Dagur - 22.12.1972, Blaðsíða 12

Dagur - 22.12.1972, Blaðsíða 12
12 JÓLABLAÐ DAGS og harðgerðir, loðnir og þola vel kuldann á vetrum. Þeir eru látnir ganga úti á meðan þeir ná til jarð- ar og þeir eru duglegir að krafsa snjóinn til að ná í grasið. Þá eru hreindýr á sumum búum og eru þau tamin til dráttar. Þau fljóta á snjónum þótt allt annað ætli að sökkva í lausum snjó. Ekki má gleyma hundunum. Veiðihundarnir eru stórir, fljótir og vitrir. Þeir eru í miklum met- um, alveg í séríiokki. Gæluhundar eru líka til og mörgum þykir vænt um þá, en þeir njóta ekki slíkrar virðingar sem veiðihundarnir. Það skemmist ekki mikið, sem einu sinni liefur horfið til moldar- innar? Nei, og þess vegna er það, að mammútar finnast ekki aðeins í heilu lagi og furðu lítið skemmdir, í jiirðu, heldur finna menn í maga þeirra ómeltar fóðurleifar, sem gefa ýmiskonar vísindalegar upp- lýsingar. Landið er fullt að fornum dómum, sem nú er vaknaður áhugi á að rannsaka. En landið er einnig fullt af ýmiskonar unaði, sem þétt- býlli staðir sakna, og á ég þar t. d. við dýralífið í skógunum miklu, blómstóðið á sumrin og hina ósnortnu náttúru í frumskóginum. En þrátt fyrir kuldann í jörðinni, eru sumrin svo heit, að skógarnir dafna vel, svo og margskonar jarð- argróður. Ávaxtatré höfum við að vísu ekki, en hveiti og margar aðr- ar korntegundir. Grænmeti er mik- ið ræktað og tómatar þroskast vel úti, án gróðurhúsa. Og þú minntist á blómin? Ilvergi hef ég séð annað eins blómahaf og víða er heima. Og þar hef ég til dæmis umhverfi Moskvu til samanburðar, en þar ferðaðist ég víða um og gróðrarfegurð er þar með réttu við brugðið. Hið sér- kennilegasta við gróðurinn heima er það, hve snemma hann blómgast á sumrin, og svo hitt, að litirnir skiptast á alveg sérstæðan hátt, þannig, að á stórum svæðum eru blómin hvít en á öðrum rauð eða gul, og við vötnin eru vatnsbakk- arnir oft xaktir bláum blómum. Öll eru blóm þcssi villt. Túlipanar í skóginum og fleiri lauktegundir með mismunandi lit, hafa sín sam- félög og umráðasvæði eins og þjóð- flokkarnir. En runnar og tré? Birkið er algengt, einnig greni og lerki, en ég veit ekki íslenzku nöfnin nema á fáum tegundum. Runnar eru óteljandi og margir þeirra bera gómsæt ber, sumir algengir hér og á öðrum Norður- löndum, en aðrir einkennandi fyrir okkur austurfrá. Þá má geta þess til gamans, að auk hverskonar berja á runnum, vex ákaflega mikið af góðum jarðarberjum, sem þroskast vel á sumrin og allir mega taka af eftir því sem þeir vilja. Man ég hvað við börnin vorum sólgin í jarðarberin fyrst á sumrin og átum og átum þangað til okkur varð illt af þeim og þurftum þá að gera hlé á, þar til okkur batnaði í magan- um. Jarðarberin sem við borðuðum mest af, uxu t. d. á löngum kafla meðfram fáförnum vegi í skógin- um og voru þar einráð beggja meg- in. Húsmæður tóku mikið og geymdu til vetrarins. Þá var safnað miklu af villtum graslauki. Hann var saxaður og saltaður í tunnur, sem síðan voru geymdar í jarðhús- inu. Landið mun auðugt af námum? Víða eru málmar í jörðu, bæði gull og demantar í nágrenni Lenu. En svo höfum við líka „hið mjúka gull“, en það eru loðskinnin, sem stundum eru kölluð svo. Refir, úlfar, bjarndýr, hreindýr, kanínur, merðir, íkornar og jafnvel safalar eru algeng veiðidýr í skógunum. Af refum eru þrjár tegundir, hvítir, rauðir og svartir. Kjöt veiðidýra er til matar en skinnin eru verkuð og þair notuð í klæðnað, eins og gefur að skilja. En þá eru skógarnir sjálfir ótald- ir, en þeir eru ómetanlegir og þeir veita fr'rlki flestar nauðsyn jarnar og eru tengdir bæði trú og siðum. Listiðnaður úr tré? Já, margskonar. Úr birkinu voru til dæmis búnir til bikarar, eigin- lega helgir gripir, að öllu búnir til með einum tálguhníf og það hefur verið seinlegt verk. Þegar þessir bikarar hafa verið smíðaðir, éru þeir soðnir lengi í smjöri. Þá verð- ur viðurinn — birkið — dökkbrúnt á lit og verpist aldrei né springur. En svo eru þessir bikarar aðeins notaðir þegar sumri er fagnað ár hvert í júní, með þriggja daga hátíð. Þá er nú regluleg liátíð. Þá er búinn til sérstakur drykkur, sem aldrei er notaður nema þá. Fyrst er búinn til drykkur úr kaplamjólk og fleiri efnum. Síðan er smjör brætt í potti og helt svo heitu yfir ískaldan drykkinn, sem þá hleypur saman að vissu marki og verður kornóttur. Þetta er einstaklega ljúf- fengt og reglulegur heilsudrykkur. Ef eitthvað gengur af á hátíðinni, er það vandlega geymt í jarðhúsinu og notað á meðan endist. En þessi drykkur er vandgerður og ekki allir, sem kunna að búa hann til. Eru gefin út blöð á líkan hátt og hér? Eftir byltinguna miklu hófst blaðaútgáfa. En í gamla daga, eins og kallað er, komu engin blöð og þá voru farandmenn á ferð- inni, einn og einn, sem scigðu frétt- irnar. En þeir höfðu þann hátt á,

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.