guðsþjón-
usta að Glæsibæ n. k. sunnu-
dag, 17. ágúst, kl. 10.30 f. h.
P rófastur Eyj afj arðarprófasts
dæmis, síra Stefán Snævarr,
prédikar. Prófastsvisitasia. —
Sóknarprestur.
HÉRAÐSMÓT UMSE í frjáls-
um íþróttum verður á Lauga-
landsvelli 23. og 24. þ. m. —
UMSE.
ÁHEIT á Akureyrarkirkju kr.
500.00 frá ónefndri. — Beztu
þakkir. — Birgir Snæbjörns-
son.
MUNIÐ eftir fallegu minningar
spjöldunum sem gefin eru út
til styrktar íslenzka kristni-
boðinu í Konsó. Þau fást hjá
Reyni Hörgdal, Skarðshlíð 17,
Sigríði Zakaríasdóttur, Gránu
félagsgötu 6, Sólveigu Krist-
jánsdóttur, Vanabyggð 2 B og
Véla- og raftækjasölunni,
Geislagötu 14.
GJAFIR. Tíu þús. kr. minning-
argjöf hefur Slysavarnadeild
kvenna á Akureyri borizt til
minningar um Árna Gunnar
Tómasson, sem lézt af slys-
förum við Búrfell sl. vetur.
Gjöfin er gefin af foreldrum
hans, börnum þeirra og
tengdabörnum á 27 ára af-
mælisdegi Árna. — Einnig
hefur borizt önnur minningar
gjöf 15 þús. kr. Deildin send-
ir gefendum beztu þakkir. —
Sesselja.
.■■V.V.V.V.V.V.W.V.V.V.
Syndið
200 METRANA
.■.V.V.V.V.V.V.W.V.V.V.
Auglýsingasími Dags
er 1-11-67
Framkv. hafnar við KA-svæðið
Léleg mæting hjá KA-félögum um s.l. lielgi
BÚIÐ er nú að rista ofan af
bráðabirgðaknattspyrnuvelli, er
gera á á KA-svæðinu, og er
verið að rúlla upp þökum og
aka þeim burt svo hægt sé að
jafna til áður en þakið verður
aftur. Framkvæmdir við þök-
urnar hófust sl. föstudag, en
mjög fáir félagsmenn mættu þá
til vinnu og eins á laugardag og
sunnudag, en félagsmenn munu
nú vera á sjöunda hundrað.
Framkvæmdum þessum þarf að
ljúka á þrem vikum, ef þökurn-
ar eiga ekki að eyðileggjast, og
verða því KA-félagar, allir sem
vettlingi geta valdið, að taka til
höndunum næstu kvöld og um
helgina ef ekki á illa að fara. —
Samtaka nú, KA-félagar!
* 't'vZ 'í'vú '4'® '4,(S 't'vu
1 *
'f Innilega pakka ég skyldfólki, venzlafólki og öðr- |
nm vinnm, er glöddn mig með ýmsii móti á *
áttr.œðisafmœli minn pann 1. ágúst s.l. — Beztn %
t
t
0
I
$
.t
1
t
kveðjnr sendi ég yhknr öllarh.
RÓSA AIA GNÚSDÓTTIR.
Hjartans pakkir til barna, tengdabarna, stjúp-
barna, barnabarna og vina fyrir heimsóknir, gjaf-
ir og heillaskeyti á sjötugsafmccli minu, 7. júli
s.l. — Gnð blessi yhhnr öll.
MARGRÉT FRIDRIKSDÓTTIR,
Ásabyggð 2, Ahnreyri.
f
t
f
1
t
±
!
BRÚÐHJÓN. Laugardaginn 19.
júlí sl. voru gefin saman í
hjónaband í Möðruvalla-
klausturskirkju, ungfrú Heið
rún Sverrisdóttir, Skógum,
Þelamörk og Þorsteinn Berg,
Strandgötu 29, Akureyri. —
Heimili þeirra verður að
Strandgötu 29.
BRÚÐHJÓN. Hinn 8. ágúst
voru gefin saman í hjónaband
í Akureyrarkirkju ungfrú
Guðrún Svala Guðmunds-
dóttir og Hannes Haraldsson
vélvirkjanemi. Heimili þeirra
verður að Akurgerði 5 B,
Akureyri. Ljósm.st. Páls
GJÖF til kvenfélags Akureyrar
kirkju frá N. N. kr. 500.00 —
Með þökkum móttekið. —
Stjórnin.
FERÐAFÉLAG AKUREYRAR.
Ferðir um helgina: Suðurár-
botnar—Dyngjufjöll. Flateyj-
ardalur.
HLIFARKONUR. Farið verður
á Flateyjardal sunnudaginn
17. þ. m. kl. 8 f. h. frá Um-
ferðarmiðstöðinni í Skipa-
götu. — Ferðanefndin.
- SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8).
bæta, en aðeins endurtekið, að
það væri mjög ánægjulegt að
myndarleg hesthús og ekki að-
eins eitt heldur miklu fleiri,
væru á góðum stöðum í bæn-
um, öllum góðum mönnum til
yndisau-ka og hrossaeigendum
og hrossaræktannönnum til
sóma. Því má svo við bæta, að
þeir sem í draumi og vöku vilja
lifa fyrir þá hugsjón, að bærinn
okkar eigi að dafna við aukinn
ferðamannastraum, og það gæti
Iiann vissulega, fengju að sýna
það sjaldgæfa fyrirbæri útlend-
ingum, að hér á landi væri
lirossum nokkur sómi sýndur,
eins og títt er hjá þeim menn-
ingarþjóðum, sem þær skepnur
eiga. En sjálfur stendur íslenzki
hesturinn fyrir sínu þótt hesta-
mennskan sé vart sýningarhæf
fremur en kofarnir.
GÓÐ BERJASPRETTA
Þótt frost væri mikið í jörðu
eftir frostharðan vetur og klaki
sé enn ekki horfinn með öllu,
lítur út fyrir góða berjasprettu
í ár. Ber munu þó vart tínslu-
hæf ennþá, en síðar í þessum
mánuði munu margir reyna að
afla sér berja úti í náttúrunni.
Á hverju sumri veldur það
óánægju og jafnvel árekstrum,
að fólk fer í berjamó án leyfis
landeigenda. Er slíkt þjófnaður,
ef ber eru tínd í annars manns
landi án leyfis, í líkingu við það,
ef sveitafólk hirti jarðarávexti
• á lóðum og lendum bæjarbúa.