Dagur - 22.12.1972, Blaðsíða 18

Dagur - 22.12.1972, Blaðsíða 18
18 JÓLABLAÐ DAGS um þær mundir alveg niðursokk- inn í bókarþýðingu, hafi samsæris- fólkinu þótt öruggt, að ég mundi segja já við hverju sem væri. En Jiessu trúir hvorki þú né ég. Konan fékk að vísu ískistu, sem és: boroaði með sjálfsögðu eiginmannlegu ljúf- lyndi. En svarið við spurn þinni mun vera sem næst réttu þannig: Haustið 1962 hafði ég sagt af mér prestsskap í Húsavík. Fyrr á árinu hafði ég legið rúman mánuð á sjúkrahúsi og var ekki alls óhræddur um, að mín biði upp- skurður, þótt dragast kynni. Auk Jress virtist mér þjóð mfn sýna hrað- vaxandi hollustu við menningar- tegund, sem ég á enga samleið með. Bezt væri að láta ungu prestana um, að skilja og tala við sína sam- tíð. Fleira vakti fyrir mér, svo sem löngun til livíldar og næðis við fúsk og dótarí — fyrir utan ýmislegt, sem ég hafði ekki grun um sjálfur, en öðrum var fullkunnugt, svo sem brátt kom í Ijós. Mér fannst ég ekki vera að hlaupast af hólmi. Hafði verið í prestsskapnum 41 ár og var hvort sem var, aldurs vegna, að komast fram á hryndingarbrún „embættisstapans“. Ég var búinn að vera 19 mánuði á lausum kili, Jregar mér var boðið starf í Hálsprestakalli. Stutt að fara frá Húsavíkl Eftir 26 ára prófasts- starf var ég ekki ókunnugur í Háls- prestakalli. Hafði oft komið í Háls. Þegar frændi minn, síra Björn O. Björnsson, gerðist þar prestur, sýndi hann af sér það röskleika- bragð, að láta byggja þar allvand- aða og vistlega prestsíbúð, enda þótt svo stæði á fyrir þjóðarbúinu, að slík tiltæki voru í minnsta máta vinsæl. Það er enn gott, að búa í þessu húsi, þótt aldurfjórðungs- gamalt sé. Smávegis viðhaldslag- færingar bíða þess, að iðnaðarmenn þurfi atvinnu. Jæja — með því að ég hafði góða reynslu af því sem ungur maður, að umgangast bændafólk, ög með því líka að heilsan virtist fara batnandi, fannst mér að ég ætti að geta þjónað litlu sveitaprestakalli sómasamlega eitt ár eða svo. Og jretta varð að ráði. Skömmu síðar mætti ég á götu í Reykjavík tveim stéttarbræðrum mínum, hvorum í sínu lagi, og spurðu báðir hvort satt væri það, er Jreir höfðu frétt. Já, reyndar. Með miklum fortölum reyndi ég að sýna Jreim fram á, að nú ættu þeir að fara og gjöra slíkt hið sama. Fjöldi sveitaprestakalla væri þjón- ustulaus. Þeir væru orðnir rosknir menn og þyldu varla mikið lengur ofannríkið í höfuðstaðnum. í sveit- inni fengju þeir næði til ritstarfa, t. d. til sjálfsævisöguritunar. Auk Jress ættu þeir sjálfsagt dreifbýlinu eitthvað að Jrakka — báðir fæddir þar og uppaldir. Það væri því bæði fallegt af þeim og skynsamlegt, að koma nú til liðs við bændafólkið, sem svo margir hefðu brugðizt. Annar varð sjáanlega stórhrifinn af hugmyndinni. Hinum ofbauð fjar- stæðan. Hvorugur hefir sótt um prestakall „úti á landi“. Hvemig er J>að, að vera prestur í Hálsprestakalli? Nú — alveg ljómandi, í tveim orðum sagt! Svo vel hefir okkur lið- ið meðal Jressa fólks, að við höfum, sjáðu, gleymt okkur — ekki tekið eftir Jrví, hvernig árin liðu, svo að dvöl okkar á Hálsi, sem ráðgert var að yrði 1 ár, hefir teygzt í 8 ár og hálft. Allir söfnuðirnir láta sér annt um kirkjur sínar og grafreiti. Engin ástæða til að kvarta undan messusókn. Sjaldan undir 50%; stundum yfir 100%; hæst 250% (Illugastaðir, um sumarbúðatím- ann). Slíka messusókn gæti stórþétt- býlið ekki haft, þótt til kæmi að- stoð alls Suðurlandsundirlendisins. Ég hefi verið nokkuð fús til að messa, hvenær sem ekki bönnuðu veður og vegir, eða almennt knýj- andi annríki, eða kirkjulegir fund- ir, eða kosningar, eða þjóðhátíðir, eða íþróttamót. Samt hefir mér gef- izt tóm til að dunda við skriftir, teikna 3 nótnabækur (þ. á. m. „Unga kirkjan"), moka mold og bisa við grjót og hlaða kanta, háa og langa, prestsseturslóðinni til björgunar og verndar. Því miður hefi ég ekki séð mér fært, að þjóna söfnuðunum með neinum veruleg- um „umframskyldu“-verkum — nema ef nefna mætti það, að á vetrum höfum við hjónin haldið uppi söngæfingum, sameiginlegum fyrir prestakallið sitt. Herbergja- skipan á Hálsi leyfir vel æfingar fyrir um 30 manns. Samfundir þess- ir hafa þótt ánægjulegir og fólkið í löngum dal og djúpu skarði hefir kynnzt. Og hvað svo? Meðal annars það, að Jregar eftir fyrsta veturinn kom söngfólkið óbeðið og gerði prestshúsið hreint, hátt og lágt, og hefir haldið þeim sið síðan. Konu minni hættir til að tárast af hrifn- ingu yfir þessari elskulegu hugul- semi fólksins. Einnig ég kunni hana vel að meta. A. m. k. hefi ég ekki erft það, að blöð mín sum, sem áður voru á vísum stað (ef ekki á skrifborðinu, þá á sófanum eða á gólfinu), fundust misjafnlega fljótt eftir Jressa aðsópsmiklu fram- kvæmdir. Kusu þeir J)ig ekki í hrepps- nefnd, úr því að þér dvaldist svona lengi á Hálsi? Ónei. Ekki svo mikið sem í mjólkurfélagsstjórn. Hreppsbúar vissu ekki, fremur en ég, að ég mundi sitja svona fast, og upp- götvuðu, held ég, aldrei almenni- lega fjármálasnilli mína. Aftur á móti var okkur hjónunum strax boðin kennsla við barnaskcdann að Skógnm. Konan kenndi dönsku og

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.