Dagur - 14.06.1972, Qupperneq 1
Dagur
LV. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 14. júní 1972 — 31. tölublað
KLUKKAN 8.40 í gærmorgun
var slökkviliðið kallað að Fjórð-
ungssjúkrahúsi Akureyrar. Þar
hafði kviknað í dóti í kjallara-
gangi og varð af mikill reykur.
Eldurinn var þegar slökktur og
skemmdir urðu ekki teljandi
nema af reyk og önæði á sjúkra
húsinu lítið sem ekkert.
Eldurinn kom af neistaflugi
,,vítisvélar“ einnar, sem notuð
er til að skera steypuveggi
hljóðlaust. Hafði hún verið not-
uð þarna um morguninn. □
iðian komin
HINGAÐ til Akureyrar kom ný
lega heykögglaverksmiðjá sú,
sem vsentanleg var og fyrr var
frá sagt. Hún er dönsk, auðflutt
á milli staða og verður fyrst
reynd í Lundi á Akureyri ein-
hvern næsta dag. Þaðan verður
hún send til Svalbarðsstrandar
og reynd þar. Bændur greiða
ákveðið gjald fyrir hverja ein-
ingu heys, sem tekin er til verk
unar eða heykögglagerðar. En
reynslan verður að skera úr um
það, hvort verksmiðja af þessari
gerð á rétt á sér við íslenzkar
aðstæður. Verksmiðja þessi er
keypt með þeim skilmálum, að
henni má skila, ef hún þykir
ekki við hæfi. 1' □
Frá lögreglunni
AÐFARARNÓTT síðasta föstu-
dags var brotist inn í trillubát í
dokkinni við Höpner og verk-
færum stolið. Þá var bátur leyst
ur þar og rak hann inn á Leir-
ur. Farið var í fleiri báta og auð-
séð á umgengni, að þar voru
skemmdarvargar á ferðinni. Bið
ur lögreglan um upplýsingar
um þetta mál, ef einhver getur
HEYSKAPUR
HAFINN
HEYSKAPUR er hafinn. Byrj-
að er að slá á nokkrum bæjum
í Saurbæjarhreppi, Hrafnagils-
hreppi og Öngulsstaðahreppi.
Ennfremur á Svalbarðsströnd.
Fyrst mun hafa verið slegin
tveggja ára gömul nýrækt í
Gullbrekku í Saurbæjarhreppi.
Hún var alveg friðuð og á hana
borið í síðari hluta aprílmánað-
ar. Gras var þar mikið sprottið,
er slegið var fyrir rúmri viku.
Bændur á Gullbrekku eru Hauk
ur og Sverrir Magnússynir.
Vel ræktuð tún, sem ekki
voru beitt í vor og fengu áburð-
inn tímanlega, eru hvarvetna
vel sprottin og mun sláttur víða
hefjast um næstu helgi við inn-
anverðan Eyjafjörð.
í Fnjóskadal eru sumar ný-
ræktir orðnar mjög vel sprottn-
ar og mun sláttur hefjast þar
einhvern næsta dag.
í Grýtubakkahreppi mun og
skammt til heyskapar. Q
þær gefið eða um grunsamlegar
mannaferðir umrædda nótt við
bátadokkina. Þá mun bátur
Veigastaðabænda hafa verið
settur á.flot í leyfisleysi og rak
hann inn með landi.
Á laugardagskvöldið varð um-
ferðarslys sunnan við Lónsbrú.
Þar varð kona fyrir bifreið og
hlaut hún höfuðhögg og áverka
og var flutt í sjúkrahús.
Á sunnudagskvöldið ók bíl-
stjóri á stólpa Þverárbrúar í
Öngulsstaðahreppi. Skemmdist
bíllinn mjög en ekki urðu slys
á mönnum.
Á mánudagsnótt voru þrír
ökumenn teknir fastir fyrir of
hraðan akstur, þar af tveir á
bifhjólum.
Um helgina var brotist inn í
Mjöll, þvottahús, peningakassi
skemmdur en litlu sem engu
stolið. □
I
&
I
£
í
%
-/ý
©
i
I
i
I
I
v,í
&
I-
ý Kirkjubygging á Miklabæ í Skagafirði liefur verið í fréttum. Því var numið staðar og þessi <3
ý mynd tekin fyrir helgina af nýju kirkjunni, eins og hún lítur út nú. Gamla kirkjan, reisuleg en *
j; talin heldur illa á sig komin, stendur skammt frá. Nýja kirkjan er úr timbri, kölluð „Jörundar-
^ kirkja“ eftir þeim, er hana teiknaði. Áætlaður byggingarkostnaður var 1.9 millj. kr., en er nú,
t. þegar byggingin er „komin undir þak“, áætlaður 4.6 millj. kr. (Ljósm.: E. D.) 'f
? f
&->-#s-®'i-#'>-©'^#'!'®'í-#'}'©'í»#'}-©'i-#'>-©'>-*'í-©'''>-*')-©'>-*'>-©'*-*'^©'*-*'í-©->-*'í-©'»-*i
Stórstúkuþing á Akureyri
STORSTUKUÞING var haldið
á Akureyri dagana 8.—11. júní
í Oddeyrarskólanum. Ólafur Þ.
Kristjánsson, stórtemplar, stjórn
Vinabæjamót á Ákureyri
VINABÆJAMOT verður haldið
á Akureyri dagana 23.—25. júní.
Þá koma hingað fulltrúar frá
vinabæjunum fimm. En þeir eru
þessir: Álasund í Noregi, Rand-
ers í Danmörku, Vesturás í Sví-
þjóð, Lahti í Finnlandi og Nar-
saak í Grænlandi. Gert er ráð
fyrir tveim fulltrúum frá hverj-
um þessara vinabæja, ásamt
mökum þeirra.
Það er í fyrsta sinn, að full-
trúar frá Grænlandi mæta í sam
eiginlegu vinabæjamóti sem
þessu, en fyrir ári síðan tóku
Akureyri og Narsaak upp vina-
bæjasamband.
Vinabæjamót eru haldin ár-
lega, en nú eru liðin 10 ár síðan
vinabæjamót var haldið hér á
Akureyri, og þá í tilefni af 100
ára afmæli kaupstaðarins.
Hér er fyrst og fremst um
kynningarmót að ræða, en upp
úr þeim hefur m. a. sprottið
veruleg samvinna um æskulýðs
mál og verður æskulýðsleiðtoga
vika vinabæjanna haldin í Ála-
sundi síðar á sumrinu. Q
aði þinginu, en á því voru 60
fulltrúar. Stórstúkustigið tóku
15 félagar. Mest var rætt um
útbreiðslustarf Reglunnar og
samvinnu við önnur félög.
í sambandi við þingið voru
ýmis ferðalög til að kynna Norð
urland fyrir fulltrúum. Akur-
eyrarbær bauð þinginu til kvöld
verðar í Skíðahótelinu. Farin
var kvöldferð í Ólafsfjörð um
Ólafsfjarðarmúla og drukkið
kvöldkaffi á Dalvík og tók þar
stúkan Norðurstjarnan á móti
þinginu. Þar flutti Snorri Árna-
son byggðakynningu um Dal-
vík. Þá var farin ferð um Þing-
eyjarsýslur á laugardaginn.
í sambandi við þingið var
Unglingaregluþing þann 7. júní
undir stjórn Hilmars Jónssonar
stórgæzlumanns unglingastarfs.
Voru þar rædd málefni barna-
stúknanna.
Á sunnudaginn var hástúku-
fundur og tóku 11 stórstúku-
félagar hástúkustigið. Á þing-
inu voru fjórir reglufélagar af
Akureyri kjörnir heiðursfélagar
stórstúkunnar. Þeir voru: Þór-
hildur Hjaltalín, Klara Nielsen,
Jónína Steinþórsdóttir og Ólaf-
ur Daníelsson.
Framkvæmdanefndin var að
(Framhald á blaðsíðu 4)
NÝ BRÚ Á
SKJÁLFANDAFLJÓT
ÁKVEÐIÐ hefur verið að
byggja í sumar nýja brú yfir
Skjálfandafljót hjá Fosshóli.
Gamla brúin, sem þar er nú,
var byggð árið 1930 og er það
71 m. löng járnbrú, mikið mann
virki á sinni tíð, en svarar ekki
lengur kröfum tímans. En þar
áður var þar trébrú, orðin forn-
gripur 1930.
Nýja brúin á að vera litlu
norðar en hinar og vegurinn á
hana að austan mun þá liggja
norðan við byggingar kaup-
félagsútibúsins þar á staðnum.
Brú er yfir Skjálfandafljót
suður í Bárðardalnum, nýleg og
myndarleg, og önnur nokkru
eldri norður í Kinn. Q
ELDUR LAUS í
SJUKRAHUSINU
Á FIMMTUDAGINN lagði 110
manna hópur ferðafólks á veg-
um kjördæmissambands Fram-
sóknarmanna hér í kjördæminu
upp í hálfs mánaðar ferðalag til
Danmerkur, Noregs og Svíþjóð-
ar, undir fararstjórn Jónu Han-
sen og Inga Tryggvasonar. Mun
þetta fyrsta kynnisferðin, sem
kjördæmissambönd flokksins
efna til. Skrifstofa flokksins á
Akureyri hefur annazt undir-
búning ferðarinnar, en Sunna
lagði til farkostinn og fyrir-
greiðslu erlendis.
Hér á myndinni er ferðafólkið
að leggja af stað á Akureyrar-
flugvelli. Ferðalagið hefur geng-
ið að óskum það sem af er.
(Ljósm.: E. D.)