Dagur - 08.06.1974, Síða 1
FILMUhúsið akureyri
Nýr skólastjóri
við Lundaskóla
í VOR var auglýst skólastjóra-
staða við Lundarskóla á Akur-
eyri, sem taka á til starfa í
háust. Um stöðuna sóttu Hörð-
ur Olafsson, kennari við Barna-
skóla Akureyrar, Indriði Úlfs-
son, skólastjóri Oddeyrarskóla,
og Matthías Gestsson, lcennari
við Glerárskólann.
Meirihluti frœðsluráðs Akur-
eyrar mælti með því við ráð-
herra, að Indriði Úlfsson, reynd
ur og vel kynntur skólastjóri,
hlyti stöðuna. En ráðherra hafði
þá ósk að engu og skipaði Hörð
Ólafsson í skólastjórastöðuna.
Hinn nýi skólastjóri hefur gott
orð á sér sem kennari og árnar
blaðið honum heilla í ábyrgðar-
miklu starfi. □
Það var margt um manninn á Akureyrarflugvelli þegar Noregskonungur kom. (Ljósm.: E. D.)
Geysir syngur
um helgina
KARLAKÓRINN G E Y R I R
heldur samsöngva um næstu
helgi í Borgarbíói á Akureyri,
undir stjórn Sigurðar Demetz
Franzsonar. — Samsöngvarnir
verða laugardag 8. júní kl.
15.00, sunnudaginn 9. júní kl.
17.00 og mánudag kl. 19.00.
Einsöngvarar eru Aðalsteinn
Jónsson, Guðrún Kristjánsdótt-
ir og Kristján Jóhannsson.
Undirleikari Hörður Kristinss.
Aðgöngumiðar eru seldir í
Bókval og við innganginn.
Kórinn hefur æft af kappi í
vetur undir stjórn Sigurðar
Demetz og hyggur á skemmti-
og söngferð til Norður-ítalíu í
september. Verða þá heimsóttar
heimaslóðir söngstjórans. Q
Á FUNDI framkvæmdastjórnar
Framsóknarflokksins á miðviku
daginn var eftirfarandi ályktun
samþykkt samhljóða:
„Framkvæmdastjórnin lítur
svo á, að Framsóknarmenn, sem
AKUREYRINGAR fögnuðu
konungskomu á fimmtudaginn.
Þá kom til höfuðstaðar Norður-
lands Ólafur 5. Noregskonung-
ur, ásamt utanríkisráðherran-
um, Knut Frydenlund, og öðru
fríðu föruneyti frá heimaland-
inu. Með í konungsför til Akur-
eyrar voru forsetahjónin, dr.
Kristján Eldjárn og frú Hall-
dóra Ingólfsdóttir, Einar Ágústs
son utanríkisráðherra og marg-
ir aðrir embættismenn landsins.
Konungur og aðrir gestir
komu í tveim flugvélum, er
settust á Akureyrarflugvöll um.
klukkan fjögur síðdegis. Hafði
þá margt manna safiíast þar
saman til að fagna góðum gest-
tekið hafa sæti á framboðslist-
um annarra flokka hafi með því
gengið úr Framsóknarflokkn-
um, og geti þar af leiðandi ekki
lengur gegnt trúnaðarstörfum á
hans vegum.“ Q
um í sólskinsveðri og hressandi
hafgolu.
F yrirmenn Akureyrarkaup-
staðar tóku á móti gestunum
við flugvélarnar og síðan var
gengið undir fánaborg skáta að
flugstöðvarbyggingunni, en
Lúðrasveit Akureyrar og söng-
fólk úr kórum bæjarins lék og
söng þjóðsöngva landanna und-
ir stjórn Jakobs Tryggvasonar.
Þessu næst var ekið að Hótel
KEA, þar sem einnig hafði safn
ast mannfjöldi til að fagna hin-
um tignu geslum. Litlu síðar
hófst svo skoðunarferð um bæ-
inn og var Amtsbókasafnið
meðal annars skoðað. Bæjar-
stjórn Akureyrar bauð síðan til
kvöldverðar að Hótel KEA og
um klukkan hálf tólf hófu flug-
vélarnar sig með hina ágætu
gesti upp, móti norðangolunni
og kvöldroðanum.
Ólafur Noregskonungur 5. er
fríður maður og karlmannleg-
ur, fæddur 2. júlí 1903. Foreldr-
ar hans voru Karl Danaprins
og Maud prinsessa af Englandi.
En Karl prins var kjörinn kon-
ungur Noregs árið 1905 og tók
r
Konungur kemur út úr Amtabókasafninu,
(Ljósm.: E. D.)
sér nafnið Hákon. Hann varð
langlífur og eftir hans daga tók
sonur hans við konungdómi, og
hefur notið vinsælda og virð-
ingar með þjóð sinni. Drottning
hans var Marta Svíaprinsessa,
er lést fyrir tveimur áratugum.
Börn þeirra eru: Ragnhildur
Alexandra, Astrid Maud Inge-
borg og Haraldur krónprins.
Ólafur Noregskonungur kom
fyrst til Islands árið 1947, þá
krónprins, og aftur 1961, og' þá'
sem konungur.
Noregskonungur kom til ís-
lands á miðvikudaginn, og tafð-
ist för hans um einn dag vegna
óveðurs í hafi. Sjgldi hann á
konungsskipinu Norge, en með
í för voru tvö norsk herskip.
íslenskt varðskip sigldi á móti
konungi, er hann kom upp að
landinu og fylgdi skipalestinni
til Reykjavíkur. Konungur not-
aði tímann vel til skoðunar og
heldur utan í dag.
Ólafur Noregskonungur var
mikill íþróttamaður og áhuga-
maður á því sviði alla tíð. Hann
ber aldurinn mjög vel, og sýnist
miklu yngri en hann er. Heim-
sókn hans var kærkomin, svo
sem glöggt og hvarvetna kom
fram. íslendingar eiga jafnan
vinum að mæta í Noregi, og til
þeirra Norðmanna, sem heldur
kusu að flytja til íslands og
nema þar land en búa við ofríki
Haralds hárfagra, rekja flestir
hérlendir menn ættir sínar. Q Olafur Noregskonungur.
Ilrísey, 6. júní. Afli er lítill sem
enginn og þar af lciðandi sára-
lítil vinna í hraðfrystihúsinu.
Þeir sem stunduðu grásleppu-
veiðar í vor, söltuðu 230 tunnur
í Flatey og 110 tunnUr á Raufar
höfn og heima var saltað í 148
tunnur, eða samanlagt nær 500
tunnur. Á þessu ári heíur engin
aflahrota komið og nú eru
menn að búa báta sína út á
handfæraveiðar. Vona menn
enn hið besta um aflabrögðin,
þó treglega hafi gengið fram að
«*•
Ö
þessu, og aðeins reytingur nú.
Við litum cnn á góðærinu,
sem hér var áður en þetta afia-
leysi og déyfð í atvinnulífinu
kom yfir okkur.
Talsvert af rjúpu er í Hrísey
í sumar og tveir fuglafræðingar
hafa verið her við rannsóknir á
rjúpnastofninum. "Æðarvarp er
á norðurhluta -eyjarinnar og
mér hefur skilist á landeigand-
anum, Sæmundi Stefánssyni, að
það fari þó heldur minnkandi.
Tvö hús eru í byggingu. S. F.