Dagur - 08.06.1974, Síða 5
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Súnar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgSarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
Konungskoman
ÍSLENÐINGUM, sem til Noregs
hafa farið til lengri eða skemmri
dvalar, ber saman um vinarhug
Norðmanna í garð íslensku Jjjóðar-
innar. fslenzka og norska þjóðin eru
af sama stofni og um margt líkar, og
bæði hin norðlægu lönd hafa fóstrað
þegna sína við svipuð lífskjör. Um
aldir höfum við átt miklu meiri sam-
skipti við Dani en eigum þó engu að
síður vináttu norsku þjóðarinnar og
metum hana mikils. Því var öllum
fslendingum kærkomin heimsókn
hins norska þjóðhöfðingja, Ólafs V,
og Norðlendingar fagna því sérstak-
lega, að hann gaf sér tíma til að
koma hingað og treysta bönd frænd-
semi og vináttu.
Gamla fólkið
I VELFERÐARÞJÓÐFÉLAGI er
málefnum aldraðra sýndur skilning-
ur í verki. Það er jafnvel stundum
sagt, að aðbúð þjóðfélagsins við þá
öldruðu sé öðru fremur mælikvarði
á efnahag og menningu. Hér á landi
eru málefni aldraðs fólks oft á dag-
skrá og þykist sá stjórnmálaflokkur
beztur, sem gott lætur af sér leiða í
þessu efni.
f þessu sambandi geta menn
minnst þess, að í aprílmánuði 1971,
þegar „viðreisn“ var enn við völd,
lá fyrir Alþingi stjórnarfrumvarp
um breytingu á almannatrygging-
um. Og þá var nýbúið að gera kjara-
samninga við opinbera starfsmenn,
er fólu í sér stórfelldari hækkanir en
áður höfðu þekkst. En í trygginga-
frumvarpi ríkisstjórnarinnar, sem
raunar átti ekki að taka gildi fyrr ep
á næsta ári, fólst þúsund króna hækk
un ellilífeyris og örorkubóta á mán-
uði, úr 4880 krónum í 5880 krónur
og þótti ríflegt af „viðreisn“. Þá áttu
þeir, sem engar tekjur höfðu, 84.000
kr. tekjutryggingu. Framsóknar-
menn gerðu hinsvegar tillögur um
stórfellda hækkun og þegar vinstri
stjórn kom til valda, var tekjutrygg-
ingin hækkuð í 120 þúsund krónur.
Og í staðinn fyrir 4.880 krónur á
mánuði undir „viðreisn“ eru hin al-
mennu ellilaun í dag 12.215 krónur
á mánuði. Á þessu tímabili hefur
framfærsluvísitalan hækkað um
56% en hækkun ellilífeyrisins hækk
aði hinsvegar á sama tíma 149%. En
hækkun tekjutryggingarinnar er
285%.
Má ef þessum tölum ljóst vera, á
hvem hátt núverandi ríkisstjórn tók
á málunum, þótt fyrri stjórn sæi
ekki ástæðu til að bæta hag aldraðra.
□
Uppbyggingnna má alls ekki stöfiva
INGI TRYGGVASON á Kár-
hóli í Reykjadal skipar að þessu
sinni þriðja sæti á lista Fram-
sóknarflokksins í Norðurlands-
kjördæmi eystra. Ingi hefur í
tveim undangengnum kosning-
um skipað sæti á framboðslista
flokksins hér í kjördæminu og
nokkrum sinnum tekið sæti á
Alþingi sem varamaður. Ingi er
kunnur maður í sínu héraði og
víðar fyrir ýmis konar félags-
málastörf. Hann er fæddur á
Litlu-Laugum í Reykjadal árið
1921. Foreldrar hans, Unnur
Sigurjónsdóttir og Tryggvi Sig-
trýggsson, byggðu nýbýlið
Laugaból árið 1929 og eiga þar
þeimili sitt enn. Ungur fór Ingi
til náms í Héraðsskólann að
Laugum, síðan í Kennaraskól-
ann og lauk þaðan prófi 1942.
Frá hausti 1942 til vors 1970
hefur hann verið kennári,
lengst við Héraðsskólann á
Laugum, að undanskildum
tveim árum, sem hann var við
nám erlendis.
Árið 1951 kvæntist hann
Onnu Þorsteinsdóttur, kennara
frá Götu á Árskógsströnd. Vor-
ið 1955 fluttu þau að Kárhóli,
nýbýli sem þau reistu skammt
frá Laugaskóla, og þar hafa þau
átt heimili síðan og rekið þar
búskap. Þau eiga 5 syni. Haust-
ið 1970 réðist Ingi til starfa hjá
bændasamtökunum sem blaða-
og upplýsingafulltrúi og hefur
vegna þess starfs dvalið að
nokkru leyti í Reykjavík.
Nú eru frambjóð'endur Fram-
sóknarflokksins að hefja funda-
höld í kjördæminu. Á hvað
munt þú einkum leggja áherslu
í málflutningi þínurn?
Nauðsyn þess, að ekki verði
rofin sú þróun alhliða uppbygg-
ingar lífsaðstöðu á landsbyggð-
inni, sem hófst með myndun
ríkisstjórnar Ólafs Jóhannes-
sonar og stendur enn. Frá því
ég fyrst man eftir hefur Faxa-
flóasvæðið sogað til sín fólk og
fjármagn alls staðar að af land-
inu, að vísu misört eftir ýmsum
aðstæðum, t. d. stjórnarfari, en
þó með þeim þunga, að margir
töldu að ekki yrði rönd við
reist. Nú sjást þess hvarvetna
merki, að þessi þróun hefur
snúist við. Unga fólkið hefur
öðlast skilning og trú á því, að
landið allt skuli byggt, að land-
Ingi Tryggvason.
ið allt skuli vera og verða vett-
vangur blómlegs menningar- og
atvinnulífs, vettvangur blóm-
legs mannlífs.
Það er lífsspursmál, að sú
ríkisstjórn, sem með völd fer
næsta kjörtímabil, haldi fram
því uppbyggingarstarfi, sem nú
er hafið. Til þess að svo verði,
þarf fólkið í landinu að efla
Framsóknarflokkinn til áfram-
haldandi forystuhlutverks í ís-
lenskum stjórnmálum. Athyglis
vert er, að af 17 alþingismönn-
um Framsóknarílokksins á síð-
asta kjörtímabili voru 14 kjörn-
ir utan Faxaflóasvæðisins.
Flokkur, sem þannig er skipað-
ur þingfulltrúum, hefur önnur
TÁLYON
Mér er það í barnsminni ennþá þótt nokkuð sé liðið.
að einn var í svefni og vöku minn þráláti draumur:
Og það var að stækka og hraða mér gegnum hliðið
að heimi hins fulltíða manns. — Og það tókst. — En sá glaumur.
Fermdur og skólaður skrefaði ég eftir vegi
með skáldlegum tilburðum, allt upp á spaugsemi og grín.
Yfir mig sæll, því nú kæmi að þeim dýrðlega degi,
er dásemdir mannlífsins breiddi út faðminn til mín.
Svo opnaðist heimur og holskefla reið yfir sviðið,
hræsni og lygar og skinhelgi flutu á land.
Augu mín fylltust af seltu, svo máðist út miðið.
Ég man hvernig vonin grófst öll niðrí fjörunnar sand.
Nú knýja mig fullorðinn fastheldnir, nístandi sporar,
en för mín er hikandi og slitrótt að takmarki því
að hlæja burt grátinn — í hlýðni við leikreglur vorar.
Því hlakka ég mest til að ganga í barndóm á ný.
Brynjólfur Ingvarsson.
- Hagstæft ár hjá Sambandinu
(Framhald af blaðsíðu 8)
aðarstöð í Reykjavík, og nýtt
skip, Dísarfell, bættist í flota
Sambandsskipanna. Til þessara
framkvæmda var varið 206
milljónum króna.
Fastráðnum starfsmönnum
fjölgaði um 100 á árinu, og voru
þeir 1550 í árslok.
Starfandi sambandsfélög voru
46 í árslok. Félagsmannafjöldi
þeirra var 39.128 og hafði þeim
fjölgað um 2.587 á árinu. Voru
þá 18,4% íslnedinga innan Sam-
bandskaupfélaganna. Mest aukn
ing varð hjá KRON, 1.363 nýir
félagsmenn, og hjá Kaupfélagi
Suðurnesja í Keflavík, 536.
Heildarvelta félaganna 46 að
meðtöldum söluskatti nam
14.647 milljónur króna á móti
10.421 milljónum króna 1972,
sem er aukning um 39%. Á ár-
inu sýndu 29 þessara félaga
hagnað samtals að upphæð 47
milljónir króna, en 17 félög
sýndu halla að upphæð 31
milljón króna. Er því nettóhagn
aður allra félaganna 16 milljón-
ir, en afskriftir þeirra nema
158,6 milljónum króna.
sjónarmið varðandi ýmsa mjög
mikilsverða málaflokka en
stjórnmálaflokkur, sem sækir
meginhluta kjörfylgis til Faxa-
flóasvæðisins og velur meiri-
hluta forystuliðs síns af sama
svæði. Það er enginn vandi að
tala fagurlega um byggðastefnu.
En hvað sem orðum og jafnvel
góðum áformum líður þá berj-
ast menn jafnan harðast fyrir
lífi sínu, og Framsóknarflokkur
inn á líf sitt undir því, að hann
haldi trúnaði fólksins á lands-
byggðinni, án þess trúnaðar
væri Framsóknarflokkurinn
ekki til og án Framsóknarflokks
ins væri heldur engin lands-
byggðastefna.
Nú er fólksstraumurinn stöðv
aður?
Já,‘ ég sagði áðan, að þess
sæust hvarvetna merki, að
straumurinn lægi ekki lengur
til Faxaflóasvæðisins. Bygging
íbúðarhúsnæðis úti á landi og
skortur vinnuafls í byggingar-
iðnaði þar eru meðal ljósustu
ummerkjanna. Hvar sem farið
er með ströndum lands eða inn
til dala eru nýreist íbúðarhús,
hús í byggingu eða undirbún-
ingur bygginga hafinn.
Um langt skeið hefur hús-
næðisskorturinn einkum verið
bundinn við Reykjavík og ná-
grenni. Nú er það húsnæðis-
skortur, sem einkum tefur fjölg
un fólks í mörgum sjávarpláss-
um. Fyrir nokkrum árum hefði
þótt fáránlegt að tala um að
leysa húsnæðisvandamál
Reykjavíkursvæðisins m e ð
byggingu íbúðarhúsnæðis á
Akureyri, Dalvík, Ólafsfirði,
Húsavík, Þórshöfn eða Raufar-
höfn. Ríkisvaldið studdi sérstak
lega að uppbyggingu íbúðar-
húsnæðis í Reykjavík á við-
reisnarárunum, Breiðholtsfram-
kvæmdunum. Ákvörðun núver-
andi ríkisstjórnar um sérstaka
fyrirgreiðslu til býggingar 1000
leiguíbúða á vegum sveitar-
félaga utan Reykjavíkur er ekki
aðeins glöggt dæmi um viðhorf
núverandi ríkisstjórnar til raun
verulegrar byggðastefnu, held-
ur einnig líkleg til að valda
straumhvörfum í byggðaþróun
fjölmargra sveitarfélaga í land-
inu. Þar dugir að vísu ekki
frumkvæði Alþingis og ríkis-
stjórnar eitt, þar veltur einnig
á framsýni og áræði einstakra
sveitarstjórna og áhuga þess
þingmeirihluta, sem myndast
við næstu kosningar, fyrir því
að halda þessum sérstaka þætti
uppbyggingarstarfsins áfram.
Ert þú stuðningsmaður áfram
haldandi vinstra samstarfs?
Já, það er ég. Ég þarf ekki að
fjölyrða um ástæðurnar. Ég
treysti ekki Sjálfstæðisflokkn-
um í byggðamálum. Flokkur,
sem fær 26 þúsund atkvæði í
borgarstjórnarkosningum í
Reykjavík, er óhjákvæðilega
háður því afli, sem að baki slíku
atkvæðamagni býr. Sumir
segja, að vinstri stjórnir hafi
ekki orðið langlífar í þessu
landi á undanförnum áratugum.
En er lengd stjórnarsamstarfs
endilega mælikvarði á gagn-
semi þess? Eru það ekki verk
hverrar ríkisstjórnar, sem
hljóta að marka þeim sess í sög-
unni? Ríkisstjórn Ólafs Jóhann-
essonar hefur aðeins setið að
völdum tæp þrjú ár enn. Samt
hefur hún tryggt sér nafn í sög-
unni, nafn á þeirri blaðsíðu ís-
landssögunnar þar sem upp
verða taldar þær íslensku ríkis-
stjórnir, sem þáttaskilum valda
í mikilsverðum lífshagsmuna-
málum. Ríkisstjórn Ólafs Jó-
hannessonar hefur unnið sigur
í landhelgismálinu. Hún hefur
með einstökum myndarbrag ráð
ið fram úr þeim vanda, sem
Vestmannaeyjagosið olli. Hún
hefur snúið á heillabraut ára-
tuga óheillaþróun í byggðamál-
um. Hún hefur byggt upp fiski-
skipaflota, sem drabbaðist niður
undir viðreásn. Hún hefur hafið
gagngerðar endurbyggingar á
frystihúsum landsins, lyft Grett
istaki í vegamálum og skóla-
málum dreifbýlisins, gjörbreytt
möguleikum sveitarfélaga til
hafnarbygginga, komið á ný-
skipan heilbrigðismála og aukið
hlutdeild ríkisins í byggingu
sjúkrahúsa og heilbrigðismið-
stöðva, vakið nýja öldu fram-
fara og bjartsýni í landbúnaði
og svo mætti lengi telja. En
mörg aðkallandi verkefni eru
ýmist í framkvæmd eða óleyst
og þess vegna þuríum við enn
um sinn það sem við köllum
vinstri stjórn, framfarasinnaða
stjórn fólksins í landinu undir
forystu Framsóknarflokksins.
Með sigri Framsóknarflokksins
í næstu alþingiskosningum
tryggjum við áhrif hans á lausn
aðkallandi vandamála. Aðstaða
flokksins til að beita áhrifum
sínum fer ekki eingöngu eftir
tölu kjörinna þingmanna, held-
ur einnig eftir fjölda þess fólks,
sem að baki þeim stendur. Því
vil ég skora á alþingiskjósendur
hér í Norðurlandskjördæmi
eystra að veita Framsóknar-
flokknum slíkt brautargengi í
kosningunum 30. júní, að eng-
inn geti dregið í efa, að hér
kjósa menn sér framfarasinnaða
og framkvæmdasama stjórnar-
stefnu, landsb.yggðastefnu, raun
verulegt jafnrétti þegnanna í
þjóðfélaginu, hvar í landinu
sem þeir hasla sér völl við þjóð-
þrifa- og þjóðnytjastörf, segir
Ingi Tryggvason að lokum og
þakkar blaðið hin ágætu svör
hans. □
Mannlífið er heilbrigðara
VALGERÐUR Sverrisdóttir
kennari á Lómatjörn í Grýtu-
bakkahreppi skipar 8. sæti
á framboðslista Framsóknar-
manna í Norðurlandskjördæmi
eystra. Hún er dóttir hjónanna
Jórlaugar Guðnadóttur, sem lát
in er fyrir allmörgum árum, og
Sverris Guðmundssonar odd-
vita og bónda á Lómatjörn, og
er hún 24 ára gömul. í viðtalinu
kemur fram námsferill hennar
og störf. Það er skemmtilegt
tímanna tákn, að hún ætlar að
hefja búskap á æskuslóðum
sínum, ásamt norskum eigin-
manni sínum.
r
l
sveitinm
Segir Valgerður Sverrisdóttir á Lómatjörn
Vðkfavinna er á Dalvík
Dalvík, 6. júní. Nýkjörin bæjar-
stjórn er búin að halda tvo
fundi. Fyrsta fund hélt hún
laugardaginn fyrir hvítasunnu
og kaus þá forseta og varafor-
seta og þeir voru Hilmar Daní-
elsson og Jóhann Antonsson.
Síðan hélt hún annan fund í
gær. Samþykkt var að ráða
Valdimar Bragason til að gegna
bæjarstjórastarfi á Dalvík og
verður launasamningur lagður
fyrir bæjarstjórnarfund. Á fund
inum í gær var kosið í hluta af
föstum nefndum, sömuleiðis
kosnir þrír bæjarfulltrúar til að
gera tillögu að bæjarmálasam-
þykkt, hún er engin til og þess
vegna ganga þessi störf hægar
fyrst, á meðan hún er ekki stað-
fest.
Nýjung er það hér að það
hefur verið tekin upp vakta-
vinna í frystihúsinu, unnið á
tveimur vöktum. Gert er ráð
fyrir að hráefni fáist í sumar til
að geta haldið uppi svona vakta
vinnu. í frystihúsinu vinna um
120 stúlkur samtals.
Björgvin er á leið til lands
með fullfermi. H. D.
Blaðið átti við hana eftirfar-
andi viðtal.
Hvernig hefur þú eytt árun-
um síðan þú laukst barnaprófi?
Ég fór í Kvennaskólann í
Reykjavík, og lauk prófi þaðan
eftir fjögur ár, þ. e. vorið 1967.
Á meðan ég var í skólanum var
ég heima á Lómatjörn í bú-
skapnum á sumrin, en vorið
1967 fór ég að vinna á skrifstofu
Rannsóknastofnunar landbún-
aðarins að Keldnaholti og vann
þar í eitt ár. Síðan fór ég til
Þýskalands og var þar fyrst í
skóla við þýskunám, en fór svo
að vinna á skrifstofu SÍS í Ham
borg. f Þýskalandi var ég í eitt
ár, en er heim kom fór ég að
vinna á skrifstofu KEA og eftir
það var ég læknaritari á FSA.
Ég hafði sett mér það þegar ég
kom frá Þýskalandi, að láta
ekki þar við sitja hvað utan-
landsferðir snerti og haustið
1971 fór ég til Englands og var
þar í 6 mánuði á ensku heimili
og stundaði enskunám. — Nú,
síðan ég kom heim frá Eng-
landi, hef ég verið heima á
HEIMIR HANNESSON, LÖGFRÆÐINGUR
Norfilenzk forysta
í heilsuræktarmálum
FYRR á þessu ári reifaði
sá er þetta ritar hugmynd
um heitsuræktarmiðstöð
á Norðurlandi þar sem
m. a. var vísað til þróunar
áætlunar sérfræðinga
Sameinuðu þjóðanna um
íslensk ferðamál, en í
þeirri áætlun var einn
stærstí liðurinn slík mið-
stöð er í senn nýtti jarð-
hita tíl baða, væri í tengsl
um við fullkomna skíða-
aðstöðu, veiðiaðstöðu og
ýmiskonar útivist Voru
leidd rök að því, að á
Norðurlandi væri brýn
þörf slíkrar heilsuræktar-
miðstöðvar um leið og
þeirri skoðun var lýst, að
ekki væri hægt að fallast
á þá frumhugmynd hinna
erlendu sérfræðinga að
velja slíkri miðstöð stað í
eða við Reykjavík —
bæði frá þjóðfélagslegum
ástæðum og frá sjónar-
miði byggðastefnu. Enda
var frá því skýrt, að þessi
skoðun sérfræðinganna
væri einungis fyrsta til-
laga er þarfnaðist nánari
athugunar bæði þeirra
sjálfra og annarra og
væri að lokum pólitísk
ákvörðun viðkomandi
stjórnvalda.
í grein þessari, sem um urðu
töluverð skoðanaskipti bæði í
blöðum og á annan hátt, var
þeirri skoðun lýst, að Akureyri
eða nágrenni Akureyrar kæmi
mjög til greina þegar staðarval
væri skoðað í sambandi við um-
rædda heilsuræktarmiðstöð og
voru þau rök einkum færð
fram, að þegar væri fyrir hendi
fullkomin skíðaaðstaða, sem
enn þyrfti að þróa, og ennfrem-
ur minnt á brautryðjendastarf
áhugamannafélaga, einkum á
Akureyri, er hefðu það bein-
línis á stefnuskrá sinni að vinna
að byggingu heilsuhælis á Norð
urlandi. Var þeirri hugmynd
varpað fram, hvort ekki kæmi
til greina að mati þessara dug-
légu áhugakvennasamtaka að
samræma hér aðgerðir, ekki síst
með tilliti til fjárskorts um leið
og nokkur grein var gerð fyrir
fjáröflunarmöguleikum í sam-
bandi við umrædda heilsurækt-
armiðstöð.
Málið er á dagskrá.
Það sem fær mig fyrst og
fremst til að hefja umræður um
þetta, mál á opiriberum grund-
velli á ný eru ekki fyrst og
fremst þau skoðanaskipti er
fram komu í framhaldi af þess-
ari grein og lutu einkum að stað
arvali og hinum reifuðu hug-
myndum þar að lútandi og ekki
heldur fyrirhugaðar kosningar,
þó að ýmsir kynnu svo að
álykta, heldur vil ég fyrst og
fremst vekja athygli á því, að
einmitt þessa dagana er mál
þetta mjög á dagskrá á ný, þó
að hljótt fari. Eins og skýrt var
frá í grein minni tóku opinberir
aðilar þá ákvörðun að halda
áfram þeirri könnun og þeim
undirbúningi er hafinn var með
frumgerð nefndrar þróunar-
áætlunar. Næsta st/g þess starfs
er nákvæm vinna sérfræðinga,
sem lýtur fyrst og fremst að
staðarvali og fjárhagslegri upp-
byggingu á þeim þremur eða
fjórum þróunarsviðum er á dag
skrá eru. Nú þegar hefur sér-
fræðingafyrirtæki á vegum
Sameinuðu þjóðanna verið falið
þetta starf og þessa dagana er
þetta starf fyrir skömmu hafið.
Hér er því sannarlega um að
ræða stórmál, sem nú þegar er
á dagskrá, og miklu skiptir
hvernig á er haldið. Ég tel ekki
ástæðu til að rekja þennan þátt
nánar á þessu stigi, þó að vissu-
lega væri það freistandi. Á hitt
vil ég leggja áherslu, að þeir
aðilar, sem fara með stjórn
landsins á næstunni, hafa það á
valdi sínu að taka ákvarðanir í
þeim málum er ég hef reynt að
vekja athygli á. Þar skiptir
miklu máli, að framsýni og
hyggindi ráði ferðinni.
Staðarvalið
könnun.
sjálfstæð
Að lokum örfá orð um staðar-
valið: Á þeim tíma er ég ritaði
greinina voru málin því miður
ekki komin á það stig, að spurn-
ingin væri um endanlegt staðar-
val. Að því leyti held ég að þeir
kunningjar mínir er réttilega
vöktu athygli á öðrum valkost-
um, t. d. í hinu fagra Þingeyjar-
þingi, hafi e. t. v. misskilið ein-
hverjar setningar í grein minni.
Ábendingar um skort á heitu
vatni á Akureyrarsvæðinu eru
vissulega hárréttar og margt
fleira eins og t. d. einstök veiði-
aðstaða í Þingeyjarþingi — og
ýmislegt fleira má telja. En mál
in eru því miður ekki enn kom-
Lómatjörn og hef kennt við
Barnaskólann á Grenivík tvo sl.
vetur.
Hefurðu hugsað þér að halda
áfram kennslunni?
Ekki býst ég við því. Þannig
er málum háttað, að maðurinn
in á það stig, að spurningin sé
um staðarval austan eða vestan
Vaðlaheiðar. Fyrst þurfa menn
að vinna þeirri hugmynd fylgi,
að heilsuræktaraðstöðunni, sem
ekki endilega þyfti öll að vera
á sama stað, verði valinn staður
á Norðurlandi. Um það ættu
menn ekki að þurfa að deila,
heldur vinna því fylgi á hvern
þann hátt er menn geta. Hér
þarf að komast á samvinna,
bæjarfélaga, áhugamanna, sam-
taka og stjórnmálamanna. Þeg-
ar þetta hefur tekist, þarf að
fara fram nákvæm könnun á
kostum og göllum hvers þess
staðar er til greina kemur og
köld skynsemin ein að ráða að
lokum. Að því þarf að vinna að
um þetta mikilvæga mál verði
tekin ákvörðun áður en árið er
liðið.
Raunveruleg byggðastefna.
Ég hef alltaf verið þeirrar
skoðunar, að raunveruleg
byggðastefna sé frekar í því
fólgin að takast á við félagsleg
og verkleg viðfangsefni í þágu
landsbyggðarinnar og þess fólks
sem þar býr heldur en með
þurrum áætlanagerðum, sem
rykfalla á skrifborðum kerfisins
svo að ekki sé talað um mark-
lausar yfirlýsingar án gerða.
Auðvitað er ekki allt hægt að
gera í senn — en ég er sann-
færður um það, að það mál er
hér hefur verið gert að umtals-
efni, er þess eðlis, að það hefur
þann kost að vera hvort tveggja
framkvæmanlegt og um leið
nauðsynlegt. Hér eiga Norðlend
ingar sjálfir að taka forystu,
sem ekki verður frá þeim tekin.
Valgerður Sverrisdóttir.
minn tilvonandi, sem er norsk-
ur, og ég, ætlum að fara að búa
heima á Lómatjöm. Ætlunin er
að byggja fjárhús í sumar og
snúa sér síðan alvarlega að bú-
skapnum.
Eigið þið þcgar einhvern bú-
stofn?
Já, við eigum tvo hesta, einar
tuttugu kanínur og nokkrar
kindur, en að sjálfsögðu ætlum
við að fjölga fénu í haust, ef
hluta fjárhúsanna verður lokið.
Hvað veldur því að ungt fólk
fer nú fremur út í búskap en
áður?
Hvað okkur viðvíkur þá
finnst okkur á allan hátt heil-
brigðara og mannlegra líf úti á
landsbyggðinni og þá allra helst
í sveitinni. Það er ánægjuleg
þróun, sem átt hefur sér stað
síðastliðin ár, þegar ungt fólk
hefur flutst í auknum mæli út
á land. Það eru loksins að opn-
ast augu Reykvíkinga fyrir því,
að það sé hægt að vera víðar en
í Reykjavík, en þó eru allt of
margir höfuðborgarbúar, sem
álíta einhverja eymd á lands-
byggðinni. Ég álít það mikið
landsbyggðarstefnu núverandi
ríkisstjórnar að þakka, hver
stefnubreyting er að verða með
þjóðinni í landsbyggðarátt.
Ilvenær vaknaði áhugi þinn
á stjórnmálum?
Hann kom alveg af sjálfu
sér, að mínum dómi. Það er
mikið pólitískt efni í fjölmiðl-
um og við það að fylgjast nokk-
uð með því, mynduðust mínar
ákveðnu skoðanir í landsmál-
um.
Hver eru brýnustu framfara-
mál í þinni sveit?
Þar vil ég fyrst og fremst
nefna rafmagnsmálin, sem eru
í miklu öngþveiti eftir ofviðrið
sl. vetur, þegar línan fór í rúst,
eins og kunnugt er. Það er ljóst,
að línan frá Fnjóská til Greni-
víkur er engan veginn tryggð
nema hún verði sett í jörð, þar
sem mikil ísingahætta er á
þessu svæði. Ástandið í síma-
málum er svipað, og þyrfti sím-
inn að komast í jörð líka. Að
mínum dómi er það rafmagnið,
sem fyrst og fremst krefst
skjótra úrbóta. Svo eru það
vegamálin. Við Höfðhverfingar
og Grenvíkingar sækjum mikið
af okkar þjónustu til Akureyrar
og vildum fá veginn þangað
meira uppbyggðan. Það hefur
þó miðað í rétta átt, segir Val-
gerður Sverrisdóttir að lokum
og þakkar blaðið viðtalið. □
MINNING
Slígrún Stígsdóttir
FÆDD 11. ÁGÚST 1905. - DÁIN 22. MAÍ 1974.
Stígrún mín.
Ekki kom það mér á óvart,'
þegar sonur þinn hringdi í mig'
á miðvikudaginn 22. maí . og. 'i
tjáði mér að þú hefðir kvatt
þennan heim þá um morguninn.
Við sem þekktum til, vissum að
þetta var besta lausnin fyrir
þig, en raunverulega finnst
starfsfélögum þínum og tnér að
þú sért enn hér á meðal okkar,
svo vel varst þú kynnt hér. Þú
varst búin að starfa hér hjá
sama fyrirtækinu síðan 1. sept-
ember 1954 og ég síðan 1955 svo
að okkar kynni hafa orðið mjög
náin og góð vinátta tekist milli
okkar. Það var sérstaklega gott
að vinna með þér og ég tel það
mikla gæfu fyrir mig að hafa
kynnst þér og unnið með þér.
Á stundum fannst mér þú svo
lítið hrjúf, en ég veit að það var
bara á yfirborðinu, innra með
þér bjó góð sál í sterkum lík-
ama, og sú hugsun að vilja
miðla öðrum og gera gott.
Það var alveg sama hvað ég
bað þig að gera, þú gast allt gert
og vildir allt gera. Ég er ekki
viss um að ég hafi verið nógu
nærgætin við þig undir það síð-
asta með því að biðja þig að
vinna svo mörg mismunandi
verk, en þá komu mannkpstir
þínir svo vel i ljós. Þú sást að
þarna vantaði vinnukraft og þá
fannst þér sjálfsagt að hlaupa
undir bagga. Þú kvartaðir
aldrei en sagðir bara: „Þetta
batnar“. Svo varstu vinnugefin
að í matartíma þínum hér sastu
og prjónaðir á þína nánustu og
aðra, sem nutu góðs af kærleik
þínum.
Þú varst líka mjög skemmti-
leg í viðræðum um hin ýmsu
málefni enda vel lesin og greind
og gast miðlað öðrum af þekk-
ingu þinni.
Það er ég viss um að þeir,
sem hafa þurft að leita ráða og
huggunar til þín, hafa farið frá
þér reynslunni ríkari. Mér er
minnisstætt er ég ræddi við þig
um vandamál, sem ég átti við
að stríða, þá klappaðir þú mér
og sagðir: „Þetta fer allt vel,
það birta öll él upp um síðir“.
Og svo er nú komið, Stígrún
mín, að þegar þú ert horfin okk-
ur starfsfélögum þínum þá eru
þín él á enda og þú komin til
bjartara og fegurra umhverfis
og búin að öðlast frið og ró.
Við vinnufélagar þínir send-
um þér kærar þakkir og biðjum
þér Guðs blessunar. Far þú í
friði, látna vinkona.
Ættingjum þínum sendum
við innilegar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning þín.
i Sofíía Halldórsdóttir.