Dagur - 21.11.1973, Blaðsíða 2
2
Myndin er af lögreglubifreiðinni, tekin við lögreglustöðina á Húsa-
vík. (Ljósmyndastofa Péturs, Húsavík)
Ný lcsrefláifreii á Hósavík
Sjö Danir sýna verk sín á Akureyri
í HAUST fékk lögreglan á Húsa
vík til sinna nota nýja lögreglu-
bifreið af mjög vandaðri gerð.
Stýrishús hennar er búið skrif-
borði, ritvél og skjalageymslu
og auðveldar það skýrslugerðir
á vegum úti, þegar umferðar-
óhöpp verða eða aðrir þeir
atburðir, sem lögregla þarf að
hafa afskipti af. í afturrými
bifreiðarinnar er geymsla fyrir
SAMVINNUSKÓLINN í Bif-
röst var settur 20. sept. sl. í
setningarræðu skólastjóra, sr.
Guðmundar Sveinssonar, kom
m. a. fram, að nemendur skól-
ans verða 85 í vetur, sem er
sami fjöldi og sl. vetur, þar af
39 í fyrsta bekk og 46 í öðrum
bekk. Nokkrar breytingar hafa
orðið á kennaraliði skólans, því
Hrafn Magnússon lét af starfi
sem kennari í hagnýtum verzl-
unargreinum, en við tók Þórir
Páll Guðjónsson frá Hemru í
Skaftártungum. Þá réðist einnig
nýr kennari í tungumálum að
skólanum, og er það Guðjón
Kristinsson, áður skólastjóri
Gagnfræðaskólans á ísafirði.
Líka hefur Snorri Þorsteinsson
yfirkennari fengið fjögurra
mánaða leyfi frá störfum sínum
frá 1. nóv. til 1. marz, en þann
tíma mun sr. Brynjólfur Gísla-
son í Stafholti annast kennslu
hans.
Þá hófst kennsla í framhalds-
deild skólans í Reykjavík hinn
GÓÐ AUGLÝSING
GEFUR GÓÐAN ARÐ
ieeMet9eecot6«0ð»*i»ð«9
slysabörur og verður hægt að
nota hana, til að flytja sjúkt eða
slasað fólk, þegar þörf er á því.
Bifreiðin er innréttuð á Bif-
reiðaverkstæði Birgis Guð-
mundssonar, Keflavík, eftir
fyrirsögn Björns Halldórssonar,
lögregluvarðstjóra á Húsavík.
Húsáýík, 16, nóv. 1973.
2. október. Nemendur verða
þar um 15 í vetur, og verður
kennt fimm daga vikunnar frá
kl. 8.20 að morgni til 14.30 síð-
degis. Kennslugreinar verða
ellefu, bæði almennar greinar
og viðskiptagreinar. Skólinn er
til húsa að Suðurlandsbraut 32,
fjórðu hæð. □
SJÚKRAHÚS 100 ÁRA
Ég var viðstaddur þegar Ólaf-
ur Sigurðsson yfirlæknir tók
fyrstu spaðastunguna að nýrri
viðbyggingu við Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri, í til-
efni þeirra tímamóta, að öld var
liðin síðan sjúkrahús tók til
starfa á Akureyri. Síðan þáði ég
kaffiveitirfghr og hlustaði á mál
ágætra ræðumanna. Og það
leyndi sér ekki að mikill fögn-
uður eg- sterk von var bundin
þessari litlu og einföldu athöfn,
sú': von, að þétta mikla nauð-
synjamál yrði leyst samkvæmt
áætlun, að þ^ssi langþráða stór-
bygging rísi og taki að þjóna
hlutverki sínu.
Ég fór að hugleiða ýmislegt,
sem ræðumenn höfðu dregið
frani, $vo sem kostnaðaráætlun,
sem jafnan vill verða skugga-
hliðin á hverri framkvæmd.
Einn milljarður króna er mikil
upphæð, jafnvel þó að bygg-
ingartíminn sé áætlaður 7—8
ár.
Er ég ók frá sjúkrahúsinu
skaut upp í huga mér hálfrar
aldar gamalli minningu, er ég
hrapaði niður stiga og lærbrotn
aði. Ég þurfti þó ekki á sjúkra-
húsi að halda. Þeir ágætu lækn-
ar, Jónas Rafnar og Steingrím-
ur Matthíasson, hagræddu brot
inu heima í stofu foreldra
minna, þar sem ég lá svo næstu
7—8 vikurnar með 10 punda lóð
hangandi í löppinni. Þegar ég
komst ó kreik óku systkini mín
mér úti, svo ég mætti njóta
LAUGARDAGINN 24. nóvem-
ber kl. 3 e. h. verður opnuð
málverkasýningin „7 UNGIR
DANIR“ í nýjum sýningarsal
í Myndsmiðjunni að Gránu-
félagsgötu 9. Sýning þessi er
send frá Norræna húsinu í
Reykjavík. Forstjóri Norræna
hússins bauð Myndlistafélagi
Akureyrar sýningu þessa að
AÐALFUNDUR Framsóknar-
félags Norður-Þingeyinga vest-
an heiðar var haldinn á Kópa-
skeri 13. október sl. Á fundinum
mættu þeir Stefán Valgeirsson
alþingismaður og Haraldur M.
Sigurðsson framkvæmdastjóri
kjördæmisráðs.
Eftirfarandi samþykktir voru
gerðar:
„Fundurinn þakkar þing-
mönnum flokksins í kjördæm-
inu og ríkisstjórn þeirra að-
gerðir til að rétta hlut dreif-
býlisins og treystir því, að
áfram verði haldið á sömu
braut. Þá beinir fundurinn því
til þingmanna kjördæmisins, að
þeir beiti sér m. a. fyrir:
1. Veitt verði veruleg. fjár-
veiting til skólabygginga í hér-
aðinu samkvæmt þeirri áætlun,
sem fyrir liggur hjá mennta-
málaráðuneytinu.
2. Ríkið greiði snjómokstur á
leiðinni Húsavík—Raufarhöfn
minnst fjórum sinnum á mán-
uði.
3. Áætlunarflug verði aftur
hafið til Kópaskers, en ekkert
áætlunarflug með farþega er í
hressandi útiloftsins. Eitt sinn
bar þar að Steingrím Matthías-
son á farkosti sínum, reiðhjól-
inu. Hann snarast af baki, klapp
ar mér á kollinn og spyr um
líðan mína. Ég lét allvel yfir,
feiminn og uppburðarlítill. En
Steingrímur þrífur upp buddu
sína og segist ætla að gefa mér
allt, sem hún hafi að geyma,
fyrir það hve harður ég hafi
verið, er hann var að skipta um
umbúðir á löppinni (ég grenj-
aði og öskraði sem ég megnaði).
Með þessum orðum hvolfir
hann úr buddunni í lófa minn,
og þar liggur spegilfagur, dansk
ur 50-eyringur með gati. Og
fyrr en ég gæti þakkað þessa
óvæntu gjöf, var Steingrímur
þotinn af stað, í svörtu muss-
unni sinni, sem stóð aftur af
honum og minnti helzt á flug-
dreka, sem er að hefja sig til
flugs.
Þessi litla minning leiddi af
sér aðrar hugleiðingar, svo sem
þá hvort ég, og raunar flestir
aðrir, stöndum ekki A mikilli
þakkarskuld, annars vegar fyr-
ir það að hafa notið öruggra
læknishanda, umönnunar og
umhyggju hjúkrunarfólks og
þeirrar mikilsverðu þjónustu,
er fullkomið sjúkrahús veitir,
eða hins vegar þá þakkarskuld,
að hafa aldrei þurft á þessari
hjálp að halda, sem flestir njóta
þó einhvern tíma ævinnar.
Á þessari stundu tók ég þá
ákvörðun að endurgjalda nú
hinn spegilfagra pening, á sama
kostnaðarlausu til sýningar hér
á Akureyri, en hún hefur verið
til sýnis í sölum Norræna húss-
ins.
Mikil. vandkvæði hafa verið
hér í bæ með fullboðlegan
sýningarsal sem fáanlegur er
með stuttum fyrirvara. Lands-
bankasalurinn fæst fjórum sinn
um á ári fyrir málverksýningar
héraðið við Öxarfjörð, enda
þótt flugvöllur sé til staðar og
honum haldið opnum allan vet-
urinn, og frá 15. október til 31.
maí eru alls engar farþegaáætl-
unarferðir í héraðið hvorki á
landi, lofti né á sjó.
4. Greiða fyrir því, að lend-
ingabætur verði gerðar í Leir-
höfn.
5. Rafmagn verði selt á sama
verði til sömu nota um allt land.
6. Ráðinn verði læknir með
aðsetri á Kópaskeri.
7. Fiskeldisstöð verði komið
upp við Litluá sem fyrst.“
í aðalstjórn félagsins voru
kjörnir: Aðalbjörn Gunnlaugs-
son, Lundi, formaður, Jóhann
Helgason, Leirhöfn, varafor-
maður, Kristján Ármannsson,
Kópaskeri, Árni Sigurðsson,
Hjarðarási, og Ingibjörg Indriða
dóttir, Höfðabrekku.
í varastjórn voru kjörnir:
Sigurgeir ísaksson, Ásbyrgi,
Friðrik Jónsson, Kópaskeri, Jón
Ólason, Skógum, Jóhann Gunn-
arsson, Víkingavatni, og Grím-
ur B. Jónsson, Ærlækjarseli.
(Aðsent)
hátt og Steingrímur forðum,
með því að tæma veskið mitt í
lófa sjúkrahússins. Sú upphæð
verður að sjálfsögðu stórum
minni í þeim lófa og ekki spegil
fögur sem silfurgljáandi 50-
eyringurinn. En ef allir þeir,
sem þakkarskuld eiga hér að
gjalda — og þeir eru margir,
því að Fjórðungssjúkrahúsið á
ekki einungis að þjóna Norð-
lendingafjórðungi, heldur einn-
ig hluta af Austurlandi og vera
varasjúkrahús fyrir landið allt,
varðandi almannavarnir — vilja
gerast hluthafar í 50-eyringnum
mínum, þá þræði ég hann upp á
band minninganna og velti hon-
um af stað. Megi för hans um
landið verða sem snjóboltans,
að þegar hann loksins stanzar,
verður hann orðinn myndarleg-
ur hornsteinn í hina nýju bygg-
ingu og verki örvandi á þá opin
beru aðila, sem skylduna bera.
Samstaða er máttug. Það
sönnuðu 60 uppréttar hendur á
Alþingi. Slíkt á ekki að heyra
til eindæmum, hvorki á Alþingi,
þar sem þjóðin hefur valið full-
trúa, ekki til að berjast vegna
eigin hagsmuna, heldur til sam-
stöðu og einingar um hag og
heill alþjóðar.
í þessu máli geta margir með
samstöðu og fórnarlund lagt
miklu nauðsynjamáli lið með
minni eða stærri framlögum.
Kornið fyllir mælinn. Margt
smátt getur lyft Grettistaki.
Fyrrvcrandi 50-eyringur
með gati.
og er slíkt alls þakkarvert, en
jafnframt er augljóst að fjórar
sýningar á ári er hvergi nærri
nóg því mikill áhugi er nú á að
sýna á Akureyri. Því hafa fé-
lagar í Myndlistafélagi Akur-
eyrar innréttað sýningarsal
með hjálp frá smiðum Akur-
eyrarbæjar og er stuðningur
bæjaryfirvalda alls þakkarverð-
ur, en bæjaryfirvöld hafa sýnt
málefnum Myndlistafélagsins
mikinn skilning nú síðustu
misserin. Þökk sé þeim.
Sýning Dananria, sjö , þykir
mjög góð og fróðleg og er það
ósk okkar í Myhdlistafélaginu
að bæjarbúar sýni sýningunni
áhuga sinn og komi um helgina
í Myndsmiðjuna til að sjá sýn-
ingu þessa og þannig myndu
þeir styrkja Myndlistafélagið í
starfi sínu. Sýningin verður
opin um helgina á laugardaginn
frá 3—10 e. h. og á sunnudag-
inn kl. 2—10 e. h. og á kvöldin
næstu viku.
Myndlistafélag Akureyrar.
Frá Samtökiun
herstöðvaandstæðinga
á Austurlandi
SAMTÖK herstöðvarandstæð-
inga á Austurlandi gengust
fyrir almennum fundi um her-
stöðvamálið á Reyðarfirði
sunnudaginn 28. október. Fram
söguræður fluttu Elías Snæland
Jónsson, Einar Baldursson og
Cecil Haraldsson, en að ræðum
þeirra loknum urðu talsverðar
umræður.
Fundurinn samþykkti svo-
fellda ályktun:
„Almennur fundur haldinn á
vegum Samtaka herstöðvarand-
stæðinga á Reyðarfirði 28. októ-
ber 1973, skorar á ríkisstjórnina
að vinna hiklaust að framgangi
ákvæði málefnasamningsins um
brottför hersins. Jafnframt hvet
ur fundurinn herstöðvaandstæð
inga til að halda vöku sinni um
allt land og veita stjórnmála-
mönnum þann stuðning og að-
hald sem þarf.“
Fundarstjóri var Hjörleifur
Guttormsson og fundarritari
Hlín Agnarsdóttir. Q
- SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8)
um, að því er fólk í Einingu
hefur tjáð, að horfin sé hin
trausta forysta, sem einkennt
liafi Einingu, á meðan Björn
Jónsson hafði liana á hendi.
KYNLÍFSDÁLKARNIR
Kynlífsdálkar blaða og tímarita
eru jafnan vinsælir, og raunar
mikil verzlunarvara. íslenzkir
lesendur hafa nýlega verið
fræddir um það, að ítalskir karl
menn, sem taldir eru aðlaðandi
menn og margar konur falli
fyrir, séu lireinasta hneyksli í
rúminu vegna getuleysis síns
og barnaskapar í hvílubrögðum.
Þá vitum við það. Þá 'var sagt
frá stórkostlegum kynoi-ku-
manni á erlendri grund, sem
var hreint óseðjandi nætur og
daga, svo að eiginkonan greip
loks til sinna ráða. Hún muldi
niður gler og gaf hinum fjöruga
manni sínum það saman við
mat. Lítt stoðaði þetta í byrjun,
en þó varð loks breyting á,
enda þurfti maðurinn til lækn-
is, og kom þá sannleikurinn í
ljós. Ekki hlaut konan mikinn
áfellisdóm fyrir tiltæki sitt og
talið, að hinn glerbrotamengaði
matur hafi verið búinn til í
afsakanlcgri sjálfsvörn.
Þorm. J.
Frá Samvinnuskólanum
WLH
Fundur Framsóknarmanna
sem var á Kópaskeri