Dagur - 08.06.1974, Page 3
3
Ársþing Héraðssamb ands S.-Þin
DAGANA 20,—21. apríl 1974
var 61. ársþing Héraðssambands
Suður-Þingeyinga haldið í Hótel
Reynihlíð við Mývatn í boði íf.
Eilíís í Mývatnssveit. Þingið
hófst kl. 4 með því að formaður
HSÞ, Óskar Ágústsson, Laug-
um, setti þingið með ræðu. Þing
forsetar voru kjörnir Jón Illuga
son, Reynihlíð og Baldvin Kr.
Baldvinsson, Rangá, og þing-
skriíarar Hólmfríður Péturs-
dóttir, Víðihlíð, Steinþór Þráins
son, Skútustöðum og Steingrím
ur Jóhannesson, Grímsstöðum.
Á þinginu voru lagðar fram
eftirfarandi. fjölritaðar skýrsl-
ur: íþróttahandbók HSÞ 1974
og Starfsskýrsla HSÞ 1973 þar
sem hin prentaða Starfsskýrsla
HSÞ 1973 var ekki komin úr
prentun vegna verkfalls. Enn-
fremur voru til sölu eftirfarandi
fjölrituð rit: Skýrsla um íþrótta
starfsemi HSÞ 1973 og Handbók
HSÞ í lausblaðabroti.
Verður nú getið helstu atriða
úr skýrslum þessum:
Félagar í HSÞ voru um ára-
mótin 1107 í 13 félögum. Á ár-
inu störfuðu lengri eða skemmri
tíma 8 íþróttakennarar á veg-
um sambandsins. Haldið var
sumarbúðanámskeið að Laug-
um 12.—21. júní 1973, þátttak-
endur voru um 40 á aldrinum
12—15 ára. Arnaldur Bjarna-
son, Fosshóli, var endurráðinn
framkvæmdastjóri HSÞ fyrir
Sala
ísvél (Sweden) eldri
gerð til sölu.
Aðeins kr. 40.000,00.
Uppl .í símum 1-10-94
óg 1-20-88.
Til sölu notað móta-
timbur í Beykilundi 4.
Sími 2-17-22.
Barnavagn til sölu,
kerra fylgir.
Uppl. í Stafholti 5, niðri
gengið að sunnan.
Hraðbátur til sölu með
nýlegum 25 ha mótor,
sem þarfnast smá við-
gerðar.
Mikið magn varahluta
fylgir.
Uppl. í síma 1-24-91.
síðastliðið ár. Landgræðsla var
mikið stunduð á sambandssvæð
inu og var miklu magni af
áburði og fræi dreift. íþróttir
voru mikið stundaðar á sam-
bandssvæðinu og verður nú get
ið þess helsta: íþróttafólk HSÞ
tók þátt í 154 mótum og voru
þátttakendur í þeim 1656, og
skiptist það þannig milli íþrótta
greina:
Fi'jálsar íþr. Mót 27 Keppe. 357
Glíma 7 26
Blak 2 36
Handknattleikur 38 380
Knattspyrna 64 704
Badminton 3 28
Skíði 9 80
Sund 4 45
Frjálsíþróttafólk HSÞ keppti
á mörgum mótum utan héraðs,
m. a. Norðurlandsmeistaramóti
sem við unnum með 212,5 stig-
um, Bikarkeppni FRÍ, II. deild,
sem við unnum með 107,5 stig-
um, Bikarkeppni FRÍ, I. deild,
Meistaramóti íslands og mörg
fleiri. Haldið var héraðsmót í
knattspyrnu fyrir eldri og yngri
flokka, ennfremur bikarkeppni
fyrir þá yngri. Völsungur og
Magni tóku þátt í íslandsmót-
unum í knattspyrnu. Glímu-
menn HSÞ tóku þátt í öllum
stærri glímumótum, m. a. ís-
landsglímunni, Sveitarglímu
GLÍ, Bikarglímu GLÍ í báðum
flokkum, Norðurlandsglímunni
og fleiri. Skíðaíþróttin er aðal-
lega stunduð á Húsavík og tóku
þeir þátt í mörgum mótum,
m. a. Skíðamóti íslands, Ungl-
ingaskíðamóti íslands þar sem
Völsungur fékk 1 íslandsmeist-
ara í svigi 15—16 ára, Böðvar
Bjarnason, auk þess í mörgum
fleiri mótum. Sundmeistaramót
Norðurlands var haldið á Húsa-
vík og var þátttaka mjög mikil.
Blak er hér vaxandi íþrótta-
grein, og var haldið hér héraðs-
mót í því í fyrsta sinn, auk þess
sem lið frá HSÞ tók þátt í ís-
landsmótinu. Handknattleikur
er hvergi stundaður nema á
EFTIRFARANDI tillögur voru
samþykktar á aðalfundi Kvenna
sambands Akureyrar 19. maí
síðastliðinn:
1. Aðalfundur Kvennasam-
bands Akureyrar haldinn 19.
maí 1974 samþykkir að skora á
bæjarstjóm Akureyrar að veita
ekki áfenga drykki á fundum
eða samkomum, sem haldnar
eru á vegum bæjarins.
2. Aðalfundur Kvennasam-
Húsavík, en þar er mikill áhugi
fyrir honum. Völsungur fékk 1
íslandsmeistara í handknatt-
leik, meistaraílokk karla í III.
deild. Badminton er stundað
hér á nokkrum stöðum og fer
áhugi á því vaxandi.
Arngrímur Geirsson gjald-
keri HSÞ lagði fram reikninga
sambandsins. Niðurstöðutölur
rekstrarreikningsins voru kr.
1.002.665,00. Helstu tekjuliðir
voru þessir: Skattar og styrkir
455.761,00, íþróttamót og sam-
komur 142.328,00 og aðrar tekj-
ur 341.000,00. Helstu gjaldaliðir
voru þessir: Kennslukostnaður
272.420,00, ferðakostnaður
íbróttamanna 188.127,00, stjórn-
arkostnaður 322.602,00, íþrótta-
mót og samkomur 102.442,00 og
önnur gjöld 91.649,00. Rekstrar-
halli varð kr. 63.415,00. Eignir
sambandsins voru 424.185,00 kr.
Verður nú getið nokkurra til-
lagna sem samþykktar voru á
þinginu:
Þingið beinir þeirri áskorun
til sveitarstjórna að þær láti
raunverulegt verðgildi framlags
síns til sambandsins haldast
með því að miða framlag sitt í
ár við 75,00 kr. á hvern íbúa.
Þingið beinir því til stjómar
sambandsins að hefja nú þegar
undirbúning að útgáfu á segul-
bandsspólum með alþingeysku
efni.
Þingið beinir því til stjómar-
innar að kanna hvort rétt sé að
koma á Þingeyingahátíð og þá
sem árlegum viðburði.
Þingið fagnar því, að í vetur
var haldið héraðsmót í skíða-
göngu og beinir því til skíða-
fólks, að áframhald verði þar á.
Samþykkt var lagabreyting á
lögum HSÞ og var hún í þá átt
að fjölga í stjórn HSÞ úr 5 í 7
menn.
31. október 1974 verður HSÞ
60 ára. Afmælisins verður
minnst á margan hátt, m.a. með
afmælismótum og afmælishátíð
á afmælisdaginn.
bands Akureyrar samþykkir að
beina þeim eindregnu tilmælum
til bæjarstjórnar Akureyrar að
komið verði á fót vöggustofu á
Akureyri hið fyrstíi.
Bréfið hefur verið afhent
bæjarstjóra.
I Kvennasambandi Akureyr-
ar eru þessi félög: Kvenfélagið
Baldursbrá, Kvennadeild Ein-
ingar, Kvenfélagið Framtíðin
og Kvenfélagið Hlif. □
Frá Kvennassnibasidi Akureyrar
r ;
Alieit og gjafir til \
Dalvíkui’kirkj 11 ’74 j
N. N. og N. N M B. G Krónur . 1.000 600
N. N . 1.000
N. N . 2.000
Jón Pálsson . 5.000
Sveinn Sigurðsson ... . 5.000
R. G . 1.000
K. J . 1.000
B. J . 1.000
Skafti Þorsteinsson . . .. 2.000
E. K. Ó . 1.000
Sigrún Kristinsdóttir 300
n. n. . 1.000
í. Á .
Dánarbú Halldórs
Sigfússonar . 3.000
Páll Guðlaugsson .. . . 1.000
Ólöf Gunnlaugsdóttir .. 1.500
. 1974
Guðrún Arngrímsdóttir 1.000
E. S. og M. S............ 2.500
Júlíus Kristjánsson .... 1.000
í. Á....................... 200
Baldvina Þorsteinsdóttir 1.000
Guðrún Finnbogadóttir 1.000
Hildur Jóhannsdóttir ... 1.000
Þóra Antonsdóttir....... 1.000
N. N..................... 5.000
Sigurpáll Hallgrímsson . 2.000
Hildur Jóhannsdóttir . . 1.000
Páll Guðlaugsson........ 500
H. Á....................... 500
Sveinn Friðbjörnsson . . 1.000
Ur gjafakassa kirkjunnar 6.380
Samtals kr. 52.580
Alúðarfyllstu þakkir til gef-
enda og allra þeirra, sem stutt
hafa kirkjuna og safnaðarstarf-
ið á einn eða annan hátt. ;
Sóknaniefnd.
Úr stjórn HSÞ áttu að ganga
Arngrímur Geirsson og Indriði
Ketilsson, sem ekki gaf kost á
sér til endurkjörs.
Stjóm Héraðssambands Suð-
ur-Þingeyinga skipa.nú: Óskar
Ágústsson, Laugum, formáður,
Vilhjálmur Pálsson, Húsávík,
varaformaður, Sigurður Jóns-
son, Ystafellþ ritari, Arngrímur
Geirsson, Skútustöðum, gjald-
keri og meðstjórnendur Jón
Illugason, Reynihlíð, Völundur
Hermóðsson, Álftanesi og Jónas
Sigurðsson, Lundarbrekku.
(Fréttatilkynning frá HSÞ)
AUGLÝSIÐ í DEGI
WRANGLER
buxur og stakkar.
Ný sending.
Stærðir 26-34.
KLÆÐAVERZLUN S!G.
GUÐMUNDSSONAR
— Yel lieppnað mót
(Framhald af blaðsíðu 8)
5. Geysir ........... 195,0 stig
7 vetra, jarpur,.eyf.
Eig. Jóhann Konráðsson.
Knapi var eigandinn.
Tveir efstu hestar í hvorum
flokki fara sem keppendur Létt
is á Landsmótið á Vindheima-
melum í sumar.
Þessar hryssur urðu efstar:
1. Elding ...........195,5 stig
5 vetra, rauð, húnv.
Eig. Edda Vilhelmsdóttir,
Knapi Reynir Hjartarson.
2. Slemma ...........194,5 stig
5 vétra, grá, þing.
Eig. Frímann Frímannsson.
Knapi Reynir Hjartarson.
3. Vaka .............194,0 stig
4 vetra, brún, eyf.
Eig. Freyja Sigurvinsdóttir.
Knapi var eigandinn.
4. Brana ........... 182,5 stig
15 vetra, hv'ít, eyf.
Eig. Ragnh. Gíslad., Bitru.
Knapi Aðalbergur Stefánss.
5. Kvika ........... 180,5 stig
9 vetra, brún, skagf.
Eig'. Matthxas Eiðsson.
Knapi var eigandinn,
Að loknum góðhestakeppnun
um voru svo kappreiðar og hóf-
ust þær með 250 m skeiði, en
í skeiði voru skráð 13 hross,
sem er mesta þátttaka hjá félag
inu í áratugi. Sigurvegari varð
Óð'inn Hildar og hlaut hann bik-
ar sem keppt var nú um í fyrsta
sinn. þikarinn er gefinn af
aðstandendum Hjartar Gísla-
sonar.
Úrslit í kappreiðunum urðu
þessi:
Skeið.
1. Óðinn.............29,4 sek.
8 vetra, brúnn, skagf.
Eig. Hildur Gunnarsdóttir.
2. Glanni ...........30,0 sek.
8 vetra, rauðvindóttur, þing.
Eig. Bergvin Jóhannsson.
3. Hrímfaxi .........30,1 sek.
12 vetra, vindóttur, skagf.
Eig. Guðmundur Snorrason.
250 metra stökk.
1. Happy ............ 20,4 sek.
6 vetra, rauður, eyf.
Eig. Örn Grant.
2. Blesi.............20,6 sek.
6 vetra, bleikblesóttur, skagf.
Eig. Árni Magnússon og
Ragnar Ingólfsson.
3. Skjóni ............20,8 sek.
6 vetra, jarpskjóttur, eyf.
Eig. Guðm. Gíslason, Rvík.
300 metra stökk.
1. Fagri-Blekkur .... 23,7 sek.
9 vetra, brúnn, skagf.
Eig. Benný Jensen.
2. Ölver ............ 24,1 sek.
9 v., bleik-tvístjörnóttur, eyf.
Eig. Hreinn Þorsteinsson.
3. Þytur..............24,9 sek.
12 vetra, grár, húnv.
Eig. Guðmundur Stefánsson.
350 nxetra stökk.
1. Litur ............ 27,6 sek.
9 vetra, litföróttur, eyf.
Eig. Ásgeir Ásgeirsson.
2. Vængur ............28,0 sek.
9 vetra,' brúnskjóttur, húnv.
Eig. Lilja Reynisdóttir.
3. Nótt ..............28,1 sek.
7 vetra, brúnstjórnótt, eyf.
Eig. Hilmar Gunnarsson og
Ingvi Eiríksson.
Þess má geta að nokkrir af
eldri félögum Léttis tóku þátt í
þessu móti. Guðmundur Snorra
son sýndi hest í góðhestakeppn-
inni og ennfremur sat hann tvö
hross í skeiði. Alfreð Arnljóts-
son sýndi einnig hest í góðhesta
keppninni og hleypti í öllum
vegalengdum í stökki. Alfreð
Steinþórsson sýndi hest í góð-
hestakeppninni og varð hans
hestur þar í þriðja sæti. Q