Dagur - 08.06.1974, Page 2
2
Undirbúningsdeild Tækniskólans, írá vinstri: Jón Ævar Ragnarsson, I»orsteinn Friðþjófsson, Aðal-
geir Pálsson kennari, Þórir Aðalsteinsson, Skúli Magnússon kennari, Pétur Hansson, Jón Sigurgeirs-
arsson kennari, Grúnur Sigurðsson og Geir Ágússon, ltennari, Gunnar Kristjánsson, Valdimar Ragn-
son skólastjóri, Björn Agnarsson, Patricia A. Jónstsson.
Frá Tækniskólanum á Akurewi
STARFRÆKTAR voru bæði
undirbúningsdeild og raun-
greinadeild frá sept. til maí,
skólaslit voru 30. maí. Nám í
raungreinadeild stunduðu 7
nemendur, en í undirbúnings-
deild 8. Próf stóðust 9 nemend-
ur, en auk þeirra eiga 4 kost á
að endurtaka og bæta próf í
einni námsgrein hver á hausti
komanda. Hæstu einkunn í
raungreinadeild hlaut Gunnar
H. Sigurðsson, 7,2, en í undir-
búningsdeild Pétur Hansson,
8,4.
Kennt var í þessum greinum:
Eðlisfræði, efnafræði, stærð-
fræði, islensku, dönsku, ensku,
þýskU'-og að auki hugmynda-
sögu í raungreinadeild.
Prófverkefni voru hin sömu
í deildunum á ísafirði, Akur-
eyri og í Reykjavík.
Kennarar voru 6 auk Jóns
Sigurgeirssonar skólastjóra,
sem veitt hefur deildunum for-
stöðu frá upphafi. Skólinn er til
húsa í Iðnskólahúsinu við Þór-
unnarstræti.
Gert er ráð fyrir að kennsla
hefjist 3. sept. 1974. Nokkrar
umsóknir hafa þegar borist, en
rétt er að hvetja þá, sem áhuga
hafa, að leita sér upplýsinga
sem fyrst. □
Iðnskólðnum á Akureyri sagt upp
AT.I.S BRAUTSKRÁÐUST 61 NEMANDI
SKÓLASLIT Iðnskólans fóru
fram 9. maí sl. Brautskráðir
voru 58 iðnnemar úr 4. bekk og
3 úr 3. bekk. ÖIl kennsla á liðn-
um vetri fór fram í nýja skóla-
húsinu við Þórunnarstræti að
undanskildum námskeiðum í
rafsuðu og logsuðu.
Skólastjórinn, Jón Sigurgeirs
son, gerði grein fyrir starfsem-
inni, lýsti prófum og sleit skól-
anum. Alls voru nemendur 275
í 1.—d. bekk, þar með taldir 18
nemendur í rafsuðudeild og
undirhúningsdeild til miðskóla-
prófs í 4 námsgreinum.
Hæstu einkunnir í 4. bekk sl.
skólaár hlutu Sigmar Eiríksson,
húsasmiður, I. eink. 8,90 og Jó-
hann G. Jóhannsson, bifvéla-
virki, 8,80. Hæstu einkunn í
skóia hlaut Stefán Arngríms-
son, rafvirkjanemi frá Dalvík,
I. ágætiseinkunn 9,45.
Kennt var í 22 iðngreinum.
Fjölmennustu iðngreinarnar
voru: Húsasmiðir 78, bifvéla-
virkjar 30, rafvirkjar 25, ketil-
og plötusmiðir 22 og vélvirkjar
18.
Auk skólastjóra, Jóns Sigur-
geirssonar, voru 4 fastir kenn-
arar og 15 stundakennarar.
í sumar verður hafinn undir-
búningur að verklegu námi raf-
virkja og rafvélavirkja, og
verða m. a. keypt kennslutæki
fyrir hluta þess fjár, er Rafveita
FERMINGAR BARNAMÓT
verður fimmtudaginn 13. júní í
Ólafsfirði. Öll fermingarbörn á
þessu vori í prófastsdæminu
eru velkomin á mótið. Frá Ólafs
firði verður farið í ferðalag til
Skagafjarðar og mótinu slitið á
Hólum í Hjaltadal.
Þátttakendur nesti sig til
dagsins, en fá mjólk á móts-
staðnum. Hver þátttakandi er
beðinn um að hafa með sér
skjólgóðan fatnað, útbúnað til
Útileikja og íþrótta, sundföt
(fyrir þá, sem vilja fara í sund),
Akureyrar gaf skólanum í til-
efni af 50 ára afmæli hennar
1972. Ennfremur mun fara fram
athugun á starfrækslu forskóla
fyrir trésmiði og málmsmiði á
vetri komanda og þá með líku
sniði og í Reykjavík.
Brautskráðir iðnnemar 1974.
Úr 4. bekk:
Arnór Erlingsson, húsasmiður.
Ásvaldur Jónatansson, húsasm.
Baldvin Þ. Sveinsson, plötusm.
Bergur Höskuldsson, vélvirki.
Bryngeir Kristinsson, bifvélav.
Brynleifur Siglaugsson, plötus.
Donald Kelly, skipasmiður.
Eiríkur E. Eiríksson, bifvélav.
Emil Þór Guðbjörnsson, skipas.
Erlingur Þorsteinsson, húsasm.
Garðar Jónasson, húsasmiður.
Geir Ágústsson, rennismiður.
SKÁKÞING UMFÍ
UNDANRÁSIR Skákþings
UMFÍ standa yfir. Keppnissveit
unum, sem eru alls 13, er skipt
í riðla. N. k. föstudagskvöld kl.
21 hefst keppni í einum þessara
riðla á Hótel KEA Akureyri og
lýkur daginn eftir. Þar keppa
fjögra manna sveitir frá Eyfirð-
ingum, S.-Þingeyingum og Aust
firðingum. Sú sveit sem sigrar
í þesum riðli kemst í úrslita-
keppnina. □
Nýja testamentið og skriffæri.
Þátttökugjald og ferðakostnað-
ur fyrir þá, sem lengst koma að
(eins og t. d. Akureyringana),
er áætlaður kr. 650,00.
Þátttöku þarf að tilkynna
sóknarprestum fyrir mánudags-
kvöld. Fermingarbarnamót hafa
verið á hverju sumri og til
mikillar ánægju. Frá Akureyr-
arkirkju verður lagt af stað kl.
8.30 f. h. mótsdaginn, 13. júní.
Hittumst öll á mótinu. Upplýs-
ingar gefa sóknarprestamir.
U ndirbúningsnef nd.
Gísli Bergsson, plötusmiður.
Gísli Pálsson, húsasmiður.
Guðlaugur Arason, húsasmiður.
Gunnar Kristjánsson, húsasm.
Gunnlaugur Magnússon, vélv.
Hallgrímur Ásgeir Hallgríms-
son, bifvélavirki.
Hannes Óskarsson, múrari.
Haraldur Júlíusson, húsasm.
Hermann Björnsson, húsasm.
Hilmar Stefánsson, húsgagnasm
Jóhann G. Jóhannsson, bifvélav
Jóhann Ól. Þórðarson, húsasm.
Jóhannes Jónsson, rafvirki.
Jón Ásmundsson, vélvirki.
Jón Erlendsson, bílamálun.
Jón S. Melstað, bifvélavirki.
Jón Ævar Ragnarsson, vélvirki.
Júlíus Fossberg Arason, húsas.
Jörundur Traustason, ketil- og
plötusmiður.
Kjartan Helgason, plötusmiður.
Magnús Árnason, húsasmiður.
Magnús Sigurðsson, rafvirki.
Ólafur Amars, rafvirki.
Ólafur Gunnarsson, húsgagnas.
Ólafur Svanlaugsson, húsasm.
Páll Sigurðsson, bifvélavirki.
Páll Sigurgeirsson, bifvélavirki.
Pétur J. Hjartarson, húsasm.
Pétur Ólafsson, vélvirki.
Pétur Þ. Stefánsson, vélvirki.
Sigmar Eiríksson, húsasmiður.
Sigmundur Jakobsson, bólstrari
Sigurður B. Björnsson, húsasm.
Sigurður P. Sigfússon, bifvélav.
Sigurjón Jakobsson, húsasm.
Stefán Jóhannesson, húsasm.
Stefán Jónsson, plötusmiður.
Steinþór Sigurjónsson, plötusm.
Steinþór Þórarinsson, skipasm.
Sveinn Friðriksson, húsasm.
Sævar Benediktsson, pípul.m.
Tryggvi Marinósson, plötusm.
Valgeir A. Þórisson, bifvélav.
Viðar Þorsteinsson, húsgagnas.
Þorsteinn V. Árnason, bifvélav.
Þórarinn Þorgeirsson, húsasm.
Iðnteikningu í nýrri iðngrein
luku:
Garðar Karlsson, bólstrari.
Rögnvaldur Reynisson, húsasm.
Úr 3. bekk:
Heiðbjört Antonsdóttir,
hárgreiðslukona.
Oddný Jónsdóttir, hárgr.kona.
Valdís Þorvaldsdóttir,
hárgreiðslukona.
(F réttatilky nning)
örðsending iil ferminprbarna
MINNINGARORD
Þersleinn Þcrsfeinsson
BÓNDI, HÁLSI
FÆDDUR 1. FEBR. 1889. DÁINN 17. APRÍL 1974.
„Vér stöndum á bjargi, sem bifast ei má,
Minn blessaði frelsari lifir oss hjá,
Hans orð eru líf vort og athvarf í neyð,
Hans ást er vor kraftur í lífi og deyð.“
Höf.: Friðrik Friðriksson.
Lífi voru á jörðinni er þannig
háttað, að það kviknar, nær
smátt og smátt fullum þroska,
lifir sitt fegursta blómaskeið,
hnignar síðan hægt og hægt og
slokknar loks alveg.
Sú fregn barst ættingjum og
vinum Þorsteins Þorsteinsson-
ar, fyrrum bónda að Hálsi í
Svarfaðardal, að morgni 17.
apríl sl., að hann hefði andast í
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri aðfaranótt þess dags. Hafði
hann legið rúmfastur þar
skamma hríð, en kvaddi þetta
líf frekar óvænt og hljóðlega,
enda þótt ættingjum og vinum
væri ljóst að hverju stefndi.
Er hann ættingjum og vinum
sár missir og skal hans lítillega
minnst hér. Hann var jarðsung-
inn á Völlum 24. apríl sl.
Þorsteinn var fæddur 1.
febrúar 1889 í Syðra-Haga á
Árskógsströnd. Hann var þann-
ig 85 ára er hann lést. Þorsteinn
var sonur hjónanna Þorsteins
Vigfússonar, bónda og útgerðar
manns, sem síðar fluttist til
Rauðuvíkur, og konu hans Ás-
laugar Guðmundsdóttur. Börn
þeirra og systkini Þorsteins
voru: Magnús, Guðmundur,
Valdimar, Guðjón, Elín, Sigfús
og Gunnlaugur.
Af þessum systkinahópi eru
enn á lífi: Gunnlaugur, sem bjó
á Hamri en fluttist síðan til Dal-
víkur og Sigfús bátasmiður í
Kálfsskinni á Árskógsströnd.
Auk þeirra átti hann hálfbróð-
ur, sem einnig hét Þorsteinn,
fyrrum bóndi á Hámundarstöð-
um, faðir Valtýs heitins Þor-
steinssonar útgerðarmanns og
þeirra systkina.
Þorsteinn missti ungur móð-
ur sína Ágústu og fluttist þá
ásamt systkinum sínum Gunn-
laugi og Elínu til móðursystur
sinnar, Guðrúnar Guðmunds-
dóttur og Jóns bónda Jónssonar
á Hálsi. Olst hann upp hjá þeim
sæmdarhjónum og undi hag sín
um vel. Fluttist hann aldrei bú-
ferlum þaðan og kunnugir telja
að hann hafi varla getað hugsað
sér það. Tók hann síðar við búi
á Hálsi og átti þar heima til
dauðadags.
Á árinu 1916 gekk Þorsteinn
að eiga eftirlifandi konu sína,
Jófríði Þorvaldsdóttur frá
Hellu, Vigfússonar og konu
hans Soffíu Jóhannsdóttur. Jó-
fríður lifir mann sinn heima á
Hálsi, en þau hjónin brugðu búi
fyrir nokkrum árum, en við
búinu tóku börn þeirra, Þor-
valdur og Guðrún ásamt eigin-
manni Gúðrúnar, Friðriki
Magnússyni.
Jófríður og Þorsteinn eign-
uðust 9 böm og eru þau öll á
lífi nema Soffía, er dó ung að
árum. Auk þeirra er að framan
UNGMENNABÚÐIR
HINAR árlegu ungmennabúðir
Ums. Eyjafjarðar verða að
Laugalandi í Eyjafirði 7.—14.
þ. m. Rúmlega 40 ungmenni
hafa tilkynnt þátttöku. Enn
geta nokkrir komist að í búð-
er getið eru börnin þessi: Þor-
steinn skipasmiður, Áslaug hús-
móðir, Jón bifvélavirki, Anna
húsmóðir, Guðmundur húsa- og
skipasmiður og Gerður hús-
móðir. Þau búa öll á Akureyri
nema Jón og Gerður, sem eiga
heimili í Reykjavík. j
Snemma hneigðist hugur Þor
steins til smíða. Fór hann til
smíðanáms til Gísla Jónssonar
á Hofi. Vann hann seinna mikið
við smíðar á vetrum, aðallega
bátasmíði, en hafði vetrarmann
heima. Hann var sæmilega hag-
ur smiður og virtust smíðarnar
standa nær hjarta hans heldur
en búskapur.
Eftir að hann brá búi dund-
aði hann gjarnan við ýmiss lag-
færingastörf heima fyrir og sást
þá gjarnan á ferli með hamar
og önnur smíðatól. Þannig hag-
ar til að Háls á land að sjó.
Hefur þá gjarnan verið nokkur
reki á fjörur. Hann hafði mjög
gaman af að ganga út að sjón-
um og huga að reka og gerði
það meðan kraftar hans leyfðu.
Þegar heim var komið með rek-
ann var hann sagaður niður í
smíðavið eða girðingastaura.
Hin síðari ár höfðu gamli mað-
urinn og þeir bændur tekið
tæknina í sína þjónustu og sög-
uðu með vélsög. Ég held að
óhætt sé að fullyrða að reka-
viðurinn og vinnsla hans í girð-
ingastaura og annan smíðavið
hafi síðari árin verið bæði hans
aðalstarf og tómstundaiðja og
hvíld frá dapurleika iðjuleysis
og þverrandi lcrafta. Hann var
svo heppinn að geta stundað
þetta starf hluta úr árinu allt
til æviloka. Enda þótt aðrir
hjálpuðu til var hann ávallt
verkstjórinn við þetta starf.
Komu þar vel í ljós eiginleikar
hans eins og iðjusemi og nýtni.
Rekaviðurinn alitaf nýttur til
síðustu spýtu.
Snemma á búskaparárum sín
um byggði hann íbúðarhúsið á
Hálsi. Það er stórt steinhús og
þótti mikil framkvæmd á árun-
um 1939—40, enda þurfti rými
fyrir stóra fjölskyldu og oft
hefur verið gestkvæmt á Hálsi.
Mest allt tréverk er unnið á
staðnum úr rekavið og svo er
einnig um útihús er byggð
voru. Húsið smíðaði hann með
aðstoð heimamanna og elstu
sona, þar lærðu þeir að fara
með hamar og sög, en leið
þeirra lá til Akureyrar þar sem
þeir tóku hendi til við skipa-
smíðar við stofnun Slippstöðv-
arinnar. Faðir þeirra tók við
fyrstu trillunum er komu til
Eyjafjarðar, lagfærði þær og
endursmíðaði, en synir hans
tveir smíða í dag nýtísku fiski-
skip úr stáli eða tré.
Skömmu eftir lát Þorsteins
lést bróðir Jófríðar, Gunnlaug-
ur Þorvaldsson, áður bóndi í
Torfunesi. Var hann jarðsung-
inn að Tjörn í Svarfaðardal 27.
apríl sl.
Sá sem þetta ritar vonar að
þeir geri góða ferð saman. Ég
gat ekki verið viðstaddur jarðar
farir þessara ættingja minna og
er þessi grein og fáu orð því
hinsta kveðja mín til þeirra.
Akureyri, 22. maí 1974.
unum.
□ Þorsteinn Friðriksson.
_