Dagur - 08.06.1974, Side 8
Bagu
Akureyri, laugardaginn 8. júní 1974
STO. /^V l . GULLSMIÐIB
DENTA- 1 /^'T SIGTRYGGÚR
SKEIÐAR >5^ \J & PÉTUR
/ AKUREYRI 1
bf
Hagstætt ár lijá Sambandinu
Á FIMMTUDAG hófst að Bif-
röst í Borgarfirði 72. aðalfundur
Sambands íslenskra samvinnu-
félaga. Fundinn sækja um 100
fulltrúar frá rúmlega 40 sam-
bandsfélögum, auk stjórnar
Sambandsins, framkvæmda-
stjórnar og allmagra gesta.
Formaður sambandsstjórnar,
Jakob Frímannsson, setti fund-
inn. Fundarstjóri var kjörinn.
Ágúst Þorvaldsson og Olafur
Sverrisson til vara.
Jakob Frímannsson flutti
skýrslu stjórnar og skýrði frá
viðfangsefnum hennar á liðnu
ári. Að því loknu flutti Erlend-
ur Einarsson forstjóri ýtarlega
yfirlitsskýrslu um reksturinn
árið 1973. Kom þar meðal ann-
ars fram, að miðað við aðstæður
reyndist árið hagstætt fyrir
Sambandið.
Tekjuafgangur ársins var 174
milljónir króna. Er þá búið að
færa tli gjalda opinber gjöld að
fjárhæð 79 milljónir króna,
vexti 217 milljónir króna og af-
skriftir eigna 145 milljónir
króna. Tekjuafgangi er ráðstaf-
að þannig, að 37 milljónir króna
eru endurgreiddar til kaup-
félaga og írystihúsa, 17 milljón-
ir króna eru greiddar kaupfélög
unum sem vextir af stofnsjóði,
en 31 milljón króna er færð á
höfuðstól, sem söluverð eigna
umfram bókfært verð. Endan-
leg niðurstaða rekstrarreikn-
ings verður þá hagnaður aö fjár
hæð 89 milljónir króna.
Rekstrarkostnaður hækkaði
mikið á árinu, að nokkru vegna
aukinna umsvifa í rekstrinum,
en þó fyrst og fremst vegna
þeirra míklu hækkana, sem
urðu á svo til öllum rekstrar-
liðum. Laun, hækkuðu um
28,6%, vaxtagreiðslur um 47,7%
og opinber gjöld um 38,6%.
Heildarvelta Sambandsins
1973 nam 11.253 milljónum
króna og jókst um 3.744 milljón
ir frá árinu á undan eða 49,9%.
Er það mesta aukning á umsetn
ingu, sem orðið hefur undan-
farin ár.
Á síðastliðnu ári var unnið að
ýmsum meiriháttar framkvæmd
um á vegum Sambandsins. Hald
ið var áfram vélvæðingu í Sam-
bandsverksmiðjunum á Akur-
eyri, byggingu fóðurblöndunar-
stöðvar við kornturnana í
Sundahöfn og nýrrar birgða-
stöðvar við Elliðavog. Vélar og
tæki voru keypt fyrir innflutn-
ingsdeild og hina nýju kjötiðn-
(Framhald á blaðsíðu 4)
GÓÐHESTAKEPPNI og kapp-
reiðar Léttis voru háðar á Eyja-
fjarðarárbökkum annan í hvíta-
sunnu. Veður var mjög hag-
stætt, hægviðri en sólarlaust.
Margt fólk lagði leið sína fram
á mótssvæðið, bæði ungir og
aldnir.
Talið er, að á annað þúsund
manns hafi komið á mótið og
munu fáar íþróttagreinar geta
státað- af slíkri aðsókn, og leiðir
þetta hugann að því, hve.hesta-
menn búa hér við skarðan hlut
miðað við önnur félög í bænum.
Mótið hófst stundvíslcga kl. 2
með keppni alliliða gæðinga, og
voru 19 hestar skráðir til leiks.
Dórharar voru: Árrhann Gunn-
arsson og Stefán Friðgeirsson
frá Dalvík, Andrés Kristinssön,
Kvíabekk, Ólafsfirði, Hjalti
Jósepsson, Hrafnagili og Jó-
hann Ingólfsson, Uppsölum.
Dæmdu þeir eftir riýju spjalda-
kerfi L. LI. og virtust áhorfend-
ur ánægðir með þessa ný-
breytni.
2. Tígull ........... 204,5 stig
17 vetra, jarpskjóttur, eyf.
Eig. Þorvaldur Pétursson.
Knapi var eigandinn.
3. Stjarni .......... 201,0 stig
11 vetra, bleikur, húnv.
Eig. Alfreð Steinþórsson.
Knapi var eigandinn.
4. Stjömufákur .... 190,0 stig
7 vetra, brúnn, eyf.
Eig. Guðmundur Snorrason.
Knapi var eigandinn.
5. Skjóni ........... 189,5 stig
12 vetra, brúnskjóttur, eyf.
Eig. Árni Hermannss. Bægisá
Knapi Reynir Hjartarson.
í flokki klárhesta með tölti
voru skráðir 18 hestar. Þessir
urðu efstir:
1. Ýri ............ 209,0 stig
7 vetra, rauðblesóttur, eyf.
Eig. Árni Magnússon.
Knapi Ragnar Ingólfsson.
, lð alhliða- gæðingar mættu .til .
leiks. Bestir alhliða gæðingar
urðu:
1. Óðinn ...............210,5 stig
| 8 vétra, brúnn, skagf.
j ■ Eig. Hildur Gunnarsdóttir. _ ,
I Knapi Ragnar Ingólfsson. Þrír fljótustu skeiðliestarnir, frá hægri: Oðinn, Hrímfaxi og Glanni
SMATT & STORT
MARGT BER BRÁÐAN AÐ
Það ber margt bráðan að á
þessu vori. í fyrsta lagi sjálft
vorið, sem kom snemma, ef svo
má taka til orða. Og vormánuð-
ir voru hlýrri hér á landi en
áður þckktist á þessari öld, eða
svo reyndist það á Akureyri og
í Reykjavík. Bændúr „misstu
grasið upp“, eins og einn þeirra
orðaði það, svo að hann hafði
ekki tök á að bera áburðinn á
allt túnið sitt, áður en kominn
var svo mikill gróður, að hann
sá sér ekki fært að fara um það
á vélknúnum tækjum. Svo kom
undirbúningur alþingiskosning-
anna með litlum fyrirvara, en
stjórnmálin látum við lönd og
leið í þessum þætti í dag.
KONUNGSKOMAN
Fyrir nokkru fréttist af opin-
berri heiiiisókn Ólafs 5. Noregs-
konungs, en þær fréttir voru
nær drukknaðar í stórviðburð-
um innanlands, fyrst í stað. En
konungur kom til landsins, sté
á land i Rcykjavík árdegis 5.
júní og kom hingað til Akur-
eyrar 6. júní. Akureyringar
urðu höndum seinni að búa til
konungsveg, svo sem þó hefði
verið við hæfi og gert var í
fyrrasumar er Danadrottning
heimsótti Norðurland. Einnig
urðu bæjarbúar of seinir að lag
færa eitt og annað í bænum,
sem konungskoman hefði þó átt
að örva. En ekki verður það aft-
ur tekið, og veröur næst að
stefna að úrbótum fyrir þjóð-
hátíð.
LÍTIL TJÖRN
Óþverrapollur, sagði félagi
minn, er við ókum framhjá
lítilli tjörn við fjölfarinn veg.
Mér þótti tjörnin falleg og urð-
um við ekki á eitt sáttir. Sagð-
ist ég þá snúa við og sanna mál
mitt og ókum við að tjörninni
2. Stormur ......... 208,5 stig
9 vetra, jarpur, rang.
Eig. Karl Ágústsson.
Knapi Guðmundur Karlsson.
3. Þristur ......... 202,5 stig
13 vetra, jarpstjörnóttur, eyf.
Eig. Gunnar Malmquist.
Knapi var eigandinn.
4. Stjarni ......... 200,0 stig
8 vetra, rauðstjörnóttur, eyf.
Eig. Þórey M. Vilhelmsdóttir.
Knapi Páll Alfreðss. (Bls. 3)
á ný. Þar benti ég honum á
rauðhöfða-andarhjón og sat koll
an á hrerðrinu á lítilli þúfu, sem
var liálffalin í sefinu. Rauð-
lröfða-endur eru fallegir fuglar.
Þá voru fimm jaðrakanar að
baða sig og hafði þessi félagi
minn ekki heyrt þá fuglategund
nefnda áður. Á tjörninni sýntu
sjö óðinshanar. í fjörunni lriupu
tveir sendlingar og nokkrir
stelkar gullu hátt. Hvítur karri
renndi sér niður á rnelhól hjá
tjörninni og ropaði hátt. Tvær
villigæsir voru við það tjarnar-
liornið, sem fjærst var og nokkr
ar kríur böðuðu sig í tæru vatn-
inu. Eru þá enn ótaldir spóar,
lóur og hrossagaukar. Eftir
þessu hafði ég nú ekki tekið
áður, sagði kunningi minn, sem
oft fer þó þessa Ieið.
KRUMMI
Margar sögur eru til af
krumma, vitsmunum hans og
hrekkjum. Bóndi einn, dýravin-
ur, sagði blaðinu: Eyfirskur
hópur skólaunglinga var nýlega
á ferð á Suðurlandi. Hrafns-
hreiður var skammt frá nætur-
stað og ungar í því. Strákar
murkuðu lífið úr ungunum með
grjótkasti. Þetta vakti réttmæta
gremju ýmsra úr hópnum.
Stundum er talið, að hrafnar
vinni til óhelgi með því að leggj
ast á unglömb, en sjaldgæft er
það. Það var trú margra og er
enn, að það só ógæfumerki að
drepa lirafna. Víst er, að mönn-
um ber skylda til þess að virða
dýralífið og umgangast náttúr-
una í samræmi við það.
FRJÓSÖM ÆR
Fimm vetra gömul ær á Björg-
um í Arnarneshreppi, er með
aíbrigðum frjósöm, sem nii skal
greina. Ársgömul var hún tví-
lembd, síðau þrílembd, þá tví-
lembd og tvö síðustu árin fjór-
lembd. Hún er búin að eignast
15 lömb og skila eiganda sínum,
Birni Gestssyni, góðum arði,
14 allvænum haustlömbum.
EN GRASIÐ VEX
En grasið grær og vex, og það
er vel á vegi statt. Spretta á
ræktuðu landi virðist ætla að
verða mikil. Aðeins á Norð-
austurlandi er nokkurt kal í tún
um, en nákvæmar fregnir liefur
blaðið þó ekki fengið af því og
mun það ekkert í líkingu við
kalárin. Úthagi og heiðalönd
eru sögð vel gróin og alveg
óvenjulega gróin, nriðað við árs
tíina.
Þrír cfstu klárliestarnir, frá hægri: Ýri, Stormur og Þytur.