Dagur - 28.04.1971, Blaðsíða 1

Dagur - 28.04.1971, Blaðsíða 1
FILMU HÚSIÐ Hafnarstræti 104 Akureyri Sími 12771 • P.O. Box 397 SCRVCRZLUN: LJ ÓSMYN DAVÖRUR FRAMKÖLLUN - KOPIERING Sungið og leikið á Húsavík Bændur í hádegisverðarboði á Hótel KEA í gær. (Ljósm.: E. D.) VELTA MJÚLKURSAMLAGS KEA EIN MILLJÚN A DEGI HVERJUM Arsfundurinn var haldinn á Akureyri í gær Húsavík 26. apríi. Karlakórinn Þrymúr hefur að undanförnu haldið söngskemmtanir hér á Húsavík og í nágrannasveitum. Söngstjóri er Jaroslav Lauda en formaður kórsins er Hjörtur Tryggvason. Kirkjukór Húsavíkur er að ■ ■ Olvun og nokkur innbrot BROTIZT var inn í íþrótta- skemmuna um helgina og þar stolið einhverju af súkkulaði og karamellum. Þá tilkynntu tann læknar, að brotizt hefði verið inn í húsnæði þeirra í Glerár- götu 20, einhverntíma nýlega og stolið nokkur hundruð krón- um, en varla voru þeir búnir að tilkynna það, er brotizt var þar inn aftur, en engu stolið í það sinnið. Þá var farið inn um glugga á suðurhlið Landbún- aðarverkstæðisins og stolið þar um 1000 krónum. Nokkuð bar á ölvun um helg- ina og ökumenn voru gjarnir á að aka of hratt um götur bæjar- ins, enda urðu nokkrir árekstr- ar, en allir minni háttar. □ FLÓTTAMANNASÖFNUNIN gekk vel á Akureyri á sunnu- daginn, þótt ekki sé henni reyndar að fullu lokið, því tek- ið verður við framlögum þess fólks, sem ekki reyndist unnt að ná til á sunnudaginn, fram á fimmtuddag, á bæjarskrifst. Þegar blaðið hafði samband við forstöðumenn söfnunarinn- ar í gær, voru þeir búnir að telja um 392 þúsund krónur, en eitthvað svolítið var eftir, þann- ig að gera má ráð fyrir, að upp- hæðin, sem safnazt hefur hér í bænum nái að minnsta kosti 400 þúsundum. Slysavarnafélagið AÐALFUNDUR Slysavarna- félags íslands mun verða hald- inn á Akureyri 26.—27. júní í sumar, í húsakynnum Mennta- skólans. □ æfa söngskrá og mun efna til söngskemmtunar í vor. Söng- stjóri kirkjukórsins er Reynir Jónasson. í gær efndi Lionsklúbbur Húsavíkur til skemmtunar fyrir aldrað fólk. Það er árlegur liður í starfsemi klúbbsins, að bjóða til sín öldruðu fólki, upp á veit- ingar og skemmtiatriði og nýt- ur þessi starfsemi mikilla vin- sælda. Aðalfundur Kaupfélags Þing- eyinga er fyrirhugaður á Húsa- vík á þriðjudag og miðvikudag, 27. og 28. apríl. Hrognkelsaveiði og önnur fiskveiði hefur verið léleg hjá Húsavíkurbátum til þessa í vor. Mikill hugur er í mönnum að byggja á Húsavík og er búið að úthluta allmörgum lóðum fyrir einbýlishús og fyrirhugað er að byggja á þessu og næsta ári 10 íbúða raðhús. Framsóknarfélag Húsavíkur hélt nýlega aðalfund sinn. í stjóm voru kosnir: Sigtryggur Albertsson hótelstjóri, formað- ur, Aðalgeir Sigurgeirsson bif- reiðastjóri, gjaldkeri og Þor- steinn Jónsson skrifstofumaður, ritari. Varamenn í stjórn voru kosnir: Finnur Kristjánsson kaupfélagsstjóri og Jóhannes Haraldsson framkvæmdastióri. G. B. f Reykjavík munu hafa safn- azt 2 milljónir og samkvæmt útreikningum mun hlutur Akur eyringa tiltölulega betri. Eftir tölum að dæma frá hin- um Norðurlöndum, hafa íslend- ingar verið allra Norðurlanda- búa örlátastir í hjálp sinni til flóttamannanna. □ FRÁ fundi bygginganefndar Akureyrar 21. apríl er bókað eftirfarandi: Erindi dagsett 10. desember 1970 frá bygginganefnd Glerár- kirkju, þar sem sótt er um lóð á ásnum milli Harðangurs og Melgerðis í Glerárhverfi. Að hálfu skipulagsnefndar var lóð- arumsóknin samþykkt á fundi nefndarinnar 7. apríl 1971. ÁRSFUNDUR Mjólkursamlags KEA var haldinn í gær, þriðju- dag, og var hann fjölmennur að vanda. Brynjólfur Sveinsson, formaður félagsstjórnar, setti fundinn í Samkomuhúsi Akur- eyrar kl. 10.30 árdegis. Fundar- stjórar voru kjörnir þeir Stefán Halldórsson, Hlöðuni og Arn- steinn Stefánsson, Dunhaga, en fundarritarar þeir Halldór Jóns son, Jarðbrú og Haukur Hall- dórsson, Sveinbjarnargerði. Mjólkursamlagsstjóri, Vern- harður Sveinsson, flutti ítar- lega skýrslu um rekstur sam- lagsins á árinu 1970 og las Bygginganefnd samþykkir að veita bygginganefnd Glerár- kirkju lóð á umbeðnum stað. Um lóðarstærð fer eftir ákvörð- un nefndarinnar síðar í sam- ráði við arkitekta kirkjunnar og skipulagsnefndar. Þessu til viðbótar hefur skipu lagsnefnd mælt með þessum stað fyrir væntanlega kirkju í Glerárhverfi. □ reikninga þess. Þar kom fram, að innlagt mjólkurmagn á ár- iu var 20.253.450 lítrar og hafði aukizt um 3.09% frá fyrra ári. Fitumagn mjólkurinnar var að meðaltali 4.102%, en meðalinn- legg á framleiðanda var 49.158 lítrar. Framleiðendur voru 412 og hafði fjölgað um einn á ár- inu. 95.78% mjólkurinnar flokk uðust í 1. og 2. flokk. Af mjólkurmagninu voru 18% seld sem ferskmjólk, en á árinu var framleitt eftirtalið magn af mjólkurvörum: Smjör 554 tonn, ostar 625 tonn, skýr 189, kasein 146 og undanrennu- amjöl 64 tonn. Smjörframleiðsla samlagsins nam tæpum 37% af heildarframleiðslu smjörs í landinu, en ostaframleiðslan rúmum 34% af landsframleiðsl- Reikningsyfirlit ársins sýndi, að rekstrar- og sölukostnaður hafði orðið 364.08 aurar á lítra. Utborgað hafði verið mánaðar- lega til framleiðenda 977.21 aurar á lítra, sjóðagjöld námu 24.94 aurum á lítra og eftir- stöðvar urðu 367.73 aurar á líbra. Heildarverð varð þannig 1.369.88 aurar á lítra, sem er 27.88 aurum yfir staðargrund- vallarverði. Þá kom fram í reikningum, að heildarvelta ársins 1970 nam 361.663 milljónum, eða um einni milljón á dag. Launagreiðslur samlagsins á árinu voru tæpar 14 milljónir og liöfðu hækkað um 27% frá árinu 1969. Fundurinn samþykkti að af eftirstöðvum á rekstursreikn- ingi skyldu 353 aurar á lítra greiddir í reikninga framleið- enda, 14 aurar í stofnsjóð og afgangurinn 0.73 aurar yfirfær- ast til næsta árs. (F,-amhald á blaðsíðu 5) Með fjaðrabliki FARFUGLARNIR, með fjaðra- bliki um háa vegaleysu, koma nú hver af öðrum til norðlægra varpstöðva sinna og kveða kvæðin sín, boða komu vors og sumars. Tjaldurinn gæsin, hettumáv- urinn og lóan komu fyrir nokkru. Síðan stelkur, grá- tittlingur og maríuerla. Enn- fremur duggönd, skúfönd, graf- önd og rauðhöfðaönd. Þessum fuglategundum fjölgar ört með degi hverjum. Þá er komið mikið af þröstum og eru þeir, ásamt auðnutittlingi, farnir að hugsa til hreiðurgerðar. □ Flóifamannasöfnunin Kirkjulóð í Glerárhverli Bændur héraðsins fjölmenntu á aðalfund Mjólkursamlags KEA í gær, og sjást hér nokkrir þeirra, (Ljósm.: S. D.)

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.