Dagur - 08.06.1974, Page 6
6
Fj öldaframleiðsla íbúðarhúsa?
MessaS í Akureyrarkirkju
sunnudaginn 16. júní kl. 11
f. h. Sálmar: 23, 96, 179, 14,
521. — P. S.
Ferniingarbörn! Takiö eftir orð-
sendingu á öðrum stað í blað-
inu um mótið í Ólafsfirði og
Hólum í Hjaltadal.
K e p p ni um
Gunnars-bikar,
sem er 72 holu
keppni með
fullri forgjöf,
hefst þriðjudag
inn 11. júní kl.
Kappleikjanefnd.
i 18. —
Hjálpræðisherinn. Sam-
koman fellur niður á
sunnudagskvöldið.
Systrabrúðkaup: Hinn 2. júní
voru gefin saman í hjónaband
í Stærra-Árskógskirkju ung-
frú Elsa Jenný Halldórsdótt-
ir, Sólgörðum, Hauganesi, og
Ágúst Árni Stefánsson, Þóru-
i stöðum, Öngulsstaðahreppi.
Heimili þeirra verður að Aðal
stræti 66, Akureyri. Einnig
ungfrú Hafdís Helga Halldórs
dóttir, Sólgörðum og Eiríkur
Einar Eiríksson, Byggðavegi
141, Ak. Heimili þeirra verð-
ur að Tjarnarlundi 3 E, Ak.
Sama dag voru gefin saman
í hjónaband í Lögmannshlíð-
arkirkju ungfrú Sigurveig
Sumarrós Bergsteinsdóttir og
Gunnar Sigurður Björgvins-
son. Heimili þeirra verður að
Langholti 14, Akureyri.
Frá Náttúrulækningafélagi Ak-
ureyrar. Gjafir hafa borist frá
eftirtöldum aðilum í bygging-
arsjóð Heilsuhælisins í Skjald
arvík: Frá kvenfél. Baldurs-
brá kr. 25.000, frá Búnaðarfél.
Saurbæjarhrepps kr. 25.000,
frá kvenfél. Voröld Önguls-
staðahr. kr. 10.000, frá vel-
unnara félagsins kr. 6.000, frá
kvenfél. Vöku Blönduósi kr.
’ 5.000, frá Lionsklúbbi Ak. kr.
30.000, frá N. N. kr. 20.000, frá
kvenfél. Freyju Raufarhöfn
kr. 5.000, frá kvenfél. Ból-
staðarhlíðarhr. kr. 5.000, frá
! kvenfél. Ársól V.-Hún. kr.
5.000, og frá eftirtöldum
mönnum í Búnaðarfél. Öxn-
dæla: Þorsteini Rútssyni kr.
2.000, Ara H. Jósavinssyni kr.
3.000, Þór Þorsteinssyni kr.
2.000, Steini Snorrasyni kr.
I 2.000 og Halldóri Kristjáns-
syni kr. 2.000. — Þessum aðil-
um færir félagið alúðarþakkir
fyrir rausnarlegar gjafir og
hlýhug í garð félagsins. Enn-
fremur þakkar félagið öllum
þeim er studdu það á fjár-
öflunardegi þess fyrsta sunnu
dag í mars. — F. h. N.L.F.A.,
Auður Þórhallsdóttir gjald-
keri.
Bruðkaup: Sl. laugardag voru
gefin saman í Akureyrar-
kirkju brúðhjónin ungfrú
María Arnfinnsdóttir og Bald
ur Örn Baldursson skipa-
smiður. Heimili þeirra er í
Lögmannshlíð.
Takið eftir. Enn eru eftirtaldir
vinningar ósóttir í innan-
félagshappdrætti Hjálpræðis-
hersins: Nr. 273 klukkustreng
ur, nr. 178 karfa með mat-
vörum, nr. 268 peysa og nr.
375 peysa.
Leiðrétting. Guðmundur Hákon
arson, framkvæmdastjóri á
Húsavík heitir 11. maður á
A-Iistanum, en misprentaðist
í síðasta blaði Dags í tilkynn-
ingu frá yfirkjörstjórn og er
þetta hér með leið'rétt.
U.M.S.E. Hraðmót Ung-
mennasambands Eyja-
fjarðar, fyrri hluti, verð-
ur haldið í Árskógi
sunnudaginn 9. júní kl. 1.30
eftir hádegi.
Tómlæti og seiiiagangur liamla framkvæmdum
fÓRÐBijgSíNS
fsÍMIÉ
BYGGINGAFÉLAGIÐ Brúnás
á Egilsstöðum hefur um skeið
undirbúið fjöldaframleiðslu
íbúðarhúsa og ræddi blaðið það
mál við framkvæmdastjórann,
Vilhjálm Sigurbjörnsson, sem
jafnframt er fréttamaður blaðs-
ins á Egilsstöðum. Hann sagði:
Ég hef verið að berjast fyrir
því að fá fjárhagslega fyrir-
greiðslu við að setja hér upp
verksmiðju, er fjöldaframleiddi
húshluta. Fjármögnunin hefur
gengið báglega. En nú eru
sænsk fyrirtæki að kanna mögu
leika á að setja upp svipaða
verksmiðju í Reykjavík og þá
loks vöknuðu ráðamenn pen-
ingastofnana.
Við höfum, hjá Brúnási, kann
að málið í tvö ár og athuguðum
fyrst verksmiðjuframleidd hús
úr timbri. En þau hús reyndust
dýr og timbur hefur farið mjög
hækkandi. Fórum við erlendis
að leita að verksmiðju er hent-
aði til að framleiða létta og vel
þróaða húshluta úr steinsteypu
og fundum hana. Tryggðum við
okkur einkaleyfi á framleiðsl-
unni hér á landi, kaupum véla-
kost sem þarf og byggjum verk-
smiðjuna hér á staðnum. Kostn
Tveir framboðsiisfar
Framsóknarflokksins
V estf jarðakjördæmi.
Framboðslisti Framsóknar-
flokksins í Vestfjarðakjördæmi
við alþingiskosningarnar 30.
júní n. k. verður skipaður þess-
um mönnum:
1. Steingrímur Hermannsson,
fyrrv. alþm., Garðahreppi.
2. Gunnlaugur Finnsson,
bóndi form. Fjórðungssam-
bands Vestfirðinga, Hvilft,
Önundarfirði.
• 3. Ólafur Þórðarson, skóla-
stjóri, Súgandafirði.
4. Bogi Þórðarson, fyrrv. fram
kvæmdastj. Hraðfrystihúss
Patreksfjarðar, Kópavogi.
5. Jónas R. Jónsson, bóndi,
Melum, Strandasýslu.
6. Eiríkur Sigurðsson, bifvéla-
virki, ísafirði.
7. Áslaug Jensdóttir, hús-
móðir, Núpi, V.-ísafj.sýslu.
8. Bárður Guðmundsson,
dýralæknir, ísafirði.
9. Ólafur E. Ólafsson, fyrrv.
kaupfélagsstj., Króksfjarðar
nesi, Reykjavík.
10. Halldór Kristjánsson, bóndi,
Kirkjubóli, Önundarfirði.
aðaráætlunin hljóðar upp á 35
milljónir króna. Framleiðslu-
geta er 70—80 hús á ári. Þetta
er mjög þróuð framleiðsla, hús-
hlutarnir léttir, einangraðir og
frágengnir bæði utan og innan.
Við höfum lagt þessar áætl-
anir okkar og áform fyrir lána-
stofnanir syðra og þar hefur
málið verið í athugun svo mán-
uðum skiptir, en fjárfestingar-
sjóðir hafa verið ófáanlegir til
að taka nokkra endanlega af-
stöðu til málsins, enn sem kom-
ið er. Það er höfuðmarkmið okk
ar með þessu, að brjótast út úr
vítahring í byggingariðnaðin-
um, sem við erum í. í síðastliðin
50 ár hefur ekki orðið umtals-
verð breyting á byggingarhátt-
um íslendinga og mál að linni.
Fleiri en eitt fyrirtæki í Sví-
þjóð bjóðast nú til að koma upp
húsaverksmiðju í Reykjavík og
einnig bjóðast erlend fyrirtæki
til að flytja hingað til landsins
tilbúin timburhús, sem fram-
hald af Viðlagasjóðshúsunum.
Erlendir hafa kynnst því eftir
Heimaeyjargos, hve íslenskur
byggingariðnaður er vanþróað-
ur, en kaupgeta almennings
mikil.
En við erum vonsviknir yfir
því, hve mikið tómlæti hefur
ríkt á okkar viðleitni í þessu
efni og seinagangur í afgreiðslu.
Hins vegar virðast menn hlaupa
til handa og fóta þegar erlendir
menn vilja setja upp verk-
smiðju í Reykjavík og eru þá
fullir áhuga. Þeir hafa sent út
reynslulausan embættismann í
tæknimálum til að rannsaka
hvernig þessi byggingaraðferð
hentar okkur og sýnast ekki
víla fyrir sér að láta erlenda
aðila leggja undir sig íslenskan
byggingariðnað. □
Ný geðdeild á Akureyri
Suðurlandskjördæmi.
Kjördæmissamband Fram-
sóknarmanna á Suðurlandi sam
þykkti á fundi sínum sl. mánu-
dagskvöld eftirfarandi fram-
boðslista til þingkosninganna
30. júní n. k.
1. Þórarinn Sigurjónsson,
bústjóri, Laugardælum.
2. Jón Helgason, bóndi,
Seglbúðum.
3. Guðmundur G. Þórarinsson,
verkfræðingur, Reykjavík.
4. Ólafur Ólafsson, kaupfélags-
stjóri Hvolsvelli.
5. Ragnhildur Sveinbjarnar-
dóttir, frú, Lambey.
6. Guðni Ágústsson, verka-
maður, Brúnarstöðum.
7. Ingimar Ingimarsson,
sóknarprestur, Vík.
8. Sigurgeir Kristjánsson, for-
stjóri, Vestmannaeyjum.
9. Ólafur H. Guðmundsson,
bóndi, Hellulandi.
10. Ríkharð Jónsson, forstjóri,
Þorlákshöfn.
11. Eyrún Sæmundsdóttir, frú,
Sólheimahjáleigu.
12. Jóhann Björnsson, forstjóri,
Vestmannaeyjum.
FYRIR nokkru er tekin til
starfa ný geðdeild við Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri.
Þessi deild starfar ekki í húsa-
kynnum sjúkrahússins, heldur
er í sérstöku húsnæði úti í bæ,
eða að Álfabyggð 13.
Deildinni er þannig fyrir kom
ið að hún er rekin nánast eins
og einkaheimili og allir sjúkl-
ingar og starfsfólk vinna saman
í hóp og þar eru rædd vanda-
mál hvers og eins og málum
ráðið til lykta á hópfundum
eftir því sem kostur er.
Þá er einnig alger samvinna
um ræstingu og viðhald hús-
næðisins og eins er matseld að
nokkru leyti sameiginleg.
Þessi nána samvinna milli
sjúklinga og starfsfólks er ný-
breytni hér nyrðra, og henni
hefir ekki verið beitt utan
Reykjavíkur fyrr, en er algeng
orðin með nágrannaþjóðum
vorum.
Hin nýja deild rúmar 8 sjúkl-
inga og er það talinn æskilegur
fjöldi til að starfa saman í ein-
um hóp. Annars sækja fundi
með hópnum sjúklingar utan úr
bæ og er því á stundum nokkru
fleira á fundunum en vistföst-
um sjúklingum nemur.
Þessi nýja deild hefur farið
vel af stað og er þegar fullsetin.
Læknir deildarinnar er Bryn-
jólfur Ingvarsson. Annað starfs-
fólk er 4 hjúkrunarkonur (V2
starf hver), 3 sjúkraliðar (V2
starf), starfsmaður og starfs-
stúlka í fullu starfi hvort.
(Fréttatilkynning)
KVEÐJA
Snjólaug Jóhannesdóttir
FRÁ skáldalæk
FÆDD 16. MARS 1888. DÁIN 1B. FEBRÚAR 1974.
Hiín var dóttir dalsins fríða,
dalsins hinna háu fjalla,
bröttu, fögru berjahlíða,
sem börn sin heim úr fjarlœgð kalla.
Fæst í kaupfélaginu
Lífið laufblað sem eigi get
ljúfra minninga í orðum tjáð. —
ég leggja vildi Veit þó vina
að leiði Snjólaugar. — að veikindastríð
Stórbrotin, göfug, er á enda. —
kristin kona Þinn andi er frjáls.
lokið hefur langri ævi. Þakkir ég færi
Engin kona fyrir kynnin, traust þitt og trúnað
önnur en mín nióðir, og tállaust fas. —
er mér jafnkær. — Eitt ég veit,
Er ég sá þig er ævi lýkur
sjúka og þjáða, leiðir okkar
þótti mér, sem sæi liggja saman.
minnar móður mjúkan faðm.
Þá kosti sem fann ég
í fari þínu, 1 djúpum fjalladölum
fómfýsi, fegurð oft dyljast fögur blóm. —
og frjálsan huga. Þau anga oftast sætan
fann ég einnig við aftanklukknahljóm, —
hjá eigin móður. — er sólin signir landið
Ástúð var báðrnn og sendir gullin roða,
eiginleg. heilagt handabandið
Því ber ég nú himins og jarðar boða. ( Svafa Friðriksdóttir
harm í lijarta,