Dagur - 31.01.1973, Síða 1
*T kopral IJIJI
mor %
LVI. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 31. jan. 1973 — 5. tölublað
SAMÞYKKT BÆJARRÁDS
Á FUNDI bæjarráðs Akureyrar
þann 25. janúar 1973 var gerð
eftirfarandi bókun:
„Bæjarráð Akureyrar sendir
bæjarstjórn Vestmannaeyja og
Vestmannaeyingum öllum ein-
VAKTAVINNA
Á SKAGASTRÖND
Skagaströnd 30, janúar. Síðasta
laugardag var hér haldið hið
árlega þorrablót kvenfélagsins í
félagsheimilinu Fellsborg. Fór
það hið bezta fram og var fjöl-
mennt. Hingað komu gestir alla
leið frá Reykjavík til að blóta
þorra með okkur og taka þátt
Þeir bátar, sem veiða rækju í
vestanverðum Húnaflóa, hafa
aflað ágætlega og hefur þetta
skapað mikla vinnu, en unnið
er á vöktum mikinn hluta sólar-
hringsins, þegar mest veiðist.
Rækjubátarnir eru fimm tals-
ins, sem veiða fyrir Skaga-
strönd.
Arnar var seldur til Þorláks-
hafnar í desembermánuði, svo
að hér er aðeins einn bátur,
Örvar, sem stundar togveiðar.
Skagstrendingar hafa fengið lof
orð fyrir einum nýju togaranna
frá Japan og verður hann af-
héntur í júlí í sumar.
Hér, sem annars staðar, er
verið að athuga hvað hægt sé
að gera fyrir Vestmannaeyinga,
bæði í húsnæðis- og atvinnu-
málum, og byrjað er að safna
fé á vegum kirkjunnar.
Atvinna hefur verið allgóð,
það sem af er árinu. X.
FRÁ LÖGREGLUNNI
Á AKUREYRI
ÞAÐ hefur borið við fjórum
sinnum að kvöldlagi í janúar-
mánuði, að ráðist hefur verið
að konum á Ytri-Brekkunni,
norðan Þingvallastrætis. Af frá-
sögnum kvennanna, sem fyrir
árásunum urðu, má ætla að um
kynóðan mann sé að ræða, sem
þó hefur lagt á flótta eftir áflog.
í fimmta skiptið reyndi svo
maður í sama bæjarhluta að
ráðast inn til konu einnar, gegn
um glugga, en tókst ekki. Er
full ástæða fyrir konur, að taka
þessi atvik til umhugsunar, þar
til sá seki verður tekinn úr um-
ferð. □
lægar kveðjur sínar vegna nátt-
úruhamfara þeirra, sem dunið
hafa yfir Vestmannaeyjar, og
lýsir því yfir, að bæjarstjórn
Akureyrar er reiðubúin að
veita Vestmannáeyingum að-
stoð og fyrirgreiðslu svo sem
unnt er.
Bæjarráð hefir skipað nefnd,
sem kanna skal, hvert framlag
Akureyrar gteur bezt orðið til
stuðnings og hefir nefndin með
höndum útvegun húsnæðis, at-
vinnu og aðra fyrirgreiðslu fyr-
ir fjölskyldur og einstaklinga
frá Vestmannaeyjum, sem
kynnu að vilja dvelja á Akur-
eyri, þar til úr rætist í þeirra
heimabyggð."
Nefndin mun á laugardag (á
Hafnarstræti 107 á Akureyri.
morgun) opna skrifstofu að
Símar skrifstofunnar eru 2 12 02
og 2 16 01.
Akureyri, 26. janúar 1973.
Þessa mynd tók Matthías Ó. Gestsson á gosstöðvanum á fimmtudaginn.
Stöðugt gýs íVestmannaeyjum
NÝJA fellið, sem myndazt hef-
ur í Heimaey í Vestmannaeyj-
um af gosinu, hefur verið nefnt
Kirkjufell og var á mánudaginn
orðið 180—185 metra hátt og
kedulaga. Þann dag var gosið
heldur minna en þó stöðugt.
Hraunrennslið er austur af eld-
gígunum, undir hraunstorku, og
er höfninni ekki talin stafa
hætta af því að svo komnu.
Um og eftir helgina fóru hátt
á annað hundrað manns til
Eyja, menn úr flugbjörgunar-
sveitum og víða að af landinu
og skátar, til að vinna nauð-
synjastörf. Einnig fóru á mánu-
daginn 40 trésmiðir til Eyja og
yfir 60 fóru á laugardag, og stöð
ugt eru flutt verðmæti frá Vest-
mannaeyjum til lands með skip
um og bátum. Þá var búið að
negla járn fyrir glugga gosmeg-
in í húsum í þeim hluta bæjar-
ins, sem nær er eldstöðvunum,
til að koma í veg fyrir, að gló-
andi gjallmolar komist í gegn
um rúður og valdi fleiri hús-
brunum en orðið er. Um 500
manns eru nú við skipuleg
björgunarstörf í Eyjum.
Um 100 hús eru ýmist horfin
í viicurdyngjuna eða brunnin í
Vestmannaeyjakaupstað. Búið
er að flytja 650 fjár til lands, 40
ALÞINGI SAMÞYKKTI RAÐSTAFANIR
VEGNA NEYÐARÁSTANDSINS ÞAR
Hrossahépnr í fiugvél fil 'Noregs
SÍÐASTA fimmtudag .fór héðan
frá Akureyri þrjátíu og níu
hrossa hópur með flugvél til
Noregs, og var þangað komin
eftir hálfan fjórða klukkutíma.
Flugvélin kom frá Reykjavík
með sextán hross, en hér tók
hún svo tuttugu og þrjú hross
til viðbótar og flaug héðan beint
til Noregs.
Árni Magnússon á Akureyri
er umboðsmáður Magnúsar
Aase, norsks hrossakaupmanns,
og sá hann um kaup þessara
hrossa hér á Akureyri og í
nágrenni.
Hross þau, er héðan fóru,
voru tveggja til sjö vetra hryss-
ur og tveggja vetra foli. Hæsta
verð á taminni hryssu var 60
þúsund krónur, en meðalverð á
ótömdum fjögurra til fimm
vetra hryssum var 28—30 þús.
krónur.
Sem betur fer eykst skilning-
ur á því, að út á að flytja tamin
hross eingöngu, enda fer fjöldi
taminna hrossa í útflutningi
mjög vaxandi. Er hér um mikið
fjárhagsatriði að ræða, sem nem
ur allt að helmingi útflutnings-
verðs á hrossum. Þá ber að hafa
í huga, að tamningu útflutnings
hrossa þarf að haga með sjónar-
mið kaupenda fyrir augum. □
hross, en nautgripum, um 50 að
tölu, var þegar lógað.
í öllum nágrannalöndum okk-
ar hefur eldgosið í Vestmanna-
eyjum verið á dagskrá og söfn-
un er hafin. En ríkisstjórnir
þessara landa hafa ekki ennþá
ákveðið hverskonar aðstoð þær
muni vilja veita af opinberu fé.
Öll erlend aðstoð, sem þegar
hefur borizt íslenzkum stjórn-
völdum, hefur verið þökkuð. Og
umræður hafnar milli aðila um
þessa aðstoð.
Rauða krossinum hafði á
mánudaginn borizt vitneskja
um 164 íbúðir, sem standa Vest-
mannaeyingum til boða.
SKIP SÖKK OG
ANNAÐ STRANDAÐI
JÓN Kjartansson SU 111 sökk
síðdegis á sunnudaginn 2 sjó-
mílur út af Vattanesi. Fyrr um
daginn, er verið var að dæla
loðnu úr nót í skipið, lagðist
það á hliðina og kom í það sjór.
Nærstödd skip fylgdust með því
á leið til lands. Voru þá aðeins
þrír um borð, en hinir fóru um
borð í Náttfara frá Húsavík og
að síðustu þessir þrír einnig,
svo að þar urðu engin slys á
mönnum.
Vélskipið Reykjanes GK 50
strandaði svo á mánudagsmorg-
un á Hvalbak. Dagfara tókst að
koma dráttartaug á milli skip-
anna og dró Reykjanesið, sem
er mjög skaddað, til Eskif jarðar.
Ekki urðu heldur slys á skips-
mönnum hins strandaða skips.
Afmælisfundur
Bændaklúbbsins
verður í kvöld, miðvikudag,
eins og sagt var frá í síðasta
blaði. □
Á vegum bæjarstjórnar Akur
eyrar hefur nefnd unnið að
könnun húsnæðis. í ljós hefur
komið, að á Akureyri eru 10—
12 íbúðir lausar, ásamt 30—40
einstökum herbergjum, sem
standa til boða. í nágrannasveit
um eru fáanlegar milli 10 og 20
íbúðir. Sumarbústaðir standa
einnig til boða, orlofsheimilin á
Illugastöðum og hús á Dag-
verðareyri. Fötum hefur verið
safnað á Akureyri til þeirra
fjölskyldna, sem þangað komu
frá Vestmannaeyjum. Bæjar-
stjórn Akureyrar hvetur fólk,
sem lánað getur húsnæði, að
hafa þegar samband við nefnd-
ina.
Á mánudaginn var samþykkt
samhljóða þingsályktunartillaga
frá ríkisstjórninni um neyðar-
ráðstafanir vegna jarðeldanna í
Vestmannaeyjum og var tillag-
an frá ríkisstjórninni, en flutt
af Ólafi Jóhannessyni forsætis-
ráðherra. Gerir þingsályktunar-
tillagan ráð fyrir, að kosin verði
nefnd, skipuð sjö alþingismönn-
um og skal nefndin gera tillögur
um neyðarráðstafanir vegna eld
gossins á Heimaey og um fjár-
öflun vegna þeirra. í nefndina
voru kosnir: Eysteinn Jónsson,
Gylfi Þ. Gíslason, Halldór E.
Sigurðsson, Hannibal Valdi-
marsson, Ingólfur Jónsson, Jó-
hann Hafstein og Lúðvík Jósefs
son. Nefndin skal þegar hefja
starf og skila tillögum sínum í
frumvarpsformi, svo fljótt sem
kostur er. Tillögur nefndarinn-
ar skulu við það miðaðar, að
tjón af völdum náttúruhamfar-
anna séu bornar af þjóðinni
allri. □
GEFA A FJORÐA
ÞÚSUND KR.HVER
Laxárdal 30. janúar. Við höfum
verið að safna fé hér í Laxárdal
handa Vestmannaeyingum.
Varð söfnunin 111.717 krónur,
sem er 3.256 krónur á hvern
íbúa. Yngsti gefandinn var átta
ára og gaf hann Vestmannaeyja
börnum allt, sem hann átti í
sparibauknum sínum eða 117
krónur.
Hér rigndi allmikið í gær-
kveldi, ofan í föl og er því
storka. Ég tel þetta vera veðra-
bezta janúarmánuð, sem ég hef
lifað og annan þann hlýjasta.
Hér í dalnum er hægt að fá
tvær stórar og góðar íbúðir, að
ég hygg, og sennilega einnig
vinnu. Þessar íbúðir standa
auðar og upphitaðar. G. Tr. G.
TILLAGÁ HÚSVlKINGA
BÆJARSTJÓRN Húsavíkur
gerði eftirfarandi samþykkt á
fundi sínum þann 25. janúar.
Bæjarstjórn Húsavíkur send-
ir Vestmannaeyingum kveðjur
sínar og lýsir aðdáun á æðru-
leysi þeirra í viðureign við
náttúruöflin.
Bæjarstjórn Húsavíkur býð-
ur fram alla þá fjárhags- og fé-
lagslega aðstoð sem henni er
unnt að veita í samvinnu við
bæjarstjór* Vestmannaeyja.
Bæjarstjér* hefur í dag sent
hæstvirtum félagsmálaráðherra
eftirfarandi skeyti:
„Vegna náttúruhamfaranna í
Vestmannaeyjum bendir bæjar-
stjórn Húsavíkur á þá hugmynd
að þér leyfið aukaálag á útsvör
á yfirstandandi ári, sem myndi
sjóð til styrktar Vestmannaey-
ingum. Álagningaprósenta verði
hin sama á alla útsvarsgreið-
endur í landinu og ákveðist af
yður.“
Húsavík, 26. janúar 1973.